Tíminn - 23.01.1992, Side 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 23. janúar 1992
Utanríkisráðherra segir málflutning bændasamtakanna hræðsluáróður sem sé nýtt dæmi um heims-
endaspá. Jón Helgason, alþingismaður og formaður Búnaðarfélags Islands:
Telur hann landbúnaöar-
ráðhevra fara með bull?
Utanríkisráöherra, Jón Baldvin
Hannibalsson, sagði á bændafundi á
Hvolsvelli á þriðjudag að málflubn-
ingur bændasamtakanna væri
hræðsluáróður og nýtt dæmi um
heimscndaspá. Jón Helgason, alþing-
ismaður og formaður Búnaðarfélags
íslands, segir að með þessu hljóti ut-
anríkisráðherra að telja að landbún-
aðarráðherra hafa farið með vitleysu
Menntamálaráðherra segirfram-
haldsskólann í kreppu og vill gera
breytingar á skipulagi hans:
Fjöldatakmark-
anir í fram-
haldsskóla?
„Ég tel að við þurfum að kanna
til þrautar hvort við höfum
gengið alveg rétta braut með því
að galopna framhaldsskólann
fyrir öllum,“ sagði Ólafur G.
Einarsson menntamálaráðherra
í samtali við Tímann. Ólafur
sagði að sér fyndist koma til
greina að námsárangur ráði
hveijir verða teknir inn í fram-
haldsskólana.
Menntamálaráðherra skipaði
fyrir stuttu starfshóp sem á að
fara yfir einstök atriði í fram-
haldsskóla- og grunnskólalög-
gjöf. Starf hópsins er skoðað
sem undirbúningsstarf og fyrir-
hugar menntamálaráðherra að
skipa síðar formlega nefnd til að
skoða nánar ýmsa þætti í rekstri
framhaldsskólans.
Ólafur sagði á Alþingi í haust að
framhaldsskólinn væri í kreppu.
Ólafur sagði að kreppan stafaði
af því að honum hefði verið gert
að taka við öllum sem þangað
vilja komast. Nemendunum
Ijölgaði stöðugt án þess að hon-
um sé gert mögulegt að bregð-
ast við þessu með viðunandi
hætti.
„Ég vil láta kanna sérstaklega
hvort og þá hvernig við getum
lækkað stúdentsaldurinn og
komið honum niður í það sem
hann er hér í nágrannalöndun-
um, þ.e. að stytta hann um eitt
ár. Á þetta verður litið í sam-
hengi við grunnskólann," sagði
Ólafur. -EÓ
þegar hann hafl tekið undir þær efa-
semdir sem bændasamtökin hafa sett
fram um ágæti þeirra GATT-samn-
ingsdraga sem nú liggja fyrir.
,Jón Baldvin Hannibalsson virðist
ekki telja að greinargerð Ketils Hann-
essonar um áhrif GATT- samningsins
á íslenskan landbúnað, sem reyndar
landbúnaðarráðherra tók að flestu
leyti undir á Alþingi, sé á rökum reist
Hann telur það þá vitleysu sem land-
búnaðarráðherra var þar að fara með,“
sagði Jón Helgason, alþingismaður og
formaður Búnaðarfélags íslands, í
samtali við Tímann.
Jón Helgason sagði ennfremur að
hann hefði óskað eftir því á fundi ut-
anríkis- og landbúnaðamefnda, að fá í
hendur þau gögn sem utanríkisráðu-
neytið hefur notað til að meta samn-
Jón Helgason
inginn og meta stöðu Islendinga mið-
að við samningsdrögin. ,T>að var
reyndar viðskiptaráðherra, sem var
staríandi utanríkisráðherra þá, en
hann virtist nú ekki vera mikið inn f
málunum, en lofaði þó að senda gögn-
in, en ég hef ekki fengið þau. Eg hef
ekki fengið skýringar á því, en þegar
ég heyrði að utanríkisráðherra var far-
in að vitna í þá pappíra, þá ftrekaði ég
í morgun (í gær) að ég fengi þessi
gögn, en enn hefur ekkert gerst. Þetta
eru vægast sagt mjög undarleg vinnu-
brögð og því á ég erfitt með að meta
þessar yfirlýsingar utanríkisráðherra,
þar sem ég hef ekki þau gögn í hönd-
unum sem hann leggur til grundvall-
ar,“ sagði Jón Helgason að lokum.
-PS
Búast má við að um 300 tonn af fatnaði berist Kúrdum í írak. Jónas Þórisson,
framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar:
Miklu meira safnaðist
en við bjuggumst við
„Það er alveg öruggt að það hefur aldrei verið safnað eins miklum
fatnaði á íslandi á eins skömmum tíma og núna. Þetta eru fjallháir
staflar — vafalaust fleiri hundruð þúsund flíkur,“ sagði Jónas Þór-
isson, framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, þar sem fólk
er nú nánast að drukkna í flóði af fatagjöfum landans. „Þetta er þeg-
ar orðið svo miklu meira en við höfðum nokkru sinni látið okkur til
hugar koma,“ sagði Jónas í gær. En þá var ennþá ekkert vitað hvað
von væri á miklu. Fatasendingar utan af landi voru þá bytjaðar að
streyma inn í stórum stíl.
Vitað er að Siglfirðingar einir höfðu
sent inn vel yfir 2 tonn af fatnaði.
Með álíka gjafmildi annarra íslend-
inga gæti Hjálparstofnun borist allt
að 300 tonn af fatnaði (c.a. hálf miljj-
ón flíkur) áður en upp er staðið. „Eg
má nú tæpast hugsa til þess, því hér
er allt að fyllast og allt húsnæði að
springa utan af okkur," sagði Jónas.
Fyrsta fatasendingin fer héðan
næsta laugardag með Herkúles
flutningaflugvél frá danska hemum.
Jónas segir stofnunina einnig hafa
fengið boð frá Samskipum um sjó-
flutninga til Danmerkur. En hjálpar-
gögn þaðan séu keyrð með bílum
beinustu leið, í gegnum Evrópu og
Tyrkland.
Til að átta sig betur á umfanginu
má t.d. benda á að heildarinnflutn-
ingur alls fatnaðar og skófatnaðar á
alla íslendinga er í kringum 1.800 til
1.900 tonn í venjulegu ári. Hugsan-
lega hafa landsmenn því á öfráum
dögum tínt allt að sjötta hluta af
heils árs fatainnkaupum út úr skáp-
um sínum handa skjálfandi Kúrd-
um.
Og það má „leika sér“ enn frekar
með tölur. íslendingar sem fóru til
útlanda á tímabilinu október til des-
ember voru á nýliðnu ári um 6.000
Gífuriegt fjölmenni var á fundi opinberra starfsmanna á Akureyri:
Niðurskurði ríkis-
stjórnar mótmælt
Á gífurlega fjölmennum fundi BSRB, BHMR og Kennarasam-
bands íslands, sem haldinn var í Alþýðuhúsinu á Akureyri í gær,
var aðgerðum ríkisstjómarinnar í velferðarmáium harðlega mót-
mælt. Fólk víða af Norðurlandi sótti fundinn, m.a. frá Ólafsfirði
og Húsavík.
Fnimmælendur á fundinum voru
ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, Páll Halldórsson, formað-
ur BHMR, og Svanhildur Kaaber,
formaður Kennarasambands ís-
lands.
í ályktun fundarins segin „Efna-
hagsráðstafanir ríldsstjómarínnar
stórauka útgjöld launafólks og
gera afltomu þess enn verri. Næg-
ir þar að nefna skertar baraabæt-
ur, lakari skilyrði til náms, skerð-
ingu örorku- og ellihTeyris og auk-
inn sjúkrakostnað. Með þessum
aðgerðum er vegið að þeim sem
eiga fullt í fangi með að iifa á
mánaöarlaununum, en í engu er
skertur milljónagróði fjártnagns-
elgenda.
Ýmsum ráðstöfúnum ríkis-
stjórnarinnar er sérstaklega belnt
gegn opinberum starfsmönnum.
Vegið er að starfskjörum þeirra og
þeim hótað réttindaskerðingu, svo
sem hvað varðar iífeyrisréttindi,
fæðingarorlof og veikindarétt.
Fjöldauppsagnir eru boðaðar og
8tórfeUdum samdrætti hótað í vel-
ferðariœrfinu. Opinberir starfs-
menn una ekki hótunum ríkis-
sfjómarinnar um skert starfsrétt-
indi og fjöldauppsagnir. Opinberir
starfsmenn kreQast þess að ríkis-
stjórain vlrði samnhtgsrétt og
sanngjaraar kröfur sveitarfélag-
anna. Opinberir starfsmenn
hvetja alla launamenn til að snúa
vöra í sókn og verja velferðarirerf-
ið á íslandi." hia- Akureyri
fleiri en næsta ár á undan, og áætlað
er að sú fjölgun skýrist af innkaupa-
ferðum. Ef þeir hafa allir skilað sér
heim með með 2 stórar og úttroðnar
ferðatöskur að meðaltali (meðalt-
aska um 20 kg.) hefðu þeir tösku-
flutningar numið um 240 tonnum
samtals (sem auðvitað þurftu sitt
skápapláss). ——
Jónas segir áður hafa verið farið í
fatasafnanir hér á landi, m.a. á veg-
um Hjálparstofnunar fyrir fáum ár-
um. En viðbrögðin hafi aldrei orðið
nokkuð þessu lík. „Hefðum við vitað
þetta fýrirfram hefðum við líklega
farið eitthvað rólegar í sakimar. En
eftir ástandinu í þjóðfélaginu bjóst
maður ekki við þessum ósköpum."
Jónas segir greinilegt að nú hafi orð-
ið alger fjöldahreyfing. „Og við verð-
um vitanlega að takast á við þetta
eftir því sem það berst til okkar.“
Beiðnin um föt handa Kúrdum kom
fyrst frá dönskum hjálparsveitar-
mönnum sem eru að hjálpa allslaus-
um Kúrdum í fjöllum Iraks, þar sem
þeir vinna m.a. að byggingu vetrar-
skýla fyrir þá. íslenska Hjálparstofn-
unin hefur þegar varið á þriðju millj-
ón til þeirra starfa. Jónas segir Dan-
ina hafa fagnað fréttum um að þeir
gætu átt von á tugum tonna af fatn-
aði. „En hvort þeim verður svo líka
um og ó þegar öll kurl eru komin til
grafar verður bara að koma í ljós.“
- HEI
VaMlmar K. Jónsson.
Fulltrúaráð Framsóknar-
flokksins f Reykjavík:
Valdimar kos-
inn formaöur
Valdimar K. Jónsson hefur ver-
ið kjörinn formaður fulltrúa-
ráðs Framsóknarflokksins í
Reykjavík. Vaidimar er prófess-
or í verkfræði, en hann stund-
aði framhaldsnám í Bandaríkj-
unum. Valdimar var am tíma
delldarforseti verkfræðideildar
Háskólans. Þá hefur Valdimar
unnið margvísleg rannsókna-
störf þar og er mjög virtur Inn-
an Háskólans. Þegar vinstri
meirihlutinn var við völd f
Reykjavík árin 1978-82 var
Valdimar formaður Veitustofn-
ana Reykjavíkur, sem hefur um-
sjón með hitaveitu, vatnsveftu
og rafmagnsveitu. Á áranum
eftir 1982 var Valdimar formað-
ur Framsóknarfélaga Reykja-
víkur.
Sex landa mót í handknattleik
í Austurríki:
Guðmundur
tryggði
jafntefli á
síðustu stundu
ísland-Egyptaland.27-27 (13-15)
Guðmundur Hrafnkelsson, mark-
vörður íslenska landsliðsins í hand-
knattleik, tryggði Iandanum jafnt-
efli í gær gegn skemmtilegu liði
Egypta. Það mátti vart tæpara
standa þvf Guðmundur varði skot af
h'nunni, þegar sjö sekúndur vora
eftir. 30 sekúndum áður hafði
Bjarki Sigurðsson jafnað leikinn
með sínu öðru marki.
íslenska liðið má þakka fyrír stigið
sem þeir fengu gegn Egyptum, sem
léku undir stjórn Pauls Tiedemans,
því íslendingarnir voru undir nær
allan leikinn. Það var ekki fyrr en
tólf mínútur voru til leiksloka sem
Bjarka Sigurðssyni tókst að ná for-
ystu fyrir ísland í fyrsta skiptið í
leiknum. Geir Sveinsson var marka-
hæstur íslendinganna með átta
mörk og Valdimar Grímsson gerði
sex mörk. Guðmundur Hrafnkels-
son varði vel undir lok leiksins á
mikilvægum augnablikum. íslenska
liðið leikur gegn Búlgörum í dag.
-PS
Breytt efnisskrá
tónleika Sinfóníu-
hljómsveitarinnar
Vegna veikinda getur einleikari tón-
leika Sinfóníuhljómsveitarinnar í
kvöld, Tzimon Barto, ekki komið. í
hans stað kemur rússneski píanó-
leikarinn Dmitri Alexeév og leikur
Pfanókonsert nr. 3 eftir Prokoffeff.
Alexeév hefur tvisvar áður leikið á
íslandi við góðar undirtektir. Hann
er fæddur árið 1947 og hóf píanó-
nám sex ára gamall. Hann hefúr
leikið í öllum stærstu tónleikasölum
álfunnar og í Bandaríkjunum.