Tíminn - 23.05.1992, Blaðsíða 5

Tíminn - 23.05.1992, Blaðsíða 5
Laugardagur 23. maí 1992 • Tíminn 5 Sjálfskiptingin er fjögurra hraöa og vinnur mjög vel meö vélinni. Takiö eftir stjórnrofunum fyrir miöstöövar- og loftræstikerfiö beint framundan skiptistöng- inni. liggur eins og klessa á veginum, enda er fjöðrunin og búnaður hennar og raunverulega allur bíll- inn útspekúleraður í þeim til- gangi. I venjulegum akstri er fjöðrunin hæfilega mjúk og nota- leg. Þó er alls ekki svo að mýktin bitni á aksturseiginleikum, þann- ig að hann verði síður viðráðan- legur við harkalegri akstur. Þarna hefur Saab flestum öðrum fram- leiðendum betur tekist að þræða hinn gullna meðalveg. Innrétting bílsins er öll mjög þægileg og smekkleg. Hægt er að velja úr ýmsum gerðum áklæðis á sætin, þar á meðal leður. Reynslu- bíllinn var klæddur með plussefni, sem var í stíl við ytri litinn. Þá eru allar hliðarrúður rafknúnar, eins og altítt er orðið, og sama er að segja um stillingar á hliðarspegl- um, en auk þess er í þeim hiti til að halda þeim móðu- og hrímfrí- um. Þá sér alsjálfvirk, tölvustýrð miðstöð um að halda nákvæmlega sama hitastigi í bílnum óháð hit- anum útifyrir, stöðugri loftendur- nýjun, rúðuhita og réttum and- vara hér og þar um bílinn. Tölva stjórnar gangi vélar og skiptingar og getur ökumaður kallað fram úr henni upplýsingar um ástand bflsins að flestöllu leyti. Meðal þess er bensíneyðsla, meðaleyðsla, hiti úti og inni, ekin vegalengd, smurolíustaða og ég veit ekki hvað. Skriðstillir er í bflnum og er mjög auðvelt að stilla hann og breyta í akstri. í það heila tekið er þetta sérstaklega ei- gulegur bíll, vandaður og góður, og sé miðað við hvað fæst fyrir peningana er varla hægt að tala um að Saab 9000 sé dýr, sé miðað við aðra tilsvarandi gæðabíla. Þá spillir varla fyrir að samkvæmt tölfræðilegum athugunum víða um lönd, bæði austanhafs og vest- an, sýnist Saab 9000 vera örugg- asti fólksbíll, sem nú er í umferð, og um það bil þrefalt öruggari en meðalfólksbíllinn. Slíkt er vitan- lega mikils virði. Saab 9000 CS 2,3 er vandaður bíll og vitanlega kosta gæðin sitt. Verð þessarar tilteknu gerðar er 2,437 millj., sem hlýtur að teljast nokkuð sanngjarnt fyrir 150 hest- afla lúxusbfl, sjálfskiptan með öllu því sem hér hefur verið upp talið. En við skulum athuga það að bflar eru tollaðir eftir vélarstærð og skattmann tekur talsvert hærri toll af bílum, sem hafa stærri vél- ar en tveggja lítra. Þannig er samskonar Saab með tveggja lítra 135 hestafla vél talsvert ódýrari og kostar 1,949 millj. Síðan býður Saab enn upp á 900- tegundina. Saab 900 hefur lítið breyst í útliti um langt árabil, en er hins vegar tæknilega verulega breyttur frá því sem var í upphafi. Öll afbrigði hans eru með tveggja lítra 133 hestafla vélum með bein- um innspýtingum og vökvastýri. Þrennra dyra slíkur bfll með fimm gírum kostar 1,574 millj. og fernra dyra 1,607, og það telst með því ódýrara í þessum flokki bíla, þrátt fyrir að hér séu af- bragðsvagnar á ferð. —sá m m m wmmmm mcuhh - HEirvnsnsiuvÉLJkR CUEBIOG GOn VEGO í FYRIRRÓMI Kuhn verksmiðjurnar eru stærsti framleiðandi heyvinnuvéla í heiminum. Við eigum úrval heyvinnuvéla frá Kuhn til afgreiðslu: Diskasláttuvélar, heyþyrlur og stjörnumúgavélar. Véiin fylgir yfirborði mjög vel. Stuttir öxlar, öflugar legur, aukin ending. Vélarnar eru með vökvalyftitjakk. Vélin hefur lítil áhrif á stöðug- leika dráttarvélar í flutningum. Vinnslubreidd diskasláttu- vélanna sem seldar eru hér er frá 2 metrum og upp í 2.8 metra. Uiskasláttuvélar eru nú að ryðja sér til rúms hérlendis. Eftir að rúllubaggatæknin kom til sögunnar hefur sjálfur slátturinn orðið flöskuháls í heyöfluninni. Þareru hinar stóru, létt- byggðu og vandvirku Kuhn- diskasláttuvélar lausnin. Á síðasta áratug hefur orðið mikil þróun í diskasláttuvél- um. Þær eru léttbyggðari en fyrr og þurfa minna afl. Þess- ar vélar slá mjög vel og fylgja landslagi ótrúlega vel eftir, þótt vinnslubreidd sé mikil. Verðið hefur líka lækkað og er nú fyllilega samkeppnis- fært. Sem dæmi má nefna að vél með 240 sm vinnslu- breidd kostar aðeins uml 266 þúsund krónur. Þessar vélar hafa verið 10 ár í notkun hérlendis og hafa verið prófaðar á Hvanneyri. KUHN STJÖRNUMÚGA VÉLAR fást með vinnslubreidd frá 3 metrum og upp í 7.3 metra, en þær vélar sem við erum með á lager eru af gerðinni Kuhn GA 402N og eru með 4 metra vinnslubreidd. Þær eru lyftutengdar. HÖFÐABAKKA 9.112 REYKJAVÍK . SÍMI 91-634000 KUHN HEYÞYRLUR eru til með vinnslu- breidd allt frá 3.1 metra og upp í 7.35 metra, en þær vélar sem við höfum á lager eru með 5 metra vinnslubreidd. Heyþyrlurnar eru bæði dragtengdar og lyftu- tengdar. Þetta eru vandaðar vélar og reynsla íslenkra bænda af þeim er mikil og góð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.