Tíminn - 21.07.1992, Blaðsíða 4

Tíminn - 21.07.1992, Blaðsíða 4
4 Tíminn Þriðjudagur 21. júlí 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINHU OG FÉLAGSHYGGJU Otgefandi: Timinn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aöstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guömundsson Stefán Ásgrimsson Auglýsingastjórí: Steingrímur Gislason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavík Sfml: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,- , verö I lausasölu kr. 110,- Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Yfirlýsingar forsætisráðherra vekja ekki traust Nú líður að ákvarðanatöku um heildarafla fyrir næsta fiskveiðiár. Næsta sérkennilegt er hvernig að þessu máli er staðið af hálfu ríkisstjórnarinnar, og er því sjónarspili vissulega ekki lokið. Enginn mælir því gegn að vald til ákvarðanatöku í þessu efni er hjá sjávarútvegsráðherra. Þetta vald er vissulega mikið og auðvitað hvílir sú skylda á sjávarút- vegsráðherra að leita samráðs og ná sem mestri sam- stöðu meðal þjóðarinnar um svo afdrifaríka ákvörðun. Hún varðar afkomu byggðarlaganna í landinu, hvern einstakling og afkomu fyrirtækjanna. Erlendis er fylgst grannt með þessari ákvörðun, ekki síst af þeim aðilum sem láta sig hafréttarmál og verndun auðlinda varða. Lánstraust þjóðarinnar út á við byggist ekki síst á skyn- samlegri nýtingu auðlinda landsmanna. Það er ekki ástæða til þess að ætla að núverandi sjáv- arútvegsráðherra flani að þessari erfiðu ákvörðun. Sam- ráð við samráðherrana er eðlilegt, en afneitun forsætis- ráðherra á rannsóknum Hafrannsóknarstofnunar sem vísindum er ekki traustvekjandi. Innlegg heilbrigðis- ráðherra í þetta mál í fjölmiðlum er það ekki heldur. Gæta verður að því að rannsóknir Hafrannsóknar- stofnunar eru viðurkenndar á alþjóðavettvangi. Við eig- um ekki kost á neinni innlendri ráðgjöf sem kemur í stað hennar. Að hundsa þessa ráðgjöf, þegar hún hefur í för með sér erfiðleika, er stórhættulegt fyrir álit okkar á alþjóðavettvangi og getur veikt stöðu okkar í baráttunni fyrir skynsamlegri nýtingu auðlinda hafsins, þar sem við eigum engan viðurkenndan aðila sem mark er tekið á um hafrannsóknir nema Hafrannsóknarstofnun. Nú lítur út fyrir að sjávarútvegsráðherra sé beittur miklum þrýstingi í ríkisstjórninni og þá sérstaklega af forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra að fara veru- lega fram úr því sem vísindamenn ráðleggja við ákvörð- un heildarafla. ÖIl ráðgjöf um málið er afgreidd af for- sætisráðherra sem óvísindaleg, eða „leikfimiæfingar“. Sýnilegt er að vilji er til þess að bera Þorstein Pálsson atkvæðum innan ríkisstjórnarinnar, ef hann lætur ekki undan í málinu. Meðan þessu fer fram, fer minna fyrir umræðum um það hvernig sjávarútvegurinn sem atvinnuvegur á að mæta því alvarlega ástandi sem framundan er. Er eina bjargráð forustumanna ríkisstjórnarinnar og meiri- hluta þingflokka stjórnarliða að knýja fram nokkrum tugum þúsunda tonna meiri heildaraíla en ráðgjöf seg- ir til um? Það er spurningin um afkomu atvinnugrein- arinnar og hvernig á að lifa við skertar aflaheimildir sem krefst svars. Ýmsar aðgerðir eru mögulegar til þess að milda þennan skell. Stjórnvöld eiga að beina kröft- unum í þá átt. Þá ætti til dæmis að byrja á að endur- skoða þær nýju álögur, sem lagðar voru á sjávarútveg- inn í upphafi þessa árs. Ýmsar aðgerðir eru mögulegar til þess að jafna áfallinu yfir alla landsmenn. Að þessum hlutum ætti ríkisstjórnin sem heild að einbeita sér. Verðir laga og réttar tóku á sig rögg fyrir helgina og stöðvuðu hávaðamengun á Lækjartorgi og ráku burtu kristinn söfnuð, sem ekki er í ríkiskirkjunni og hefur ekki messuleyfi á virkum dögum. Hinir trúuðu fóru með orð síns guðs og spiluðu og sungu honum til dýrðar og sjálfum sér og með- bræðrunum til sálubótar. Þá skeður það að margefldir lög- reglumenn stöðva tilbeiðsluna og sönginn og bera fyrir sig að ekki sé nokkur friður að dæma fólk í nýju dómhöllinni, sem dubbuð var upp úr þrotabúi Útvegsbank- ans. Þar inni voru menn að sinna alvarlegum störfum, svo sem að rýna í 108. grein hegningarlag- anna og reka endahnúta í rukk- unarherferð Þjóðlífs sáluga og fleiru sem að dómsvaldinu snýr. Kvörtunin úr dómhöllinni dugði til að stöðva hávaðameng- unina á Lækjartorgi og var því borið við þegar hinum trúuðu var vísað á brott af friðsælu toginu, að ekki hafi verið sótt um opin- bert leyfi til að syngja og tralla fyrir guð og hvurnmann á torgi hins dómkvadda friðar. Hvað um hávaðamengun? Guðsorð bannað og bulluháttur lögvemdaður í nafni frelsisins Eftir sátu hersingar af rónum og strákaslöttungar á hjólabrett- um æddu eftir sem áður um torgið með skrölti og skellum og skellinöðrunar hvinu sem aldrei fyrr á göngugötunni sællar minningar. Um nokkurra ára skeið hefur síbyljan gargað út úr plötubúð við Lækjartorg. Þar hefur hún verið mögnuð upp í hátalara og hefur djöful- gangurinn gengið jafnt yfir réttláta sem rangláta og plötusalinn rifið stólpakjaft við hvern þann sem dirfst hefur að andmæla og hækkað í græjum sínum í nafni frelsis og markaðs- setningar þegar kvartað hefur verið. Handan Lækjartorgs gegnt dómhöllinni eru opinberar skrif- stofur forseta íslands og forsætis- ráðherra. Hafa þær stofnanir ekki farið varhluta af hávaðamengun- inni frá plötusalanum á Lækjar- torgi. En það dugði ekki til að lækka yfirganginn og rostann í síbyljunni á sínum tíma. Starfsfólk Útvegsbankans kvartaði sáran á sínum tíma yfir hávaðamenguninni, sem ekki var starfsfriður fyrir. Ekki dugði það til að lækka í frekju plötusalans og var hann þá kærður formlega, en frelsi hans til að fótumtroða óskir samborgaranna og kvelja þá í vinnunni var virt meira en vinnufriðurinn. Það er greinilegt að dómsvald- ið og framkvæmdavaldið gera gróflega upp á millil hverjir það eru sem valda hávaðamengun og hverjir það eru sem kvarta undan henni. Þegar dómarar fá ekki vinnufrið er sjálfsagt að reka sálmasöng burt af Lækjartorgi, en þegar bankamenn fengu ekki vinnufrið var þeim sagt að troða upp í eyrun á sér eða fá sér vinnu annars staðar. Plötusalinn og hljóðmengun hans voru friðhelg. Fjör á síðkvöldum Mikið fjör er yfir Bakkastæðinu í næsta nágrenni Lækjartorgs eftir að ferðatívolíið kom þar. Þar eru tíu dieselmótarar í gangi til að knýja leiktæki, sem mikið er gargað í þegar þau snúast og skoppa með fullfermi velborg- andi viðskiptavina. Mótorarnir eru til að Bretarnir, sem eiga skemmtigarðinn, þurfi ekki að kaupa rafmagn á íslandi. Þeir taka það með sér að heiman. Og við sem ætlum að fara að selja þeim raforku um sæstreng. En þótt mikill hávaði sé af leik- tækjum og þeim, sem ærslast í þeim, yfirgnæfir þó mikið hátal- arakerfi með spili og upphrópun- um hann fullkomlega. Græjurnar eru svo flottar að tí- volíið ómar um allan Vesturbæ- inn, Þingholt og Suðurbæ og langt inn fyrir Skuggahverfi og upp á Skólavörðuholt. íbúafjöldi svæðisins er á við nokkra kaup- staði. Þessi skemmtan er framyfir miðnætti kvöld hvert og virðist enginn dómari enn hafa kvartað yfir því að fá ekki svefnfrið. Kannski enginn úr stéttinni búi á svæðinu, því skiljanlega er ekkert mark tekið á þótt óbreyttir borg- arar séu að kvarta fremur en að hlustað var á bankamenn forð- um, þegar þeir báru fram óskir um að fá vinnufrið fyrir hávaða- mengun. Morgungleði Það, sem gerir gæfumuninn, er að tívolíið á Bakkastæði hefur leyfi til að hafa hátt og spila fyrir drjúgan hluta Reykvíkinga fram á rauðanótt, en þeir áhangendur Jesú Krists, sem trufluðu dómar- ana með söng og fyrirbænum, höfðu ekki bréf upp á leyfi frá veraldlegu valdi til að fara með gott á almannafæri um hábjartan daginn. Því voru þeir á brott reknir til að hægt væri að kveða upp réttláta dóma í uppgerðum rústum Útvegsbankans. Á sólbjörtum nóttum er líka mikið sungið og haft hátt á Lækj- artorgi og nálægum slóð- um, um það bil sem nokkrum tugum kráa er lokað í Miðbænum, en yf- irleitt er borgarlífið aldrei líflegra en milli kl. 2 og 6 á morgnana um helgar. Þá er æskublóminn í fullu fjöri og fagnaðarkliðurinn stígur upp af mannfjöldanum og verður af hin dægilegasta síbylja. Þá er enginn handsamaður og borinn burt fyrir að spilla friði á almannafæri með hávaða. Það eru ekki nema þeir sem reka hníf í kvið félaga sinna eða nef- og höfuðkúpubrjóta vinkonurnar sem ástæða þykir til að taka úr umferð. Það er að segja þegar vit- að er hverjir það eru sem ganga um með bitjárn og önnur vopn og slengja þeim inn í eða utan á þá, sem fyrir verða af handahófi. Skellinöðrur, mótorhjólaflokk- ar og púströralausir bílar eru í eltingarleikjum um allan bæ flestar nætur og oft á daginn. Sú hávaðamengun er ekki talin spilla almannafriði, fremur en mótorar hraðbáta á Þingvalla- vatni, sem af einhverjum dular- fullum ástæðum eru ekki taldir til náttúruspjalla. Að syngja guði lof og dýrð við dómhöllina er bannað og varðar brottrekstri af svæðinu ef út af er brugðið. Allur andskotagangur er aftur á móti leyfður og eru all- ir frjálsir að því að hrella sam- borgara sína með hvers kyns há- vaðamengun, ef hún brýtur ekki í bága við reglugerð um sam- komuhald. ,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.