Tíminn - 26.03.1992, Blaðsíða 6

Tíminn - 26.03.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 26. mars 1992 Bakhliðin á medalíunni: Kjarnorkuóhöpp frá 1957 til þessa dags LeUd geislavirkra efna úr kjamaofni í kjamorkuverinu Sosnovy Bor í gær er nýjasta dæmið af mörgum um slys er orðið hafa frá því er farið var að hagnýta kjamorku til orkuframleiðslu. Fyrri alvarlegri slys eru talin hér á eftin 7. október 1957 skaddaði elds- voði annan tveggja plútóníum- kjarnakljúfa í kjamorkustöðinni í Windscale í Bretlandi, er síðan hefur verið nefnd Sellafield. Geislavirk ský bámst út í andrúmsloftið. Skýrslur sögðu mögulegt að þetta hefði vald- ið fjölda krabbameinsdauðsfalla. 1957/8 Á Vesturlöndum var talið að mjög alvarlegt slys hefði orðið í borgini Kyshtym í Úralfjöllum. Rússneskur vísindamaður sem fyrst sagði frá slysinu kvað víst að mörg hundmð manna hefðu látist af völd- um geislunar. 3. janúar 1961 létust þrír tækni- menn í bandarískri kjamorkutil- raunastöð vegna óhapps er varð við tilraunakjarnakljúf. 5. október 1966 bráðnaði kjarni í tilraunakjarnakljúf nærri Detroit, þar sem natríum-kælibúnaðar bil- aði. í ráði var að ráðleggja öllum íbúum Detroit að flýja borgina. 21. janúar 1969 varð bilun f kæl- um í neðanjarðartilraunastöð kjarn- orkuvísindamanna í Lucens Vad í Sviss. Geislavirk efni voru leidd inn í helli sem síðan var einangraður. 17. október 1969. í Saint-Laur- ent í Frakklandi ollu mistök við flutning eldsneytis því að bráðnun hófst í gaskældum kjamakljúfi. 1974 er sprenging sögð hafa orð- ið í kjarnorkuveri í Shevchenko við Kaspíahafið. 28. mars 1979 varð versta slysið í sögu kjarnorkuvera í Bandaríkjun- um á Three Mile Island nærri Har- risburg í Pensylvaníu. Vegna bráðn- unar í einum kjarnkljúfanna vom íbúar fluttir af nærliggjandi svæð- um og geislavirk efni bárust út í andrúmsloftið. 7. ágúst 1979 vall mjög geisla- virkt úraníum úr geymi í leynilegri geymslu geislavirkra efna í Tenn- essee. 25. apríl 1981. 45 verkamenn uðru fyrir alvarlegri geislun vegna mistaka í kjarnorkuveri í Tsuruga í Japan. Nóvember 1983. Frá Sellafield (sjá áður) mun geislavirkum úr- gangi hafa fyrir mistök verið varpað í írlandshaf. Áköf herferð var farin fyrir því að verinu yrði þá lokað. 6. janúar 1986 lést einn verka- maður og hundrað særðust í Kerr- McGee kjarnorkuverinu í Okla- homa, þegar geymir með geislavirk- um efnum brast eftir að hafa orðið fyrir of mikilli hitun. 26. aprfl 1986. Chernobyl-slysið. Eitruð ský bámst víða yfir Evrópu og flytja varð hundmð þúsunda manna úr grennd við verið. 1987-1992 hefur fjöldi tilkynn- inga borist um leka úr kjarnaofnum í Rússlandi og í Úkraínu. í janúar 1990 bámst fréttir af slysi í kjarnorkuveri A-Þjóðverja við baltnesku ströndina. Þá viður- kenndu A-Þjóðverjar einnig að slys lönaöarþjóöfélagiö krefst mikillar orku til aö framleiöa neysluvarning og kjarnorkan hefur þótt hagstæður kostur þrátt fyrir vankantana. Þaö þyk- ir fráleitt aö vindorkan geti komiö í stað hennar. Það er hæpiö aö þessi vindmylluskógur í Kaliforníu framleiði orku á við lítið kjarnorkuver. hefði orðið 1975 í Lubmin kjarn- verið af svipaðri stærðargráðu og í orkuverinu en neituðu að það hefði Chernobyl. eru Samtök launamanna virftast vera komin í nokkuft einkennilega aft- stöftu í þeim samnlngaviðræftum sem nú standa yfir. Þegar Ganri set- ur þessar b'nur á blaft er staftan sú aft ríkisstjómin hefur gert launþeg- um tilboft í velferftarmálum sem forystumenn launþega eru ekki allt of hressir meft. Sú afstafta launþega er að vissu leyti skiljanleg því þcir bafa Iagt flestar kaupkröfur sínar aðrar tð hliftar, en það sem ríkis- stjómin býftur felst einkum í því aft hún muni ekki auka tii muna átroðslu sína á launafóDd, bama- fjölskyldum, sjúklingum o.fl. um- fríun það sem orðift er. Lífslqörin skeri Undanfamar vikur og mánufti hefur ríkissjóm Davifts Oddssonar skert lífskjör fólks verulega meft þvf aft taka upp hvers konar gjaldtökur fyrir þjónustu sem áftur þótti $jáf- sagt aft veita ókeypis. Launamenn sem hafa kunnaft þessu illa hafa nú gert þaft að sinni sameiginlegu kröfu aft þessar aftgeröir veröi aft- urkallaftar. Verfti þaft ekki gert er Ijóst aft launamenn eru tflneyddir til aft sækja fé tfl aft vega upp þessa skerðingu tU vinnuvcitenda því launamenn eni einfaldlega ekki borgunarmcnn fyrir frekari útgjöld- um. Svo vill til aft atvinnurekendur segjast ekki heldur vera borgunar- menn fyrir þessum útgjöldum og þvf stendur rfldsstjómin eftir meft auknar tekjuöflunarhugmyndir sem enginn hefur áhuga á aft borga. Aft vísu hafa ráftherTamir, þegar þeir eru á landinu, verift duglegir aft Inlft tekjuöflunarhugmyndir sínar spamaðarhugmyndir. Hins vegar hefur þaft sjaldan komift skýrar i Ijós en einmitt í þessum kjaravíft- ræftum aft aftgerftir rfldsstjómar- innar á umliönum mánuöum og sem útfærftar eru í fjárlögum og fylgiflski þeirra bandorm- inum snúast elnkum um tekjuöflun fyrir rðdssjóft og árás á grundvallarþjónustu en ekki hag- ræftingu og aö draga úr óhófí. 500 milljóna framlag Friftrik flármálaráftherra segir í Morgunblaftinu í gær að þaft tilboft sem ríldft hefur gert launamönnum sé svo rausnariegt að ekki sé vinn- andi vegur aft ganga lengra enda hfjófti framlagtft upp á einar 500 mifljónir króna. Allar þessar millj- ónir sem rikið hyggst lcggja fram era ekki til komnar meft auknum útgjöldum, heldur þvert á móti munu minni tekjur skila sér í rikis- sjóð. Þannig æti- ar rfldssjóftur aö afsala sér heilum 100 milljónum af nýjum tekjustofnl meft því aft hætta aft láta smáböra borga eins mikift ef þau veíkjast, samkvæmt talnadæm- um rfldsstjómarinnar sjálfrar. Og 350 mfljjóna framlag rfldsstjómar- innar tfl velferftarmála felst í því aft hækka ekki vextina í félagslega fbúftakerfinu. Þessi rausnarskapur rfldsstjóraarinnar er mildfl enda berast lausafregnir af því að ýmsir stjómarþingmenn séu famir að ókyrrast yflr gjafmildi Davífts og fé- Íaga. Enn er þó ótaBnn Sighvats þátt- ur Björgvinssonar sem nú hefúr látáft þau skilaboð út ganga tfl samningamanna að hann hafl verið aft hugsa um að láta alla þá sem reka neflft inn á spítala vegna skammvinnra veikínda borga fyrir þaft. Eins og við var aö búast hafá launamenn brugðist ókvæfta viö og mótmælt þessum hugmyndum og fordæmt þær afar harkalega. Það er hlns vegar örugglega mfldö fljót- ræði hjá þeim því Garri er alveg sannfærftur um aft þessi tfliaga er afteins vfsirinn aft enn einni stór- gjÖf rfldsstjómarinnar til launþega. Þarf að liðka enn frekar til? Næsta víst verftur aft telja aft rík- isstjómin muni teygja sig enn lengra til aft greifta fyrir kjarasamn- ingum, þrátt fyrir mótmæli Frift- riks, og hætta við aft rukka fyrir skammtímainnlagnir á sjúkrahús- in. Garra telst svo tfl aft þetta fram- lag gæti numið einhverjum miflj- ónatugum efta jafnvel hundruðum milljóna. Ef heimtufrekja launa- fólks reynist síftan sbk að þaö sætti sig ekki vift þessar fórnfúsu tflslak- anir gæti rfldsstjómin afltaf gripift tfl þess ráfts aö ákveöa aft leggja nift- ur þaft sem eftir er af velferftarkerf- inu í spamaftarskyni. Gætu stjóm- völd þá ýmislegt boftift tfl aft liftka fyrir kjarasamningum, eins og tfl dæmis það aft Íeggja ekki niftur aflt velferftarkerflð og yrði framlag rik- isvaldsins oröift svo rausnarlegt aft ótrúlegt er annaft en aft samningar takist Gani Öryggi kjarnorkuvera í Rússlandi: Finnar áhyggju- fullir „Þaft er veruleg þörf á alþjóft- legu nánu samstarfi í því skyni aft auka öryggi rússneskra kjarnorkuvera sem staðsett eru nærri flnnskum landsvæðum. Finnska stjómin hefur þegar tekiö upp samvinnu vift rúss- nesk yfirvöld í þessum til- gangi,“ segir í tilkynningu ftá ríkisstjóm Finnlands. Ríkisstjórnin var áhyggjufull þegar fyrstu fréttir af óhappinu í Sosnovy Bor tóku að berast. Það varð því nokkur léttir þegar ljóst varð að það myndi vart hafa al- varlegar afleiðingar í för með sér. Að því er geislavarnastofnun Finnlands segir, þá hefur ekki mælst aukin geislun í Finnlandi í kjölfar óhappsins í Sosnovy Bor. Moskva Formaður almannavamanefnd- ar Rússlands, Sergei Shoigu, segir að háskalega lítið sé til af varahlutum og að sérþjálfað starfsfólk sé hættulega fámennt í rússneskum kjamorkuverum. Hann sagði að lekinn í kjam- orkuveri í grennd við St. Pét- ursborg sl. þriðjudag væri hættulaus. Moskva Sergei Krikalyov, sem dvalið hefur úti í geimnum miklu lengur en í upphafi var ætlunin, kom til jarðar í gærmorgun. Mjög miklar breytingar hafa orðið í austurvegi síðan hann fór í geimförina fyrir 10 mánuðum. Ekki tókst að ná honum til jarðar fyrr vegna jjár- skorts. Helsinki Raffi Hovannisian, utanríkisráð- herra Armeníu, sagði á RÖSE ráðstefnunni í Helsinki í gær að samkomulag hefði tekist um þríhliða viðræður til að leysa deilumar um Nagomo Karabakh. I þeim munu taka þátt yfirvöld í héraðinu sjálfu auk fulltrúa Azera og Armena. Kaíró Nú lítur ekki út fyrir að sættir náist milli Vesturlanda og Lí- býustjórnar út af Lockerbie-tilræðinu. Líbýustjóm hefur nú ruglað menn gersam- lega í ríminu með því að láta sendimenn Arababandalagsins vita það að framsal hinna tveggja grunuðu tilræðismanna sé bundið ströngum skilyrðum. New York Óvænt úrslit urðu í forvali demókrata um forsetaframbjóð- anda í Connecticut. Þar sigraði Jerry Brown Bill Clinton og nú er búist við að baráttan verði höríTmilli þeirra tveggja um hylli demókrata í New York. Belgrad Fimm féllu í bardögum f fyrri- nótt á landamærum Bosníu og Króatíu. Bardagar héldu þar áfram þrátt fyrir ítrekuð og áköf tilmæli frá friðargæsluliðsstjór- um til stríðsaðila um að þeir hættu bardögum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.