Tíminn - 17.09.1992, Side 5
Fimmtudagur 17. september 1992
Tíminn 5
Magnús H. Gíslason:
Það er kattarins
að klóra í tréð
Maður er stundum að heyra það, einkum frá hinum ofstækis-
fyllstu íhaldsmönnum og áttaviiltum krötum, sem halda að þeir
séu jafnaðarmenn - en undir þessu fólki er nú raunar sami pól-
itísld rassinn — að þeir menn, sem voru á sínum tíma í hinum
skammlífa Kommúnistaflokki, ættu að biðjast afsökunar á pólit-
ískri fortíð sinni.
Ég hef nú aldrei getað skilið þessa
kröfu og finnst hún raunar fárán-
leg. Flestir liðsmenn Kommúnista-
flokksins eru nú fluttir á annað til-
verustig. Gildir það jaftit um for-
ingja flokksins og óbreytta liðs-
menn. Það kann því að vera
nokkrum erfiðleikum bundið að
nálgast afsökunarbeiðni frá þeim.
Sýnist mér þessu syndlausa hrein-
trúarfólki liggja önnur verkefni
nær en að standa í slíku stímabraki,
enda árangur trúlega meir en tví-
sýnn.a
En um hvað er þetta fólk eiginlega
að tala? Hver er syndin, sem fram-
liðnir kommúnistar eiga nú að biðj-
ast afsökunar á? Hver var steftia
Kommúnistaflokksins og hver voru
baráttumál hans? Hver voru af-
skipti hans af íslenskri pólitík? Nú
var ég auðvitað aldrei í Kommún-
istaflokknum, enda bam að aldri á
hans dögum. Ég sé þessi mál því að-
eins úr fjarlægð, eins og raunar
flestir þeir íslendingar, sem nú eru
uppi. En í mínum augum hefúr
raunverulegur kommúnismi aldrei
verið annað en róttækasta tegund
af sósíalisma. Auðvitað var bylting-
in í Rússlandi blóði drifin. En hún
var óhjákvæmileg afleiðing af þeirri
óstjóm, kúgun og ofbeldi, sem ríkt
hafði í Rússlandi öldum saman og
ekki sá fyrir endann á. Herforingjar
frá Vesturlöndum héldu með her-
skara sína inn í Rússland til liðs við
keisarann og þau einræðis- og of-
beldisöfl, sem þar réðu lögum og
lofum, en ekkert stoðaði. Bolsévík-
amir, sem trúðu því að þeir væm að
berjast fyrir frelsi hinna undirok-
uðu, bám þrátt fyrir allt sigur úr
býtum. Sovét-Rússland varð að
vemleika. Þeim sigri var fagnað af
miljónum manna um allan heim,
einnig af íslenskum Alþýðuflokks-
mönnum. Ágreiningurinn, sem
upp kom í Alþýðuflokknum, átti
ekki nema öðmm þræði rætur sín-
ar í afstöðu til rússnesku byltingar-
innar, heldur kom þar einnig til
ágreiningur um innanlandsmál.
Kommúnistar töldu Alþýðuflokk-
inn alltof slappan f baráttunni fyrir
sósíalismanum og bættum kjömm
íslenskrar alþýðu. Og sjálfsagt
mátti það með nokkmm hætti til
sanns vegar færa. En þeir vom
hinsvegar, sumir hverjir, of seinir
að átta sig á því, að með valdatöku
Stalíns var draumur rússnesku
byltingarmannanna gerður að
’.v.'.v.v.v.v.v.vl'vív
En um hvuð erþetta
fólk eigitilega að tala?
Hver er syndin, sem
framliðnir kommúnist-
ar eiga nú að biðjast
afsökunar á? Hver var
flokksins og hver voru
baráttumál hans? Hver
voru afskipti hans af is-
íenskripólitík? Nú var
Kommúnistaflokknum,
enda barn að aldrí á
engu, sá draumur að „gera vondan
heim betri“, eins og mig minnir að
Megas hafi orðað það. „Synd“ þeirra
var sú ein að binda of lengi vonir við
að Eyjólfúr mundi hressast
En dettur nokkmm manni það í
hug, að menn eins og Einar 01-
geirsson, Lúðvík Jósepsson, Jó-
hannes úr Kötlum, Eðvarð Sig-
urðsson, Sigfús Sigurhjartarson,
Sigurður Thoroddsen, Stefán Ög-
mundsson, svo að aðeins örfáir séu
nefndir, hafi verið blóði drifnir bylt-
ingarsinnar, albúnir þess að hrifsa
völdin með ofbeldi við fyrstu hent-
ugleika? Var Ólafur Thors, fyrmm
formaður Sjálfstæðisflokksins,
e.Lv. að velja sér slíka menn til sam-
starfs þegar hann myndaði nýsköp-
unarstjómina? Ég kynntist sfðar
öllum þessum mönnum nokkuð og
vart er hægt að hugsa sér meiri ljúf-
menni, meiri mannvini né heitari
unnendur fagurra hugsjóna.
Það er bent á, að einstakir menn í
Sósíalistaflokknum hafi haft per-
sónulegt samband við Kremlarbúa.
Það hefúr aldrei verið neitt laun-
ungarmál. Áhrifamenn í öllum ís-
lenskum stjómmálaflokkum hafa
staðið í sambandi við Rússa og þeg-
ið boð til Ráðstjómarríkjanna. Eg
hef ekki orðið þess var, að öðrum en
sósíalistum hafi verið reiknað það
til syndar. Eftir að Hitler braust til
valda í Þýskalandi fóm íslendingar
þangað í stómm stíl, ýmissa erinda.
Enginn hafði neitt við það að at-
huga. Enginn krafðist neinnar af-
sökunarbeiðni. Til vom þeir áhrifa-
menn í Sjálfstæðisflokknum, sem
hallir vom undir nasismann, svo
ekki sé meira sagt. Hafa þeir ein-
hverntíma, af þeim sökum, verið
krafðir um afsökunarbeiðni? Ekki
veit ég til þess.
Kommúnistaflokkurinn heyrir nú
til löngu liðinni fortíð. Sósíalista-
flokkurinn er heldur ekki Iengur
við lýði. Alþýðubandalagið tók við af
honum, fýrst sem kosningabanda-
lag, síðan sem stjómmálaflokkur.
Hverjir em þeir liðsmenn þess, sem
nú eiga að biðjast afsökunar á
tengslum við stalínismann? Væri
ekki rétt að nafngreina þá og gefa
þeim þannig færi á að standa íyrir
máli sínu? Eg dreg þó í efa að svo
verði gert.
Sumum þykir áhættuminna að
vega úr launsátri. Og nagdýrseðlinu
verður seint breytt.
Höfundur er fyrrverandl blaðamaöur.
Bandarískir hagfræðingar á rökstólum
Árlega býður Seðlabanki Bandaríkj-
anna bankastjórum og kunnum hag-
fræðingum til málþings um efnahags-
mál, og var það 1992 haldið í ágúst í
Jackson Hole í Wyoming. Frá því mál-
þingi sagði Intemational Herald Tri-
bune 31. ágúst 1992: ,Fýrir meira en
tólf árum hittust hagfræðingar og emb-
ættismenn í vinjum sem (Jackson
Hole) til að ræða háa skatta, skorður við
atvinnustarfeemi og vaxandi verðbólgu.
Upp úr þeim umræðum spruttu fijáls-
hyggja og framboðshagkenningar."
M á tíunda áratugnum, þegar hag-
vöxtur er að staðna, er verið að hverfa
aftur til fiárfestingar, menntunar og
annarra ráða, kostaðra af almannafé, til
að hrinda varanlegum hagvexti aftur af
stað; og máls á því vekur frambjóðandi
demókrata í forsetakosningunum, Bill
Clinton, ríkisstjóri í Arkansas
... Mörkun stefhu á þá Ieið var
til umfiöllunar á árlegu mál-
þingi bandaríska seðlabank-
ans... um helgina... Þótt boð-
fram ýmisleg gögn til stuðnings þeirri
staðhæfingu, sem undrun vekur ekki,
að batni menntun og heilsufer aukist
hagvöxtur, en kunnu fátt til bóta á
grunnskólum og framhaldsskólum,
sem megna ekki að búa bandarísku
verkafólki þá starfehæfni, sem banda-
rískur iðnaður þarfnasL né á sjúkra-
tryggingum, sem úr böndum eru
komnar."
„Gregory Mankiew frá Harvard- (há-
skóla) tíndi til allmörg „vaxtar- Ieynd-
armál". Eitt þeirra lýtur að því að verða
seinn af stað eins og Þýskaland og Jap-
an eftir síðari heimsstyrjöldina, en
verða öðrum fremri að leggja fyrir. „Sú
lexía boðar Bandaríkjunum ekki gott,
því að spamaður þeirra á níunda ára-
tugnum nam 18% landsframleiðslu,
en Japans 31%.“
Gengissig dollars sumarið 1992
að væri sem fúndur um vandamál við-
varandi hagvaxtar í heimi öllum, voru
Bandaríkin einkum til umfiöllunar ...
Að slepptum nokkrum, sem sátu við
keip framboðs-hagkenninga, lögðu
flestir út af kenningum Roberts M.
Solow, Nóbels-verðlaunahafe, sem
kveður hagvöxt ráðast af tæknilegum
nýmælum."
,Jín hvemig fæst hagvöxtur? Lawr-
ence Summers, helsti hagfræðingur
Alþjóðabankans ... kvað festu í efna-
hagslegri stefnumörkun ekki eina
saman ráða bót á hægri aukningu
framleiðni eða draga úr halla á fiárlög-
um. — Hann mælti með aukinni fiár-
festingu. Kom hann fúndarmönnum á
óvart, er hann kvað hagskýrslur frá 47
löndum sýna, að fyrir hvert prósentust-
ig vergrar landsframleiðslu, sem varið
væri til nýrra véla og tækja starfsfólks,
fengist um 0,25% árlegur hagvöxtur...
Aðrir fundarmenn drógu þessar áætl-
unartölur í efe ... Robert Barro og
Lawrence Katz, sem báðir em hag-
fræðingar við Harvard- háskóla, drógu
Sumarið 1992, frá miðjum apríl til
loka ágúst, féll skiptahlutfell dollars
gagnvart þýsku marki úr 1,66 í 1,39.
Bandarísk stjómvöld hafa lítt látið
fall dollars til sín taka, þrátt fyrir
nokkra tilburði seðlabanka í byrjun
ágúst til að halda honum í 1,46
marki. Um ástæður þessa sagði Int-
emational Herald Tribune 25. ágúst
1992:
,4 Bandaríkjunum er helsta við-
fangsefni stefnumarkenda hinn hægi
afturbati efnahagslífsins. Hvert sinn
sem dollar fellur, stuðlar það að at-
vinnulegum uppgangi, því að þá
lækkar bandarískur útflutningur í
verði á mörkuðum heimsins og vek-
ur vonir um aukna sölu. Úr því að
verðbólga hefur ekki í mörg ár verið
minni en nú, stafar ekki mikil verð-
bólguhætta af ódýrum dollar. — í
Þýskalandi gegnir öðm máli. Verð-
bólgan brennur öðmm vandamálum
fremur á þýska seðlabankanum. Sak-
ir gengisfalls dollars verða nauðsyn-
legar vömr, verðlagðar í dollumm,
svo sem olía, ódýrari en áður og
stuðlar það að minni verðbólgu. —
Nær öll EBE-lönd vonast til, að vext-
ir verði lækkaðir í Þýskalandi og þau
geti þá farið að dæmi þess og þannig
örvað þróttlftið efnahagslíf sitL“
Öndverð staða EBE-
gjaldmiðla og dollars
Með tilliti til gengis og vaxta er staða
EBE-gjaldmiðla um margt ólík stöðu
dollars, að Economist ræddi í
fremstu forystugrein sinni 29. ágúst
1992: ,Á undanfömu hálfú fiórða ári
hefúr bandaríski seðlabankinn átta
sinnum lækkað forvexti sfna. Dollar
hefur verið á fallanda fæti. Metið í
áskiptum vömm við útlönd er gildi
hans nú 48% lægra en það var hæst,
í febrúar 1985, og 8% lægra en fyrir
ári. En þessar tölur sýna ekki til fúlls
lækkun gildis dollars, því að ýmis
viðskiptaiönd Bandaríkjanna tengja
gjaldmiðil sinn dollar, sum að vísu
formlegar en önnur.“
„Þar sem gengi dollars er látið ráð-
ast á mörkuðum, fellur það. Um eitt
skeið á níunda áratugnum var skipt á
dollar við 3,47 þýskum mörkum. Nú
er á honum skipt við 1,40 þýskum
mörkum, færri en nokkm sinni áður,
og nemur það fall hans 60%. Á síðast-
liðnu ári einu saman, féll dollar um
20% ... Helsta þjóðarbú veraldar, hið
bandaríska, er orðið að útsölumark-
aði. Þótt kaupmáttur dollars ykist
um 30% eða þar um bil, stæðust vör-
ur Bandaríkjanna vel samkeppni við
vömr þeirra landa, sem þau keppa
við.“
(Um tvennt er efiiahagslífi Banda-
ríkjanna og EBE ólíkt farið.) „Hið
fyrra er, að Bandaríkin ein njóta
þeirrar sérstöðu að greiða skuldir
sínar í eigin gjaldmiðli... Hið síðara
lýtur að raunverulegum launum ...
Við lækkandi gengi hækka innfluttar
vömr væntanlega í verði. Ef innlend-
ir framleiðendur hækka líka vömr
sínar í verði og komi launahækkanir
til að vega upp á móti þessu, batnar
samkeppnisstaða (viðkomandi lands)
ekki við gengislækkun. í Bandaríkj-
unum er sérhver hlekkur í þeirri
keðju veikur. Innfluttar vömr svara
aðeins til 8,5% vergrar landsfram-
leiðslu þeirra.“