Tíminn - 04.06.1992, Page 9
Tíminn 9
Fimmtudagur 4. júní 1992
DAGBÓK
Fjölskyldudagar í Laugarnesi
Mjög góð aðsókn hefur verið að fjöl-
breyttri dagskrá í Listasafhi Sigurjóns
Ólafssonar á Listahátíð. Böm hafa
skemmt sér við að mála, teikna og
skreyta flugdreka í stóru tjaldi og eru
Vélamarkaður
JÖTUNS
Listi yfir notuð
tæki til á iager
• MF 60H 1987 grafa
• CLAAS R66 87 rúllubindivél
150x120
• Deulz-Fahr 87 rúllubindivél 120x120
• MF 87 heybindivél
• MF 365 dráttarvél 2wd 1987 65 hö.
• MF 350 dráttarvél 2wd 1987 47 hö.
• MF 355 dráttarvél 4wd 1988 55 hö.
• MF 350 dráttarvél 2wd 1988 47 hö.
• MF 240 dráttarvél 2wd 1986 47 hö.
• CASE 1394 dráttarvél m/tækjum
4wd 1985 71 hö.
• MF 390T dráttarvél 4wd 1990 90 hö.
• UNIV. 445 dráttarvél 2wd 1986 47
hö.
• SAME EXPL. dráttarvél 4wd 1985
60 hö.
• IH XL585 dráttarvél 2wd 1985 58 hö.
• MF 350 dráttarvél 1987
• MF 240 dráttarvél 2wd 47 hö.
• MF 355 dráttarvél m/trima ámokst-
urstækjum 2wd 55 hö.
• MF 3080 dráttarvél m/frambúnaði
1987 4wd 100 hö.
• MF 205 iðnaðarvél m/ámoksturs-
tækjum 66
• CASE 783 dráttarvél m/veto
ámoksturstækjum 4wd 1989
• Deutz 6207 dráttarvél m/grind 1982
• Eigum einnig Bandit sláttuvélar fyrir
bæjarfélög og golfklúbba á sérstök-
um afsiáttarkjörum.
J@irty»
lUldsOlífq
HOFÐABAKKA 9 112 REYKJAVlK • SIMI 91-634000
myndir þeirra til sýnis í anddyri safnsins.
Margir hafa farið í ratleiki um Laugarnes
til að fræðast um sögu þess.
Hvítasunnudag og annan í hvíta-
sunnu mun Margrét Hallgrímsdóttir
borgarminjavörður leiða gesti í skoðun-
arferð um söguslóðir Laugamess og
verður lagt upp frá Sigurjónssafhi klukk-
an 15 báða dagana.
Þriðjudaginn 9. júnf kemur Jón E.
Guðmundsson í safnið og sýnir íslenska
brúðuleikhúsið kl. 15.
Fjölskyldudagamir standa til 16. júní
og em öllum opnir frá klukkan 13 til 18
daglega. Leiðsögn er um sýninguna á
æskuteikningum Sigurjóns Ólafssonar
dag hvem kl. 14.
Fritjof Fomlesen í Kringlunni
Norski leikarinn, Lars Vik frá Grenland
Friteater, er staddur hér á landi vegna
Norrænu leiklistardaganna. Hann verð-
ur m.a. með sýningar í Borgarleikhúsinu
í tengslum við Listahátíð.
Lars Vik ætlar að heimsækja Kringl-
una í dag klukkan 16 (fimmtudag) og
mun hann bregða sér í gervi ráðgjafans
Fritjof Fomlesen. Um er að ræða einleik,
sem ber einkenni skemmtilegs trúðleiks
og ætlaður er jafnt bömum sem full-
orðnum.
Snyrtihús viö Gullfoss tekið í
notkun
Miðvikudaginn 27. maí s.l. var tekið í
notkun snyrtihús við Gullfoss.
í áratugi hefúr verið rætt um að koma
upp aðstöðu fyrir ferðamenn við Gull-
foss. Margar tillögur hafa verið gerðar,
en fjármagn hefúr ávallt skort til verks-
ins.
Árið 1990 komst skriður á málið, en á
fjárlögum þess árs vom veittar 4 milljón-
ir til verksins og gerð var tillaga að fyrir-
komulagi. Sú tillaga var samþykkt f júní
1990 af Skipulagi ríkisins.
Að loknu útboði 1991 var gengið til
samninga við SG einingahús á Selfossi.
Smíði hússins lauk svo í síðasta mánuði.
Um er að ræða um 120 fermetra hús. Þar
er fyrst og fremst snyrtiaðstaða, en í hús-
inu er einnig aðstaða fyrir starfsmann og
afdrep fyrir ferðamenn og þar er aðstaða
til að veita ferðamönnum fræðslu.
Vegagerð ríkisins hefur séð um og
framkvæmt á sinn kostnað gerð bíla-
stæðis, auk þess sem Kjalvegur næst
Gullfossi var færður nokkm vestar. Raf-
magnsveitur ríkisins kostuðu raflögn að
húsinu.
Sumartími skrifstofu
Framsóknarflokksins
Frá 18. mal er skrifstofa okkar í Hafnarstræti 20, III. hæð, opin frá kl. 8.00 til 16.00
mánudaga-föstudaga.
Verið velkomin.
Framsóknarflokkurinn.
Framsóknarfélagið í Garðabæ
og Bessastaðahreppi
Almennur félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 4. júni n.k. kl. 20.30.
Dagskrá:
Hvað er að gerast I bæjarmálum og fl.
Þetta er I slðasta sinn sem félagsfundur verður haldinn I Goðatúni 2.
Mætum öll.
Stjómin.
Ásta Ragnheiður Inga Þyrí Sigurður
Kópavogsbúar athugið
Eftirtaldir einstakiingar verða til viðtals á Digranesvegi 12, fimmtudaginn 4. júnl milli
kl. 17 og 19:
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, upplýsingafulltrúi Tryggingastofnunar rikisins.
Inga Þyri Kjartansdóttir, formaður Félagsmáiaráðs.
Siguröur Geirdal bæjarstjóri.
Kópavogsbúar, lltið inn á Digranesveginum og fræðist um nýja almannatrygginga-
löggjöf, félagslega þjónustu I Kópavogi og bæjarmálin almennt.
Stjóm fulltrúaráðs framsóknarmanna i Kópavogt.
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1992
Dregið verður I sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 19. júni n.k.
Velunnarar flokksins em hvattir til að greiða heimsenda gíróseðla fyrir þann tlma.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða I sima 91-624480.
Framsóknarflokkurinn.
Elizabeth Ashley var grönn og
spengileg og hamaöist viö kyn-
líf.
Nú er Fríöa frænka hætt kynlífi
og nýtur þess aö boröa í staö-
inn.
En hvers vegna hefur Burt
Reynolds fitnaö svona?
0FFITA SÆKIR —
Á FÓLKIÐ í F0RSÆLU
Elizabeth Ashley, sem leikur Fríðu
frænku í sjónvarpsþáttunum í
Forsælu, hefur heldur betur skipt
um ham. Áður var hún grönn og
spengileg, en hefur heldur betur
hlaðið á sig kílóum að undan-
förnu, þau eru nú orðin 68!
Ástæðuna segir hún vera að hún
sé hætt að stunda kynlíf fimmtug
að aldri, og nú ætli hún að njóta
lífsins með því að borða vel allt
það sem hana langar í, og því mið-
ur langar hana mest í ruslfæði.
í upptökuveri í Forsælu ríkir
góður og léttur andi og þar er
ekkert verið að fetta fingur út í
það þó að leikaraliðið þyngist að-
eins, það eru í mesta lagi nokkur
stríðnisorð sem fljúga. Elizabeth
er nefnilega ekki sú eina úr
stjörnuliðinu sem hefúr auðsjáan-
lega fengið aukið umfang. Það
hefur ekki farið framhjá neinum
að það er farið að reyna á skyrtu-
hnappana hjá Burt Reynolds og
sumir halda því fram að hann sé í
lífstykki tií að hafa hemil á
ístrunni!
En liðið er létt í lund og það
skiptir mestu máli.
Æran er dýr
í Hollywood
Það er víst að næg atvinna er fyr-
ir lögfræðinga í henni Ameríku,
enda er það atvinnugrein í örum
vexti. Ameríkanar eru sem sagt í
stöðugum málarekstri, og eru
það ekki hvað síst eilíf skaðabóta-
mál út af hinu og þessu sem veita
lögfræðingunum atvinnuna.
fHollywood er oft feitan gölt að
flá, þar eru miklir peningar í um-
ferð og kvikmyndastjörnunum
sárt um æruna.
Tískusérfræðingurinn Blackwell
hefur verið ófeiminn að raða
frægum konum á lista yfir 10
verst klæddu konurnar (og
reyndar á annan lista yfir 10
bestu klæddu konurnar) með
(ó)viðeigandi athugasemdum og
má mikið vera ef hann hefur ekki
fengið á sig einhverjar kærur fyr-
ir mannorðsskemmandi athuga-
semdir. Samt er hann svo við-
kvæmur fyrir eigin virðingu að
hann fann sig tilknúinn að krefj-
ast skaðabóta af Johnny Carson,
sem nýlega hefur sagt skilið við
30 ára gamlan spjallþátt sinn í
sjónvarpi Tonight, fyrir að hafa
orðið að þola háð og spott í þætt-
inum.
En nú lítur út fyrir að Blackwell
sjálfur verði að þola sömu örlög.
Við afhendingu Óskarsverðlaun-
anna á dögunum varð einhver
áheyrandi að því að herra Black-
well sagði við félaga sinn að enn
einu sinni væri Edy Williams
þessari hátíð til skammar með
því að mæta í ólýsanlega hræði-
legum tuskum.
Nú er Edy alvarlega að hugleiða
að stefna þessu sjálfskipaða æðsta
dómsvaldi í tískuheiminum fyrir
rétt og krefjast skaðabóta.