Tíminn - 23.05.1992, Síða 15

Tíminn - 23.05.1992, Síða 15
Laugardagur 23. maí 1992 Tíminn 15 hægt að fá í hana hnífabúnað og er þá heyið saxað áður en það fer í baggann. Með þessum breytingum , sparast verulega mikið plast og geymslupláss, auk þess sem mun færri einingar þarf að flytja til og mun auðveldara er að gefa úr bögg- unum, þ.e.a.s. ef vélin er búin söx- unarbúnaði. Heyið er þá skorið smærra og auðveldara er að Iosa það úr bagganum. „Það má segja að Wel- ger sé að yfirtaka alla okkar sölu í rúllubindivélum, en þessi nýja Wel- ger-vél hefur reyndar verið sölu- hæsta rúllubindivélin hér á landi undanfarin ár, og ekki spillir þessi nýi búnaður fyrir.“ Þessi nýja vél kostar 968.000, en ef tekinn er hnífabúnaður bætast við um 180.000. Varahlutadeildin fyrir bú- og vinnuvélar kemur vel undirbúin fyr- ir sumarið og hefur Globus náð mjög hagstæðum samningum á varahlutum, sem í mörgum tilfell- um hefur leitt til verulegrar verð- lækkunar. Nú er fyrirliggjandi mikið úrval af tindum og hnífum, auk þess sem deildin hefur tekið inn mjög stórar sendingar af varahlutum í Ze- tor-dráttarvélar. í sumar verður símaþjónusta með öðrum hætti, sem gerir öll samskipti mun skil- virkari og fljótlegri. Þá verður helg- arþjónusta yfir háannatímann í sumar, auk venjulegrar neyðarþjón- ustu. Globus hefur komið sér upp mjög öflugu og víðtæku þjónustu- og um- boðsmannakerfi, og sagði Magnús Ingþórsson að fyrirtækið kappkost- aði að rækta það kerfi, enda væri Globus eina fyrirtækið sem hefði upp á slíka þjónustu að bjóða. Það eru fjórtán aðilar, um allt land í öll- um stærstu landbúnaðarhéruðun- um, sem hafa hlotið þjálfun og reynslu í viðhaldi véla hjá framleið- endum vélanna ytra. „Við höfum unnið að því að undanförnu að þétta netið enn frekar, en meginmarkmið okkar með þessu er að flytja þjón- ustuna heim í hérað. Við lítum svo á að við getum ekki veit afburðaþjón- ustu, ekki síst á háannatíma, öðru- vísi en að hún sé heima í héraði," sagði Magnús Ingþórsson að lokum. Viðhorfskönnun meðal sauð- fjárbænda: Hvernig á að auka neyslu á kindakjöti? Landssamtök sauöfjárbænda, Sam- starfshópur um sölu á kindakjöti og Upplýsingaþjónusta landbúnaö- arins eru þessa dagana að vinna að könnun meðal sauðfjárbænda á því hvaða leiðir sé vænlegast að fara til að auka sölu á kindakjöti. Öllum sauðfjárbændum hefur verið send- ur spumingalisti, sem þeir eru beðnir um að útfylla og senda Upp- lýsingaþjónustu landbúnaðarins. í fyrstu spurningu er spurt hvern- ig megi auka neyslu á kindakjöti, hvort lækka eigi verð til bænda, gefa verð á kindakjöti frjálst eða hækka veröið og verja auknu fé til kynningar á kjötinu. í annarri spumingu er spurt hvernig megi gera kindakjöt fýsilegra fyrir neyt- endur. í þriðju spurningu er spurt hvort bændur eigi að beita sér fyrir að verulegt fé sé lagt í að auka sölu á kindakjöti, t.d. með því að taka ákveðinn hluta af verði til bænda í þessu skyni. í fjórðu spurningu er spurt hvernig sé unnt að fá neyt- endur til að meta betur kosti kinda- kjöts. -EÓ Á síðast liðnu ári voru seld hér á landi á annaá hundraá GLOBUS býbur 5 mismunandi gerðir af ÁLÖ ámoksturstækjum á allar ger&ir dráttavéla. Tækin eru öll meö sjálfvirkri stöðustillingu, sjálvirkri hraðlæsingu fyrir aukatæki og vökvaúrtökum fyrir rúllugreip. ÁLÖ er eini ámoksturstækjaframleiðandinn sem framleiðir einnig rúllugreipar. Greiparnar eru af tveimur gerbum, önnur staflar böggunum liggjandi, hin upp á endan. Greiparnar passa á hraðlæsingarbúnað ámoksturstækjanna og þurfa eigendur ÁLÖ ámoksturstækjanna ekki að standa í dýrari breytingum til að tengja greiparnar á ámoksturstækin. Með greipinni sem staflar rúllunum liggjandi fylgja einnig með rúllubaggatindar sem auðvelda notkun greiparinnar við meðhöndlun á rúlluböggum sem geymdir eru úti yfir veturinn. Með ÁLÖ ámoksturstækjunum má fá fjölda annara fylgitækja svo sem rúllubaggahníf, brettagafla, margar stærðir af skóflum og þrítengiramma sem gerir hægara að tengja öll fylgitæki aftan á dráttarvélina, ALÖ ámoksturstæki og lætur nærri að annað hvert ámoksturstæki sem selt var hafi verið af ÁLÖ gerð. 36? Globusr -heimur gœða! LAGMULA 5 - REYKJAVIK - SÍMI 91 - 681555

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.