Tíminn - 28.01.1992, Page 9
Þriðjudagur 28. janúar 1992
Tíminn 9
Blaoamenn hafa út-
valið hertogaynjuna
af Kent sem svartan
sauð konungsfjöl-
skyldunnar. Það er
sama hvaö hún gerir
eða ekki gerir, það er
allt saman rangt!
Steve Wyatt er hinn föngulegasti maöur og vinum hans ber saman
um að hann sé þægilegur félagi, þó að hann sé kannski ekki ofhlað-
inn vitsmunuml:
Sarah þó!
Heldur hún framhjá eða
heldur hún ekki framhjá?
Að undanförnu hefur verið mikið
fjaðrafok í breskum blöðum eftir
að í Ijós kom að skúringakona
hafði fundið uppi á skáp í leiguíbúð
í Belgravia, einu fínasta hverfi
London, bunka af ljósmyndum þar
sem m.a. mátti sjá Sarah Fergu-
son, hertogaynju af York, sitja fá-
klædda í rólu við hliðina á Steve
Wyatt, glaumgosa frá Texas. Hann
heldur um herðar hennar en hún
utan um mittið á honum. Því mið-
ur gátu blöðin ekki birt myndina
vegna þess að hún var stolin!
En hver er Steve Wyatt? Hann er
sonur gífurlega auðugrar fjöl-
skyldu í Houston í Texas. Faðir
hans er harðskeyttur olíukóngur,
líkt við JR, sem grætt hefur fé af
eigin rammleik. Reyndar hefur
komið upp úr kafinu að Oscar Wy-
att er aðeins stjúpfaðir Steves en
hann ættleiddi Steve og bróður
hans, Douglas, þegar hann giftist
móður þeirra Lynn.
Og það er Lynn sem er potturinn
og pannan í selskapslífi Steves.
Enda er það kona sem veit hvað
hún vill og stendur jafnvel í stór-
styrjöld við sína eigin fjölskyldu út
af stórarfinum sem ætti að nægja
öllum. Hún hefur búið svo um
hnútana að hún er ókrýnd drottn-
ing í samkvæmislífinu í Texas og
hefur verið gestgjafi Reagan-hjón-
anna, Micks Jagger og Jerry Hall,
Liza Minnelli og Aga Khan, svo að
einhverjir gesta hennar séu nefnd-
ir. Henni óx þess vegna ekkert í
augum að bjóða hertogaynjunni af
York í veislu þegar hún var í opin-
berri heimsókn í Texas 1989. Þar
með hófust kynni Sarah og Steves.
Fljótlega varð vináttan nánari og
Sarah var t.d. gestur í sextugsaf-
mæli Lynn. Steve var líka boðið til
Buckinghamhallar í afmælisveisl-
ur drottningarmóðurinnar, Önnu
prinsessu og Margrétar prinsessu.
Fjvað er það eiginlega sem Sarah
sér við Steve? spyr fóik. Því er auð-
svarað. Hann er sísólbrúnn, lítur
vel út, tennurnar fullkomnar og
líkaminn er vel þjálfaður og í góðu
standi. Þá dregur það ekki úr töfr-
unum að hann er alltaf tilbúinn að
senda einkaflugvélina sína hvert á
land sem er til að flytja einkavini
sína þangað sem þá lystir. Það eina
sem kannski væri hægt að óska að
hann hefði meira af er gáfur.
Lynn, hin metnaðargjarna móðir
hans, hefur að vonum verið alsæl
með hinn konungborna félagsskap
sem sonur hennar var kominn í.
En nú getur svo farið að Steve
verði útskúfað úr honum aftur, slík
er hneykslunin í Englandi.
Mamma Steves, Lynn Wyatt,
stendur hér á milli sona sinna.
Hún þykir með fádæmum áköf í
félagsskap við fína og ríka fólkiö
og þar sem hún á sand af pen-
ingum verður henni ágætlega
ágengt.
Koo Stark gerir
oað gott sem
jósmyndari
Fyrir ekki svo ýkja mörgum árum
var nafnið Koo Stark á hvers
manns vörum. Stúlkan átti í ástar-
sambandi við Andrew Bretaprins,
sem þá var ógiftur, og það var nóg
til þess að sjálfsagt þótti að gera
hana og líf hennar að opinberri
eign.
Þá birtust stöðugt myndir af Koo
í fjölmiðlum og sögur af lifnaðar-
háttum hennar áttu að hneyksla
sauðsvartan almúgann, og gerðu
það líka. Þar var hún sögð auvirði-
leg nektardansmær sem legði
snörur sínar fýrir saklausan prins-
inn. Svo fór eins og vitað er að upp
úr slitnaði með Andrew prins og
Koo Stark og hann giftist síðar
Söruh Ferguson, sem nú á í vök aö
verjast gegn ágengni blaðamanna
sem slá því föstu að hún haldi við
bandarískan glaumgosa.
En Koo hefur sýnt að henni er
ekki fisjað saman og að hún hefur
bein í nefinu. Þegar atgangurinn í
ljósmyndurunum var sem mestur
á Andrewstímanum datt henni það
snjallræði í hug að bera sjálf
myndavél fyrir andlitið á sér og
þykjast smella á þá á móti.
Smám saman tókst Koo að hrista
af sér blaðamennina að mestu en
hitt þykir henni dýrmætara að hún
komst upp á lagið með ljósmynd-
unina og hefur nú fengið talsverða
viðurkenningu fyrir árangurinn.
Myndir eftir hana hanga t.d. uppi í
The Victoria and Albert Museum
og The National Portrait Gallery
og nú stendur yfir sýning á mynd-
um hennar á Spáni og önnur er í
bígerð í London, kannski jafnvel
ein enn í New York.
En Koo er með
fleiri járn í eldin-
um. Hún er nú að
skrifa bók sem
hún nefnir
„Survival". Þar
segir hún frá hinu
og þessu fólki,
sumu þekktu og
öðru óþekktu,
sem komist hefur
í hann krappan en
lifað af. Sjálf hefur
hún lifað af
óþægilega lífs-
reynslu — og vax-
ið af henni.
::
Áður var Koo Stark hundelt af Ijós-
myndurum. Núna er hún sjálf oftast á
bak við myndavélina en erþó fáan-
leg til að sitja fyrir ef svo ber undir.