Tíminn - 28.01.1992, Page 1

Tíminn - 28.01.1992, Page 1
Þriðjudagur 28. janúar 1992 18. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLll KR. 110.- Fyrsta hjálp álíka fljót í Reykjavík og úti á landi: 76% krans- æöasjúkra ná lifandi til læknis .Athyglisvert er að tímalengd frá því fyrstu einkenni kransæðastíflu koma í ljós og þar til sérþjálfað fólk veitir fyrstu hjálp er mjög svipuð í þéttbýU og dreifbýU hér á Iandi,“ segir Nikulás Sigfússon, læknir Hjartavemdar, m.a. í grein í samnefndu blaði. Hann vitnar þar til nýrra niðurstaðna úr svokallaðri MONIKA rannsókn Hjartavemdar varðandi bráðaþjónustu vegna kransæðastíflu. Nikulás segir að sjúkraflutningar virðist í mjög góðu lagi hér á landi. Árið 1990 hafí 73 sjúkraflutningabifreiðar verið reknar frá 48 stöðum, oftast sjúkra- húsum eða heilsugæslustöðvum, umhverfls landið. Tímalengd frá upphafi bráðra ein- kenna kransæðastíflu þar til sjúk- lingurinn fær upphafsmeðferð og meðferð frá fyrstu einkennum til innlagnar eru þeir þættir fyrrnefndr- ar rannsóknar sem fjallað er um í blaðinu. Helstu niðurstöður eru raktar í grein Ingu Ingibjargar Guð- mundsdóttur. Rannsóknin náði til 518 sjúkdóms- tilfella fólks á aldrinum 25-64 ára á landinu öllu sem skráð voru á tíma- bilinu frá ársbyrjun 1982 til október- mánaðar 1983. Rúmlega fjórðungur hafði fengið kransæðastíflu áður. Tæplega fjórðungur sjúklinganna (105 karlar og 21 kona) dó utan sjúkrahúsa áður en náðist til læknis. Af þeim sem komust lifandi inn á sjúkrahús (310 karlar og 82 konur) höfðu um 40% fengið fyrstu meðferð innan einnar klukkustundar frá upp- hafi bráðaeinkenna, um helmingur- inn innan tveggja stunda og alls 60% notið aðstoðar sérþjálfaðs fólks inn- an fjögurra klukkustunda frá upphafi bráðaeinkenna. Enginn afgerandi munur reyndist á þessari tímalengd milli þéttbýlis (Reykjavíkursvæði) og dreifbýlis. Greinarhöfundur bendir á að tímalengdin ræðst óhjákvæmi- lega einnig af ákvörðun einstaklings- ins um það hvenær hann ákveður að leita til læknis eða eftir annarri bráðaþjónustu. Töluverður munur milli lands- svæða kom hins vegar í Ijós þegar lit- ið er til þess hvaða hópur sérþjálfaðs fólks það var sem veitti sjúklingum fyrstu hjálp. Á landsbsbyggðinni fengu um 65% sjúklinga fyrst til sín lækni en aðeins 35% í Reykjavík. Af þeim sem búa í Reykjavík fóru aftur á móti miklu fleiri beint á sjúkrahús, eða 23% bor- ið saman við 13% á landsbyggðinni. í Reykjavík fengu líka tvöfalt fleiri fyrstu hjálp í almennum sjúkrabíl, eða 20% í samanburði við 9% sjúk- linga á landsbyggðinni. Þá kemur í ljós að um 9% sjúklinga í Reykjavík fengu fyrstu hjálp frá frá áhöfn neyð- arbíls. - HEI Verðiaunahafamir f Listasafnl íslands I gær. Guðbergur Bergsson og Guöjón Frlðrlksson.^ íslensku bókmenntaverðlaunín afhent í gær: I— menntaverðlaunin sem forseti íslands afhenti við hátíðlega at- höfa í Ustasafni íslands í gær. Guðbergur fékk verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir bók sína Svanurinn, en Guðjón fékk verð- laun í flokki íræöirita fyrir rítið Saga Reykjavíkur. Höfundamir fá hvor um sig 500 þúsund krónur i verðlaun en það er Félag ísienskra bókaútgefenda sero yeitir verðiaunín og tvær dóm- nefndir höfðu áður tflnefnt flmm baekur í hvorum flokki til verölaun- anna. i Mikill hátiðarbragur var yflr verð- launaafhendingunni í gær en það var Jón Karlsson formaður Félags ísl. bókaútgefenda sem setti bátíð- ina og Heimir Pákson sem stjóm- aði henni. Cylfl Þ. Gístason, fyrrv. menntamálaráðhcrra, flutti ávarp ASÍ og VSÍ hafa samþykkt að hefja viðræður við stóra samningaborðið. Málmiðnaðarmenn verða ekki með en verslunarmenn verða með: Samningaviðræður eru komnar á fullt Forystumenn verkalýðshreyflngar og atvinnurekenda hafa náð sam- komulagi um að hefja viðræður um aðalkjarasamning. Viðræður um sérlqör halda áfram samhliða heildarviðræðum. Málmiðnaðarmenn ætla ekki að taka þátt í viðræðunum til að byrja meö, en verslunarmenn telja sig hafa fengið tryggingu fyrir því að tillit verði tekið til þeirra sérkjara og verða með. Miðstjóm Alþýðusambands ís- lands samþykkti á fundi eftir hádeg- ið í gær að hafa samflot um viðræð- ur við Vinnuveitendasambandið um nýjan aðalkjarasamning. Þessi sam- þykkt var gerð með þeim fyrirvara að vinnuveitendur samþykktu að halda áfram viðræðum um sérkjör. Málmiðnaðarmenn tilkynntu á fundinum að þeir myndu ekki verða með í viðræðunum til að þyrja með. Málmiðnaðarmenn krefjast að taxt- amir verði færðir nær greiddu kaupi og ætla sér að ná kröfum þar um í sérkjaraviðræðum. Á fundi forystumanna ASÍ og VSÍ síðdegis samþykkti VSÍ skilyrði ASÍ og er því ekkert því til fyrirstöðu að heildarviðræður fari af stað. Ákveð- ið var að hópar sem hófu störf í des- ember taki til starfa að nýju. Hóp- amir fjalla um vaxtamál, atvinnu- mál o.fl. Jafnframt munu sérfræð- ingar beggja aðila fara yfir það sem er framundan í efnahagsmálum, ekki síst með tilliti til endurskoð- aðrar þjóðhagsáætlunar sem verð- ur birt fljótlega. Ásmundur Stefánsson, formaður ASÍ, sagði að næstu daga muni ASÍ samhæfa kröfugerð sína og setja forgangsröð á kröfugerð gagnvart ríkisvaldinu. Hann sagði að þegar sú vinna liggur fýrir og vaxtahópur- inn og aðrir hópar verða komnir af stað verði ákveðinn annar formleg- Frá miðstjómarfundi ASÍ í fyrradag. Timimynd Ami Bj«m« ur samningafundur með atvinnu- það verði ekki farið af stað með rekendum. Ásmundur sagðist gera sameiginlegar viðræður fyrr en ráð fyrir að fulltrúar ríkisvaldsins samböndin eru einhuga um að komi að viðræðunum síðar, líklega sameiginlegar viðræður skemmi strax eftir næstu helgi. ekki fyrir í því efni. Ég hugsa að „Ég hef verið þeirrar skoðunar að megi segja að það séu fleiri með hliðstæða skoðun og Verkamanna- sambandið sem sagði sem svo: Við erum búnir að fá ákveðna niður- stöðu varðandi sérkröfur og annað í sambandi við sérkröfumar stendur fast og við getum ekki gert ráð fyrir að það þokist mikið íyrr en að við förum af stað með önnur mál. Þannig að nú er komið á það stig að rétt sé að láta það sameiginlega fara í gang. Það er þetta mat samband- anna sem ræður því að við förum nú af stað í sameiginlegar viðræð- ur.“ sagði Ásmundur. Ásmundur sagði að forystumönn- um BSRB hefði verið gerð grein fyrir stöðu mála hjá ASÍ og þeim viðræðum sem framundan eru. Ás- mundur sagðist gera ráð fyrir að forysta annarra sambanda myndi fylgjast með því sem gerist hjá ASÍ. Ékki væri hins vegar um eiginlegt samflot með BSRB að ræða að sinni. -EÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.