Tíminn - 23.05.1992, Qupperneq 4
4 Tíminn
Laugardagur 23. maí 1992
Saab 9000 CS 2,3 16v:
Afbragðs
bíll á
skikkan-
egu verði
Saab 9000 CS 2,3 er annar bíll-
inn með þessu númeri og næst-
um því nafni, sem Tímamenn
taka til kostanna. Sá, sem við nú
ókum, er þó ekki sama tryllitækið
og sá fyrri, sem hét 9000 CD
Turbo og við ókum fyrir nokkrum
mánuðum. Sá hafði afgastúrbínu
og var sannast sagna gríðarmikið
og öflugt tæki. Það er þó vissu-
lega ekkert undan CS að kvarta
hvað varðar vélarorku né heldur
aðra aksturseiginleika, sem eru
með því besta sem gerist.
Það er um eitt ár liðið síðan Tím-
inn reynsluók Saab 9000 CD 2,3
Turbo. Það var einn best búni og
jafnframt dýrasti Saabinn og í
honum var sannarlega ekkert
skorið við nögl. Það er ekki heldur
Hér eru til húsa 150 hestar.
Heilsárs sumarhús
á hjólum
Hentug fyrir fjölskyldur
eða ferðaþjónustur
Getum útvegaö meö stuttum fyrírvara notuö
heilsárs sumarhús á hjólum.
Stærð: Ca. 3x9 metrar — stofa — eldhús — bað og tvö
svefnherbergi.
Húsin eru 7-8 ára gömul og í góöu ástandi, meö 220
volta raflögn og flestum húsbúnaöi.
Verö ca. kr. 750.000,-
Allar nánarí
upplýsingar í síma
91-676744
GJvarahlutir
mw^ u omorc hnfAo 1
Hamarshöfða 1
Sími676744
Hann sýnist minni en hann er í raun og veru, því aö Saab 9000 CS
er stór bíll og mjög rúmgóöur og þægilegur.
gert í þessum bíl, nema hvað
snerpan er heldur minni, en
minna má nú gagn gera.
Vélin í Saab 9000 CS er sú sama
og í túrbínubflnum: 2,3 1 tveggja
kambása fjölventlavél með yfir-
drifnum krafti, enda hestöflin
ekki færri en 150 DIN. Vélin togar
mjög vel á öllu snúningssviðinu
og fjögurra hraða sjálfskiptingin
virkar mjög mjúklega og „rétt“.
Saman vinnur vélbúnaðurinn
nánast óaðfinnanlega við hvaða
aðstæður sem vera skal og mjög
hljóðlega — svo hljóðlega og þýtt
að halda mætti að vélin sé sex eða
jafnvel átta strokka en ekki fjög-
urra. Eftirtektarvert er einnig hve
vel vélin vinnur með skipting-
unni, þegar gefið er í á hraðabil-
inu 80-130. Það er eins og fólk
þrýstist í sætin, en ekki bara það:
hér er á ferðinni umtalsvert ör-
yggisatriði við t.d. framúrakstur.
Saab 9000 CS er aflmikill og
verulega hraðskreiður bfll og ég
býst við að hann sómi sér vel
lengst til vinstri á átóbönum
Þýskalands, þar sem enn er ótak-
markaður hámarkshraði, ásamt
stórum Benzum, BMW og Por-
sche.
Saab 9000 er með stærstu fólks-
bílum og í Bandaríkjunum, landi
hinna stóru bíla, flokkast hann
meira að segja sem stór bíll. Lítið
hefur verið lagt upp úr því að
hringla með útlit bflsins gegnum
árin, en hins vegar hefur stöðug
þróun átt sér stað í vél- og tækni-
búnaði, styrkleika og öryggisþátt-
um, og það finnst glöggt, þegar
bílnum er ekið, að hér fer vandað-
ur og pottþéttur gæðabíll.
Aksturseiginleikar allir eru með
því albesta sem gerist, því þrátt
fyrir stærðina er bíllinn sérlega
lipur og þægilegur í akstri. Hann
95 SERÍAN
FJÖLHÆF
DRÁTTARVÉL
Kröfur til vinnu með dráttarvélum eru fjöl-
breyttar og þú munt sjá að CASE International 95
sería getur ráðið við flest verk.
Dráttarvélarnar eru frá 45 til 90 hestafla, 2
gerðir af húsi, 2 eða 4 hjóla drif, 2 hraðar á vinnu-
drifi og 4 gerðir af gírkössum, m.a. vendigír og
skriðgír.
Ræöiö valbúnaö við okkar menn á þessa
gæðadráttarvél sem fæst á heimsins besta verði
Járnhálsi 2 . Sími 91-683266
110 Rvk . Pósthólf 10180