Tíminn - 23.05.1992, Blaðsíða 17
Laugardagur 23. maí 1992
Tíminn 17
DAGBOKI
Fræðslufundur
um sjávarspendýr
Mánudaginn 25. maí n.k. verður haldinn
f Reykjavík fræðslufundur um sjávar-
spendýr („Hearing on Marine Mamm-
als“) á vegum fslandsdeildar Evrópu-
ráðsþingsins í samvinnu við Evrópuráðs-
þingið og íslenska sjávarútvegsráðuneyt-
ið. Fræðslufundurinn er haldinn á Hótel
Sögu (ráðstefnusal A) og hefst ki. ii.
Á fundinum munu fjöldi erlendra vís-
indamanna flytja erindi og auk þess
verða almennar umræður. Erindin verða
á ensku eða frönsku og verður túlkað á
bæði málin.
Fundurinn er opinn fjölmiðlum, en
tilkynna skal þátttöku til Þóru Guðna-
dóttur, ritara fslandsdeildar Evrópuráðs-
þingsins, sími 11560 (211).
Auglýsíngasímar T-ímans
Ull
uu
Reykjanes
Leiðarþing
Steingrímur Hermannsson alþm., formaöur Framsóknar-
flokksins, heldur leiöarþing á eftirtöldum stööum:
Mosfellsbæ 25. mai kl. 20.30 I Hlégaröi.
Hafnarfiröi 26. maí I félagsheimili framsóknarmanna að
Hverfisgötu 25.
Kópavogi 27. mal kl. 20.30 I Framsóknarhúsinu v/Digra-
nesveg.
Stjóm Kjördæmissambandsins.
Steingrímur
Hermannsson
Sumartími skrifstofu
Framsóknarflokksins
Frá 18. mal er skrifstofa okkar i Hafnarstræti 20, III. hæö, opin frá kl. 8.00 til 16.00
mánudaga-föstudaga.
Veriö velkomin.
Framsóknarflokkurinn.
Framsóknarvist í Kópavogi
Spiluð verður Framsóknarvist aö Digranesvegi 12, sunnudaginn 24. maí og hefst
kl. 15.
Kaffiveitingar og verölaun.
Freyja - félag framsóknarkvenna.
Létt spjall á
laugardegi
REYKJAVÍK
Léttspjallsfundur verður haldinn á skrifstofu Framsóknar-
flokksins i Hafnarstræti 20, laugardaginn 23. maí kl. 10.30.
Rætt veröur um stööuna I stjómmálum viö þinglok.
Spjalliö innleiöir Finnur Ingólfsson alþingismaöur.
Fulltrúaráðið.
Finnur
Sjávarútvegsráðstefna
Endar kvótinn hjá
Kolkrabbanum?
Haldinn af SUF, FUF-Reykjavik og Framsóknarflokknum I Rúgbrauösgeröinni, Borg-
artúni 6, laugardaginn 23. mal kl. 13.00-17.00.
Dagskrá:
Ávarp formanns SUF.
13.00-13.20 Einar Oddur Kristjánsson, fyrrverandi formaöur VSl.
13.20- 13.40 Umræöur og fyrirspumir.
13.40- 14.00 G. Valdimar Valdemarsson, fulltrúi SUF.
14.00-14.20 Umræður og fyrirspumir.
14.20- 14.40 Þröstur Ólafsson, aöstoöarmaöur utanrikisráöhena.
14.40- 15.00 Umræöur og fyrirspumir.
15.00-15.20 Kaffihlé.
15.20- 15.40 Ámi Gislason, skipstjóri og formaöur undirbúningshóps að félagi um
breytta fiskveiöistjórnun.
15.40- 16.00 Umræöur og fyrlrspumir.
16.00-16.20 Halldór Ásgrímsson alþingismaöur.
16.20- 16.40 Umræöur og fyrirspumir.
Ráöstefnustjóri Gunnar Bragi Guömundsson, formaöur FUF-Reykjavik.
Ráðstefnan er öllum opin.
Guömundur
Bjamason
Valgeröur
Sverrísdóttir
Jóhannes Geir
Sigurgeirsson
Norðurland eystra
Fundir með alþingismönnum
Þingmenn Framsóknarflokksins f kjördæminu boöa til almennra stjórnmálafunda,
sem hér segin
Félagsheimiliö Árskógur sunnudaginn 24. maí kl. 16.00.
Félagsheimiliö í Grímsey mánudaginn 25. mai kl. 17.00.
Bergþórshvoll, Dalvík, þriöjudaginn 26. maí kl. 20.30.
Félagsheimilið Tjamartoorg, Ólafsfiröi, miövikudaginn 27. maí kl. 20.30.
Þingmenn veröa til viötals í Bergþórshvoli kl. 18.00-19.00.
Framsóknarflokkurinn.
Hattahóf SUF
Hattahóf SUF veröur haldið á Fógetanum, 2. hæö, laugardaginn 23. mal n.k. Þeir,
sem vilja boröa á staðnum, mæti kl. 20.30, en aörir kl. 23.00 eða slöar.
Sá, sem ber frumlegasta hattinn, veröur valinn hattmann ársins og hlýtur hann
hattaoröuna.
Mætum öll og skemmtum okkur eins vel og siöast.
Framkvæmdastjórn SUF.
Sharon Stone er ánægö meö útlitiö, en hún er ekki síöur ánægð meö hvaö hún er vel gefin. Hún er samt
oft misskilin og segir: „ Við Barbie- dúkkurnar eigum ekki aö hegða okkur eins og ég geri!“
Sharon Stone er bráögáfuö Ijóska
— og það þykir óviðeigandi!
Sharon Stone er leikkonan sem
slær svo kröftuglega í gegn í kvik-
myndinni Ógnareðli (Basic Inst-
inct) sem nú er sýnd í Regnbogan-
um. Mótleikari hennar þar er Mi-
chael Douglas og þar eru engir au-
kvisar á ferð.
Sharon er 33ja ára, kemur frá
smábæ í Pennsylvaniu, hefur einu
sinni verið gift í heila 22 mánuði
en býr nú ein í húsi sem hún er að
gera upp í Hollywood Hills. Hún
hefur nú orðið svo mikið að gera
að hún má ekkert vera að hugsa
um einkalíf, en er tilbúin að tjá sig
við blaðamann um hvaðeina enda
segist hún vera undantekning á
reglunni, hún sé vissulega Ijós-
hærð og Barbie-dúkkuleg, en hún
sé líka - - ekki bara greind — held-
ur hörkugreind!
Það eru ekki síst kynlífsatriðin í
Ógnareðli sem þykja í djarfasta lagi
og Sharon er spurð hvort henni
haft ekki þótt óþægilegt að vera
klukkustundunum saman allsnak-
in fyrir framan kvikmyndavélamar,
en hún gerir lítið úr því. Erfiðara
hafi verið að setja sig í þau flóknu
sálarspor sem hlutverkið krafðist.
Og henni óx heldur ekki í augum
að vinna 20 stunda vinnudag, hún
segist orðin meistari í kríublund-
um.
Og þá er það þetta með einkalíf-
ið sem hún hefur engan tíma fyrir.
Hvernig slappar hún af? Nú í
augnablikinu er hennar helsta
tómstundagaman að brjóta upp
steingólfið í bakgarðinum með
loftpressu. Það þykir henni ágætis
afslöppun. Aftur á móti segist hún
verða taugaóstyrk af því að dútla í
garðinum.
Sharon fæst til að lýsa sjálfri sér:
Ég vildi hugsa mér sjálfa mig sem
notalega og illkvittna, gáfaða og
heimska, lága og háa, feita og
granna. Með öðrum orðum hvaða
konu sem er. Maðurinn minn sagði
oft að ég væri Sambland af Zsa Zsa
Gabor og Arnold Schwarzenegger,
og ég held bara helst að hann hafi
haft rétt fyrir sér!
Hjónaband Michaels
Dougla§ í hættu
vegna Ognareðlis?
Sagt er að hjónaband Michaels og
Diöndru Douglas hafi oft staðið
tæpt og komi þar tvennt til. Hjón-
in hittist sjaldan þar sem Michael
hleypur úr einu stórverkefninu í
annað og sé því alltaf önnum kaf-
inn. Og á meðan er kona hans á
þönum í selskapslífi New York
borgar. En ekki hvað síst sé frúin
óánægð með hvað maðurinn
hennar hefur óstöðvandi og
óslökkvandi áhuga á öðrum kon-
um.
Nú mun Diöndru hafa þótt
keyra um þverbak eftir frammi-
stöðu Michaels í kvikmyndinni
Ógnareðli (Basic Instinct) sem
sýnd er þessa dagana í Regnbogan-
um. Kvikmyndin sú er umdeild og
vakti t.d. hatramma andstöðu
lesbía og homma áður en farið var
að sýna hana. En vinsæl er hún og
vel sótt og áreiðanlega áhrifamikil.
Reyndar svo áhrifamikil að frú
Douglas dreif sig í bíó til að sjá
með eigin augum hvort maður
hennar væri eins tilþrifamikill í
bólinu þar og af er látið.
Og henni brá í brún, reyndar svo
mikið að hún heimtaði að þau
hjónin hittust og ræddu málin,
enda munu þau ekki hafa hist
nema sex sinnum á undanförnu
ári. Hún krafðist þess að þau tækju
sér nú hveitibrauðsdaga öðru
Michael og Diandra Douglas geröu enn eina tilraunina til aö klastra
upp á hjónabandiö. Sonurinn Cameron var fenginn til aö punta upp
á selskapið.
sinni og færu til Aspen í Colorado í
tveggja vikna frí til að athuga stöð-
una og kynnast hvort öðru á ný ef
það mætti verða til þess að bjarga
hjónabandinu.
Seinni vikuna dvaldi 13 ára son-
ur þeirra, Cameron, með þeim í
skíðaparadísinni.
Kunnugir hafa reyndar litla trú
á því að hjónabandinu sé viðbjarg-
andi, Michael sé ólíklegur til að
láta af vana sínum að gefa fögrum
konum auga og meira til ef tæki-
færi gefst. En fríið bar þó þann ár-
angur að þegar fór að líða að lok-
um þess voru þau hætt að rífast
stöðugt heldur héldust í hendur
og kysstust allar stundir.