Tíminn - 21.07.1992, Blaðsíða 6

Tíminn - 21.07.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn Þriðjudagur 21. júlí 1992 Mafían svífst einskis og gengur á röð óvina sinna. Annar dómari drepinn: „Þetta er eins og í Beirút," sagði ítalskur lögreglumaður heldur niðurlútur og beygður yfir sprengingunni í Palermo á sunnudag. Hann og fjórir vinir hans lögðu blómsveig á sundurtættan og svartan stað þar sem sikileyski dómarinn Paolo Borsellino og fimm lífverðir hans létu lífið í sprengjuárás sem mafían gerði á dómarann í Palermó á Sikiley á sunnudaginn. Á staðnum lá sundurtætt grind- verk um barnaleikvöll sem var gjör- samlega í rúst. Engin börn voru á leikvellinum þegar sprengjan sprakk enda á sunnudagseftirmið- degi. Allt um kring lágu sundurtætt b'lflök og sum þeirra á hvolfi svo öfl- ug hafði sprengingin verið. Ástandið minnti á það sem sjá mátti í Líbanon eftir 16 ára borgara- styrjöld þar. Þá voru bílasprengjur oft notaðar í átökum stríðandi fylk- inga. Skammt frá staðnum þar sem sprengjan sprakk var Marina, 30 ára sikileysk kona, hágrátandi og gat engu öðru stunið upp en „þetta er hræðilegt, hræðilegt". Foreldrar hennar bjuggu í húsinu andspænis því sem sprengjan sprakk við. Hús þeirra var gjörónýtt sem og tugur annarra húsa í götunni. Dómarinn Borsellino hafði komið í þessa götu til þess að heimsækja móður sína sem þarna bjó. Bíl hafði verið lagt fyrir utan hús gömlu kon- unnar og sprengiefni komið fyrir undir honum. í sprengiefninu var síðan kveikt þegar Borsellino var í þann mund að hringja dyrabjöll- unni hjá móður sinni. Þetta er í annað sinn á innan við tveimur mánuðum sem mafían drepur dómara með þessum hætti á Ítalíu. Drápið á Borsellino, sem hafði boðið mafíunni birginn eftir morðið á dómaranum Falcone, hef- ur nú sett allt á annan endann á ítal- íu. Gengi lírunnar féll meira að segja á gjaldeyrismörkuðum vegna atburðarins. Ljóst er að mafían gengur skipu- Iega til verks og ryður andstæðing- um sínum úr vegi hvað sem það kostar. Þessir tveir dómarar voru efstir á dauðalista mafíunnar enda bjuggu þeir yfir mestum upplýsing- um um hana. Mafían þurfti mest að óttast þessa menn hefðu þeir lifað. í gær mátti sjá hermenn hvarvetna í Palermó höfuðborg Sikileyjar, m.a. við helsta fangelsi borgarinnar, Ucciardino, og við flugvöll eyjarinn- ar. „Fólk er skelfingu lostið," sagði leigubílstjóri einn. „Maður verður kvíðinn í hvert sinn sem opinberir embættismenn eru nálægt vegna þess að þeir eru skotmörk mafíunn- ar. Fólk er jafnvel hrætt við að ganga úti á götu,“ bætti hann við. Þrátt fyrir hræðslu streymdi fólk þó út á götur á sunnudagskvöldið, öskureitt, og tók þátt í sjálfssprottn- um mótmælum gegn þessu síðasta „afreksverki" mafíunnar. Franco Piro, leiðtogi flokks sem hefur baráttu gegn mafíunni á stefnuskrá sinni, sagði á borgarráðs- fundi í Palermo: „Mafíunni hefur tekist að drepa þá tvo menn sem helst hefðu getað leitt baráttuna gegn henni. En mafían hefur líka annað í huga og það er að hræða fólk til hlýðni. Þess vegna verðum við að þrauka í baráttunni gegn kol- krabbanum." Fréttir herma að hvorki meira né minna en 80 kg af sprengiefni hafi verið komið fyrir undir bifreiðinni. „Þetta var hræðilegt. Ég sá miklar eldtungur en heyrði ekkert. Mér fannst eins og ég væri laminn í kvið- Svona leit bifreið dómarans G. Falcone út eftir sprenginguna 23. maí síöastliðinn. inn,“ sagði Antonio Vullo, eini líf- vörður Borsellinos sem komst lífs af. Hann var í brynvörðum bíl að leggja honum skammt frá þegar sprengjan sprakk. Nú liggur hann á sjúkrahúsi stórslasaður. í gær, mánudag, leit staðurinn út eins og eftir stórstyrjöld. Lögreglu- maður sagði fréttamönnum að hann hefði fundið hendi af Emanuela Loi, sem var 24 ára gömul og í lífverði dómarans, liggjandi í járnadraslinu. Meira en 20 bilar lágu eins og hrá- viði um alla götuna. —Reuter/Krás. „Palermó er eins og Beirút!“ Alþjóðleg ráðstefna um eyðni í Hollandi: KONUR í VAXANDIHÆTTU Á AÐ SMITAST AF EYÐNI Alþjóðleg ráðstefna um eyðni stendur nú yfir í Amsterdam í Hol- landi. Þessi ráðstefna er ein sú stærsta sem haldin hefur verið um þennan vágest en fulltrúar eru 11.000 frá 133 löndum. í gær birti Alþjóðaheilbrígðisstofnunin (WHO) nýjar tölur um útbreiðslu eyðni. Samkvæmt þessum tölum hefur ein milljón manna smitast af HIV vírusnum á ekki lengrí tíma en fyrstu sex mánuðum þessa árs. Helmingur þeirra sem smitaðist á þessum tíma er í Afrfku sunnan Sa- hara og um fjórðungur er í Suður- og Suöaustur-Asíu. Þessar upplýs- ingar eru hafðar eftir dr. Michael Merson sem er forstöðumaður þeirrar deildar innan WHO sem hefur með eyðni að gera. Merson sagði að þeir sem virtust vera í mestri hættu nú væru konur og þó einkum ungar konur. Þegar nýsmit fullorðinna eru skoðuð á heimsvísu kemur í ljós að nærri helmingur smitaðra eru ungar konur. Þetta beinir athygli manna ennfremur að því að eyðni virðist nú smitast með ógnarhraða við eðlileg kynmök gagnkynhneigðra. Á ráðstefnunni var sérstaklega tek- ið til þess hve smitið breiðist hratt út meðal gagnkynhneigðra kvenna. „í mörgum löndum smitast fleiri konur en karlar. í hverri viku smit- ast u.þ.b. 15.000 konur af HlV-veir- unni og í sífellt fleiri löndum draga þær á karla," sagði Merson. Haft var eftir Merson að kostnaður heilbrigðisyfirvalda við meðhöndl- un sjúklinga væri stjarnfræðilegur. í Thailandi einu, þar sem sjúkdóm- urinn hefur breiðst út mjög hratt undanfarið, er áætlað að kostnaður við meðhöndlun sjúklinga verði ekki undir 9 milljörðum dala árið 2000. í sumum borgum Afríku eru eyðnisjúklingar í 80% sjúkrarúma, sagði Merson. Hann sagði að svo gæti farið að sumar þjóðir yrðu að verja yfir helmingi heilbrigðisút- gjalda til meðhöndlunar eyðnisjúk- linga. „Og þetta er aðeins toppurinn á ísjakanum. Eyðni mun ógna öll- um framförum og þróun. Eina von okkar í þessum hörmungum er að einbeita okkur að fyrirbyggjandi að- gerðum," sagði Merson við hina 11.000 þingfulltrúa. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur að 10-12 milljónir fullorðinna hafi smitast af HIV vírus og um ein milljón barna. Þar af er talið að ríf- lega tvær milljónir manna hafi veikst en allt að 10-12 ár geta liðið frá smitun og þar til vírusinn hefur náð að veikja viðkomandi með þvf að ráðast að ónæmiskerfi hans. —Reuter/Krás. Nýjar rannsóknir í ísrae! sýna ad: Kynlíf bætir árang ur íþróttamanna Nú þegar Ólympíuleikamlr eru að hefjast er ekki ónýtt fyrir íþrúttamenn að vita að kynlíf get- ur aukið líkumar á guUi. Þetta er haft eftir vísindamönn- um <em þýska tímarítið Blld, sem út kom í dag, vitnar tíl. Vís- indamennimir em starfsmenn fsraelskar kynlífsstofnunar og heita Mordechai Helperín og Al- exander Olchaniesky. „FuUnæging eykur metnað kvenna og gefur þeim aukinn styrk,“ segir í viðtali við vísinda- mennina. Þekktir fijálsíþrótta- menn í Þýskalandi hafa tekið undir þessa skoðun ísraels- mannanna. ,AUt þetta tal um bindlndi í kynh'fi rétt fyrir keppni er argasta þvæla,“ sagði Heike Henkel sem er heimsmeistari kvenna í hástökki. „Kynlíf fyrir keppni skUar sér í meiri árangrí,“ sagði hún. Joseph Keul, sem er læknir þýska ÓfympíuUðsins, tók í sama streng og sagði það útbreiddan misskUning að karlkyns íþrótta- menn ættu að forðast kynlíf rétt fyrir stórátök í íþróttakeppni. „Kynlíf rétt fyrir keppni er hollt og gott bæði fyrír karla og kon- ur,“ sagði hann við tímarítið BUd. „Kynh'f dregur úr kvíða og árásargirad. Það dregur ekld úr Ukamlegum styrk en hefur hins vegar mjög jákvæð áhrif á sál- fræðilega Uðan.“ —Reuter/Krás. Sarajevo Friðargæslusveitir S.Þ. hættu öllu hjálparstarfi I Bosniu þegar mús- limar, Króatar og Serbar neituöu að virða vopnahlé það sem um hafði verið samiö. Áætlað hafði verið að fljúga 20 flugvélum ( gær til Sarajevo með hjálpargögn en öllu þessu flugi var frestað. Þá hafði sprengjum verið varpað á byggingar á flugvellinum og flug- brautir voru ekki öruggar vegna skothríðar. Palermo, Sikiley Italska stjórnin lét hermenn standa vörð fyrir framan helsta fangelsið ( Palermo og bjóst til þess að senda liösauka hermanna til Sikileyjar I gær ( kjölfar morösins á dómaran- um Paolo Borsellino og fimm líf- vörðum hans. Þá lét stjórnin senda 55 dæmda maflósa frá Sikiley til fangelsa víðsvegar á Itallu. Páfinn, sem nú liggur á sjúkra- húsi I Róm og jafnar sig eftir upp- skurð, fordæmdi morðiö og sagði það vera móðgun við Italfu. Blaöa- fulltrúar Vatlkansins sögðu að æxli það, sem fjarlægt var úr páfa I slð- ustu viku, heföi að hluta verið ill- kynja en frumur hefðu þó ekki dreift sér. Baghdad Mótmælendur brenndu fána S.Þ. og eftirmyndir af George Bush for- seta Bandaríkjanna, Hosni Mubar- ak forseta Egyptalands og Fahd konungi Saudi Arablu I einum mestu mótmælum sem fram hafa farið I Irak gegn S.Þ. og eftirlits- mönnum þeirra. Eftirlitsmenn S.Þ. hafa nú staöið við landbúnaðar- ráðuneytið I Baghdad I um tvær vikur og deila þeirra við Iraka orðin að algjöru þrátefli. I norður Irak særðust tveir gæsluliðar S.Þ. þeg- ar sprengja I bll sprakk fyrir utan byggingu S.Þ. I Kúrdaborginni Sul- aimaniyah. Ankara Stofnun á vegum S.Þ. samþykkti að fjármagna sérstaka áætlun um að koma 19.500 Kúrdum aftur til síns heima ef þeir, Kúrdarnir, sam- þykktu áætlunina. Kúrdarnir flúðu til Tyrklands eftir að Irakar réðust á þá með efnavcpnum árið 1988. Nú dvelja þeir I flóttamannabúðum I suöaustur Tyrklandi en búöunum er stjórnað af þremur ríkjum. Talið er að hægt sé að tæma búöirnar á tveimur mánuðum ef Kúrdarnir samþykkja að fara. Jerúsalem Innanríkisráðherra Bandarlkjanna, James Baker, sagðist telja að ár- angur hefði oröiö af viðræðum við leiðtoga Palestínumanna um frið fyrir botni Miðjarðarhafs. Israelskir hermenn dreifðu hópi róttækra gyðinga sem hugðust mótmæla heimsókn Bakers með því að nema land á herteknu svæðunum. Jóhannesarborg A.m.k. níu svartir menn létu lífiö I átökum sem urðu I Suður-Afríku á sunnudag. Þar af voru þrír sem til- heyra hinum herskáu samtökum PAC (=Pan Africanist Congress). Algeirsborg Sex manns hafa látist frá því á föstudag I átökum milli stuðnings- manna islömsku frelsishreyfingar- innar (FIS) og öryggissveita I Alslr. FIS- flokkurinn er bannaöur I land- inu og höfðu farið fram réttarhöld yfir leiötogum hans nú fyrir helgina Einn maður dó á sunnudag og tveir særðust þegar götuvígi voru reist og kveikt var I bifreiðum. Kabúl Hundruð fjölskyldna hafa nú flúiö Kabúl, höfuðborg Afganistan, en undanfarna tvo daga hafa skæðir bardagar geisað þar á milli stríð- andi fylkinga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.