Tíminn - 23.05.1992, Page 11

Tíminn - 23.05.1992, Page 11
Laugardagur 23. maí 1992 Tíminn 11 Heyvinnuvélar frá H. Niemeyer eru brautryðjendur á sviði heyvinnuvéla og eru landsþekktar fyrir gæði: Þjónaö íslenskum bændum vel í 30 ár Heyvinnuvélar frá þýska fyrirtækinu H. Niemeyer hafa verið fluttar inn og seldar hér á landi frá árunum 1958-60. Var það sala á Heuma- rakstrarvélinni sem markaði upp- hafið. Tilkoma þeirrar vélar markaði tímamót í tæknivæðingu landbún- aðarins og flýtti mjög fyrir henni. H. Niemeyer er þýsk verksmiðja, með um 100 ára sögu að baki, og hefur fýrirtækið frá uppfiafi að meirihluta verið í eigu sömu fjöl- skyldunnar. Hefur fýrirtækið ávallt verið brautryðjandi á sviði hey- vinnuvéla. Innflutningur á fram- leiðslu fyrirtækisins hófst með sölu á Heuma-hjólarakstrarvélinni. Að sögn Júlíusar Halldórssonar hjá Bú- vélum hf., sem er umboðsaðili fyrir H. Niemeyer á íslandi, tóku bændur þessari nýjung vel. Rakstrarvélin flýtti mjög fyrir tæknibyltingu og olli straumhvörfum í samantekt á heyi. Þá auðveldaði það mjög fyrir sölu að hægt var að tengja vélina aft- an í hvaða dráttartæki sem er, og var ekki óalgengt að sjá á túnum í sveit- um landsins Land Rover-jeppa með Heuma- rakstrarvél aftan í. Júlíus segir að enn þann dag í dag séu gamlar rakstrarvélar í notkun. Sæist það best á mikilli varahlutasölu. Búvélar hf. flytja í dag inn fjöl- breytt úrval heyvinnuvéla frá H. Nie- meyer. Má þar nefna sláttuþvrlur, stjörnumúgavélar og heyþyrlur og að sögn Júlíusar eru tækin lands- þekkt fyrir gæði. Niemeyer varð fyrst framleiðslufyrirtækja á heyvinnuvél- um til að markaðssetja sláttuþyrlur með knosara, sem opnar grasið bet- ur í slættinum, þannig að heyið þornar betur og fyrr svo miklu mun- ar. Þá þykir það betra eftir að rúllu- baggar komu til sögunnar, þar sem heyið pressast betur. H. Niemeyer er nú með í þróun nýja disksláttuþyrlu með knosurum, sem er þeirri nýjung gædd að ekki þarf eins mikla orku til að knýja hana. Fyrirtækið' hefur framleitt sláttuþyrlur, sem hægt er að setja framan á dráttarvélar. Ef slíkt er gert og jafnframt er höfð önnur þyrla aft- an á, má auka vinnslubreiddina upp í 5.30 m. Með nýju vélinni verður Félag vatnasilungs- bænda: Útflutningur aö hefjast Vatnafang hf. er þessa dagana að hefja að nýju útflutning á íslensk- um vatnasilungi. Fyrst um sinn verður fluttur út ferskur silungur á markað í Hollandi, en einnig stend- ur til að flytja frystan silung til Tékkóslóvakíu í sumar. Silungurinn sem fer til Tékkó- slóvakíu verður bæði reyktur og óreyktur, en fiskurinn sem fer til kaupenda í Hollandi verður ferskur. Vatnafang hf. er félag bænda um allt land, sem nýta silungsveiðivötn á jörðum sínum. Um þrjátíu bændur standa að þessu fyrirtæki, en starf- semin hefur farið vaxandi eftir að markaðir fundust fyrir íslenskan vatnasilung erlendis. Á síðasta ári flutti Vatnafang hf. aðallega út til Svíþjóðar og Hollands og reyndist eftirspurnin eftir silungnum meiri en hægt var að anna. Silungsveiðin var fremur dræm í fyrra og kom þar meðal annars til rysjótt veðurfar. Gert er ráð fyrir að skilaverð á sil- ungi til bænda í sumar verði um tvöhundruð og þrjátíu krónur, en það er miðað við innanífarinn fisk með haus. -PS hægt að gera enn betur, en þá verður hægt að setja tvær vélar aftan á, sitt- hvoru megin, og eina vél framan á, og á þann hátt hægt að ná um 8 m vinnslubreidd. Með nýju sláttuþyrl- unni, sem þarf minni orku, verður þetta mögulegt og það er alveg Ijóst að á tímum þar sem vinnuafl verður æ dýrara og auka verður afköst hvers og eins, þá gæti þessi nýjung orðið kærkomin fyrir marga. Búvélar hf. hafa einnig umboð fyr- ir þýsku Fendt-dráttarvélamar, ásamt fleiri vélum og tækjum fyrir landbúnað. -PS Hægt er að auka afköst í heyskap meö lausn, sem H. Niemeyer og Fendt bjóða upp á. Meö því aö nota tvær sláttuþyrlur og innan tíöar jafnvel þrjár á eina dráttarvél, má tvö- og þrefalda afköstin. Fendt- dráttarvélar er hægt að fá meö aflúttaki aö framan ásamt þrítengi. BÆNDATRYGGING : !M: . r Bændatrygging SJÓVÁ-ALMENNRA er nýjung sem gerir tryggingamál bænda bæði einfaldari og hagkvæmari. Þar er sérstakt tillit tekið til þeirrar sérstöðu sem skapast af því að bændur stunda vinnu sína í mjög nánum tengslum við heimili sitt - oftast með fjölskyldu sinni. Atvinnurekstrartrygging vegna búsins ásamt tryggingum sem fjölskyldan þarfnast eru settar saman á eitt tryggingarskírteini og aflientar í einni möppu. Þannig fæst góð heildarsýn yfír tryggingannálin og þar með öruggari og betri trygging. SJOVADIdALMENNAR Kringlunni 5, sími 91-692500 I BÆNDATRYGGINGU SJOVA-ALMENNRA SAMEINAST EINKATRYGGINGAR FJÖLSKYLDUNNAR 0G VÁTRYGGINGAR SNIÐNAR AÐ ÞÖRFUM LANDBÚNAÐARINS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.