Tíminn - 23.05.1992, Blaðsíða 12

Tíminn - 23.05.1992, Blaðsíða 12
12 Tíminn Laugardagur 23. maí 1992 Vélsmiöja Kaupfélags Rangæinga á Hvolsvelli: Framleiðir hentug, sterk og ódýr landbúnaðartæki Vélsmiðja Kaupfélags Rangæinga á Hvolsvelli hefur um árabil verið leiðandi í framleiðslu landbúnaðartækja á íslandi. Meðal þeirra tækja, sem framleidd hafa verið, eru mykjusniglar, mykjudreifarar, baggatínur, valtarar, vagnar og afrúllarar fyrir heyrúllur, ásamt los- unarbúnaði fyrir votheysturna. K.R.-losunarbúnaöur fyrir votheysturna gefur bændum kost á aö létta störfin allverulega viö fóöurgjöf. Flest tækjanna em hönnuð af Bjama Helgasyni, vélvirkjameistara á Hvolsvelli, og þróuð í samvinnu við notenduma, íslenska bændur. í því starfi hefur verið lögð höfuðáhersla á að tækin væm ódýr, sterk og hentug og að þau þörfnuðust lítils viðhalds. Þannig hafa tækin yfirleitt hentað sérstaklega vel við þær aðstæður, sem ríkia í íslenskum landbúnaði. I kjölfar breyttra heyverkunarað- ferða ákvað Vélsmiðja K.R. að hefja framleiðslu á tæki, sem hentað gæti við gjafir á rúlluböggum. Fyrir valinu varð afrúllari, sem ætlaður er til að taka rúllubagga úr stæðum, losa þá í sundur og dreifa úr þeim. K.R.- af- rúllarinn er ýmist tengdur ámokstur- stæki eða þrítengi dráttarvéla. Hann samanstendur af burðargrind, dreifi- búnaði og tindum sem stungið er í baggana. Tindabúnaðurinn er í tveimur útfærslum. Annars vegar er einn aðaltindur og svo fjórir stuttir tindar, sem vama því að rúllan snúist á aðaltindinum. Hinsvegar em tveir aðaltindar með 30 cm millibili. Fýrr- nefnda gerðin er einkum ætluð fyrir svokallaðar fastkjamarúllur, en sú síðamefnda hentar betur fýrir laus- kjamarúllur. Hægt er að láta K.R.-af- rúllarann dreifa heyinu niður í múga eða bing, allt eftir því sem hentar bet- ur á hverjum stað. Með afrúllaranum er fáanlegur tvenns konar aukabúnaður. Um er að ræða staurabor og steypuhrærivél, sem tengja má við afrúllarann á 10- 15 mínútum. Þannig nýtist afrúllar- inn sem þrjú tæki, sem kosta aðeins lítið brot af því sem slík tæki myndu kosta sitt í hverju lagi. Afrúllarinn hefúr verið framleiddur í tvö ár og hafa þeir bændur, sem notað hafa tækið, borið á það lofsorði. Annað tæki, sem framleitt hefur verið með góðum árangri hjá Vél- smiðju K.R., er losunarbúnaður í vot- heystuma. Búnaðurinn skilar fóðrinu söxuðu og sundurtættu úr tumi og inn í fóðurgang. Helstu kostir þessa búnaðar em þeir að hann er aðeins drifinn af einum raftnótur, eins eða þriggja fasa, rekstrarkostnaður er lít- ill og búnaðurinn er auðveldur í flutningi milli tuma. Með búnaði þessum hafa bændur náð því að létta störfin við fóðurgjöf, auðveldað losun á votheyi og fengið betri nýtingu vot- heystuma. K.R.-losunarbúnaðurinn hefur þannig verið vænlegur kostur fyrir þá bændur, sem vilja vera með votheysverkun. Bændur, sem reynslu hafa af K.R.-losunarbúnaðinum, telja hann standa feti framar innfluttum búnaði, enda er hann sérhannaður fyrir íslenskar aðstæður. K.R.-baggatínan var fyrst framleidd og sett á markað árið 1979, og síðan hafa verið framleidd u.þ.b. 1.000 stk. Strax á fyrsta ári vakti baggatínan verðskuldaða athygli, þar sem hún vann verk sitt af miklu öryggi við mis- jafnar aðstæður, ólíkt mörgum er- lendum baggahirðingartækjum, sem reynd höfðu verið hérlendis. Fyrstu tínumar eru enn í notkun og hafa lít- ið bilað. Þessi staðreynd og hátt end- ursöluverð notaðra K.R.-baggatína segir sitt um endingu og vinsældir framleiðsluvara Vélsmiðju Kaupfé- lags Rangæinga á Hvolsvelli. PLASTCO - LOFTÞETT LAUSN - Teno spin er tákn fyrir gæði og endingu. Teno spin er loftþétt og verndar heyrúllurnar gegn veðri og vindum og tryggir því gæði töðunnar alla leið. Teno spin hefur plasthólk í miðri rúllu í stað pappahólks. Teno spin heyrúlluplast er endurvinnanlegt. Nú bjóðum við Teno spin heyrúlluplast á mjög hagstæðu veröi! Rúllankostar 3.500,- kr. án vsk. Leitið upplýsinga í tíma fyrir heyannir - það borgar sig. Lækjarseli 11 • Sfmi: 67 OO 90 Þennan búnaö hefur Vélsmiðja K.R. hannaö, en hann auöveldar mjög gjöf úr rúlluböggum. Fáanlegur aukabúnaöur er steypuhrærivél og staurabor. BÆNDUR - VERKTAKAR Höfum hafið innflutning á úr- vals skoskum sturtuvögnum. FRASER F-73 5 tonna með Ijósabúnaði og bremsum. Hjólbarðar 11,5x15, 12-laga — hægt að taka skjólborðin af allan hringinn. Verð aðeins kr. 283,000,- án vask. SANNKALLAÐUR FJÖLNOTAVAGN TtZlésúdftg HÖFÐABAKKA 9 ■ 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-634000

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.