Tíminn - 28.07.1992, Qupperneq 12

Tíminn - 28.07.1992, Qupperneq 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 Áskriftarsími Tímans er 686300 AUÐVITAÐ Suðurlandsbraut 12 Óöruvisi bílasala BÍLAR • HJÓL • BÁTAR•VARA- HLUT1R. 7L? HOGG- jy . DEYFAR Versiið hjá fagmönnum MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR SÍMI 679225 GS varahluti IH . Hamarshöföa 1 - s. 67-67-44 ÞREFALDUR1. vlnningur 1 111111111 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1992 Útlánum Borgarbókasafns fækkað úr 967.000 niður í 646.000 á áratug: Um 15.200 bækur ónýtar eða töpuöust á sl. ári Þótt Borgarbókasafn Reykjavíkur keypti eða fengi á annan hátt nær 16.600 bindi af bókum á sl. ári óx bókaeign safnsins nær ekkert, því allar þessar nýju bækur gerðu lítið meira en að vega upp á móti bók- um sem urðu ónýtar eða töpuðust þetta eina ár. Arsskýrsla safnsins fyrir 1991 upplýsir að safnið afskrifaði nær 15.200 bækur á árinu. Þar af voru rúmlega 4.800 taldar tapaðar og rúmlega 10.300 ónýtar. Bókaeign safnsins óx því aðeins um tæplega 1.500 bindi, eða innan við tíunda hluta þess sem keypt var. Rýrnun bókakostsins bitnar sérstak- lega illa á skáldverkum. Þrátt fyrir að Borgarbókasafnið keypti um 7.500 bindi af skáldverkum í fyrra fækkaði skáldverkum í eigu safnsins um 2.500 á árinu. Það þýðir að rúm- lega 10.000 bindi af slíkum bókum hafa annað hvort tapast (verið stol- ið?) eða orðið ónýt (lesin upp til agna?). Alls var bókakostur safnsins um 390 þúsund eintök um síðustu áramót, hvar af um helmingurinn var flokkað sem skáldverk. Ársskýrslan sýnir sömuleiðis að bókaútlán halda áfram að dragast saman ár frá ári. Langmest hefur sú fækkun orðið hjá bókabílunum, sem fyrir áratug lánuðu 194 þúsund ein- tök, um 107 þúsund fyrir fímm ár- um og aðeins 51 þúsund eintök í fýrra, þ.e. aðeins rúmlega fjórðung þess sem lánað var úr bókabílunum 1981. Enda segir í ársskýrslu safns- ins að kanna þurfi rækilega hvernig farið verði með bókabfíana. „Og er raunar verið að undirbúa slíka at- hugun.“ Eftirfarandi tölur sýna hvernig út- lán Borgarbókasafnsins hafa þróast ár frá ári á síöustu tíu árum (sléttað í heil þúsund): Útlán Borgarbókasafnsins 1981—1991 Án Lánuð eintök: 1983 879.000 1984 800.000 1985 748.000 1986 828.000 1987 715.000 1988 684.000 1989 686.000 1990 707.000 1991 646.000 Útlánum hefur sem sagt fækkað um þriðjung á einum áratug. Með sama áframhaldi verða bóka- útlán úr sögunni kringum árið 2010. Fjölgun útlána 1986 virðist eiga sér þá skýringu að þetta var fyrsta starfsár safnsins í Gerðu- bergi, þar sem útlán urðu um 193 þúsund þetta ár. í Gerðubergi var fjöldi útlána á síðasta ári nánast hinn sami (163 þúsund) og hjá aðalsafninu. „Bókin heim“ er sú deild safns- ins sem nýtur stöðugt vaxandi vinsælda. Á árunun 1981-86 voru útlán þar á milli 6 og 7 þúsund á ári. Síðan hefur þeim farið fjölg- andi ár frá ári og voru komin í um 11.400 á síðasta ári. - HEI Án Lánuð eintök; 1981 1982 967.000 894.000 Fundur hjá sáttasemjara: Samiö við yfirmenn á fiskiskipum Á fundi hjá sáttasemjara í gær var gengið frá samkomulagi milli yfir- manna á fiskiskipum og Vinnuveit- endasambands Islands. Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fiskimannasambandsins, segir að þjóðarsáttarsinfonían með tilheyr- andi stefum hafi verið samþykkt, það sé ekki um annað munstur að ræða og menn komist ekki lengra. Enn er ósamið við stýrimenn á far- skipum, en samningafundum hefur verið frestað í deilunni fram í miðj- an ágúst vegna sumarleyfa. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- Vegir og færð um allt land: Flestir greiöfærir Allir helstu vegir um landið eru nú greiðfærir en Vegagerð ríkisins vill taka fram að klæðningarflokkar eru nú að störfum víða um landið. Ökumenn eru sérstaklega beðnir um, að gefnu tilefni, að virða sérstakar hraðatakmarkanir þar sem klæðning hefur nýlega verið lögð og forðast þannig að valda tjóni af völdum steinkasts. Uxahryggir og Kaldidalur eru nú opnir allri umferð og allir hálendis- vegir eru opnir með þeirri undantekn- ingu þó að Hlöðuvallavegur er enn ófær. kvæmdastjóri VSÍ, segir að enn sé ólokið að semja í nokkrum deilum. Það eru deilan í ísal, ósamið er við nokkur félög járniðnaðarmanna og ekki er búið að ganga frá samning- um við vélstjóra á fiskiskipaflotan- um, en Þórarinn gengur út frá að það gerist fljótlega. Hann segist gera sér vonir um að stærsti hlutinn af þessum deilum verði leystur áður en samningarnir losni aftur, sem er 1. mars og nokkrir um áramót. Þá er ósamið við Verkalýðsfélag Austur-Húnvetninga. -BS JOIHIHÍ J0mm Menn ,etu s,9 hafa það að stökkva niður úr heljarmiklum byggingakrana við í teygjutvisti Kringluna á sunnudag. Það var vertinn f Hard Rock Café, Tómas Tómasson, sem stóð fyrir uppákomu þessari og stökk hann fyrstur. Hér er verið að losa hann úr teygjunni eftir stökkið, heilan á húfi. Timamynd sigursteinn íslandsmótið í rallakstri: Asgeir og Bragi fyrstir 1. Steingrímur og Guðmundur með 47 stig. 2. Ásgeir og Bragi með 46 stig. 3. Rúnar og Jón með 42 stig. -BS Þriðja umferð íslandsmótsins í rallakstri fór fram á laugardag. íslandsmeistararnir Ásgeir og Bragi á Metró-bifreið sigruðu og jöfnuðu jafnframt íslandsmetið á Lyngdals- heiðinni (7 mín. og 18 sek.). í öðru sæti, 10 sek. á eftir, uröu feðgarnir Rúnar og Jón á Mazda- bif- reið, eftir mikla og harða baráttu um sekúndur við þá Steingrím og Guðmund á Nissan-bifreið. Þeir urðu að sætta sig viö þriðja sætið í þetta sinn, einungis fjórum sekúnd- um á eftir feðgunum. Páll og Witek á Escort náðu fjóröa sætinu og Bald- ur og Guðmundur á Mazda náðu fimmta sæti. Staða þeirra þriggja efstu í íslandsmeistarakeppnini er: Maður stal hraunhellum við Dugguvog: Vin hans vantaöi hellur Sá atburður gerðist á sunnu- dagskvöldiö að vaktmaður nokkur f Dugguvoginum varð var við tvo menn á bfí með kerru bar að húsi skammt frá þar sem hraunhellum hafði verið raðað upp. Mennimir tóku hellumar traustataki, settu í kerrnna og óku á brott. Manninum fannst þetta ekkert athugavert þá en tók niður númer bflsins til vonar og vara. Þegar eigendur hússins komu á vettvang kom í Ijós að þjófar höfðu verið á ferð. Lögreglan fann bðinn með kerruna aftan f en hún var tóm. Eigandi bflsins tjáði lög- reglunni að vin sinn hefði vantað hraunhellumar og því hafði hann tekið þær. Manninum var gert að skila þeim aftur á sinn stað og vom þær komnar þangað rúmum tveimur klukkustundum síðar. —GKG. Vinningstölur laugardaginn VINNINPAR FJ0LDI UPPHÆO A HVERN VlNNiNoAH vimninqshAFA VINNINGSHAFA 1,. 5af 5 | 2. ÆsáT 3. 4. 189 6.225 6.187.846 537.831 6.275 444 Heildarvinningsupphæö þessa viku: kr. 11.213.383 upplysingar simsvari91 -681511 lukkuuna991002

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.