Tíminn - 26.03.1992, Blaðsíða 4

Tíminn - 26.03.1992, Blaðsíða 4
4 Tíminn Fimmtudagur 26. janúar 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Timinn hf. Framkvaemdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðanitstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrimsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavlk Sími: 686300. Auglýsingasíml: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setnlng og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,-, verð I lausasölu kr. 110,- Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Sala ríkisfyrirtækja eða nýsköpun Við gerð síðustu fjárlaga var áætlað að ríkissjóður hefði einn milljarð króna í tekjur árið 1993 með sölu ríkiseigna. Hér er um verulega fjárhæð að ræða. Það eina, sem handfast er í þessum efnum, er sala á eignum Skipaútgerðar ríkisins. Fréttir berast nú af áformum um að selja fjögur ríkisfyrirtæki, sem eru í góðum rekstri og hafa skilað hagnaði. Skotið er á að verðmæti þessara eigna sé um 400-450 milljónir króna. Þó að þetta gangi allt eftir, er þó ekki nema helmingnum náð af þeim milljarði sem fjárlög gera ráð fyrir, svo að meiri sölumennska er framundan. Ekki verður hjá því komist að velta því fyrir sér hvaða áhrif þessi söluáform hafa á atvinnulífið í landinu. Atvinnuleysi er mikið og vaxandi, það mesta í 22 ár. Það, sem vantar sárlega nú, er nýsköp- un í atvinnulífinu. Það vantar hugkvæma menn, sem hafa fjárráð til að ráðast í ný verkefni sem skapa atvinnu. Hugmyndir ríkisstjórnarinnar um sölu eigna upp á einn milljarð króna, sem meirihluti Alþingis stað- festi með fjárlögum, byggjast á því að ná einum milljarði króna frá fjármagnseigendum. Þær krónur ganga ekki til nýsköpunar í atvinnulífínu. Staðan er þeim ekki hagstæð sem hafa tekið áhættu í atvinnuuppbyggingu, allra síst þeim sem hafa tapað peningum. Framtak þeirra er úthrópað. Maður eða fyrirtæki, sem tekið hefur áhættu og tap- að, á ekki upp á pallborðið hjá stjórnvöldum nú. Þeir eru hluti af fortíðarvanda og fjárfestingarfýlliríi, ef nota má hluta úr orðabók ráðamanna. Þess vegna er miklu áhættuminna fyrir þá, sem eiga peninga, að kaupa fýrirtæki í góðum rekstri af ríkinu, fremur en að taka áhættu í nýsköpun í at- vinnulíFi. Með sölumennskunni er því ríkið að draga til sín fjármagn, sem ella mundi ef til vill fara til nýsköp- unar í atvinnulífinu. Afstaða ríkisstjórnarinnar til þessara mála vekur æ meiri furðu. Framsækið þjóðfélag byggist á því að áræðnir einstaklingar leggi í áhættu í atvinnulífi og vilji varðveita fjármagn í hlutabréfum í fýrirtækjum. Sérstaka athygli vekur einnig að ríkisstjórnin barði í gegn eftir áramótin ákvæði um skattlagningu arðs af hlutabréfum. Það má því með sanni segja að eitt reki sig á ann- ars horn í stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart ein- staklingsframtakinu í landinu, þótt forustuflokkur ríkisstjórnarinnar, Sjálfstæðisflokkurinn, telji sig sérstakan málsvara þess. Stefnan er ekki á þá leið að örva einstaklinga til nýsköpunar, heldur að koma eigum ríkisins í hend- ur þeim. Að selja eignir ríkisins á krepputímum dregur einnig úr því fjármagni, sem hugsanlega mundi fara til að styrkja eiginfjárstöðu í sjávarútvegi. Það er umhugsunarefni út af fýrir sig. Kj amorkuváin færist á nýtt stig Þótt vissulega steðji margvíslegur vandi að íslensku efnahagslífi um þessar mundir, má þjóðin teljast vel sett á ýmsan mikilsverðan hátt fram yfir aðrar þjóðir, og það á svið- um sem eru þýðingarmeiri en ligg- ur í augum uppi í fljótu bragði. Þar á meðal er að landið sjálft, vegna náttúrufars síns, sér íbúum sínum fyrir lítt þrjótandi orku úr fallvötn- unum. Virst hefúr um sinn sem þessi ómetanlega auðlind hafi ekki skiiað landsmönnum arði svo auð- veldlega sem ástæða virtist til að ætla, en ótrúlegt er að þeir tímar muni ekki koma að hér verði eftirspum meiri en framboð. Þá mun vandi ráða- manna verða að velja úr þeim er eftir orkunni sækja, en ekki að leita þá uppi, eins og við nú höfum orðið vitni að. Kjamorkan og nýting hennar Því er vikið að þessu efni nú, að kjarnorkuslysið í Sosnovy í grennd við St. Pétursborg í Rússlandi minnir á að stór hluti þjóða heims hefúr orðið að hverfa að kjamorku sem einasta valkosti til orkuöflun- ar á síðustu áratugum. Þeirri þró- un hafa fylgt mörg og alvarleg mis- tök og slys. Hér hafa stundum ýms- ar fátækari þjóðir átt í hlut, sem vegna ónógrar þekkingar á þessu margflókna hátæknisviði hafa ekki getað búið svo um hnútana að kjarnorkuver þeirra væm ekki hættuleg umhverfi sínu, eða þá hitt að kröfúr harðdrægra stjóm- málaleiðtoga hafa ráðið ferðinni, leiðtoga sem mænt hafa á síaukinn hagvöxt og iðnaðarframleiðslu og þá ekki gefið gaum að hvað það kynni að kosta umhverfi og óbom- ar kynslóðir. Þeir hafa í krafti valda borið vísindalega þekkingu og að- varanir ráðum, sem er þekktur og alvarlegur vandi í sambúð vísinda og valdstjómar og fer tæpast minnkandi á komandi áratugum. En eftir sem áður er orkuskortur það brýnn víða, að menn virðast ekki eiga annarra kosta völ en taka áhættuna. Er þá nærtækt að hugsa til Aibana, sem um þessar mundir hugleiða að opna að nýju frum- stætt kjamorkuver að nútíma- staðli, sem þeir urðu að loka um skeið vegna skemmda í jarðskjálft- um. Slysaferill Þess skyldi eigi að síður minnast að það er ekki aðeins meðal minna þróaðra þjóða eða þjóða, sem að litlum eða því sem næst engum orkuforða öðrum eiga að hverfa, sem alvarleg kjamorkuslys hafa átt sér stað. Þau hafa á síðustu áratug- um einnig orðið meðal þjóða, sem teljast til hinna hátæknivæddu og er hafa átt allríkulegra kosta völ í orkuöflun. Mannkynið er fyrir svo skömmu stigið inn í kjamorkuöld- ina, að segja má að allt fram til þessa hafi það verið svo sem bam væri að leik með hættulegt leik- fang. Því hafa afar alvarleg slys gerst í ýmsum tilraunastöðvum, að orkuvemm sem knúin em kjamorku slepptum. í Bretlandi hafa átt sér stað al- varleg slys, þ.á m. tvívegis í Sellafi- eld-kjarnorkuverinu. í Bandaríkj- unum kom til greina að flytja brott alla íbúa Detroit vegna óhapps í kjamakljúfi árið 1966, þótt alvar- legast og minnisstæðast muni slysið á Three Mile Island árið 1979. Langalvarlegasta slysið var þó vitaskuld Chemobyl-slysið 1986, en ekki mun séð enn fyrir endann á afleiðingum þess. Er það ber á góma, skyldi minnast þess að síður en svo mun hafa verið greint frá öllum kjamorkuóhöppum, er orðið hafa í Sovétríkjunum und- anfama áratugi, en vitað er að þau hafa gerst þar mjög alvarleg, þótt minna hafi af því spurst. Þá mætti hér fara mörgum orðum um þann vanda er það hefur skapað að losna við kjarnorkuúrgang, og kemur þar að efni sem segja má að snerti Islendinga sérstaklega, þar sem ai- gengt úrræði hefur verið að losa hin hættulegu efni í höfin og vita menn fæst um hvar og hvenær slíkt hefur farið fram. Nátengda hættu hafa siglingar kjamorku- knúinna kafbáta í grennd við land- ið skapað, en fslendingar hafa lengi gert sér grein fyrir þeim af- leiðingum sem slys tengd þeim siglingum mundu verða til að skapa. Váin færist inn á nýjar brautir Endalok kalda stríðsins munu án efa draga úr umferð kafbáta og ann- arra vígvéia, er kjamavopn bera, í grennd við landið og er það vita- skuld fagnaðaefni. Það hefur samt ekki farið framhjá neinum að þrátt fyrir að séð sé nú fyrir endann á kalda stríðinu, er hættan síður en svo úr sögunni, heldur hefur hún færst á nýtt stig, sem að auki er þess eðlis að erfiðara er að gera sér grein fyrir hugsanlegum afleiðingum eða hvaða stefnu þau mál muni taka. Kunnugt er að þrátt fyrir allar varúðarráðstafanir, sem menn hafa reynt að grípa til í Svo- vétríkjunum, er stór hætta á að bæði efni til kjamavopnafram- leiðslu, svo og þekking til smíði þeirra, smjúgi úr greipum þeirra er eftirlit skulu hafa með höndum. Ríki Arabaheimsins leggja sum mikið kapp á smíði kjamavopna og hvaða ráðstafanir, sem gerðar eru til að hindra þau áform, virðist óraunsætt að þau muni ekki ein- hver hafa erindi sem erfiði. Um hættuna, er það býr heimsfríðnum, þarf ekki að fara mörgum orðum, er vandræðin við botn Miðjarðar- hafs virðast fara stigvaxandi með ári hverju. Grein í Tímanum í gærdag, þar sem sagt er frá að einstaklingar hafi á laun boðið úraníum frá fyrrum Sovétríkjunum til sölu — svo að segja á götum úti — ætti að vekja til umhugsunar um hve ótryggir tímar fara hér í hönd. Hér í upphafi var vikið að því að land okkar, vegna vatnsorkunnar, mun vonandi um allan aldur geta afstýrt því að við þurfum að hugsa til nýtingar kjamorku sem svars við orkuskorti. Þótt fjarri fari að það leysi okkur undan þeim sammann- lega vanda, er kjamorkuváin áfram býr jarðarbúum, ber vissulega að þakka að það er einmitt vatnsorkan sem a.m.k. um stund mun verða til þess ekki síður en fjarlægðin að halda okkur fjær en ella frá þeirri „heimsins vígaslóð", er Hulda kveð- ur um í lýðveldisljóði sínu. AM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.