Tíminn - 24.12.1991, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 24. desember 1991
Tíminn 15
Til
banka og sparisjóða
Lokun
2. janúar
ogeindagar
víxla.
Vegna áramótavinnu verða
afgreiðslur banka og sparisjóða
lokaðar fimmtudaginn
2. janúar 1992.
Leiðbeiningar um eindaga víxla
um jól og áramót
liggja frammi í afgreiðslum.
Reykjavík, 17. desember 1991
Samvinnunefnd banka og sparisjóða
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNID ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Landsbyeeðar-
ÞJQNUSTA
fyrirfólk, stofnanir og
fyrirtæki á landsbyggðinnú
Pöntum varahluti og vörur.
Samningsgerð, tilboð í
flutninga.
Lögfræðiþjónusta, kaup og
sala bifreiða og húsnæðis.
Okkur er ekkert óviðkomandi,
sem getur léttfólki störfin.
LANDSBYGGÐ HF
Ármúla 5-108 Reykjavík
Simar 91-677585 & 91-677586
Box 8285
Fax 91-677568 • 128 Reykjavík
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hita-
veitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í spjald-
og kúluloka.
Um er að ræða kúiuloka í stærðum DN 200 til
DN 600 mm, alls 23 stk. og spjaldloka í stærðum
DN 300 til DN 800 mm, alls 37 stk.
Lokana skal afhenda í apríl og maí 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
4. febrúar 1992, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
Arngrímur Bjarnason
f.v. adalfulltrúi
Byggðavegi 84, Akureyri
veröur jarðsunginn föstudaginn 27. desember
13.30.
Fyrlr hönd fjölskyldunnar
Ásta Friðriksdóttir
frá Akureyrarkirkju kl.
Dorothy hlynnir að sjúklingunum sínum, 130 sjúkum og særðum svönum, sólarhringinn um
kring og er kölluð Florence Nightingale svananna við Thames.
Hún stofnaði svana-
spítala fyrir spariféð!
Fyrir tíu árum var Dorothy Bee-
son við fuglaskoðun á fiskveiði-
tímanum þegar hún rak augun í
svan með öngul fastan í hálsin-
um. Hún komst síðar að raun um
að svönum á Thames hafði fækk-
að úr 1300 á sjöunda áratugnum
í innan við 250 1987. En þetta
eina atvik varð til þess að Dorothy
fór að færa sjúka svani í bakgarð-
inn heima hjá sér. Að því kom að
litli garðurinn hennar var orðinn
aðsetur um 80 veikra svana og
fyrir tveim árum ákvað Dorothy
að selja húsið sitt og taka út líf-
trygginguna sína til að byggja
fyrsta álftasjúkrahúsið í Bret-
landi.
í samvinnu við dýralækni á
staðnum tók hún að sér alla svani
sem höfðu orðið fyrir blýeitrun,
bótúlíneitrun og meiðslum
vegna hrekkjabragða. 1985 var
hún orðin svo þekkt fyrir þetta
miskunnsama starf að hún hlaut
viðurnefnið „Florence Nighting-
ale svanaheimsins".
Dóttir hennar Melanie, sem býr
í næsta húsi, hjálpar henni og
sömuleiðis nýtur hún aðstoðar
fimm sjálfboðaliða í hlutastarfi
og fjöldans alls af björgunarlið-
um víðs vegar um London.
Vinnuálagið á Dorothy er enda-
laust. Alla sjö daga vikunnar, frá
kl. 6.30 á morgnana til miðnætt-
is, tæmir hún tjarnir, hreinsar
þær, fyilir þær, matar sjúklingana
og gefur þeim lyf og byrjar síðan
upp á nýtt. Hún er líka á sólar-
hringsbakvakt ef neyðartilfelli
ber upp á.
Fyrr á þessu ári var griðastaður
svananna skráður sem góðgerða-
stofnun, en þrátt fyrir það er það
fjárhagsleg leikfimisæfing að
reka hann. Árlegur rekstrar-
kostnaður er um 22.000 sterl-
ingspund og er um helmingurinn
af því greiddur með gjafafé. Af-
ganginn segir Dorothy að „væng-
ir og bænir" þurfi að sjá um. Með-
al gefenda er Michael Caine sem
er áhugasamur stuðningsmaður
svanagriðastaðarins, og stór-
markaðirnir á staðnum gefa
henni fúslega gamalt brauð og
grænmeti til að bæta upp
mataræði svananna.
„Svanir færa mér mikinn frið,“
segir Dorothy. „Jafnvel í dauðan-
um eru þeir svo virðulegir."
Hér gerir Dorothy að sárum skjólstæðings síns.