Tíminn - 28.07.1992, Síða 6

Tíminn - 28.07.1992, Síða 6
6 Tíminn Þriðjudagur 28. júlí 1992 Þrátefli í Moskvu út af Honecker sem vill fara til Chile: Þjóðverjar vilja Honecker en Honecker vill þá ekki Erich Honecker, fyrrum leiðtogi Austur-Þýskalands, heldur enn til í sendiráði Chile í Moskvu. í gær var ekki í sjónmáli nein lausn á því þrátefli sem ríkir í máli hans. Tálsmaður sendiráðs Þýskalands í Rússlandi segir að ekki sé von á neinni yfirlýsingu frá Þjóðverjum í bráð um þetta mál. Viðræður haldi þó áfram um framsal Honeckers, sagði blaðafulltrúinn. Fréttastofan Interfax hafði eftir embættismanni í utanrfkisráðu- neyti Rússlands að litlar líkur væru á því að Honecker gæti yfirgefið sendiráð Chile í Moskvu á næstu dögum. Honecker, sem er 79 ára, flúði í sendiráðið í desember eftir að Sovét- veldið hrundi og rússneskir emb- ættismenn bjuggust til þess að vísa honum úr landi á grundvelli þess að hann hefði komið ólöglega til Rúss- lands. Þjóðverjar vilja draga Honecker fýr- ir rétt og láta reyna á það hvort hægt er að dæma hann fýrir manndráp. Þessar sakir á hendur Honecker rekja þeir til þess að hann sé ábyrgur vegna stefnu fýrrverandi ríkisstjórn- ar í Austur-Þýskalandi þar sem landamæravörðum var fýrirskipað að skjóta til bana þá sem reyndu flótta yfir Berlínarmúrinn eða önnur landamæri milli Austur- og Vestur- Þýskalands. Rússar segjast ekki geta rekið Honecker úr landi fýrr en hann hafi yfirgefið sendiráð Chile. Stjórn Chile er hins vegar tvístígandi og veit ekki hvernig hún á að telja Honecker á að yfirgefa sendiráðið. Honecker og Margot eiginkona hans segjast vilja komast til Chile þar sem dóttir þeirra Sonja býr nú. Eric Honecker, fyrrv. forseti A- Þýskalands sáluga. Haft er eftir þýskum sendiráðs- starfsmanni að sú staða sem nú er komin upp hafi komið mönnum í opna skjöldu. Erfitt sé að leysa mál- ið vegna þess að utanríkisráðuneyti Rússa annars vegar og sendiráð Chile hins vegar greini á um leiðir. Þjóðverjar vilji ekki skipta sér af þeim deilum og því sé málið í hnút. Um helgina safnaðist fámennur hópur manna og kvenna saman fýrir utan sendiráð Chile, Honecker til stuðnings. Fólkið veifaði litlum rauðum fánum og krafðist þess að lögregla leyfði því að afhenda Honecker dimmrauðar gladíólur. „Hann er gamall maður. Til hvers að loka hann inni í 10 ár?“ spurði fullorðinn maður og rússnesk amma veifaði borða sem á stóð: „Frelsum Honecker". —Reuter/Krás. Herforingjastórnin í Burma lét loka háskólum landsins á síðasta ári: Háskólar í Burma opna á ný eftir endurhæfingu kennara í gær gaf herstjómin í Burma til kynna að háskólar landsins yrðu opnaðir aftur og ekki síðar en í næsta mánuði. Háskólar hafða ver- ið lokaðir í landinu frá lokum síð- asta árs vegna mótmælaaðgerða stúdenta sem þá fóru fram. Dagblað alþýðunnar í Rangoon sagði í gær að Khin Nyunt hershöfð- ingi og höfuð herstjórnarinnar hefði setið fundi með stjórnendum há- skólanna á sunnudag og rætt leiðir til þess að opna skólana og hefja kennslu. í grein blaðsins kom fram að skól- arnir yrðu líklega opnaðir í næsta mánuði, líklega 17. ágúst. Háskólum í Burma var öllum lokað í desember þegar stúdentar höfðu efnt til tveggja daga mótmælaað- gerða við háskólann í Rangoon. Stúdentarnir kröfðust aukinna lýð- réttinda og þess að Aung San Suu Kyi, handhafi friðarverðlauna Nób- els, yrði látin laus úr haldi. Hún sit- ur sem kunnugt er í stofufangelsi. Hliðum að háskólalóðum var flest- um lokað í stúdentauppreisninni sem varð árið 1988 en herforingja- stjórnin hrifsaði til sín völdin í sept- ember það ár. Þá brutu hershöfð- ingjarnir á bak aftur alla mótspyrnu með vopnavaldi. Háskólar opnuðu hins vegar aftur og hófu kennslu í maí 1991 þegar foreldrum stúdenta hafði verið gert að skrifa undir skjöl þess efnis að þeir ábyrgðust að börn þeirra myndu ekki efna til mótmæla né valda neinum vandræöum. Eftir lokun háskóla í desember síð- astliðnum fyrirskipaði herforingja- stjórnin öllum háskólakennurum að setjast á skólabekk þar sem þeir skyldu læra í eitt skipti fyrir öll hvernig halda ætti uppi aga. Ríkisútvarpið í Burma sagði að á þessum námskeiðum hefði verið lögð áhersla á þjóðemishyggju og að virð- ing væri borin fyrir herforingjunum sem ráða landinu. Máttur stúdenta hefur farið þverr- andi undanfarna mánuði og nú er svo komið að mótmælaaðgerðir eru fátíð- ar. Helst ber á einstaka dreifibréfi með áróðri gegn herforingjastjórninni. Hugaðir stúdentar hafa mátt þola sí- felldar árásir og fangelsanir frá því að herforingjastjórnin tók völdin í sínar hendur. Þegar herforingjarnir hrif- suðu völdin flúðu þúsundir stúdenta til nágrannaríkisins Tælands en þaðan hafa sumir hverjir haldið baráttu sinni áfram. Innanríkisráðuneyti Tælands segir að í Bangkok einni séu um 1500 land- flótta háskólastúdentar frá Burma. —Reuter/Krás. RÚSSAR ÞURFA AD FLYTJAINN HVEITIÐ SITT OG KORNMATINN! Fiskimaöur {Kína beitir fyrir bændur. Notaöi hann flugu eða maðk? Fékk bónda á öngulinn! Kínverskur fiskimaöur hélt sig hafa krækt í þann stóra en þá kom í Ijós aö hann haföi bónda á öngUnum. Bóndinn var eitthvaö leiöur á lífinu og kvótakerflnu þarna austur { Kína og hugöist drekkja sér eftir því sem segir í fréttaskeyti frá kínversku frétta- stofunni China News Service í gær. Fiskimaöurinn, sem er frá Shaanxi héraöinu í miö Kína, haföi lagt út línuna og var aö hala hana inn þegar skyndilega birtist mannshöfuö á önglinum. Fiski- manninum varð eðlilega svo mik- ið um aö hann féll í öngvit. FÓlk sem var skammt undan sá atburðinn og kom þeira háöum tU hjálpar, bóndanum og fiskimann- inum. Bóndinn, sem enn var meö lífsmarki, var leystur af öngUnum og fiskimaðurínn fékk rænuna. Sagt var að bóndinn hefði verið þjakaöur af sorg og ætlað að drekkja sér en ekki er ljóst hví hann beit á öngulinn. —-Reuter/Krás. Aöstoðarlandbúnaðarráöherra Rúss- lands sagði í gær aö opinberlega væri gert ráð fyrir að komuppskera Rússa í ár yrði um 93-94 milljónir tonna. Þessar tölur em meö þeim allra lægstu sem komiö hafa frá opinber- um aöilum í Rússlandi. Áður höfðu talsmenn landbúnaðar- ráðuneytisins spáð því að uppskeran yrði um 96 milljónir tonna. Hagtölur frá Rússlandi sýna hins vegar að raun- veruleg framleiðsla á korni árið 1991 var 89,1 milljónir tonna. Flugfélagið SAS felldi niður allt flug milii Prag og Kaupmannahafnar í gær mánudag. Þessi ákvörðun félagsins kemur í kjölfar deilu Tékkóslóvakíu og Dan- merkur um hvort landið skuli veita 13 landflótta Kúrdum hæli. Tálsmenn félagsins segja að þeir muni ekki hefja flug aftur fýrr en ákvörðun liggi fýrir um hvaða land muni veita hæli flóttamönnunum frá „Sérfræðingar okkar í landbúnaðar- málum segja að komuppskeran verði 93-94 milljónir tonna," sagði aðstoð- arráðherrann Vladimir Shcherbak á fréttamannafundi í gær. Vildi hann kenna ýmsu um, s.s. skorti á olíu, vél- um og varahlutum. Það eru hefð- bundnar ástæður fýrir lítilli fram- leiðni í rússneskum landbúnaði. Verra er að Rússar verða með þessu sífellt háðari innflutningi sem er þeim mjög kostnaðarsamur. Búist er við því að Rússar þurfi að flytja inn um 19 Kúrdistan. Um er að ræða 13 Kúrda frá írak sem em strandaglópar á flug- vellinum í Prag. Yfirvöld í Tékkóslóvakíu neituðu að gefa flugvél frá SAS heimild til flug- taks á sunnudaginn nema áhöfn vélar- innar tæki með sér Kúrdana 13 aftur til Kaupmannahafnar. Svæðisstjóri SAS í Tékkóslóvakíu, Jiri Matousek, sagði í fréttaviðtali við Reuter að ákvörðun þeirra væri ein- milljónir tonna af hveiti og komvöru til loka uppskeruársins 1992/93 sem er 30. júní. Þetta magn bætist við þau 36,3 milljónir tonna sem þeir hafa þegar keypt erlendis frá á undanföm- um árum. Það er ekki lengra síðan en í síðustu viku að haft var eftir Boris Yeltsin, for- seta Rússlands, að innflutningur Rússa á kornvöru yrði líklega alls um 10 milljónir tonna á næsta ári til við- bótar þeim 25 milljónum sem þeir fluttu inn á þessu ári. —Reuter/Krás. göngu fjárhagslegs eðlis en ekki pólit- ísk. „Við getum ekki flogið til Tékkó- slóvakíu meðan málið er óútkljáð og tekið þá áhættu að fleiri vélar verði kyrrsettar hér í Prag.“ Kúrdarnir 13 leituðu eftir hæli í Dan- mörku en var hafnað og vísað úr landi á föstudag. Þeir flugu þá til Prag þar sem flugvél þeirra, sem er tyrknesk einkaþota, tók eldsneyti eftir að hafa komið frá Istanbúl. —Reuter/Krás. Tékkar og Danir í deilum vegna 13 landflótta Kúrda: Flugvél frá SAS kyrrsett Sameinuöu þjóöirnar - Eftir- litsmenn á vegum S.Þ. héldu til Baghdad í gærtil þess að líta eftir vopnum. Þessi ferð þeirra kemur í kjölfar þess að skorist hefur í odda með S.Þ. og stjórnvöldum I Irak vegna vopnaleitar i landbúnaðar- ráöuneytinu í Baghdad. Irakar hafa nú fallist á kröfu S.Þ. um leit í ráðu- neytinu. Rolf Ekeus yfirmaður liðs- ins sem nú heldur til Baghdad, lét þó hafa eftir sér í sjónvarpsviðtali í gær að litlar likur væru á því að eft- irlitsmennirnir finndu nokkur vopn eða upplýsingar um vopn i ráðu- neytinu. Washington - George Bush, for- seti Bandaríkjanna, lét greinilega á sér skilja í gær að hann þyrfti að ná sér niðri á Saddam Hussein leiðtoga Iraka. „Þótt Saddam virðist hafi látið aö vilja S.Þ. í þessu máli er ekki Ijóst hvort hægt er að treysta honum í þessu máli,“ sagði Bush. Sarajevo - Nokkuð dró úr bar- dögum í Sarajevo í gær þegar Evr- ópubandalagsþjóðirnar héldu áfram tilraunum sinum til þess að koma á friöi. Fulltrúar S.Þ. hafa horfið frá þeirri áætlun að flytja burtu öll börn úr borginni með flugi þar sem slíkt sé of áhættusamt. Blaðafulltrúi friðargæsluliðs S.Þ. í Bosníu, Mik Magnússon, sagði að sprengjuvörpur og rifflar hefðu ver- ið notuð í bardögum síðastliðna nótt en að öðru leyti hefði nóttin verið róleg. Bonn -1 gær kom til Þýskalands síðasta lestin af sex sem flutt hafa 5600 flóttamenn frá Bosníu. Stjórn- völd í Bonn reyna nú að fá aðrar Evrópuþjóðir til þess að taka við flóttamönnum sem flestir eru mús- limar á flótta undan Serbum. Serb- ar virðast ætla sér að „hreinsa" landið og hrekja alla „óæðri" þjóð- flokka á burt. Ríkisstjórn Búlgaríu hefur sakaö Serba um að reka múslima eins og hvern annan bú- fénað allt að landamærum Make- dónlu sem er rétt við Búlgaríu og setja þar allt í uppnám. Jóhannesarborg - Afriska þjóð- arráðið krafðist þess í gær að fram færi hlutlaus rannsókn á ásökunum þess efnis að lögregla í Suður-Afr- íku murkaöi lífið úr föngum sínum með barsmíðum reglulega. I yfir- lýsingu frá Afríska þjóðarráðinu segir að u.þ.b. einn fangi á viku láti lífið með þessum hætti. Jenin, Vesturbakkanum - Palestínumenn í borginni Jenin á Vesturbakkanum segjast munu halda áfram fimm daga allsherjar- verkfalli fram í hið óendanlega nema Israelsmenn skili þeim líki af mótmælanda sem drepinn var í síðustu viku. Moskva - I gær var skotið á loft geimflaug frá Baikonur geimrann- sóknarstöðinni í Kazakhstan með tveimur Rússum og einum frönsk- um vísindamanni. Geimflaugin er Soyuz TM-15 og er henni ætlað að flytja mennina til Mir geimstöðvar- innar sem er á sveimi um jörðu. Berlín - Dómstóll í Berlín úr- skurðaði í gær að heimilt væri að byggja verslunarmiðstöð á einum frægasta stað í Berlín frá dögum kalda stríðsins. Staðurinn er Checkpoint Charlie en þar var hliö á Berlínarmúrnum fræga inn í Austur- Þýskaland. Á þessum stað horfðust þeir í augu Bandaríkja- menn og Sovétmenn gráir fyrir járnum um árabil. Staöurinn er einnig frægur fyrir það að þar skipt- ust stórveldin á njósnurum sem handteknir höfðu verið. Bandaríkja- menn munu fjármagna þessa verslunarmiðstöð sem áætlaö er að muni kosta um 540 millj. dala eða 800 milljónir þýskra marka.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.