Tíminn - 21.07.1992, Blaðsíða 12

Tíminn - 21.07.1992, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 Askriftarsími Tímans er 686300 AUÐVITAÐ Suöurlandsbraut 12 Oðruvísi bílasala BÍLAR • HJÓL • BÁTAR•VARA- HLUTIR. MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR SfMI 679225 riel HÖGG- * DEYFAR Verslið hjá fagmönnum varahlutir HaaaRtófð* i - s. 67-6744 TVOFALDUR1. vinningur ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ1992 Einstaklingar leggjast nú iðulega inn á sjúkrahús vegna sýkinga af völdum penisillín ónæmra sýkla: VINNINGAR FJOLDI UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA VINNINGSHAFA 1. 5a15 0 2.232.966 2. íajfl? f? 0 388.101 3. 4a15 79 8.474 4. 3al5 2.901 538 Heildarvinninasupphæð þessaviku: hr. 4.851.251 UPPLÝSINGAR: SlMSVARI 91 -681511 LUKKULlNA 991002 Forsetar við Goðafoss Eftir að opinberri dagskrá heim- forseta íslands, Vigdísi Finnboga- nyrðra, svo sem Gullfoss, Geysi og sóknar Richards von Weizsacker, dóttur. Gengu forsetarnir meðal gróðurhúsaraekt í Hveragerði. Hér forseta Þýskalands lauk, ferðaðist annars á Vatnajökul auk þess að standa forsetarnir við Goðafoss. forsetinn um landið ásamt m.a. skoða ýmsa merkisstaði syðra sem Mynd Gunnar G. Vigfússon Leikskólar gróðrarstía fyrir penisillín ónæmar bakteríur? „Penisillín ónæmir Pneumókokkar (PÓPar) hafa náð fótfestu hér á landi og hefur útbreiðsia þeirra aukist hratt á undanfömum miss- erum. Hlutfall fjölónæmra pneumókokka hefur verið hátt (75% á fyrsta ársfjórðungi 1992), en það hefur valdið vandamáium í með- ferð sýkinga af þeirra völdum. Einstaklingar leggjast nú iðulega inn á sjúkrahús vegna sýkinga sem ekki hefur gengið að meðhöndla ut- an sjúkrahúsa," segir í Læknablaðinu um meðferð sjúklinga með fjölónæma pneumókokka (þ.e. ónæma fyrir fjölda sýklalyfja). Greinarhöfundar segja pneumó- kokka vera meðal algengustu skýk- ingavalda manna. Þeir séu algengasta orsök bráðrar miðeyrabólgu, skúta- bólu og lungnabólgu. Á íslandi séu þeir nú önnur algengasta örsök heila- himnubólgu, auk þess sem blóðsýk- ingar í kjölfar lungnabólgu séu al- gengar. Tilkoma fjölónæmra pneu- mókokka veki m.a. spurningar um það hvort þörf sé að einangra þessa sjúklinga. Þótt mikilvægt sé að hefta út- breiðslu PÓPa er útbreiðsla þeirra orðin of mikil til að einangrun allra einstaklinga sem bera þá sé raunhæf. Um sýkta einstaklinga gegnir öðru máli. Sjúklingar með loftvegssýkingar hósti gjarnan og hnerri. Þeir sem sýktir eru af PÓPum séu því líklegir til að dreifa þeim miklu meira en þeir sem eingöngu bera bakteríuna. „Sýkta einstaklinga, sem eru þar sem dreifing PÓPanna er afar óæski- leg, ætti því að einangra. Þetta á við um sýkt böm á leikskólum og sjúk- linga á sjúkrahúsum," segir í grein- inni. Bömum, sem sýkjast af PÓPum og eru í dagvist með öðmm bömum, á að halda heima. Barn með nýgreinda PÓPa-sýkingu má því ekki fara í leik- skóla. Sjúklingar á sjúkrahúsum sem em sýktir af PÓPum eiga að vera í ein- angmn. Þótt æskilegast væri að ein- angra sýkta einstaklinga þar til bakt- erían ræktast ekki lengur frá þeim er það varla raunhæft, einkum vegna þess að PÓPa-berar eru orðnir svo al- gengir. Er því mælt með einangrun í tvo sólarhringa frá upphafi viðeigandi sýklalyfjameðferðar. Mikla og vaxandi útbreiðslu PÓPa má m.a. nokkuð ráða af grein sem einn af höfundum tilvitnaðrar geinar, Karl G. Kristinsson, ritaði í fylgirit Læknablaðsins íyrir skömmu undir fyrrisögninni: ,AIgengi penisillín ónæmra pneu- mókokka í heilbrigðum börnum". Þar segir m.a. að töluverð fjölgun PÓP að undanförnu hafi torveldað sýklalyfja- meðferð á þessum sýkingum. Flestir PÓPar hafa greinst hjá börnum og þá í einstökum aðgreindum tilfellum en ekki sem hópsýkingar. Grunur hefur leikið á að stofnarnir hafi verið búnir að dreifa sér á bama- heimilum." Því var ákveðið að kanna og bera saman fjölda PÓP-bera og sýklalyfjanotkun bama á leikskólum í Reykjavík annars vegar og á Bama- spítala Hringsins hins vegar. Átímabilinu janúar til mars á þessu ári voru tekin nefkoksstrok frá 100 börnum á barnadeildinni og 123 börnum á þrem leikskólum. Jafn- framt vom foreldrar spurðir um notk- un bamanna á sýklalyfjum síðastliðna 6 mánuði. Meðalaldur barnanna var um 3,5 ár. í ljós kom að 54% barna á leikskól- um og 25% barna á barnadeildinni báru pneumókokka. Þar af var hlutfall penisillín ónæmra (PÓPa) 13% og 8%. Og af þeim var aðeins rúmlega fjórðungurinn fjölónæmur, gagn- stætt því sem er í innsendum sýnum frá sjúklingum með sýkingar (75%). Jafnffamt kom í ljós að stór hluti barnanna var á sýklalyfjum þegar sýni vom tekin, eða rösklega þriðjungur barnanna á barnadeildinni og um sjö- undi hluti leikskólabarnanna. Enn fleiri börn höfðu annaðhvort verið á sýklalyfjum í mánuðinum fyrir könn- unina eða fengið sýklalyf þrisvar sinn- um eða oftar á síðastliðnum sex mán- uðum. Ástæða þessara sýklalyfjameð- ferða var í langflestum tilvikum eyrnabólga. Leikskólaböm með PÓPa voru mun líklegri til að hafa fengið sýklalyf en hin börnin. „Stór hluti barna á leikskólum borgarinnar em á sýklalyfjum þar sem beratíðni PÓPa er jafnframt mjög há. Aðstæður á leikskólum eru því mjög hagstæðar fyrir frekari út- breiðslu PÓPa. Mikilvægt er að minnka sýklalyfjanotkun hjá þessum einstaklingum, ef takast á að hefta út- breiðslu fjölónæmra stofna," segir Karl G. Kristinsson læknir í niðurlagi greinar sinnar. Svefnlitlir nágrannar kvörtuðu stórum: VEISLUGLAÐ- IR UNGLINGAR Helgin hjá lögreglunni í Reykjavík var nokkuö góö að þessu sinni þó ýmislegt hafi borið við. Aðfaranótt laugardagsins var róleg en þegar kom fram á morgun varð erilsamt vegna ölvaðs fólks sem var til vand- ræða. Að kvöldi laugardags var tilkynnt að í Elliðaárdal hefði hundur bitið 11 ára gamlan dreng í vísifingur hægri handar. Faðir drengsins fór með hann á slysadeild, þar sem gert var að sámm hans. Hundurinn, sem var einsamall, fannst ekki þrátt fyrir leit. Hann var stór og hvítur. Sama kvöld var komið með 15 ára gamlan dreng á slysadeild en hann hafði fengið skot úr loftriffli í andlit- ið. í Ijós kom að drengurinn hafði skaddast á auga og þarf að fara til frekari rannsókna á augndeild Landakotsspítala. Það liggur Ijóst fyrir hver hleypti skotinu af og er málið því upplýst. Um kl. 3:00 um nóttina hringdi kokkur á veitingahúsinu Við tjörnina í lögregluna og tilkynnti tertustuld. Hann hafði nýlokið við að baka skírn- artertu og lagði hana út til kælingar. Þá komu tveir stráklingar og rændu tertunni. Lögreglan fann hvorki ræningjana né kökuna og varð því kokkurinn að hefja verkið að nýju. 18 ára stúlka kærði nauðgun að laugardagsmorgni. Hún var sam- ferða manni frá öldurhúsi, þar sem þau höfðu bæði verið. Hún segir hann svo hafa nauðgað sér í bakgarði í miðbænum. Maðurinn segir hins vegar allt aðra sögu en málið er í rannsókn hjá RLR. Aðfaranótt sunnudags var mikið um útköll vegna hávaða frá heima- húsum. Skýringin er talin vera sú að margir foreldrar hafa farið út úr bænum um helgina. Á meðan hafa unglingarnir leikið lausum hala og ekki hagað sér betur en kettlingarnar Snúður og Snælda, sem sveifluðu sér meðal annars í ljósakrónunni þegar þeir voru skildir einir eftir heima. Að kvöldi sunnudags varð leiðin- legt slys í Tívolíinu á Bakkastæði. 17 ára stúlka braut tvær framtennur og brákaðist á hendi, þegar hún datt á leið niður stiga úr einu leiktækjanna (Discofeber). Stúlkan hafði misst jafnvægisskyn eftir að hafa verið í tækinu, sem snýst og hristist. Hún fór sjálf á slysavarðstofuna. Jeppa var stolið af bílasölu aðfara- nótt mánudagsins frá Hyrjarhöfða og hefur ekkert spurst til hans síðan. Jeppinn er af tegundinni Grand Wag- oner, árgerð ‘86 eða ‘87. Einkenn- isstafirnir eru IC 465. Sömu nótt var brotist inn í skrif- stofu á Skúlagötu 63 og peningaskáp rænt. Ekki er vitað hvað var í honum. —GKG.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.