Tíminn - 23.05.1992, Blaðsíða 11

Tíminn - 23.05.1992, Blaðsíða 11
Laugardagur 23. janúar 1992 Tíminn 11 Einar Oddur Kristjánsson, fráfarandi formaður VSÍ, ræddi nokkuð um landbúnaðarmál á aðalfundi VSÍ í gær; „Innflutningur búvara skapar fleiri vandamál en hann leysir“ Einar Oddur Kristjánsson, fráfarandi formaður VSÍ, vék að landbún- aðarmálum í ræðu sem hann flutti á aðalfundi VSÍ í gær. Einar Odd- ur ræddi m.a. um þær breytingar, sem eru að verða á íslenskri land- búnaðarstefnu og VSÍ hefur átt þátt í að móta. Hann sagði að þeir, sem viija ná niður matvælaverði hér á iandi með innflutningi niður- greiddra búvara, fari offari. Slíkur innflutningur muni skapa fleiri vandamál en hann leysir. Okkur beri að treysta grundvöll íslensks landbúnaðar, en jafnframt gera hann samkeppnishæfan yjð erlendan landbúnað. Sá kafli ræðu Einars Odds, sem fjallaði um landbúnaðar- mál, fer hér á eftir. VSÍ telur sér skylt að stuðla að því að íslenskur landbúnaður haldi velli Viðræðumar um GATT munu von- andi hefjast aftur og nýtt samkomulag mun líta dagsins ljós fyrr en síðar. Það mun hafa áhrif á fjölmarga þætti þjóð- lífsins, en þó langmest á íslenskan landbúnað, sem lengi hefur notið al- gjörrar vemdar. Sú vemd mun minnka verulega og því mikils um vert, að íslensk landbúnaðarfram- leiðsla fái tækifæri til að þróast og að- lagastnýjum heimi. VSÍ hefur alltaf talið sér skylt að stuðla að því að íslenskur landbúnaður þróist þannig, að hann megi halda velli í framtíðinni í þeirri vaxandi sam- keppni, sem mun óhjákvæmilega bíða hans líkt og annarra atvinnuvega. Og að sú þróun eigi sér stað í sem mestri sátt við sem flesta, þ.e. bæði íslenska bændur og neytendur. Því hefúr Vinnuveitendasambandið ásamt Vmnumálasambandi samvinnufélag- anna, Alþýðusambandi íslands, BSRB og Stéttarsambandi bænda tekið þátt í þeirri vinnu að reyna að móta nýja og breytta landbúnaðarstefhu. Þetta hef- ur verið ákaflega erfitt og tímafrekt verk. Fyrstu tillögumar um nýjan bú- vörusamning vegna sauðíjárbúskapar voru lagðar fram í febrúar 1990. Nú nýlega hafa svo litið dagsins ljós nýjar tillögur um skipan mála í mjólkuriðn- aðinum. Mönnum hefúr sýnst sitt hvað um ágæti þessa starfs og margir orðið til að gagnrýna það að hér séu stigin alltof stutt skref í þá átt að auka hagkvæmni Iandbúnaðarframleiðsl- unnar. Þeir, sem þetta segja, kunna að hafa margt til síns máls. En á hitt ber þó að líta að hér er við ramman reip að draga og vandamálin mýmörg og margslungin. Það er sannfæring okkar að íslensk landbúnaðarframleiðsla verði svo sannarlega að eiga sér fram- tíð og að því eigi að vinna með öllum ráðum. íslenskur landbúnaður er snar Einar Oddur Kristjánsson, fráfarandi formaöur VSÍ. Timamynd Ami Bjama þáttur í atvinnulífi okkar og okkur ber að treysta grundvöll hans, ekki síður en annarra atvinnugreina. Landbún- aðurinn mun ná umtalsverðum ár- angri þegar bestu landbúnaðarhéruð- in fá að njóta landgæða sinna, verð- myndunin er frjáls og bóndinn nýtur sjálfur þekkingar sinnar, dugnaðar og gerhygli. Neytendur munu ekki una háu matvælaverði Við búum við alltof hátt matvælaverð og neytendur munu ekki una því endalausL En þeir, sem vilja eyða þeim vanda með frjálsum innflutningi á niður- greiddum matvælum, eru offerar, sem örugglega munu færa þjóðinni fleiri og erfiðari vandamál en þeir leysa. Við eigum í dag örugglega við nógu mörg félagsleg og efnahagsleg vanda- mál að stríða, þó ekki bætist við sú upplausn, sem óhjákvæmilega hlytist af því að sveitir landsins færu í auðn á skömmum tíma. í mínum huga er engum vafa undirorpið að sú mikla vinna, sem Vinnuveitendasambandið hefur lagt ffarn við þessi erfiðu mál, á fullkomlega rétt á sér og mun skila okkur miklum árangri. Og þó að rétt sé að skrefin séu of stutt og árangurinn sé enn sem komið er of lítill, þá hefúr öðrum ekki gengið betur að losa þessa mikilvægu at- vinnugrein út úr þeim frumskógi far- ánlegra reglna og laga, sem svo lengi hafa hrjáð hana og komið í veg fyrir að fyllstu hagkvæmni yrði náð. Því tel ég, að þeir, sem að þessu hafa unnið, eigi lof skilið en ekki last -EÓ HREIN NYULL 270 MOSFELLSBÆ • SÍMI 91-666300

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.