Tíminn - 04.03.1992, Síða 6

Tíminn - 04.03.1992, Síða 6
6 Tíminn Miðvikudagur4. mars 1992 Sérstæð verktakavinna þriggja ungra „vammlausra“ manna í Svíþjóð: Myrtu konu samkvæmt beiðni eiginmannsins Frá Inja V. Jónusyni, fróttariUn Tímans í Svíþjóð. Dómur er nú fallinn í einhverju umtaiaðasta sakamáli Svíþjóðar um árabil. í lok október sl. var kona á fímmtugsaldri myrt í Stokkhólmi, samkvæmt beiðni fyrrverandi eiginmanns hennar. Það, sem valdið hefiir furðu manna í sambandi við þetta sakamál, er það að þeir, sem tóku verkið að sér fyrir eigin- manninn fýrtverandi, eru þrír ungir menn með óflekkað mannorð og laus- ir við félagsleg vandamál af nokkru tagi. Tveir ungu mannanna eru 19 ára og sá þriðji tvítugur. Það var sl. haust að einn ungu marin- anna var að leita sér að atvinnu og komst þá í kynni við framkvæmda- stjóra nokkum í Stokkhólmi, sem þurfti að fá sérstakt verk unnið fyrir sig. Verkið var að ryðja fyrrum eigin- konu hans úr vegi. Ungi maðurinn hafði þá samband við tvo kunningja sína og skýrði þeim frá málavöxtum. Áhugi þeirra vaknaði, þegar þeir heyrðu hvaða þóknun var lofað fyrir verkið. Eftir samningaviðræður við fram- kvæmdastjórann ákváðu piltamir að taka verkið að sér gegn þrem milljón- um ísl. kr., og hófu þegar í stað undir- búning þess, m.a. með því að taka gröf á afskekktum stað um 400 km frá Stokkhólmi. Það var síðan í lok október sl. sem lát- ið var til skarar skríða gegn fómar- lambinu, sem var leigubílstjóri að at- vinnu. Einn piltanna pantaði akstur hjá henni út í útjaðar Stokkhólms- borgar þar sem annar félaga hans beið á fyrirfram ákveðnum stað. Þegar þangað kom var konan nörruð út úr bílnum og síðan kyrkt með reipi, þrátt fyrir að hún bæðist vægðar og segðist hafa fyrir bömum að sjl Piltamir lögðu síðan líkið, samkvæmt verk- áætlun, í gröfina, sem fyrr var nefnd og tekin hafði verið nokkmm vikum áður. Piltamir þrír fengu greidda eina milljón ísl. kr. af verkbeiðandanum, fyirum eiginmanni konunnar, sem fyrstu greiðslu. Þegar þeim þótti drag- ast hjá manninum að greiða hinar milljónimar tvær, beittu þeir hann fjárkúgun. Lögreglan komst í fjárkúg- unarmálið og upplýsti síðan í fram- haldi af því sjálft morðmálið. Við réttarhöldin, sem nú eru nýaf- staðin, sýndu þremenningamir merki mikillar iðmnar. Enginn þeirra kvaðst hafa í upphafi skilið alvöru málsins og allir hefðu þeir litið meira á málið sem gaman en alvöm. Þegar þeir grófú gröfina hefðu þeir Ld. tekið með sér nestispakka og gert allt sem tilheyrir skemmtilegri skógarferð. Vissulega hefðu peningamir lokkað, en efdr á að hyggja hefði málið þróast á hinn versta veg. Nú bíður þremenninganna löng og ströng fangavist fyrir aðild að máli þessu. —IVJ, Svíþjóð Söngur dagsins: Krummavísur Kmmmi svaf í klettagjá kaldri vetrarnóttu á, verður margt að meini.:,: Fyrr en dagur fagur rann freðið nefið dregur hann :,: undan stórum steini.:,: „Allt er frosið úti gor, ekkert fæst við ströndu mor :,: svengd er metti mína,:,: ef að húsum heim ég fer heimafrakkur bannar mér :,: seppi’ úr sorpi’ að tína.“:,; Öll er þakin ísi jörð, ekki séð á holtabörð :,: fleygir fuglar geta,:,: en þó leiti út um mó, auða hvergi lítur tó; :,: hvað á hrafn að eta?:,: Á sér kmmmi ýfði stél, einnig brýndi gogginn vel, :,: flaug úr fjallagjótum.:,: Lítur yfir byggð og bú, á bæjum fyrr en vakna hjú, :,: veifar vængjum skjótum.:,: Sálaður á síðu lá sauður feitur garði hjá, :,: fyrmm frár á velli.:,: „Krúnk, krúnk! nafnar komið hér! krúnk, krúnk! því oss búin er :,: krás á köldu svelli." :,: Jón Thoroddsen Atvinnukysisvofán skekur sig nú fhunan í þjóðina af meira offorsi en þekkst hefur lengi og ódaun krepp- unnar er farið að leggja um afit þjóð- lífið. Tíl er kenuing, semsegiraðein- mitt á tnnum sem þessum bregðist mannskepnan við niðursveiflunni með uppsveiflu í andans menntum og menning og frjósemi hugans vetði aldrei merri. Þessikenningeraf sömu rót og kenningin um að skáid geti ekki verið góð skáid nema þau líði sknrt, og séu helst heilsulaus Kka. Eftir frétiaflutning vikunnar og þró- un mála í ísiensku þjóðlífl er Garrl sannfærðurumaðþessikenningeigi sér stoð í veruleikanum. Síðustu daga hafa ncfnikga kornið fram ein- hverjar frumkgustu hugmyndir um atvinnuuppbyggingu í landinu og einhverjar þær athyglisverðustu and- ans riideihir, sem sést hafa svo lengi sem elstu menn muna. Við setningu Búnaðarþings, sem nú stendur yfir, flutti valdamesti maður landsins um þessar mundir, settur forsætisráðhcrra með meiru, Hafldór Blöndal, tæðu þar sem hann kastaði fram nokkrum laufiéttum hugmynd- um um ný atvinnutækifæri fyrir landsbyggðarmenn. Annað eins hef- ur ekki sést síðan tekinn var saman listi fajá Stéttarsambandinu eða Bún- aðarfélagku yflr hugmyndir að nýj- um aukabúgreinum fyrir nokkrum ánun, en á þeim lista var ma. smíði hrossabresta og hráskinnakikur fyr- irferðamenn. En eins og með svo margt annað hefúr ekkert verið gert með þann Hsta í góðæri undangenginna ára. En nú cr lag, ckki síst þar seiri ijóst er að störiúm mun fera fækkandi í hefð- bundnum landbúnaði samfara GATT-samkomulaginu, eins og Hafl- dór Blöndal hefúr bent á. Jafnframt hefúr hann dregið athygli manna að þcim möguleikum, sem felast f því að táiga út í tré fjöllin okkar og selja þau síðan útkndingum. JFyrir norðan virðist liggja beint við að reyna að finna rétta útfærslu á Herðubreið. Ég tala nú ekki um ef einhver Ríkarður Jónsson nútímans skæri Látrabjarg út í tré í fáum sterkum dráttum, sem aðrir gætu síðan kikið eför eða út- fært á sinn hátt,“ svo gripið sé tíi hins kjamyrta orðalags sjáifs ráð- herrans. Hér er vitaskuld á ferðinni stórfengkg hugrnynd, sem gerir hvort tveggja í senn að forða sveita- mönnum frá því að fiykkjast á rnal- bfldðog skaparvericefiii handa öflum Ríköröum Jónssonum þjóðarinnar, sem befúr fyölgað um ein 600% á síðustu árum, samkvæmt frétt £ Túnanum í síðustu viku. MannKfiðálandsbyggðinnigætináö áður óþekktum hæðum, þegar stíkur heimilisiðnaður er kominn á góðan skrið og spýtukubbar og rekadrumb- ar, sem nú Kggja eins og hráviði um aBt, eru í kílóatali orbnir að verðmæt- um Herðubreiðum og Látrabjörgum í ferðatöskum þýskra og amerískra túrista. Og þó litlu fiármagni sé varíð tíl skógræktar á þessum síðustu og verstu tímum, þurfa menn ekki að kvíða hráefnisskorti, því þörfin fyrir girðingar mun fara siminnkandi með GATT-samningum og úr giröíngar- staurum má skera út listaverk og landslagsskúiptúra. Þá verður ddd í tré iðjuJeysinu fyrfr að fara á Fróni og hver veit nema að í hinum vatns- lausu Vestmannaeyjum verði menn þá búnir að setja á fót vatnsátöppun- arverksmiðju, en hugm>7idir um það voru kynntar á borgarafundi í Eyjum f vikunni, samkvæmt sjónvarpsfrétt- um. Andans mennt á háu plani Gani sér fyrir sér að þegar ástand mála verður orðið svona gott í at- vinnumálunum, muni kenningin um tengsl kreppunnar við andagift- ina afsannasL og fótk getur þá í auknurn mæU fárið að snúa sér að andans málefnum. TVúmál og frelsi viljans verða þá eflaust meðal um- ræðuefna tréskurðarmeistaranna, og er það huggun harmi gegn að íslend- ingar hafa góðan grunn til að byggja þá umræðu á. Ekki þarf að fara iengra en í Morgunblaðiö í gær til að fltma gagnmerka ritdeilu um trúmál, en þar svarar Gunnar Þorsteinsson í Krossinum ásökunum Agnesar Bragadóttur blaðamanns um að trú- arskoðanir Gunnars séu ekki nægj- anlega umburðariyndar. Þetta telur Gunnar mikla fyarstæðu og bera vott um hroka og sjálfhælni hjá Agnesi. JEr að undra að maður spyrji sjáifan sig hvort blessuð konan háfi verið að kggja sér tíl munns kðuri>Kku?‘ spyr forstöðumaður Krosslns hneykslaður i Morgunblaðinu. Raun- ar hefur Agnes lýst því yfir að hún hyggist ekki halda áfram ritdeilum srnum við Gunnar, en eftír síðustu skrif hans er cinsýnt að Agnes hrein- kga verður að uppfysa þjóðina um hvort mataræði hennar er í raun frumkgra en gengur og gerisL Gani er þeirrar skoðunar að einmitt þeöa atriði geti skipt böfúðmáK fyrir fram- tíðarumræðu tréskuiðarmeistaranna um trúmál á íslandL Carri MOSKVA Vopnaðar sveitir og óbreyttir borgarar hindruðu brottför her- sveita rússneska sambandshers- ins frá hinu umdeilda héraði Nag- omo-Karabakh. Einn hermann- anna varð fyrir slysaskoti og lét lífið. Talsmaður sambandshers- ins sagði að hermaðurinn, lið- þjálfi, hefði orðið fyrir skotinu rétt utan við Stepanakert þar sem búðir hersins voru, en þær eru nú í rústum. VILNIUS Hersveitir fyrrum Sovéthers byrj- uðu I gær að taka sig upp frá Lit- háen, eftir að hafa setiö þar í hálfa öld sem setulið. Hersveitim- ar eru loftvarnasveitir og hafa haft aðsetur um 10 km frá höfuð- borginni Vilnius. í gær óku á brott í einni lest 36 færanlegir eld- flaugaskotpallar og 15 vörubílar. SARAJEVO Herskáir Serbar fjarlægðu í gær síðustu vegartálmana, sem þeir komu upp í Sarajevo, eftir að úr- slit kosninga um sjálfstæði Bo- sníu- Herzegóvínu lágu fyrir. Borgariífiö komst fijótlega i eöli- legt horf, bílaumferð hófst á ný og verslanir voru opnaðar á ný. Serbarnir settu upp vegartálm- ana til aö sýna andúð sína á því að Bosnía-Herzegóvína slíti sig frá Júgóslavíu. ALSÍR Þrír múslimskir öfgamenn vom dæmdir til dauða í Alsír. Dómur- inn var kveöinn upp aðeins degi áður en réttur á að skera úr um hvort banna eigi starfsemi öfga- flokks hreintrúaðra múslima, en flokkurinn stefnir að því að koma á islömsku klerkaveldi í Alsír. Talsmenn flokksins segja í flugrit- um hans, að verði flokkurinn bannaður muni skella á fellibylur í stað logns undanfarinna tveggja vikna. WASHINGTON George Bush Bandaríkjaforseti og keppinautar hans um forseta- stólinn berjast nú um hylli kjós- enda í prófkosningum í sjö ríkj- um, og leggja allir mest upp úr úrslitunum í Georgíu. Repúblík- aninn Pat Buchanan, keppinautur Bush, hefur lýst því yfir að út- koman í Georgíu muni skipta sköpum um möguleika hans til forsetadóms. Hann hefur nú skipulagt hið íhaldssama liö sitt, í þeirri von að geta í það minnsta endurtekið sigurinn í forkosning- unum í New Hampshire um dag- inn, en þar fékk hann 37% fylgi. JÓHANNESARBORG F.W. de Klerk, forseti S-Afríku, lýsti því yfir í gær að kosningam- ar um lýðræðisumbætur, sem fram fara í vor, yrðu þær síðustu sem aðeins hvítir menn taka þátt í. De Klerk ferðast nú með eins konar kosningaleikhús i amerísk- um stil um landið, og var í gær ( iðnaðar- og verslunarhverfum Jó- hannesarborgar. Hann sagði í gær að verði umbótaviðleitni hans felld af kjósendum, muni það þýða efnahagslegt hrun landsins. DUBLIN (rska 14 ára stúlkan, sem varð bamshafandi eftir nauðgun og miðdepill deilna á Irlandi um fóst- ureyðingalöggjöf landsins, er nú komin til London ásamt foreldrum sínum og tveim írskum lögreglu- mönnum. Lögreglumennimireiga að sjá um að koma ( hendur réttra aðila á írlandi veljasýnis- homum úr fóstri stúlkunnar, þannig að hægt verði að sanna hver það var sem nauðgaöi stúlkubarninu. Farið var með stúlkuna til London tæpri viku eft- ir að hæstiréttur Iriands hafði fellt úr gildi farbann undirréttar á hendur henni.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.