Tíminn - 25.04.1992, Blaðsíða 3
Laugardagur 25. apríl 1992
Tíminn 3
Þjóðhagsstofnun:
Nýjar Flugleiðavélar
fyrir 17,5 milljarða
Þegar innanlandsfloti Flugleiða hefur að fullu verið endumýjaður í
árslok 1992, hafa Flugleiðir á þrem ámm fest kaup á flugvélum fyr-
ir 300 milljónir dollara, sem samsvarar um 17,5 milljörðum ís-
lenskra króna, miðað við meðalgengi ársins 1991, samkvæmt
skýrslu Þjóðhagsstofnunar.
Félagið keypti þrjár þotur fyrir
samtals 109 milljónir dollara árið
1990. Og á síðasta ári keypti féiagið 2
þotur fyrir samtals 75 milljónir doll-
ara. Önnur þeirra, af gerðinni Boeing
757, var strax leigð til Bretlands og
hefur ekki verið skráð á íslandi, né
heldur komist á innflutningsskýrslur
Hagstofunnar enn sem komið er.
Þjóðhagsstofhun telur hins vegar
rétt, með tilvísun til reglna þjóðhags-
reikninga, að færa þessa þotu Flug-
leiða sem fjárfestingu á árinu, og jafn-
framt sem innflutning á sama ári.
Þotan kostaði 45 milljónir dollara,
eða kringum 2,8 milljarða króna, en
það er um 4% af fjárfestingu lands-
manna árið 1991. Alls námu fjárfest-
ingar nær 73 milljörðum króna árið
1991 (um 19% af landsframleiðslu),
sem var 3% aukning að raungildi frá
árinu áður. Mest hefur aukningin
orðið, eða um 10%, í fjárfestingum
hins opinbera. Sem hlutfall lands-
framleiðslu hafa opinberar fjárfest-
ingar farið vaxandi, Ld. úr 5,5% árið
1988 upp í 6,8% samkvæmt áætlun
fyrir árið 1991. Þar munar mest um
fjórðungs vöxt fjárfestinga í sam-
göngumannvirkjum. Hafnarfram-
kvæmdir hafa aukist um 50% og
gatna- og holræsaframkvæmdir um
22%. Þá jukust raforkuframkvæmdir
um 17%. Þar á móti varð 2% sam-
dráttur í byggingum hins opinbera og
14% í vatns- og hitaveitum.
Fjárfestingar atvinnuveganna juk-
ust einnig á síðasta ári, um 2,4% frá
árinu á undan.
Bráðabirgðatölur um íbúðabygg-
ingar 1991 þykja hins vegar benda til
verulegs samdráttar, einkum í
Reykjavík. Aðrar heimildir, eins og
velta í byggingarstarfsemi, benda
hins vegar til nokkurrar aukningar
og sementssala sýnir aðeins örlítinn
samdrátt. Með hliðsjón af þessu
ákvað Þjóöhagsstofhun að reikna
með 5% samdrætti í byggingu íbúð-
arhúsnæðis að sinni, þótt bráða-
birgðatölur bendi til þess að hann
hafi verið nokkru meiri. Bent er á að
meiriháttar viðhald og endumýjun
húsnæðis geti hafa aukist töluvert,
án þess að það kæmist á húsbygg-
ingaskýrslur. - HEI
Varúðarráðstafanir Rauða krossins í Kabúl:
Formannafundur Landssambands aldraðra:
Lokun sjúkra-
deilda aldraöra
mótmælt
Á formannafundi Landssambands
aldraðra, sem haldinn var fyrr í
þessum mánuði, komu fram
þungar áhyggjur af aukinni skatt-
lagningu stjómvalda á aldraða og
sjúka í formi þjónustugjalda, og
skerðingu á margvíslegum rétt-
indum og þjónustu. Fundurinn
lýsti ennfremur yfir óánægju með
fyrirhugaða lokun sjúkradeilda
fyrir aldraða í sumar. Bent er á að
hjúkrunardeildir séu of fáar í
Reykjavík og enn bíði um 300
manns eftir þjúkrunarvist
Félög í Landssambandi aldraðra
em nú 21 að tölu, með samtals um
12 þúsund félagsmenn. Sjö félög
gengu í sambandið á síðastliðnu
ári.
í ályktun frá formannafundinum
er hvatt til þess að settar verði nýj-
ar reglur um sveigjanleg starfslok á
vinnumarkaði fyrir fólk á aldrinum
65-75 ára. Tekið er undir orð land-
læknis um að það séu mannrétt-
indi að fá að vinna svo lengi sem
hæfni og þrek leyfa. Mótmælt er
þeim sjónarmiðum að aldraðir eigi
að víkja af vinnumarkaði og rýma
þar fyrir yngra fólki.
Snemma á þessu ári gerði
Landssamband aldraðra og Flug-
leiðir rammasamning um samstarf
að ferðamálum aldraðra, sem hlaut
nafnið .Aldraðir á faraldsfæti".
Ákveðið hefur verið að hefja þetta
samstarf með 15 daga vorferð um
Mið- Evrópu í maímánuði. Félög-
um eldri borgara um land allt hafa
verið sendar upplýsingar um þessa
ferð. Auk þess munu Flugleiðir
bjóða félagsmönnum Landssam-
bands aldraðra undir 65 ára aldri
upp á sérstök fargjöld á flugleiðum
félagsins til útlanda. Ráðinn hefur
verið starfsmaður á skrifstofú sam-
bandsins til að sinna ferðamálum.
-EÓ
Starfsfólk heldur
til á spítalanum
Ekki er ennþá ljóst hvað margir
hjúkrunarfræðingar á vegum
Rauða krossins munu snúa aftur
heim frá Afganistan, eða hvort ís-
lensku hjúkrunarfræðingamir tveir
verði þar á meðal.
Alls eru 10 hjúkrunarfræðingar
starfandi á vegum Rauða krossins í
Kabúl, og hefur sú ákvörðun verið
tekin að einungis lágmarkshópur
verði þar starfandi áfram.
Eftir vígið á Jóni Karlssyni hefur
starfsfólk ekki farið út fýrir spítal-
ann til að sækja særða, heldur að-
eins sinnt þeim sem koma inn.
Nú þegar er farið að senda starfs-
menn, sem ekki tengjast beint lækn-
um og hjúkrunarfræðingum, til
Persawar í Pakistan.
Rauði kross íslands á fljótlega von á
fréttum af því hverjir verða sendir
heim. —GKG.
Átt þú merkileg bréf og skjöl, sem þú hefur safnað á
langri ævi?
Kynning á héraðs-
skjalasöfnum
Þjóðskjalasafn íslands, héraðsskjalasöfn og handritadeild Lands-
bókasafnsins verða kynnt á sérstökum kynningardegi skjalasafna
sunnudaginn 26. aprfl klukkan 14-18. Meginmarkmiðið er að
kynna einkaskjalasöfn fyrir almenningi, auk almennrar kynningar á
söfnunum.
Að sögn Stefáns Hjartarsonar hjá
Þjóðskjalasafni íslands, er það of fátítt
að fólk feli Þjóðskjalasafni eða héraðs-
skjalasafni einkaskjalasöfn sín eða
forfeðra sinna til varðveislu. Hann
sagði að safnamenn sæktust ekki ein-
Menntamálaráðuneytið skipar
Þróunarnefnd HÍ:
Aukin þjón-
usta HÍ við
atvinnulífið
Menntamálaráðuneytið hefur skip-
að Þróunamefnd Háskóla íslands,
en henni er ætlað að vera yfirvöld-
um menntamála til ráðgjafar í mál-
efnum Háskóla íslands.
Hún á að taka mið af þróun háskóla
í OECD-ríkjunum og þörfum ís-
lensks þjóðfélags fyrir almenna
menntun, starfsmenntun og rann-
sóknir á háskólastigi. Nefndin á sér-
staklega að huga að aukinni þjón-
ustu Háskólans við atvinnulífið í
Iandinu. Formaður nefndarinnar er
Birgir ísleifur Gunnarsson banka-
stjóri. —GKG.
göngu eftir bréfasöfnum „merkilegra
manna“, þ.e. þjóðkunnra manna sem
kannski hafa gegnt ábyrgðarstöðu í
þjóðfélaginu. Stefán sagði að safna-
menn vildu gjaman einnig fá skjala-
söfn frá þeim, sem kalla mætti venju-
lega menn. Veittar verða upplýsingar
um söfnin, söfnun og varðveislu
einkaskjala, auk þess sem slík skjöl
verða til sýnis eftir því sem aðstæður
leyfa á hverjum stað. Á sunnudaginn
verður einnig tekið á móti upplýsing-
um um einkaskjalasöfn.
Söfnin, sem verða opin á sunnu-
daginn, eru: Þjóðskjalasafn íslands,
Safhahúsinu við Hverfisgötu; Borgar-
skjalasafn Reykjavíkur, Skúlatúni 2;
Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar, Borg-
amesi; Héraðsskjalasafn ísfirðinga og
beggja ísafjarðarsýslna, ísafirði; Hér-
aðsskjalasafn Austur- Húnavatns-
sýslu, Blönduósi; Héraðsskjalasafn
Skagfirðinga, Sauðárkróki; Héraðs-
skjalasafn Akureyrarbæjar og Eyja-
fjarðarsýslu, Akureyri; Héraðsskjala-
safn Austfirðinga, Egilsstöðum; Hér-
aðsskjalasafn Neskaupstaðar; Héraðs-
skjalasafn Austur- Skaftafellssýslu,
Höfn Homafirði; Héraðsskjalasafn
Vestmannaeyja; Héraðsskjalasafn Ár-
nesinga, Selfossi; og handritadeild
Landsbókasafnsins, Safnahúsinu við
Hverfisgötu. -EÓ
Barnaleðurskór st. 24-35
Sportskór með riflós st. 35-46
Sportskór reimaðir st. 35-46
AIIKUG4RDUR
VIÐ SUND
„-------------