Tíminn - 23.01.1992, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 23. janúar 1992
Tíminn 3
Forsætisráðherra telur ekki tímabært að slíta viðræðum um EES, en telur að þær lausnir
sem ræddar eru í sambandi við dómstólamálið séu óaðgengilegar fyrir ísland:
Davíð telur líklegt
að EES-leiðin sé ófær
Davíð Oddsson forsætisráðherra telur margt benda til að þær
lausnir, sem ræddar eru í sambandi við deiluna um dómstól yfir
evrópska efnahagssvæðinu (EGS), séu óaðgengilegar fyrir ís-
land. Forsætisráðherra telur þó ekki tímabært að ísland slíti við-
ræðum um EES á þessu stigi. Hann telur að náist ekki sam-
komulag verði ísland að leita eftir tvíhliða viðræðum við EB. Að-
ild að EB komi ekki til greina. Þetta kom fram í umræðum utan
dagskrár á Alþingi í gær sem fóru fram að ósk Páls Péturssonar,
formanns þingflokks framsóknarmanna.
Tilefhi umræðnanna vom ummæli
forsætisráðherra í f)ölmiðlum um að
kraftaverk þurfi til að bjarga EES-
viðræðunum. Páll spurði hvort þetta
væri mat ríkisstjómarinnar á stöðu
málsins, hvort ríkisstjómin teldi
tímabært að ísland hefji tvíhliða við-
ræður við EB og hvort ríkisstjómin
teldi koma til greina að sækja um að-
ildaðEB.
Forsætisráðherra sagði að það væri
sitt mat að staðan í EES-viðræðun-
um væri ákaflega þröng. Hann benti
á að yfirlýsingar EB um Iausn dóm-
stólamálsins hefðu ekki gengið eftir
og þær lausnir sem helst væm til
umræðu væm óaðgengilegar fyrir
ísland. Þar átti hann við tillögur um
að efla EB-dómstólinn á kostnað
EFTA-dómstólsins. Davíð sagði að
þar sem meirihluti EFTA-ríkjanna
hygðist sækja um aðild að EB væri
líklegt að þau myndu geta sætt sig
við hvaða lausn sem EB kæmi með á
dómstólamálinu. íslendingar og
Norðmenn myndu hins vegar eiga
erfitt með að sætta sig við þessar
lausnir. Davíð sagði að tíminn Íiði og
sífellt yrði erfiðara að standa við
tímasetningar fyrirliggjandi draga að
EES-samningi. Hann sagði ekki
tímabært fyrir íslendinga að draga
sig út úr EES-viðræðunum meðan
ekki væri ljóst um afdrif þeirra. Ef
EES-leiðin reyndist ófær yrðu ís-
lendingar að leita eftir tvíhliða við-
ræðum við EB. Davíð tók skýrt fram
að aðild íslands að EB væri ekki á
dagskrá.
Þingmenn stjómarandstöðunnar
lýstu yfir ánægju sinni með afstöðu
forsætisráðherra. Ólafur Ragnar
Grímsson sagðist líta svo á að það
væri meirihluti fyrir því á Alþingi að
hefja undirbúning að tvíhliða við-
ræðum við EB. Hann óskaði form-
lega eftir því að utanríkismálanefnd
hæfi undirbúning að slíkum viðræð-
um.
Bent var á að stefna Jóns Baldvins í
þessu máli hafi liðið skipbrot og
stöðumat hans reynst rangt Jón
Baldvin sagði að EES hefði siglt í
strand vegna þess að EB hefði ekki
getað staðið við gerðan samning, en
leitað væri lausna sem báðir aðilar
gætu sætt við sig. Niðurstaðan lægi
ekki fyrir.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
greindi frá því að samtök atvinnu-
rekenda í sjávarútvegi hefðu fengið
fregnir af því að ein af þeim lausnum
sem EB byði í þessu máli væri að
EFTA-þjóðir, sem sækja um aðild að
EB á þessu ári, fengju sérmeðferð og
gætu fengið aðild að EB á árinu
1995, eða mun fyrr en áður hefur
verið talað um. Jóhannes Geir
spurði hvort ríkisstjómin hefði feng-
ið þetta sama tilboð inn á borð til
sín. Jón Baldvin sagði í samtali við
Tímann að ekkert slíkt tilboð frá EB
hefði borist til ríkisstjómar íslands.
Breyting gerð á lögum
um Hagræðingarsjóð:
525 milljóna
skattur á
sjávarút-
veginn
samþykktur
Alþingi samþykkti í gær frum-
varp um breytingu á lögum um
Hagræöingarsjóð. Meö nýju lög-
unum er gert ráð fyrir aö veiöi-
heimildir sjóðsins verði seldar á
markaðsveröi. Söluandvirðið,
525 milljónir, á að fara í að ijár-
magna rekstur Hafrannsólma-
stofnunar.
Mál þetta var mjög umdeilt á Al-
þingi. Stjómarandstaðan taldi að
frumvarpið væri fyrsta skref f átt til
auðlindaskatts og lagði til að frum-
varpinu yrði vísað frá. Tillaga þess
efnis var felld á Alþingi í gær.
Á næstu mánuðum munu útgerðar-
aðilar fá boð um að kaupa sinn hlut í
Hagræðingarsjóðnum. Kvótann
verður þeim gert að kaupa á mark-
aðsverði, sem er talið geta skilað rík-
issjóði 525 milljónum króna. -EÓ
Ungir sjálfstæðis-
menn hunsa þing
Norðurlandaráðs
Samband ungra sjálfstæðismanna
hefúr formlega tilkynnt í bréfi að það
muni ekki senda fúlltrúa á næsta þing
Norðurlandaráðs. Ungliðasamtök ís-
Þungum bílum verður
meinað að aka yfir Ölfis-
árbrú í vor og brúin
verður lokuð á nóttunni:
Ölfus-
áibrú
lagfærð
Frá Sigurði Boga Ssvarssyni,
fréttarritara Tímans i Seifossi.
Byrjaö verður á umtalsverðum end-
urbótum á Ölfusárbrú við Selfoss í
miðjum marsmánuði. Brúargólfið
verður endumýjað og öryggi gang-
andi vegfarenda bætt til muna. Til
þessara framkvæmda eru áætlaðar
65 milljónir á þessu ári, en þeim
lýkur þó ekki fyrr en á því næsta.
Núverandi gólf í brúnni verður
brotið upp og steyptar einingar sett-
ar í staðinn. Þá verður gagnbrautin
færð til þannig að nú verður hún að-
eins austan megin og 160 sm á
breidd. Sett verður upp lághlíf sem
skilja mun gang- og akbraut að. Þá
verður aðkeyrslan að brúnni vestan
megin lagfærð.
Starfsfólk Vegagerðarinnar er nú
að undirbúa þessar framkvæmdir
sem heQast upp úr miðjum mars.
Lokað verður fyrir umferð allra
þyngri bifreiða frá aprílbyrjun og út
maí, en fólksbfiar geta þó ekið um
hana á daginn, en á nóttunni verður
brúin lokuð allri umferð.
lensku stjómmálaflokkanna hafa
hingað til sótt þing Norðurlandaráðs
og eru þar í félagsskap með norræn-
um bræðraflokkum á Norðurlöndum.
Páll Pétursson nefndi þetta bréf áAl-
þingi í gær og sagði að þetta ásamt
fleiru sýndi minnkandi áhuga innan
stjómarflokkanna fyrir starfi Norður-
landaráðs. Páll sagði athyglisvert að
það séu sömu aðilar sem sýna mikinn
áhuga á inngöngu í EB og em nú að
missa áhugann á norrænu samstarfi.
Ekki náðist f forystumenn ungra
sjálfstæðismanna í gær, en á skrifstofú
SUS fengust þau svör í gær að menn
vildu beina kröftum sínum þangað
sem þeirra væri mest þörf. Ahugi á
starfi Norðurlandaráðs færi minnk-
andi. -EÓ
Ferðavinningar jólahlaðborðsgesta
Dregið hefur verið úr nöfnum 3500 manns sem nutu kræsinga á jólahlaðborði Flugieiða og hlutu tveir
menn ferðavinninga. Þeir eru Kristján B. Halldórsson, sem hlaut ferð að eigin vali fyrir tvo til Evrópu
með Flugleiðum, og Kjartan I. Jónsson sem vann ferð fyrir tvo innanlands að eigin vali. Elísabet Hilm-
arsdóttir, markaðsstjóri Hótel Loftleiða, afhendir hér Kristjáni og Kjartani vinninga þeirra.
Framkvæmdarstjórn VMSÍ fundaði um möguleika á viðræðum um aðaikjarasamning:
Niðurstaða kynnt
W W &
ASI og VSI í dag
Á fúndi framkvæmdarstjóraar VMSÍ, sem haldinn var í gær, var
fjaliað um hvort taka eigi upp viöræður við vinnuveitendur um
aöalkjarasamning í bráð. Að sögn Björns Grétars Sveinssonar,
formanns VMSÍ, var þetta góður fundur en hann vildi ekkert
ræða um niðurstöður fundarins.
„Vlð komum tU með að kynna
fulltrúum ASÍ niðurstöðuna
klukkan níu f fyrramálið (í dag)
Og forráðamönnum Vinnuveit-
endasambandsins seinni partinn.
Þetta var góður fundur og fund-
armenn voru einhuga um niður-
stöðuna, en jafnframt voru menn
einhuga um að ffaUa ekki um
málið I fjölmiðlum iyrr en búið
er aö kynna ASÍ og VSÍ hana,“
sagði Bjöm Grétar Sveínsson,
formaður VMSÍ, í samtaU við
Tímann.
Á fundinum var jafnframt sam-
þykkt ályktun þar sem ítrekaðar
voru fyrri samþykktir sambands-
ins og samþykktir þings þess í
október sl. um forsendur þess að
samningar getí tekist og ekki
verði raskað þeim efnahagslega
stöðugleika sem febrúarsamning-
urinn 1990 hefði skapað. í áfykt-
uninni segin „Til þess að svo
megi verða og að samningar geti
tekist án átaka verður ríkisstjóm-
in að breyta í veigamiklum atríð-
um tillögum sfnum um niður-
skurð á velferðarkerfi okkar, sem
beinast öðm fremur að því að
leggja álögur á og auka skattbyrði
elli- og örorkutífeyrísþega, bama-
fólks og sjúkra.** Ennfremur seg-
ir að verkalýðshreyfingin geti
eldd unað þessum niðurskurði á
lífskjörum fólks, sem bitni mest
á þeim sem minnst hafa, á meðan
ekkert er gert til að afla tekna af
fjármagnstekjum o.fl. -PS
Varnarmáladeild
utanríkisráðuneytisins:
Kærir Duus-hús
Vamarmáladeild utanríkisráðuneytis-
ins hefúr kært eigendur veitingahúss-
ins Duus-hús vegna þess að lituðum
starfsmönnum vamarliðsins var ekki
hleypt inn á staðinn nýverið. Ekki
mun vera algengt að kærur berist
vegna slíks máls, en þetta mun vera í
annað skipti sem það er gert Eigend-
ur Duus segja það ekki rétt að lituðu
fólki sé ekki hleypt inn á staðinn. -PS
Fjarðarheiði:
Flutningabifreið út aff
Flutningabifreið fór út af veginum á
Fjarðarheiði um fjögurleytíð í gær-
dag. Mikil hálka var á þessum slóðum
þegar óhappið varð. Ökumaðurinn
slapp ómeiddur en bifreiðin, sem var
hlaðin vörum, var töluvert skemmd.
Biffeiðin var að koma frá Seyðisfirði á
leið til Egilsstaða og var kominn á
móts við svokallaða Efti Stafi þegar
ökumaðurinn misst hana út af. -PS