Tíminn - 23.05.1992, Qupperneq 9

Tíminn - 23.05.1992, Qupperneq 9
Laugardagur 23. maí 1992 Tíminn 9 vefur síðan utan um kjamann þang- að til æskilegt þvermál er komið á baggann, sem getur verið frá 60-180 cm. Þetta getur verið hentugt fyrir þá, sem stunda heysölu. Mirrni gerð- in af þessari vél kostar rétt innan við eina milljón og sú stærri kostar 1.070.000. Þá er Jötunn að hefja kynningu á norskri vél frá Orkel, en hún hefur verið þróuð í samvinnu við Búnað- arháskólann í Ási. „Þessi vél hefur ekki venjulega sópvindu, þ.e. hleður ekki í sig að neðanverðu eins og hin- ar tvær, heldur er upptökubúnaður- inn eins konar sláttutætari, sem beinir heyinu í vélina ofan frá. Vélin getur bæði slegið beint af velli og eins tekið úr görðum, og saxar hey- ið. Vegna söxunarinnar kemst um 30% meira hey í baggann heldur en fer í bagga úr hefðbundnum vélum,“ segir Þorgeir. Þá er vegna smæðar stráanna mun auðveldara að gefa úr bagganum. Einnig er fáanlegur á vélina mjög hentugur sýrublöndun- arbúnaður. Þessi vél verður prófuð í sumar undir eftirliti Bútæknideildar á Hvanneyri. Þessi vél er dýrari en hefðbundnar vélar og losar verðið um 1200 þúsund með fullkomnasta búnaði. Mun meira hey fer í bagg- ana í Orkel- vélunum og fastkjama- vélinni frá Massey Ferguson en í hefðbundnum vélum. Þetta sparar geymslurými, flutningskostnað og plastfilmu. Jötunn hefur haft umboð fyrir Underhaug-Silawrap- rúllupökkun- arvélar undanfarin ár og hefur vélin notið mikilla vinsælda hér á landi, en fyrir nokkrum misserum keypti Kverneland- fyrirtækið Underhaug- verksmiðjurnar og em vélamar seldar nú undir nafninu Kverneland Silawrap. Underhaug voru að sögn Þorgeirs brautryðjendur í rúllu- böggun. ,Með því að við hófum þessi miklu viðskipti við Kverneland í gegnum gamla Underhaug-fyrir- tækið, þá var það talið eðlilegt fram- hald að færa jarðvinnsluvélarnar undir sama innflytjandann. Ekki er hægt að segja að þáttur jarðvinnu- véla sé stór hjá okkur, því bændur hafa ekki mikið farið í endurvinnslu túna. Slík endurvinnsla á þó fullan rétt á sér hér eins og erlendis, og ég býst fastlega við því að slík jarð- vinnsla verði ráðandi í framtíðinni." Jötunn hefur hafið að nýju inn- flutning á Hamkmo-hnífaherfun- um, en þau eru mjög ódýr í inn- kaupum, níðsterk og vinna þau flög- in mjög vel. Herfm eru flnnsk og hafa ávallt verið talin vera „Rolls Royceinn" í framleiðslu herfa, enda voru hnífaherfi ávallt kölluð Hamkmo-herfi. Ásamt því, sem hér á undan hefur veriö nefnt, er Jötunn hf. umboðs- aðili fyrir Kuhn-jarðtætara, sláttu- vélar, heyþyrlur og stjömumúgavél- ar, Massey Ferguson sem hefur verið mest selda dráttarvélin á íslandi til margra ára, og Bögballe-áburðar- dreifara, sem hafa Iengi verið meðal mest seldu áburðardreifara á land- inu. Flestir bændur þekkja PZ- sláttuþyrlur, heyþyrlur og stjömu- múgavélar og einnig eru haugsugur og mykjudreifarar frá þýsku BSA- verksmiðjunum bændum vel kunn- ar. Þá má ekki gleyma Alfa Laval mjalta- og mjólkurvinnslukerfi, sem hafa þjónað íslenskum bændum frá árinu 1927, þegar fyrstu skilvind- umar frá þeim voru fluttar hingað til lands. -PS Tímanum íslensk-tékkneska verslunarfélagið hf. Lágmúla 5, sími 84525, Reykjavík. Veröiö á Zetor er alltaf jafn hagstætt Verð án vsk. Zetor 5211 47 hö...............kr. 699.000,- Zetor 6211 59 hö.............. Zetor 7211 Plus 65 hö......... Zetor 7711 70 hö.............. Zetor 7245 Plus 4x4 65 hö..... Verö án vsk. Zetor 7745 Plus 4x4 70 hö........kr. 1.170.000,- Zetor 7711 Turbo 79 hö..........kr. 1.019.000,- Zetor 7745 Turbo 79 hö...........kr. 1.230.000,- Zetor 7745 Turbo Plus 79 hö......kr. 1.285.000,- Zetor 9540 4x4 92 hö.............kr. 1.460.000,- kr. 781.000,- kr. 840.000,- kr. 920.000,- kr. 1.095.000,- LJmboðsmenn um land allt w umbodid: vxO a60(' 1&ov r 92 DIN hö. 4x4 á aðeins kr. 1.460.000,- án vsk. Útbúnaður innifalinn í verði. Nýr samhæfður gírkassi, 16+4 gírar, vökvamilligír, hliðarskipt- ing, bremsur á öllum hjólum, 40 km hámarks- ökuhraði, nýtt ökumannshús með aukasæti, Ijögur vökvaúrtök, tveggja hraða vökvaaflúr- tak, hydrostatic vökvastýri, læst framdrif og margt fleira. NYR ZETOR 9540

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.