Tíminn - 10.06.1992, Síða 1

Tíminn - 10.06.1992, Síða 1
Miðvikudagur 10. júní 1992 104. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Alls 90 komu með bitsár á Slysadeild Borgarspítala á níu mánuðum: Hundsbit, kattarbit og mannsbit álíka algeng AIIs 90 manns komu með bitsár á Slysadeild Borgarspítala á tæplega níu mán- aða tímabili. Af þeim höfðu álíka margir verið bitnir af mönnum og hundum og köttum. Manns- og kattarbit virðast hins vegar hættulegri en hundsbit. Kring- um fjórðungur þeirra sem bitnir voru af mönnum og köttum hafa fengi klí- níska sýkingu, en aðeins 10% þeirra sem bitnir voru af hundi. Þrjá þessara einstaklinga hefur þurft þau oft valdið alvarlegum sýkingum, að leggja inn á spítala, þar af 2 eftir kattarbit og 1 eftir mannsbit. Þessar upplýsingar koma fram í ágripi sem Læknablaðið birtir úr erindi sem Kristján Oddsson læknir mun flytja á læknaþingi á Egilsstöðum um næstu helgi. Þótt bitsár séu oft álitin sakleysisleg, bæði af almenningi og læknum, geta bæði á húð og beini, að sögn Krist- jáns Oddssonar, sem ásamt fleiri læknum hefur síðustu 8 mánuði unnið að rannsókn á bitum og afieið- ingum þeirra á þrem deildum á Borg- arspítala. Rannsóknin náði til allra þeirra 90 sem komu á Slysadeild vegna bitsára af völdum manna eða dýra á tímabilinu frá ágústbyrjun 1991 til 20. apríl 1992. Af þessum hópi kom 31 vegna hundsbits, 27 vegna mannsbits, 23 vegna kattarbits og 9 vegna bits annarra dýra (hesta, kanína, hamstra og rotta). Þeir sem bitnir voru af hundum og mönnum voru flestir karlmenn yfir þrítugL Ríf- lega þriðjungur mannsbitanna tengdist ölvun. Hins vegar urðu mið- aldra eða eldri konur helst fyrir katt- arbitum. Fram kemur að í rúmlega þriðjungi tilfella (32) voru sýni tekin til rækt- unar strax eftir bit í yfirgnæfandi meirihluta þeirra greindust sýklar sem eru einkennandi fyrir munnflóru þeirrar tegundar sem bítur. Til þessa hafa 15 einstaklingar (sjötti hver) fengið klíníska sýkingu; 3 eftir hundsbit, 6 eftir kattarbit og 6 eftir mannsbiL Þar af hefur þurft að leggja þijá inn á spítala, sem áður segir. Höf- undur ályktar að bitsár af völdum manna og dýra séu líklega algeng hérlendis og virðist tíðni, hunds-, kattar- og mannsbita vera svipuð. Gera megi ráð fyrir að aðeins lítill hluti þeirra sem verða fyrir biti leiti aðstoðar Iækna. - HEI Hestamannafélagiö Fákur í Reykjavík hélt upp á 75 ára afmælið um hvítasunnuhelgina með glæsilegu hestamóti. Þrátt fyrir rigningu heppnaðist mótið vonum betur og á meðfylgjandi mynd má sjá níu efstu í A-flokki gæðinga. Frá hægri: Trausti Þór og Gýmir, Sigurbjörn og Þristur, Sigurður og Höfði, Kristinn og Fáni, Atli og Þokki, Olil og Sörli, Aðalsteinn og Dofri, Hinrik og Náttar og Einar Öder og Gustur. Sjá um hestamannamótið á bls. 7 Tímamynd GTK Starfsfólki Borgar- spítala umbunaö með 20 milljónum: 100 m. kr. á 5 mán. Stjóm sjúkrastofnana Reykjavík- urborgar hefur ákveðið að verja 20 miLtjónum króna í þágu starfs- fólks Borgarspítalans vegna þess spamaðar sem náðst hefur. StarfsfóUd var heitið hlutdefld í spamaði spftalans á raiðju ári ef því marktniði yrði náð að spara um 150 milljónir kr. á þessu ári. Rekstrarstaöa spftalans cftlr fyrstu 4 mánuöi ársins sýnír að því takmarid verði náö. Pétur Jónsson, ffarakvæmda- stjóri ríkisspítalanna, segir að 100 milljónir króna hafi sparast hjá þeira á fyrstu firara mánuðura árs- ins. „Vlð lítum svo á að þetta séu fjár- munlr rfldsins og ef þeir berast til rfldsspftalanna þá á að nota þá til að hjálpa sjúkum,“ segir Pétur. „Þar sem verið er að loka báðum sjúkradeildum bæði á Borgarspít- ala og Landspítala þá fannst mönnum í stjórnamefnd rfldsspft- alanna ófært að tofa þvf að umb- una starfsfóUd." Pétur segir heldur liggja á að taka inn fleiri sjúklinga og þetta sé bara tvenns konar hugsunarháttur á hveraig skuli farið með fé rfldsins. Árangur ríkisspítalanna hefur náðst þrátt fyrir að sjúklingum hefur fjölgað um 9,1% fyrstu fimm mánuði ársins miðað við sama tímabfl á síðasta ári, aðgerð- um á almennum skurðstofum fjölgað um 14% og á kvennadeild um tæp 6%. Sparaaðurinn náðist t.d. með niðurskurði á rekstrariið- um og minnkandi yfirvinnu. —GKG. Magnús Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður er að leggja lokahönd á gerð nýrrar kvikmyndar: Um baráttu gegn fiskveiðum Magnús Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður er nú að leggja loka- hönd á gerð stuttmyndar um baráttu svokallaðra umhverfisveradarsam- taka gegn fiskveiðum víða um heim, þar sem hann segir að komi fram Bsláandi upplýsingar um baráttuaðferðir þeirra. Magnús ráðgerir að klára klippingu myndarinnar, sem er um 20 mín. að lengd, í þessari viku og hyggst í framhaldi af því bjóða hana fala um allan heim. „í þessari stuttmynd beini ég augum mínum meira að þeim hliðum svokallaðra umhverfis- verndarsamtaka, sem lúta að fisk- veiðum. Það er efni sem er eigin- lega ofaukið í stóru myndina sem ég er með í undirbúningi, en er svo gott og í því mikilvægar upp- lýsingar að ég ákvað að láta það nýtast í stuttmynd. Efnið hefur safnast í vinnslu hinnar myndar- innar og er mjög alvarlegs eðlis og sláandi og því synd að láta það liggja. Þessi mynd hefur allt til að bera til að vera góð mynd,“ sagði Magnús Guðmundsson í samtali við Tímann. Hann vinnur þessa dagana að klippingu myndarinnar, sem enn hefur ekki hiotið endan- legt heiti, en hefur hlotið vinnu- heitið „Fastir í netinu". Efnið í þessari stuttmynd Magnúsar er fengið víðsvegar að og saman- stendur af viðtölum við einstak- linga víða um heim um herferðir friðunarhreyfinga gegn fiskveið- um. í aðalmyndinni er fjallað lítil- lega um það, en er ekki nægilega fyrirferðarmikið, miðað við eðli málsins. Magnús ráðgerir dreifingu á „Fastir í netinu“ um allan heim og segir hana eiga erindi við íbúa allrar heimsbyggðarinnar. Enn hefur myndin ekki verið boðin ís- lensku sjónvarpsstöðvunum, en Magnús segist vonast til að ríkis- sjónvarpið kaupi myndina, en hann muni þó ekki bjóða hana fala fyrr en hún sé tilbúin. „Myndin á fullt erindi til okkar íslendinga en ég framleiði hana þó fyrst og fremst til sýninga erlendis," segir Magnús. Eins og fram hefur komið vinnur Magnús að gerð annarrar myndar sem er mun stærri í sniðum og hefur verið í vinnslu allt frá því Lífsbjörg í Norðurhöfum var gerð. Þar er skoðuð starfsemi dýrafrið- unarhreyfinga og hreyfinga sem kalla sig umhverfisverndunar- hreyfingar, sem Magnús segir þó vart vera réttnefni, og afleiðingar herferða þessara samtaka á hin ýmsu samfélög víða um heim. „Það er skoðað ofan í kjölinn hvað þau standa fyrir, hvernig starf þeirra er fjármagnað og hverjir raunveruiega standa á bak við þau,“ segir Magnús Guðmunds- son. Hann segist ekki vera varkár- ari í nýju myndinni, þrátt fyrir undangengin réttarhöld vegna Lífsbjargar í Norðurhöfum. „Ég er það ekki nema ef síður væri. Reyndar kennir reynslan mér að sannleikurinn er ekki alltaf nægj- anleg vörn þegar verið er að segja sögu. Maður þarf greinilega að segja hana með þeim hætti að það sé engin leið að fá neinu breytt fyrir dómstólum, orðalagi eða öðru, og í þessari mynd geri ég það. En ég er alls ekki varkárari, því í myndinni eru upplýsingar sem umhverfissinnar myndu gjarnan vilja koma í veg fyrir að kæmu á yfirborðið," segir Magnús Guðmundsson. Ekki er enn ljóst hvenær myndin kemur á markaðinn, en að sögn Magnúsar hafa réttarhöldin í Nor- egi tafið framleiðslu hennar, því þau hafi bæði verið fjárfrek og tek- ið mikinn tíma. Varðandi fjár- mögnunina minnti Magnús á að styrk kvikmyndasjóðs hafi verið mjög í hóf stillt og einungis rúm- ur fjórðungur af því sem sótt var um fengist. -PS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.