Tíminn - 17.09.1992, Page 1

Tíminn - 17.09.1992, Page 1
Fimmtudagur 17. september 1992 173. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, um hækkun framfærslukostnaðar: Allt brostið með minnkandi kaupmætti Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, segir að allar hreyfingar til hækkunar séu til hins verra. Út af fyrir sig sé allt brostið með minnkandi kaupmætti og þar undanskilur hann ekki grundvöll núgildandi kjarasamninga. Hann boðar að verkalýðshreyfingin muni gera ákaflega grimmar at- hugasemdir við þær ráðstafanir, sem ríkisstjómin boðaði í fyrra- kvöld sem munu leiða tii minnst 7500 króna hækkunar á fram- færslukostnaði vísitölufjölskyldunnar. Sé þessi hækkun skoðuð í ljósi þeirrar 1,7% hækkunar, sem launa- fólk fékk við gerð síðustu kjara- samninga, kemur í ljós að þessi síð- asta hækkun á framfærslukostnaði vísitölufjölskyldunnar hefur étið upp, ein og sér, ríflega helminginn af því, sem fólk fékk við gerð síðustu kjarasamninga. Launafólk með 60 þúsund krónur í mánaðarlaun og því 720 þúsund á ári, fær samtals 12.200 krónum meira í laun á samningstímanum. Að frádregnum Davíð Oddsson forsætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra fullvissuðu aðila vinnu- markaðarins á sameiginlegum fundi í gærmorgun um að atvinnumála- nefnd ríkis og þeirra mundi halda áfram störfum, þrátt fyrir að stjóm- in hafi spilað út nokkrum af þeim trompum sem nefndin vann að, s.s. framkvæmdum í vegagerð og end- urbótum á opinbem húsnæði og ný- byggingum. Þegar ríkisstjómin kunngerði til- lögur í atvinnumálum í fyrrakvöld, urðu margir sárir í atvinnumála- nefndinni og töldu að grundvöllur fyrir áframhaldandi nefndarstarfi væri brostinn. Meðal þeirra var for- þessum 7500 krónum em því aðeins eftir 4.700 af ávinningi síðasta kjara- samnings. Þótt verðlag hafi ekki mikið hækkað á liðnum missemm og verðbólga hefur verið lítil, er við- búið að búið sé að éta þessar launa- hækkanir upp í hækkandi verðlagi undir yfirskini kerfisbreytinga. Formaður Dagsbrúnar segir að þessi hækkun á framfærslukostnaði vísitölufjölskyldunnar muni skerða kaupmátt, auka á erfiðleika fólks og leiða einnig til aukins atvinnuleysis. seti Aiþýðusambands fslands, Ás- mundur Stefánsson. Að sögn Guðmundar J. lögðu for- ystumenn stjómarflokkanna allt kapp á það að nefndin héldi áfram störfum, m.a. vegna hins mikla vanda sem er í sjávarútveginum og í öðmm atvinnugreinum. Hins vegar vildu þeir ekki lofa nefndinni „opn- um tékka“, þegar hún leggur fram tillögur sínar í atvinnumálum. „Án þess að ég vilji gagnrýna einn eða neinn, þá tel ég að of mikils seinagangs hafi gætt í störfum at- vinnumálanefndarinnar. Því verk- efnin eru ærin og tíminn dýrmæt- ur,“ sagði Guðmundur J. Guð- mundsson. -grh Afleiðingar af litlum kaupmætti birtast m.a. í því að framkvæmdir verða minni, þar sem kaupgeta fólks minnkar, og það sé ein aðalástæðan fyrir þeirri lægð sem er í efnahagslífi landsmanna. Þótt kaupmáttur tíma- kaups hafi í sjálfu sér ekki minnkað mikið, þá hefur hins vegar kaup- máttur ráðstöfunartekna launafólks hrapað töluvert með skertri yfir- vinnu. Guðmundur J. segir að eitt helsta efnahagsvandamálið um þessar mundir sé sú staðreynd að það sé offramboð á fólki með lítinn kaupmátt. Þá telur Guðmundur J. fyrirsjáan- legt að atvinnuleysi muni aukast m.a. hjá prenturum og bókagerðar- mönnum, ef boðaðar hækkanir á bókum og blöðum muni leiða til samdráttar í viðkomandi atvinnu- greinum. Að sama skapi ber hann kvíðboga fyrir vetrinum, þótt eitt- hvað hafi fækkað á atvinnuleysis- skrá hjá Dagsbrún í þessum mán- uði. „Ég er ansi hræddur um að það fari að halla aftur undan fæti þegar hann dimmir meira, og þá fjölgar atvinnulausum á ný,“ sagði Guð- mundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. -grh Forstjóri prentsmiðj- unnar Odda: Óeðlilegt og vanhugs- að slys ,J4ér finnst þetta óeðlilegt, van- hugsað og þetta er slys, ef þetta verður svona,“ segir Þorgeir Baldursson, forstjóri prentsmiðj- unnar Odda, um niðurfellingu endurgreiðslu á innskatti, sem mun líklega leiða til 18% verð- hækkana á íslenskum bókum. „Það, sem mér finnst vera afleitt fyrir prentiðnaðinn, er að þarna er beinlínis verið að hafa áhrif á þá þróun að bókaútgefendur taki inn til sín alla þá vinnslu sem þeir geta, til að losna við virðis- aukaskattinn." „Menn munu í auknum mæli reyna að ná niður verði. Hvort þeir leita til útlanda eða til inn- lendra aðila er spurning um hvar verðið er best,“ sagði Þorgeir. Umferðarslys á Suður- landsvegi: Sex á slysa- deild Alvarlegt umferðarslys varð á Suð- urlandsvegi við Gunnarshólma um klukkan 17.16. Þar rákust saman fimm bifreiðar, þar af ein rúta og jeppabifreið. Sex manns voru fluttir á slysadeild Borgarspítalans í Reykjavík, þar af tveir alvarlega slas- aðir. Þeir gengust undir aðgerð og læknisrannsókn í gærkvöldi og þeg- ar Tíminn fór í prentun var ekki vit- að um líðan þeirra. Slysið varð með þeim hætti að öku- maður bifreiðar missti stjórn á bíl sínum, sem skall framan á rútuna. Lentu bifreiðin og rútan á þremur öðrum bifreiðum. Lögreglan lokaði veginum við Gunnarshólma og þurfti að kalla til tækjabíl slökkvi- liðsins til að ná þeim slösuðu úr bíl- unum. Timamynd: Áml Bjama Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum: Aðeins dropi í hafið „Þó að talið sé að þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í atvinnumál- um og þá sérstaklega í vegagerð muni skapa 500-600 störf, þá er þetta engu að síður aðeins dropi í hafið. Við lögðum áherslu á að þegar yrði hafist handa við að gera allt klárt fyrir útboð,“ sagði Guð- mundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar. Ríkisstjórnin hætti ekki við að skerða fæðingarorlof. Flóabátar verða fjármagnaðir af vegafé: Andstaða í stjórnarflokkum við fjárlagafrumvarpið Veruleg andstaða er innan þingfiokka Alþýðufiokks og Sjálf- stæðisflokks við ýmsa þætti fjárlagafrumvarpsins. Útgjalda- og tekjurammi frumvarpsins hefur hins vegar verið samþykktur. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur ekki samþykkt hvemig staðið verður að breytingum á virðisaukaskatti. Þá er mikil and- staða við áform um lækkun á fæðingarorlofi. Á þingflokksfundi sjálfstæðis- manna í fyrradag lýstu margir þingmenn yfir andstöðu við ein- staka liði fjárlagafrumvarpsins. Þeir lýstu því yfir að þeir myndu beita sér fýrir breytingum á því við afgreiðslu frumvarpsins á þingi. Ekki var t.d. tekin formleg afstaða til tillagna um að endur- greiðslum á virðisaukaskatti til hitaveitna, fjölmiðla og bókaút- gáfu verði hætt. Nokkrir þing- menn lýstu því yfir að þeir vildu sjá hvaða áhrif þetta hefði á verð á heitu vatni hjá hitaveitum á landsbyggðinni, þ.e. hvort niður- greiðslurnar dygðu til að halda húshitunarkostnaði þar óbreytt- um. Þá er andstaða bæði í Sjálfstæð- isflokki og Alþýðuflokki við að lækka tekjuskatt fyrirtækja úr 45% í 33%. Það mál tengist síðan deilum um fjármagnsskatt, en fjármagnsskattur fékkst ekki samþykktur í Sjálfstæðisflokkn- um við lokaafgreiðslu fjárlaga. Samkvæmt heimildum Tímans verður fjárlagafrumvarpið sent í prentun án þess að hætt verði við að skerða fæðingarorlof um 200 milljónir. Mjög mikil andstaða er við þennan niðurskurð í báðum stjórnarflokkunum. Ekki er frá- gengið hvernig þessi niðurskurð- ur verður framkvæmdur, en í reynd er ekki hægt að koma hon- um við nema skerða fæðingaror- lof um einn mánuð eða skerða or- lofið um 10 þúsund krónur. Einn viðmælandi Tímans sagði að ríkisstjórninni hefði sennilega ekki tekist að koma fjárlagatillög- unum í gegnum þingflokk Sjálf- stæðisflokksins ef hún hefði ekki komið fram með tillögu um aukningu á vegafé. Þingmenn gera sér hins vegar grein fyrir, eins og aðrir, að ekki er allt sem sýnist varðandi þessa aukningu. Aukningin er ekki tveir milljarðar í reynd. Búið var að skerða vegafé við vinnslu fjárlaga. Ákveðið hafði verið að fjármagna Vestfjarða- göng alfarið af vegafé þessa árs, en ekki með lánsfé. Þá hefur verið ákveðið að færa fjárveitingar til flóabáta undir vegafé. Þar er um tæpar 300 milljónir að ræða. Raunveruleg aukning á fé til vegamála frá fyrra ári er því tæp- lega mikið meiri en um einn milljarður. -EÓ 1

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.