Tíminn - 03.06.1992, Síða 9

Tíminn - 03.06.1992, Síða 9
Miðvikudagur 3. júní 1992 Tíminn 9 DAGBÓK Anna og Pamela Thordarson með vinnlngana. Með þeim á myndinni er Anna Lísa Jónsdóttir, dóttir Önnu, en hún hlaut viðurkenningu fyrir innsenda Campbeil’s upp- skrift Sigurvegarar í uppskrifta- samkeppni Gestgjafans og Bylgjunnar Nú liggja fyrir úrslit f Campbell’s upp- skriftasamkeppni Gestgjafans og Bylgj- unnar. Mikill fjöldi góðra uppskrifta barst inn og hefur dómnefnd valið verð- launauppskriftimar. 1. verðlaun, sem eru helgarferð fyrir 2 til London með Úrval/Útsýn, komu í hlut Önnu Thordarson, Kleppsvegi 46, fyrir bakaðan kjúklingarétL 2. verðlaun, Candy örbylgjuofn, hlaut Pamela Thordarson, Litlagerði 10. Hennar verðlaunaréttur er Party Paté. 3. verðlaun, Candy örbylgjuofn, komu einnig í hlut Önnu Thordarson. Hún hlaut þau fyrir Campbell’s kryddköku. f ljós kom að þær Anna og Pamela eru systur og hafa þær um árabil notað Campbell’s súpur í matreiðslu með góð- um árangri. Þær sendu báðar inn nokkr- ar uppskriftir, og auk aðalverðlaunanna hlutu þær báðar viðurkenningar fyrir aðrar uppskriftir, kassa af Campbell’s súpum. 30 aðilar hlutu viðurkenningu fyrir innsendar uppskriftir. Þeir em: Aðal- heiður Högnadóttir, Ægissíðu 5, Hellu. Margrét Þórðardóttir, Kjarrvegi 7 Rv., Anna K. Sævaldsdóttir, Helgamagra- stræti 53, Ak., Halldóra Þorláksdóttir, Háaleitisbraut 32 Rv., Hulda Ingvadóttir, Reykási 39 Rv., Helga Hilmarsdóttir, Kringlunni 27, Rv. Svanbjörg Gísladóttir, Búhamri 9, Vestm.eyjum. Anna Lísa Jónsdóttir, Kleppsvegi 46, Rv. Ingibjörg Þórðardóttir, Sóleyjargötu 1, Vestm.eyj- um. Elínborg Lámsdóttir, Sólvallagötu 32, Rv. Sunna Ólafsdóttir, Öldugranda 1, Rv. Jón Kr. Jakobsson, Fálkakletti 8, Borgamesi. Anna Einarsdóttir, Berg- staðastræti 56, Rv. Kristín Tveiten, Aðal- braut 6, Árskógssandi. Þóra Guðnadóttir, Efstahjalla 21, Kóp. Ólafía Sveinsdóttir, Kjalarlandi 17, Rv. Þorgerður Sigurðar- dóttir, Sigtúni 10, Vík. Nanna Gunnars- dóttir, Fálkagötu 4, Rv. Soffía Guð- mundsdóttir, Tjamargötu 24, Vogum. Sigríður Gísladóttir, Ásavegi 33, Vestm.eyjum. Jón Þór Gunnarsson, Dyn- skógum 12, Hverag. Einar Guðmunds- son, Eskihlíð 20, Rv. María Guðmunds- dóttir, Hraunbæ 89, Rv. Þóra Guðný Sig- urðardóttir, Áshamri 3F,, Vestm.eyjum. Þorbjörg Albertsdóttir, Hlíðarhjalla 64, Kóp. Bima Kolbrún Gísladóttir, Eyktar- ási 11, Rv. Íslensk-Ameríska þakkar öllum sem þátt tóku í uppskriftasamkeppninni. HÚS TIL BROTTFLUTNINGS SUÐURGATA 40, HAFNARFIRÐI Kauptilboð óskast I timburhúsið að Suðurgötu 40, Hafnarfirði, án lóðar- réttinda og skal flytja húsið af lóöinni eigi sfðar en 1. september 1992. Húsið verður til sýnis I samráði við Áma Sverrisson, framkvæmdastjóra St. Jósefsspltala, Hafnarfiröi. Skriflegum tilboðum skal skila á skrifstofu vora að Borgartúni 7, Reykja- vfk, merkt: Útboð 3832/2 fýrir kl. 11:00 þann 15. júni n.k., þar sem þau veröa opnuö I viöurvist viðstaddra bjóðenda. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNl 7 . 105 REYKJAVÍK ÍBLAÐBERA VANTM) víðsvegar um borgina Lynghálsi 9. Sími 686300 Hefur Jane Fonda ofmetnast? „Svarta Venus“ gerö eilíf í kvikmynd Frægasta dansatriöi Josephine Baker lifir enn í minni manna þegar hún dansaöi um sviö í París aöeins íklædd mjaömabelti úr banön- um og gervidemöntum. Þó að 17 ár séu nú Iiðin frá dauða Josephine Baker lifir orðstír henn- ar enn og á trúlega eftir að gera um langan aldur, slík goðsögn hefur myndast um stúlkuna svörtu sem feeddist í fátækt í Missouri en átti eftir að leggja heiminn að fótum sér. Nú hefur verið gerð sjónvarps- mynd um þessa ógleymanlegu listakonu og hefúr hún þegar verið sæmd fimm Emmy-verðlaunum í Ameríku. Það er leikkonan Lynn Whitfield sem bar sigur úr býtum í keppni við 500 aðrar leikkonur um þetta eftirsóknarverða hlutverk. Josephine átti fjölskrúðugan feril. Hún kom ung að árum til Parísar og þar rak veraldarvant fólk upp stór augu, sérstaklega yfir banana- dansatriðinu fræga. Ernest Hem- ingway, sem dvaldist meira og minna með veislu í farangrinum í Frakklandi á þessum árum, lýsti henni þannig að hún væri: „æsileg- asta konan sem nokkur hefði nokk- um tíma séð eða ætti eftir að sjá“. Kvikmyndatökur fóru fram í Búdapest þar sem götumyndin þótti líkust því sem var í París fyrir 50-60 ámm. Josephine Baker bætti fleiri skrautfjöðrum í hattinn sinn. Hún vann með frönsku andspymuhreyf- ingunni á stríðsámnum síðari og ættleiddi íjöldann allan af bömum af ýmsum kynþáttum. Húshaldið reyndist henni dýrt og fimm dög- um fyrir dauða sinn 1975, hélt hún stórskemmtun í París, bæði til að minnast 50 ára ferils í skemmtiiðn- aðinum og afla fjár. Hún var þá 69 ára. Jane Fonda á nokkra ólíka kapít- ula í lífssögunni. Eða eru þeir kannski ekki svo ólíkir? Hún leit dagsins Ijós ljómuð í frægðardýrð föður síns, leikarans Henrys Fonda. Ung að ámm var hún orðin kvikmyndastjarna og giftist franska kvikmyndaleik- stjóranum Roger Vadim sem hafði verið giftur Brigitte BardoL Nú venti Jane sínu kvæði í kross, hún sneri aftur til Bandaríkjanna og fór að hafa afskipti af stjórn- málum. Frægust varð hávær af- staða hennar til Víetnamsstríðsins og deildar meiningar vom í föður- landi hennar um réttmæti heim- sóknar hennar til Hanoi, höfuð- borgar Norður-Víetnams, f banni stjómvalda síns eigin lands. Hún giftist upprennandi stjórnmála- manni, Tom Hayden, og saman börðust þau fyrir „batnandi heimi“. Enn urðu kaflaskil í lífi Jane. Hún gerðist mikil forgöngumann- eskja um þá leikfimi sem kölluð er „eróbíkk" og græddi stórfé á bókum og myndböndum um það hjartans mál sitt. Og hún skildi við stjómmálamanninn. Nú hófust kynni hennar og stór- mógúlsins Teds Turner, eiganda sjónvarpsstöðvarinnar CNN með meiru, og þau leiddu til brúð- kaups ekki alls fyrir löngu. Á þessum fjölskrúðuga ferli hafði Jane tekist að telja ýmsum trú um að hún væri hliðholl jafnrétti og bræðralagi og bæri hag „litla mannsins" fyrir brjósti. En nú hefur sú spurning vaknað hvort hún sé eitthvað farin að ryðga í þeim fræðum eða hafi kannski jafnvel aldrei kunnað þau. Fyrir skömmu gerðist neftiilega Nú er Jane Fonda gift Ted Turner, stórveldi I fjölmiölaheiminum sem á mikiö undir sér. Hefur hún eitthvaö breyst? það, í viðurvist margra vitna, að Jane sýndi á sér nýja hlið. Hún þurfti að fá endurnýjað ökuskír- teinið sitt, eins og svo margir aðr- ir. í afgreiðslunni hafði þegar myndast biðröð sem beið þolin- móð þegar fjölmiðlafrúna bar að en hún strunsaði beint til af- greiðslumannsins. Hann tók henni ekki blíðlega, sagði henni að fara á sinn stað í röðinni. „Veistu ekki hver ég er?“ æpti hún. Hann missti ekki ró sína og sagði að sér væri alveg sama hver hún væri, hún ætti að fara aftast í röðina. Viðstaddir klöppuðu afgreiðslu- manninum lof í lófa.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.