Tíminn - 04.03.1992, Side 7
Miðvikudagur 4. mars 1992
Tíminn 7
Á teikningunni má sjá hvernig Aöalstræti kemur til meö aö llta út eftir nokkur ár. Hugmyndir um útlit skála Ing-
ólfs og Hallveigar hafa enn ekki veriö mótaöar.
Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt áœtlun um endurbœtur á
miðbœ Reykjavíkur, sem kosta munuyfir 100 milljónir króna:
Bær Ingólfs og tvö
hús Innréttinganna
reist við Aðalstræti
Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu um að minnast þess
merka áfanga að íbúar í Reykjavík eru orðnir 100 þúsund, með því
að reisa tvö hús við Aðalstræti í stíl Innréttinga Skúla Magnússon-
ar landfógeta, og eftirlíkingu af skála Ingólfs Arnarsonar og Hall-
veigar Fróðadóttur, fyrstu íbúa Reykjavíkur. Markús Öm Antonsson
borgarstjóri tilkynnti þessa ákvörðun síðastliðinn laugardag, þegar
haldið var upp á að Reykvíkingar em orðnir 100 þúsund.
Tálið er að kostnaður við þetta verk-
efni verði um 100 milljónir króna,
fyrir utan frágang á lóðum og kaup á
lóðum.
Síðastliðið sumar samþykkti borg-
arráð tillögu Sigrúnar Magnúsdótt-
ur, borgarfulltrúa Framsóknar-
flokksins, um að minnast þess með
veglegum hætti þegar Reykvíkingar
verða 100 þúsund. Tillagan, sem
borgarráð samþykkti í síðustu viku,
er tilkomin í framhaldi af tillögu
Sigrúnar. Hugmyndina um endur-
byggingarnar við Aðalstræti eiga
Markús Örn Antonsson borgarstjóri,
og Margrét Hallgrímsdóttir borgar-
minjavörður.
Undirbúningur að verkefriinu hefst
á þessu ári, og gert er ráð fyrir að
fyrsta húsið rísi á næsta ári.
Við Aðalstræti var elsta byggð
á íslandi
Tálið er að elsta byggð á íslandi hafí
verið í nágrenni Aðalstrætis í
Reykjavík. Á miðri 18. öld risu hús
Innréttinganna við Aðalstræti, og er
það jafnframt talið vera fyrsti vísir
að þéttbýlismyndun í Reykjavík.
Þetta átti sér stað á sömu slóðum og
talið er að fyrsta byggð hafi staðið í
Reykjavík á 9. öld. Við Aðalstræti
stóðu einnig elstu verslunarhús
Reykjavíkur, eftir að verslun var
flutt úr Örfirisey og til Reykjavíkur.
Gert er ráð fyrir að á lóð Reykjavík-
urborgar í Aðalstræti 12 verði reist
hús í stfl Innréttinganna. Húsið
verður í umsjón Árbæjarsafns. Mið-
að er við að í húsinu verði starfsemi
tengd minningu fyrstu iðnþróunar
og myndu'n fyrsta bæjarkjarna í
Reykjavík í kringum hús Innrétt-
inga, er stóðu þar sem nú er Aðal-
stræti, meðal annars á lóðinni nr.
12.
Að frumkvæði Skúla Magnússonar
voru reist þar árið 1764 þrjú sam-
byggð torfhús, eftir því sem næst
verður komist, og í þeim voru vef-
stofa, spunastofa og íbúðarherbergi.
Þessi hús náðu einnig yfir lóð Aðal-
strætis 10, en þar stendur í dag elsta
hús Reykjavíkur og það eina sem að
stofni tii er talið frá tímum Innrétt-
inganna. Borgarminjavörður telur í
greinargerð sinni að kanna eigi
möguleika á að færa húsið nær sinni
upphaflegu gerð, þannig að það
verði hluti af heildarmynd götunn-
ar.
í húsinu, sem fyrirhugað er að end-
urreisa á lóð Áðalstrætis 12, var
klæðavefnaðarhús og ullargeymsla.
Hugmyndin er að sýna og skýra þar
alla þætti í starfsemi Innréttinganna
aðra en ullariðnaðinn sjálfan.
Hús frá blómatíma Innréttinganna
endurbyggt við Aðalstræti 14
Stefnt er að því að Reykjavíkur-
borg eignist lóðirnar Aðalstræti 14
og 18, með það fyrir augum að reisa
á þeirri fyrri hús samkvæmt teikn-
ingum frá tímum Innréttinganna;
en á þeirri síöarnefndu verði forn-
leifagröftur og eftirlíking af skála
landnámsbæjar, til minningar um
Ingólf Arnarson og Hallveigu
Fróðadóttur, fyrstu íbúa Reykjavík-
ur. í skálanum verði minjasafn
tengt landnámi íslands og hinni
fyrstu byggð í Reykjavík.
í tillögu borgarminjavarðar er gert
ráð fyrir að hús Innréttinganna,
sem stóð við Aðalstræti 14, verði
reist á lóðinni. Það hús var reist ár-
ið 1754, en brann í miklum bruna
sem varð 1764. Til eru nákvæmar
heimildir og teikningar um gerð
þessa húss. í því var vefnaðarstofa,
spunastofa og dúkskurðarstofa. Þau
tíu ár, sem húsið var til, gekk rekst-
ur Innréttinganna einna best, en
eins og flestir ættu að vita gekk
þessi fyrsti iðnrekstur í borginni
lengst af illa.
Fomleifarannsóknum verði haldið
áfram í miðbæ Reykjavíkur
Á árunum 1971-75 fóru fram forn-
leifarannsóknir á lóðum Aðalstrætis
14 og 18 og Suðurgötu 3, 5 og 7,
sem leiddu í Ijós fornleifar frá fyrstu
árum íslandsbyggðar. Við uppgröft
á lóð Aðalstrætis 18 mátti greina út-
línur langhúss, 12 metra á lengd og
8 metra á breidd, sem þykir fremur
lítið miðað við langhús annars stað-
ar á landinu. Ýmsir telja að þetta
hús hafi verið hús Ingóífs og Hall-
veigar. Fræðimenn eru þó tregir til
að fullyrða nokkuð um það.
í tillögu borgarráðs er gert ráð fyr-
ir þarna verði byggð eftirlíking að
landnámshúsum. Jafnframt er gert
ráð fyrir að fornleifarannsóknum
verði haldið áfram í miðbæ Reykja-
víkur. Lóð Tjarnargötu 8 er sérstak-
lega nefnd í þessu sambandi, en vit-
að er að þar eru fornleifar frá land-
námsöld sem bíða rannsóknar.
í greinargerð með tillögu borgar-
ráðs er einnig getið um fyrirhugaða
endurbyggingu á húsum Geysis hf„
en Reykjavíkurborg keypti þau fyrir
skömmu og ætiar að koma þeim í
upprunalegt horf. Húsin eru mikil-
vægur hluti af verslunarsögu borg-
arinnar, en verslun átti drjúgan þátt
í að gera Reykjavík að stærsta þétt-
býliskjarna landsins.
Markmiðið er því að heildarmynd
Aðalstrætis minni á sögu borgar-
innar, og miðli henni til borgarbúa
og til þeirra sem sækja borgina
heim. Ennfremur er fyrirhugað að
koma fyrir útivistarsvæðum í
Grjótaþorpi og efna til samkeppni
um svokallað Ingólfstorg á Stein-
dórs- og Hallærisplönum. -EÓ
HEILSUGÆSLAN í REYKJAVÍK
Lausar stöður
við heilsugæslustöðvar í Reykjavík og
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður við heilsugæslu-
stöðvar í Reykjavík og Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
HEILSUGÆSLUSTÖÐVAR:
Grafarvogur H2. Stöðin tekurtil starfa 1. maí n.k.
Staða læknis frá 1. maí n.k.
Staða læknis frá 1. sept. n.k. eða eftir samkomulagi.
Staða hjúkrunarforstjóra frá 1. apríl n.k.
Staða hjúkrunarfræðings frá 1. maí n.k.
Tvær 60% stöður móttökuritara frá 1. maí n.k.
Staða læknaritara frá 1. maí n.k.
Mjódd H2 (Stöðin tekur til starfa í nýju húsnæði 1. okt. n.k.)
Staða læknis frá 1. okt. n.k.
Fossvogur H2
60% staða hjúkrunarfræðings við heimahjúkrun frá 1. apríl
n.k.
Hlíðar H2
60% staða hjúkrunarfræðings við heimahjúkrun frá 1. aprll
n.k.
Miðbær H2
60% staða móttökuritara frá 15. apríl n.k.
Staða læknafulltrúa frá 1. apríl n.k.
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR:
Staða aðstoðaryfirlæknis við lungna- og berkladeild frá 1.
maí n.k.
Tímabundin staða hjúkrunardeildarstjóra við atvinnusjúk-
dómadeild laus nú þegar.
50% staða skólatannlæknis (verksamningur) við Foldaskóla
frá 15. apríl n.k.
65% staða aðstoðarmanns tannlæknis við sama skóla frá
15. apríl n.k.
Staða hjúkrunarfræðings við heimahjúkrun (kvöldvaktir) frá
1. apríl n.k.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og
störf, sendist stjómsýslusviði fyrir 1. apríl n.k. á þar til gerð-
um eyðublöðum, sem fást hjá starfsmannahaldi á Heilsu-
vemdarstöð Reykjavíkur, Barónsstíg 47.
Nánari upplýsingar veita forstjóri og starfsmannastjóri I síma
22400.
2. mars 1992
Heilsugæslustöðvarnar í Reykjavík og
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
Stjórnsýslusvið.
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIti ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
TÖLVU-
NOTENDUR
Víð í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum,
setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða
fyrír tölvuvinnslu
Smiðjuvegi 3,
200 Kópavogur.
Sími 45000
Augiýsingasímar Ttmans
680001 & 686300
Framúrakstur á vegum úti krefst kunnáttu og skynsemi. Sá sem ætlar
framúr þarf aö gefa ótvírætt merki um vilja sinn, og hinn sem á undan
ekur þarf aö hægja ferö. Stefnuljósin er sjálfsagt að nota. Minnumst
þess aö mikil inngjöf leiðir til þess að steinar takast á loft, og ef hratt
er fariö ökum viö á þá í loftinu.
yUMFEROAR
RÁÐ