Tíminn - 26.06.1992, Qupperneq 12

Tíminn - 26.06.1992, Qupperneq 12
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300 HEIÐI BÍLAPARTASALA Varahlutir í árgerðir '74-'87 Ýmsar smáviðgerðir Kaupi bíla til niðurrifs HEHN ■ BÍLAPARTASALA Flugumýri 18D ■ MosfellsbaB Sfmar «88138 t 887387 AUÐVITAÐ Suðurlandsbraut 12 Úðruvísi bílasala BÍLAR • HJÓL • BÁTAR*VARA- HLUTIR. MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR SÍMI 679225 HÖGG- ^ DEYFAR Verslió hjá fagmönnum varahlutir u Haaurshöfða 1 - s. 67-67-44 Tíminn FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ1992 32 börn írútu sem brann Rúta brann til kaldra kola efst í Kömbunum um kl. 15:30 í gær. Rútan sem tók 41 mann var með 38 manns innanborðs þegar eldurinn varð laus. Meðal farþega voru 32 börn á aldrinum 7-10 ára frá félags- miðstöðinni Tónabæ. Ökumaður og ein 7 ára stúlka voru flutt á sjúkrahúsið á Selfossi með snert af reykeitrun. Þau fengu að fara heim að skoðun lokinni. Að sögn lögreglu kviknaði í út frá vélinni. -GKG. Eins og sjá má gjöreyöilagðist rútan í eldinum. Tímamynd SBS Hluti þeirra íslensku lækna sem sitja ráöstefnuna. Frá vinstri Kjartan Ólafsson, Örn Smári Arnaldsson forseti þingsins, Siguröur V. Sigurjónsson og Einar H. Jónmundsson. Tímamynd. Árni Bjarna. Ráðstefna norrænna röntgenlækna: Hægt ad koma í veg fyrir heilablóðfall Sjúklingar með einkenni frá heila sem bent geta til blóðtappa eru nú rannsakaðir með segulómun og hefur sú tækni gert það mögu- legt að sjá fyrir heilablóöfall. „Það er vaxandi eftirspurn eftir slíkum rannsóknum í dag“, segir Sigurður V. Sigurjónsson læknir. Verði læknar varir við mikil þrengsli í hálssiagæðum með að- stoð segulómunarinnar er gripið til þess ráðs að hreinsa úr æðunum og má þannig bjarga lífi sjúklingsins. Breytingin varðandi segulómunar- tæknina er að verða mjög ör og eru íslendingar vel staddir með segu- lómunartæki Landspítalans. í Nor- egi eru til 6 tæki, sem þýðir eitt tæki á u.þ.b. 700.000 manns. Norð- menn hafa í hyggju að kaupa 6 tæki til viðbótar á næsta ári. Segulómunartækiö á Landspítal- anum er aðallega notað fyrir heila, grindarhol. hrygg og vöðva- og stoðkerfi. I framtíðinni er búist við að það verði mikið notað við hjarta- skoðanir. Á ráðstefnu norrænna röntgen- iækna í gær voru kynnt ný röntgen- skuggaefni sem notuð eru við óm- skoðanir og verið er að þróa úti í hinum stóra heimi. Þeim er spraut- aö inn í blóðrásina og koma þannig fram á röntgenmyndum. Að sögn Einars H. Jónmundssonar læknis hafa þau skuggaefni, sem hingað til hafa verið notuð, haft slæm auka- áhrif en nýja efnið er mun mildara. Einnig er verið að rannsaka skuggaefni sem sett eru í melting- arveginn. Þau hjálpa t.d. við að greina sjúkdóma í þarmi sem erfitt er að gera í dag þar eð þarmurinn er vökvafylltur, á sífelldri hreyfingu og auk þess sem mismunandi innihald er í honum. „Ef við getum stjórnað því sem er inni í þarminum getum við farið að meta til dæmis þarmavegginn bet- ur“, segir Ólafur Kjartansson lækn- ir. „Skuggaefnið þarf að uppfylla þau skilyrði að sjúklingurinn geti tekiö þau inn án þess að skaða sjálf- an sig og svo verður að vera gott aö drekka það því þurft getur að gefa honum heilan lítra“. Ólafur segir ráðstefnur eins og þá sem nú fer fram afar nauðsynlegar til að gefa íslenskum læknum kost á að hitta starfsbræður sína frá öðr- um löndum og ræða það nýjasta sem er að gerast í læknavísindun- um. Ráðstefnugestir sitja ekki við ræðuhöld allan daginn en hafa til dæmis skoðað Þingvelli og Ráðhús Reykjavíkur. Ráðstefnunni lýkur kl.16:00 í dag. -GKG. Fundur samstarfsnefnda samtaka sykursjúkra á Norðurlöndum: Sykursjúkir spara fyrir þjóðfélagið Ríkisstjórnir og samtök sykur- sjúkra a Norðuriöndum undirrituðu yfirlýsingu á árlegum fundi sam- starfsnefnda samtaka sykursjúkra á Norðurlöndum um að vinna að því að fyrirbyggja og minnka hættuna á blindu, nýrnaskemmdum og útlima- missi hjá sykursjúkum. Yfirlýsingin staðfestir að ábyrgðin sé bæði hjá heilbrigðisþjónustunni sem og hjá hinum sykursjúku. Sjúkdómurinn er ólíkur flestum öðrum að því leyti að sjúklingurinn ber ábyrgð á honum sjálfur. Þeir sem þekkja hann vel eiga auðveldara með að fyrirbyggja fylgikvilla hans. Hinn sykursjúki dregur því ekki ein- göngu úr eigin þjáningum heldur dregur hann einnig úr kostnaði þjóðfélagsins. Hann verður því að hafa aðgang að sem bestum upplýs- ingum og þekkingu til að sinna Iífs- tíðarsjúkdómi sínum. Hvorki samdráttur í útgjöldum til heilbrigðisþjónustunnar né fjárhag- ur hins sykursjúka má hindra hann í að sinna sjúkdómnum. Á fundinum var nefnd stofnuð sem ætlað er að kanna hvernig meðal- talsblóðsykur á 6 vikna tímabili eigi að vera svo hægt sé að draga úr fylgi- kvillum og auka lífsgæði hins sykur- sjúka. -GKG. Veiðidagur fjölskyldunnar: Ókeypis veiði í yfir 20 vötnum Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn á sunnudaginn en þá bjóða Ferðaþjónusta bænda og Landssam- band stangaveiðifélaga allri fjöl- skyldunni í ókeypis veiði á yfir 20 stöðum á landinu. Meðal þeirra vatna sem í boði verða eru Úlfljótsvatn í Grafningi, Botns- vatn 3 km austan við Húsavík og Haukadalsvatn í Haukadal. Að baki Veiðidegi fjölskyldunnar býr sú hugmynd að fjölskyldan drífi sig í veiðitúr og njóti þess að renna fyrir fisk í fegurð íslenskrar náttúru um leið og það kynnist skemmti- legri tómstundaiðju. -GKG. Breytingar hjá þingflokki Kvennalista: Skipt um Kristín Ástgeirsdóttir 18. þingmað- ur Reykvíkinga hefur tekið við for- mennsku þingflokks Kvennalistans af Ónnu Ólafsdóttur Björnsson. Varaformaður er Jóna Valgerður Kristjánsdóttir 6. þingmaður Vest- formann fjarða. Sú regla hefur gilt í þing- flokki Kvennalistans að þingkonur skiptast á um að gegna formennsku eitt ár í senn. -GKG.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.