Tíminn - 26.11.1991, Page 6

Tíminn - 26.11.1991, Page 6
6 Tíminn Þriðjudagur 26. nóvember 1991 Timinn MALSVARI FRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin i Reykjavik Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Gíslason Aöstoöarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar Birgir Guömundsson Stefán Ásgrimsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Skrifstofur:Lyngháls 9,110 Reykjavfk. Sími: 686300. Auglýslngasími: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, litstjóm, fréttastjórar 686306, (þróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,-, verð i lausasölu kr. 110,- og kr. 130,- um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Hörmuleg slys Sjóslysið í Grindavík á föstudagskvöld í fyrri viku er hörmulegur atburður sem þjóðin öll finnur til og tekur af einlægni þátt í sorg þeirra sem nú eiga um sárt að binda. Fimm dugandi sjómenn, sem að meðalaldri voru innan við þrítugt, létu líf sitt, flestir Qölskyldumenn, eigin- menn og feður margra barna. Slys þetta sýnir að enn er sjómennska áhættusamt starf, þrátt fyrir góð skip og vandaðan búnað þeirra og öfluga björgunarstarfsemi í landinu sem haldið er uppi af ýms- um samtökum og stofnunum. Hvað sem liður tæknilegum framförum, sem í sjálfum sér eru varnaðaraðgerðir, og skipulagðri slysavarna- og björgunarstarfsemi sem svo oft hafa sannað gildi sitt, hefur auðvitað ekki verið komið á neinu allsherjar slysa- varna- og björgunaröryggi í landinu. Á því sviði er alltaf ástæða til að gera betur án þess að vanmeta það sem áunnist hefur. Náttúruaðstæður valda því að margs konar slysahætta er fyrir hendi í landi okkar. Hún er ekki bundin við sjó- ferðir eingöngu eða loftferðir, heldur einnig ferðir um landið sjálft og þá atvinnu sem á landi er unnin. Á íslandi ber slys oft brátt að, eða menn ofurselja sig hættum sem þeir vanmeta, eins og illa undirbúnar hálendisferðir og fyrirhyggjulaus vetrarakstur eru til vitnis um. Þótt hörmulegur atburður í Grindavík verði tilefni al- mennrar hugleiðingar um slysahættu á íslandi og varnir og viðbúnað gegn henni, dvelst hugur þjóðarinnar eigi síður á sorgarstundu hjá fjölskyldum ungu sjómann- anna. Þær eiga samúð okkar allra. Ferðamál, byggðamál Þrír alþingismenn, Jón Helgason, Guðmundur Bjarna- son og Stefán Guðmundsson, flytja tillögu til þingsálykt- unar um eflingu ferðaþjónustu. í greinargerð með tillögunni benda þeir á að verkefni í þróun ferðaþjónustu séu að vísu margvísleg, en í tillögu- greininni leggja þeir eigi að síður til að ríkisstjórnin geri athugun á því hvaða framkvæmdir séu „brýnastar" og skili mestum árangri án þess að slík athugun sé látin breiða sig út yfir öll svið ferðamála. Flutningsmenn halda því fram að slík athugun á hinum brýnustu verkefnum í ferðaþjónustu þurfi ekki að taka langan tíma né miklar skýrslugerðir, því að þarna sé um afmarkað svið að ræða sem auðvelt ætti að vera að ein- beita sér að. Flutningsmenn minna í þessu sambandi á uppbyggingu ferðaþjónustu bænda sem átt hefur sér stað undanfarin ár og nýtur vinsælda og viðurkenningar. Má af greinar- gerð ráða að þeir telji það til brýnna verkefna að styrkja m.a. þessa tegund ferðaþjónustu. Þeir láta í Ijós ótta um að fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um að svipta Byggða- stofnun fjárráðum komi niður á ferðaþjónustu bænda, auk þess sem skerðing á fjárhagsgetu Framleiðslusjóðs landbúnaðarins verki í sömu átt, en sá sjóður hefur veitt mikilvægan stuðning í uppbyggingu ferðaþjónustu bænda. Hér er bent á atriði sem Alþingi og ríkisstjórn ber að gefa fullan gaum að. Efni þessarar tillögu er í senn ferða- mál og byggðamál. Dagsbrún var með félagsfund t máli alþýöunnar og þar tala menn innar sýni og sanni aö þeir, sem aö síöustu viku þar sem stjórn félags- á tæpitungulausri íslensfcu. Svo þessari stjóm standa, Kfi í ein- ms fekk heimild félagsmanna til bar viö sl. laugardag að Sóiveig angruðum heimi og að hin ósýni- að boða verfcfall. Fjölmiölar íýlgj- Pétursdóttir, þingmaður Sjálf- lega hönd þreifi fyrir sér einhvers ust aö sjálfsögðu meö þessum fé- stæðisfiofcksins, var í umræöu- staðar annars staðar en á púisi lagsfundi og sögöu frá honum. þætti hjá Páli Heiöari Jónssyni í þjóðlífsins. Sjálfur forsætisráö- Dagsbrúnarfundir hafa lengi þótt ríkisútvarpinu og notaöi þar tæfci- herrann hefur gefiö út þá yfirlýs- fréttaefni, ekki hvað síst þegar færið til að gagnrýna umfiöliun ingu að fcjarasamníngar séu efcki bUfcur eru á lofti í fcjaramálum ftolmiðla um Dagsbrúnarfundinn. hluti af þeim heimi, sem rdds- eins og nú. Þaö var því eölilegt aö Þessi þingmaÖur Sjálfstæðis- sfiórnin lifi í, og að fyrsta snert- pressan og ljósvafcamiðlar fylgdust flofcksins kvað það ótæfct aö senda ingin við heim fcjaramálanna veröi grannt með því sem þar fór fram. út brat úr ræöum manna sem efcki iýrr en aðilar á hinum ftjálsa Einn þeirra, sem fcvöddu sér bölvuðu og rögnuðu, og aö það vinnumarfcaöi verði búnir að hfjóðs á Dagsbrúnarfundinum, var væri orðið vandhfað þegar venju- ieggja línurnar. Þannig ætö Árni Jdhannsson, verkamaður i legt fjöiskyldufólk gæti ekfci látiö óbreyttum þingmanni að vera vor- Reyfcjavík, og hélt hann hressilcga bömin sín horfa á sjónvarp án kunn, þó honum þyki óþægilegt og tölu um „fcúlusukfc" hjá Reyfcja- þess að þau yrðu vitni að slíkum óheppilegt fyrir barnauppeldi yíkuihorg og sttthvað fleira sem munnsöfnuöi. heimiUsins aö horfa á sjónvarps- honum þótti ástæða til aö minna Efcki er að efa að þingmaðurinn útsendingar úr kjaramáiaheimi á, vegna þess að upphafist hefur á hafi í flýti signt sig og sína fjöl- veritamanna. ný söngurinn um aö efcki sé hægt skyldu, eför að sýnt var frá ræðn- Það, sem þó er verst við þessa að hækka kaupíð h)á verkafólki. höldunum hjá Dagsbrún, og lofað stöðu, er það, að hversu vel sem Kjarninn í ræðu Ama var sá, að á Guð fyrir aö vera eldri eins og þetta góðborgaramir í Sjálfstæðis- meðan bruðlað er og sukkað út og fólk. Þá æltu heimilismenn að flokknum reyna að loka sig frá suður í þjóðfélaginu og miiljarðar hafa verið undir það búnir að horfa heimi alþýöunnar, kemur að því stópta um hendur eins og ekkert á almennilegt sjónvarpsefni á ný, íyrr en seinna, miðað við núver- sé, þá er sagt við þá Dagsbrúnar- s.s. stríðsfréttamyndir frá Júgó- andi sljómarstefnu, að þessum menn að ef þeir fál meira en 40-50 slavíu eða jafnvel eitthvað enn heimum lýstur saman. Dagsbrún þúsund í kaup á mánuðí fari þjóÖ- œeinlausara, eins og t.d. hvernig er þegar komín meö veritfafis- félagíð á hausinn „með tvöfóldum Jenna tekst með klóldndum að heimild og það á við um nofckur hraða hljóðsins“, svo notuð séu höggva sundur sfcottiö á Tbmma önnur vericalýðsfélög útt á landi. orð Araa- eftir að hafa efcið yfir hann á garð- Brjótist rífcisstjómin og stjómar- siáttuvél og harið hann í haustnn liöamir efcid út úr fflabeinstumin- Hrílíflir ctíll meö straujámi. um fljótlega, endar meö því að J w þetta markvissa aðgerðaleysi leiðir Dagsbrúnarfundir eru ekfci «láIf<rf»Aícf!Atrlrt<r til þess að stéttarféiög verða knúin sunnudagaskóK og þar er ræöu- ojdlis lÆUlMtURhur- til að grípa til aðgerða. Átök á stíll manna hijúfur eins og tilvera Ilttt — heill hRinttlf vinnumarfcaði eru eldd tíl þess félagsmanna. En stiIKnn er út af fvrir SÍÖ falKn að efla heUdarhag lands- hressilegur og þar hefur tíðkast að y ” manna, og einmitt af þeim sökum tvinna saman blótsyrðum, ef svo Stjóraarandstaðan hefur verið að er tveggja-heima hugsunarháttur ber undir, þegar menn kggja gera því skóna aö undanfömu að sjálfstæðismanna stórhættuleg áherslu á mái sitt Þar tala menn 4 afsfciptaleysisstefna ríkisstjómar- h'fsspefci. Garri VITT OG BREITT Þjóðhollt bruðl Hættið að spara og farið að bruðla, er boðskapur Bush Bandaríkjafor- seta til landa sinna, en hann hefur eins og margir aðrir þungar áhyggj- ur af óttalegri deyfð í efnahagslíf- inu. Þar vestra halda verðbréf og fasteignir áfram að lækka í verði og þar sem almenningur heldur að sér höndum í eyðslusemi dregur það úr eftirspurn og efnahagslægðin dýpkar og enginn kann ráð til að snúa dæminu við. Ástandið er hvergi nærri bundið við Bandaríkin, því að í mörgum iðn- og peningaveldum er við svip- aðar raunir að stríða. Offramleiðsla og offramboð á fjölmörgum sviðum eykst í öfugu hlufalli við kaupget- una og framboðið á peningamark- aði flækir lánastofnanir inn í það vandræðaástand, að ekki er bruðlað nóg. í neysluþjóðfélagi er það nefnilega engin dyggð að spara; þvert á móti, því meira sem eytt er og spennt því betra, því það eykur hagvöxtinn. Og það eru ótrúlega margir, sem hafa hag af því að bruðlið, óhófið og óráðsían sé sem mest, því hófsemd dregur úr athafnaseminni og þar með gróðanum. Einkaeyðsla Þjóðarleiðtogar, aðrir en sá banda- ríski, boða þó yfirleitt ekki að óhóf sé í heiðri haft og að fólk eigi að eyða og spenna langt fram yfir þarf- ir og efnahagslega getu. En það eru aðrir aðilar, sem eru útfarnir í þeirri kúnst að boða óráð- síu, og þreytast aldrei á að heimta opinbera peninga í þau verkefni, sem þeir ætla sjálfir að græða á. Stundum er kröfugerðin á hendur miðstjómarvaldinu falin, en fyrir kemur að svo mikið liggur við að láta það opinbera bruðla með al- mannafé til að halda uppi starfsemi fyrirtækja, að sagt er berum orðum að það verði að framkvæma þetta og hitt til að við getum grætt, og verður þá eyðslan aðalatriði, en notagildi þess, sem borgað er fýrir, lítilmótlegt. Að eyða eyðslunnar vegna er nákvæmlega það sem Bush forseti brýnir fýrir sínu fólki, og það er einmitt það sem fram- kvæmdastjóri nokkur sagði í ríkis- sjónvarpið nýverið, þegar hann ít- rekaði verktakakröfuna miklu um að byggð verði handboltahöll á ís- landi. Óheiðarlegir menn og skýjaglópar halda því fram að risahúsið eigi að byggja fýrir íþróttimar, eða íþrótta- unnendur, eða íþróttaheiður, eða íþróttaæskuna eða einhverja hand- boltastráka, sem allir eiga að vera svo hreyknir af eins og handritun- um og tæra loftinu á hálendinu. En það em verktakar sem þurfa á byggingunni að halda og engir aðr- ir, því eitt af því marga, sem okkar fámenna þjóð getur vel verið án, er risavaxin heimsmeistarakeppni í nánast hverju sem er. Opinber eyðsla En framkvæmdastjórinn í sjón- varpinu sagði það sem allir eiga að vita. Það eru svo lítil verkefni fram- undan hjá verktökum í byggingar- iðnaði að við bókstaflega verðum að byggja heimsmeistarahöll. Síð- asta undrið á þeim vettvangi er að reisa tvo risastóra skúra við Laug- ardalshöllina og hrúga áhorfenda- bekkjum í þá. Kostar skít á priki, 400 milljónir eða svo. (Fyrsta kostnaðaráætlun). Viðbygging heitaveitugeymanna á Öskjuhlíð átti að kosta eitthvað svipað, þegar til þeirrar fram- kvæmdar var stofnað. Verktakar og málaliðar þeirra svara öllum athugasemdum eins og þeim, sem hér eru settar fram, með því að ásaka gagnrýnanda um að hann sé á móti íþróttum, heil- brigðri æsku og öliu því sem til framfara má horfa. Verður að taka því eins og öðrum hundsbitum. Handboltaborgin er aðeins ein af mörgum framkvæmdakröfum, sem settar eru fram til að útvega óþarflega mörgum og fáránlega tæknivæddum verktökum verk- efni, sem greidd eru úr vösum skattborgara. Eitt af því fáa, sem tæknikratar fara sparlega með, eru kostnaðar- áætlanir. Þegar út í framkvæmd- irnar kemur er aftur á móti ekkert sparað. En það er komið upp mynstur, sem hægt er að reiða sig á hvað varðar kostnað við opinberar stór- byggingar. Þær eru fjórum sinnum dýrari en fyrstu kostnaðaráætlanir hljóða upp á. Flugstöð, Perla, ráð- hús og nú síðast viðgerðir á Þjóð- leikhúsi. Að lappa upp á 40 ára gamalt hús fyrir tvo milljarða er svo ævintýra- legt að það er ekki nema þegar höf- uðsnillingar eins og Ámi Johnsen og Svavar Gestsson leggja saman með atfýlgi húsameistara ríkisins að hægt er að hífa hagvaxtarstigið upp svo um munar og tífalda kostnað miðað við áætlanir. Og allt er það gert fyrir leiklistina og menninguna, þarf ekki einu sinni að nefna verktaka á nafn í því sam- bandi. Til að púkka undir athafnalífið þarf annars að bruðla með miklu fleira en byggingaframkvæmdir á vegum skattborgaranna og nú þeg- ar sú sæla jólakauptíð gengur í garð, þarf varla að æsa upp kaup- æðið. En ef ekki gengur sem skyldi, getur Davíð tekið upp hætti Bush og hvatt þegna sína til að eyða nú og spenna sem aldrei fyrr, og getur bent á sitt góða fordæmi í Tjöm- inni og á Öskjuhlíð. Geri Bush bet- ur. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.