Tíminn - 03.06.1992, Blaðsíða 1

Tíminn - 03.06.1992, Blaðsíða 1
íHBBHI Miðvikudagur 3. júní 1992 100. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Óvænt úrslit í dönsku kosningunum um Samdráttur þorskafla í 150 þús.tonn gæti þýtt 25 milljarða viðskiptahalla: sterkari tengsl þjóðanna innan EB: Danir hafna Maastricht samkomulagi Tvöföldun á atviimuleysi? Þvert ofan í það sem búist var við höfnuðu Danir Maastricht samkomulaginu um aukið sam- starf EB ríkjanna. Þeir Poul Schlúter forsætisráðherra og Uffe Elleman Jensen utanríkis- ráðherra, báðir gallharðir tals- menn þess að Danir greiddu samkomuiaginu atkvæði, voru mjög sigurvissir í kosningabar- áttunni og allt þar til fyrstu töl- ur tóku að berast í gærkvöld. Þegar tæp 83% atkvæða höfðu ver- ið talin var ljóst að 50,7% kjósenda höfðu hafnað samkomulaginu en 49,3% goldið því jáyrði. Ljóst er af þessum tölum að mikið djúp er staðfest milli danskra kjósenda og stjórnmálamanna í þessu máli því að danska þingið samþykkti Maast- richt samkomulagið með 130 at- kvæðum gegn 25. Það var því heldur þungt hljóð í ofannefndum ráðherr- um Dana í gærkvöld og utanríkisr- áherrann sagði að úrslitin kæmu sem köld vatnsgusa í andlitið. „Við verðum að hugsa málin upp á nýtt og reyna að komast að samkomulagi við bandalagsþjóðir okkar í því skyni að reyna að bjarga því sem bjargað verður í þágu Danmerkur. Þá verð- um við að fá botn í það hvers vegna slíkt djúp er staðfest milli okkar og kjósenda okkar,“ sagði Uffe Elleman Jensen í gærkvöld. Danska ríkis- stjómin kemur saman nú í dag til að ræða niðurstöðu kosninganna og hvað við tekur í kjölfar hennar. —sá í fjármálaráðuneytinu eru menn aðeins að byija að reikna það dæmi hvað það mundi þýða fyrir þjóðarbúið ef þau ósköp ganga yfir að skera þurfi þorskafla niður í 150 þúsund tonn á næsta ári. Sam- kvæmt minnismiða sem lagður var fram á ríkisstjómarfundi í gær mundu útflutningstekjur minnka um 14-15 milljarða (sem svarar 15-16% af vöruútflutningi síðasta árs). is litið til þess hveráhrif það hefði að þorskveiðar minnkuðu niður í 150 þús. tonn og ekki yrði samhliða grip- ið til neinna aðgerða til að draga úr þeim áhrifum. Þarna er sem sagt ekki einu sinni tekið með í dæmið að sjómenn reyndu t.d. að veiða eitt- hvað annað í staðinn til þess að bæta sér upp aflamissi í þorski. Enn sem komið er séu útreikningamir aðeins komnir að spumingunni; hvað svo? Áhrifin á ríkissjóð segir Bolli Þór lítið sem ekki farið að reikna út enn- þá, utan það að slegið hafi verið á að framangreindar tölur mundu þýða að afkoma ríkissjóðs rýmaði um á bilinu 2-3 milljarðar - - fyrst og fremst vegna minni tekna en einnig aukinna atvinnuleysisbóta. Spurður hvernig hægt yrði að bregðast við þeim samdrætti þjóðartekna sem virðist liggja í loftinu, segir Bolli Þór ekki um margar leiðir að ræða. Ann- aðhvort verða menn að búa við stór- aukinn viðskiptahalla, ellegar að draga þjóðarútgjöldin saman líka á móti minnkandi tekjum. Með því að seinni leiðin yrði fyrir valinu yrði um Það mundi enn auka viðskiptahall- ann um 10 milljarða — til viðbótar þeim 15 milljarða halla sem talinn er blasa við miðað við stöðuna í dag — þannig að viðskiptahalli gæti farið í 25 milljarða. Landsframleiðslan mundi dragast saman um 4-5% til viðbótar. Atvinnuleysi gæti aukist um 2%, eða nær tvöfaldast. Og staða sjávarútvegsins mundi vitanlega enn versna. Lengra eru menn ekki komnir enn- þá í þessum útreikningum að sögn Bolla Þórs Bollasonar hagfræðings. Hann lagði jafnframt áherslu á það að í framangreindu dæmi sé einung- Konur úr forystusveit Fáks ríða á forsetafund: Fákur er sjötugur f tUefní af 70 ára afmæli hesta- mannafélagsins Fáks í Reykjavfk riðu konur úr forystusveit félags- ins á fund forseta íslands, Vigdfs- ar Finnbogadóttur, á Bessastöð- um í gærdag. Brynja Jónasdóttir, fonnaður kvennadeildar Fáks, ávarpaði for- seta og bauð hennl á afmælishátið og kappreiðar Fáks á Víðivöllum í Reykjavfk um hvítasunnuna. f ávarpí sínu sagðt hún meðal ann- ars að f slensid hesturinn hefðí um aldlr verið þarfastí þjónn lands- manna allra, kvenna jafnt sem karia og sagði síðan: „Hestamennskan í dag bindur fjölskyldur traustum böndum, bindur saman ólíkar starfsstéttir og óhka einstaklinga, hún kennir okkur að virða náttúruna og um- gangast landið. En hestamcnnska er einnig íþrótt og um hana gilda sömu lögmá! og aðrar íþróttir. Hún hefur uppcldislegt og félags- legt giidi, sem ekki má gleymast f amstri dagsins.'* —sá enn meiri samdrátt að ræða. Raunar er til ein leið enn, millifærsluleiðin, sem oft hefur verið gripið til. En lík- lega fremur ólíklegt að hún komi til álita hjá núverandi ríkisstjóm. Þótt fáir hafi sennilega búist við auknum sjávarafla næstu árin, em þeir varla margir sem til þessa hafa reiknað með að þurfa að taka svo stóra dýfu eins og nú virðist við blasa. Og þótt áhrifin komi fyrst og fremst fram á næsta ári er í raun ver- ið að tala um lítt breytta eða betri stöðu næstu 3 til 4 árin — nema þá að erlenda stóriðju reki á okkar fjör- ur innan þess tíma. Fróðlegt en fremur sláandi er að skoða tölur um þorskafla á fyrstu 8 mánaða tímabili síðustu þriggja fisk- veiðiára, þ.e. tímabilið frá 1. septem- ber til 30 apríl. 1989/90 211.700 tonn 1990/91 197.100 tonn 1991/92 168.100 tonn Þótt aflaheimildir séu nærri því þær sömu á yfirstandandi fiskveiðiári (265 þús.tonn) og því síðasta (270 þús.tonn) var þorskaflinn 29 þúsund tonnum minni í apríllok en á síðasta ári. Ýmsir draga jafnvel í efa að mönnum takist að ná þeim 97 þús- und tonnum sem þeim er heimilt að veiða þá 4 mánuði sem þama vom eftir af fiskveiðiárinu. - HEI Umhverfisráðuneytið, Tóbaksvarnanefnd og útvarpsstöðvarnar hvetja til þagnar með Sameinuðu þjóðunum: Tveggja mín. þögn í dag? Heimsráðstefna Sameinuðu þjóð- anna um umhverfi og þróun verður sett í Rio de Janeiro í dag og í tílefni þess hefur Maurice Strong, fram- kvæmdastjóri ráðstefnunnar, farið þess á leit við ríki heims að þau sameinist í tveggja mínútna tákn- rænni þögn til að undirstrika sam- eiginlega framtíð mannkyns á jörð- inni. Hugmyndin með þessu er að minna hvert og eitt okkar á þau um- hverfismál sem fjallað er um á Heimsráðstefnu SÞ og tilgang hennar, sem er að tryggja sjálfbæra, réttsýna og heilbrigða framtíð á jörðinni fyrir núlifandi og komandi kynslóðir. Meginmarkmið Heimsráðstefn- unnar verður að koma á heimssam- vinnu milli þróunarlandanna og iðnþjóðanna sem byggir á sameigin- legri þörf og sameiginlegum áhuga á að tryggja framtíð jarðar. Umhverfísráðuneytið og Tóbaks- varnanefnd hafa sameinast um það í samvinnu við íslenskar útvarps- stöðvar að hvetja landsmenn til þess að taka þátt í Heimsráðstefnunni á þennan hátt og hugleiða hlutverk, tilgang og markmið hennar með tveggja mínútna þögn milli klukkan 13.05 og 13.07 í dag. Á þessum tíma munu íslenskar útvarpsstöðvar rjúfa útsendingar og þagna. Umhverfisráðuneytið, Tóbaks- varnanefnd og útvarpsstöðvar lands- ins hvetja landsmenn til þess að taka þátt í þessari tveggja mínútna þögn með Sameinuðu þjóðunum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.