Tíminn - 17.09.1992, Blaðsíða 6

Tíminn - 17.09.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 17. september 1992 9lloíax ... Botntiö 1. delldar I bresku knattspyrnunni, Derby County, keypti i gær varnarmanninn Craig Short frá Notts County fyrir 2,5 millj- ónir punda, eða rúmlega 250 millj- ónir Islenskra króna. Derby jafnaði þar það met, sem sett var þegar Keith Curle var seldur frá Wimbled- on til Manchester City, en það var metfé, þ.e.a.s. á milli enskra félaga. Framkvæmdastjóri Derby, Arthur Cox, hafði lengi haft augastað á Short, sem valdi Derby County, sem situr eins og áður sagði á botni 1. deildar, I stað þess að fara til Blackburn Rovers sem er á toppi Úrvalsdeildar. ... í síAasta tölublaAI SHOOT, enska vikublaðsins, er opnumynd af liði Tottenham. Það kemur ekki mikið á óvart að Guöni Bergsson er ekki á þeirri mynd, þar sem greini- legt þykir að hann er ekki inni I myndinni hjá forráðamönnum Tot- tenham. ... Enn or ekkl útséð um hvort það verður Þróttur N. eða Grótta, sem leikur I annarri deildinni I knatt- spyrnu að ári. Kæru Völsunga vegna leiks þeirra við Þrótt var vls- að aftur heim I hérað, en bréf þess efnis frá dómstól KSÍ hefur enn ekki borist héraðsdómi IHSÞ. Þróttarar og aöilar á Húsavik tengdir Norð- firði hafa beitt stjórn Knattspyrnu- deildar Völsungs mjög miklum þrýstingi um að draga kæruna til baka, en enn hafa þeir staðið af sér sóknina. Það er eindreginn vilji for- manns og þjálfara Völsunga að kæran standi, þannig að allt útlit er þvl fyrir að kæran fari fyrir dómstóia á ný. ... Sepp Blatter hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA, hef- ur látiö hafa eftir sér að þau aldurs- mörk, sem I gildi voru I knattspyrnu- keppninni á Olympluleikunum I Barcelona, verði einnig á leikunum I Atlanta '96. Það þýðir aö I liðinu verði að vera leikmenn sem eru 22 ára og yngri. Þetta fyrirkomulag var mikið gagnrýnt á leikunum I sumar, þar sem mun færri áhorfendur komu á leikina og hún vakti minni athygli um allan heim. ... Áhangendur Inter Milan eru ekki yfir sig hrifnir af kaupum fé- lagsins á Salvatore Schillaci, hetju ftalska landsliðsins á HM ‘90 á ítal- (u. Óánægöir áhangendur máluðu á veggi nærri heimavelli Inter: „Schill- aci verður að fara" og þá geröi einn áhangenda sér lltið fyrir og auglýsti ársmiða sinn til söiu i dagblöðum I Milanó, vegna þess aö liöið hefði fest kaup á Schillaci. ... í könnun, sem SHOOT gerði meðal lesenda sinna, kemur fram að 74% þeirra telja Graham Taylor ekki rétta manninn fyrir enska landsliöið og að það eigi að láta hann fara. 54% lesenda vilja fá Bri- an Clough I staðinn, 13% Howard Wilkinson og 11% Terry Venables. 75% lesenda vilja fá Stuart Pearce i stöðu fyrirliða i stað Garys Lineker. ... 66% lesenda segja að Banda- ríkin séu ekki heppilegur staður fyrir HM I knattspyrnu og 39% lesenda telja að hún eigi að fara fram I Eng- landi. 37% segja að Leeds-liðið á slðasta tlmabili sé lélegasta liðið sem unnið hefur meistaratitilinn I knattspyrnunni ensku, en 41% segja Manchester United eiga bestu áhangendurna. ... Þá eru lesendur spurðir að þvl hvaða leikmaður geri það að verkum að jafnvel „gleðimálaráð- herra" sé myndarlegur við hliðina á honum. Peter Beardsley fær þann vafasama heiður, en hann fékk at- kvæði 47% þeirra sem svöruðu, Paul Gascoigne fékk 13% og Carl- ton Palmer fékk 8%. ... Þaö var ekkl rótt það, sem sagt var hér á siðum blaðsins I gær að leikur Vlöis og Þróttar hefði end- að 3-0 Vlðismönnum I hag. Hið rétta er að leiknum lyktaði með 3-1 sigri Víðis og eru Þróttarar hér með beðnir afsökunar. Bannað aö bíta í boltann! Frá leik Víkings og CSKA Moskva á Laugardalsvelli í gær. Helgi Sigurðsson hefur hér í frammi undarlega tilburði, en Janni Zilnik reynir að teygja sig fram fyrir Rússana, í þetta skiptið þó ekki meö góöum árangri. Tímamynd: Pjetur Evrópukeppni meistaraliða í knattspyrnu, Víkingur-CSKA Moskva 0-1: Ágætt, Víkingar ■ " Handknattleikur 1. deild karla: IR-ingar sigruðu meistarana íslandsmeistarar FH-inga hófu tit- ilvöm sína með tapi, en þeir lágu fyrir ÍR-ingum í Seljaskóia í gær- kvöldi 28-23. ÍR-ingar léku á als oddi og voru þeir yfir frá upphafi Ieiksins. FH-ingar áttu erfitt upp- dráttar frá upphafi. Sigfús Orri Bollason var marka- hæstur ÍR-inga með sex mörk og Róbert Rafnsson með fimm mörk, en bestur ÍR-inga var Magnús Sig- mundsson í marki ÍR, sem varði 18 skot. Markahæstur FH-inga var Guðjón Árnason með sjö mörk. Markahæstur Selfyssinga í leik þeirra gegn Stjörnunni var Sigurð- ur Sveinsson, sem gerði 10 mörk, og Sigurjón Bjarnason með sjö mörk. Magnús Sigurðsson gerði sjö mörk fyrir Stjörnuna. Markahæstur Vík- inga í sigri liðsins á HK var Dagur Jónasson sem gerði sjö mörk, en bestur HK-manna var Michael Ton- ar sem gerði sex mörk. Petr Baumr- uk var markahæstur Haukamanna í sigri liðsins á ÍBV og gerði átta mörk, en Ungverjinn Zoltan Belany var markahæstur andstæðinganna með átta mörk. Valur-KA............21-20(13-11) Haukar-ÍBV..........26-19 (15-11) HK-Víkingur.........17-21 (5-10) Selfoss-Stjarnan ...29-22 (15-11) ÍR-FH...............28-23 (16-10) Þór A.-Fram.........28-25(15-12) -PS CSKA Moskva sigraði Víkinga 0-1 í gærkvöldi í 1. umferð Evrópukeppni meistaraliða á Laugardalsvellinum. Moskvu- búarnir byrjuðu leikinn betur, pressuðu nokkuð stíft án þess þó að skapa sér afgerandi færi. Víkingar spiluðu góða vörn og ætluðu greinilega að reyna að treysta á skyndisókn- ir. Um miðjan fyrri hálfleik fengu Vfkingar gott færi: eftir horn- spyrnu barst boltinn til Guð- mundar Steinssonar, sem átti ágætt skot aftur fyrir sig, en bolt- inn rétt framhjá. Á 30. mínútu fór Tomislav Bosnjak Víkingur meiddur af velli og kom Helgi Sig- urðsson inn fyrir hann. Síðustu 15 mínútur fyrri hálfleiks spiluðu Víkingar mjög vel. Það besta sem sést hefur til Víkings í ár. Færin voru samt ekki mörg; það besta kom á síðustu mínútu hálfleiks- ins, er Aðalsteinn Aðalsteinsson fékk boltann óvaldaður í miðjum teignum, en skot hans var mis- heppnað. Seinni hálfleikur byrjaði líkt og sá fyrri, Rússarnir ívið sterkari. Á 10. mínútu hálfleiksins skiptu Rússarnir um leikmann, inná kom nr. 17, Dmitri Korsakov. Hann hleypti auknu lífi í sóknarleik Moskvubúa og pressan jókst mjög á Víkinga. Víkingum gekk líka ekki eins vel að halda boltanum og í fyrri hálfleik. Á 30. mínútu misstu þeir boltann á miðjunni, Rússarnir komust upp vinstra megin, lögðu boltann inn í teiginn og þar kom Korsakov og skoraði örugglega framhjá Guðmundi Hreiðarssyni. Eftir markið kom Björn Bjart- marz inná fyrir Guðmund Steins- son. Víkingar hresstust nokkuð, en náðu þó aldrei að skapa sér mark- tækifæri það sem eftir lifði leiks- ins. Lið Víkings spilaði þennan leik nokkuð vel í heildina; gáfu þó full- mikið eftir í seinni hálfleik. Guömundur I. Magnússon sagði eftir leikinn að það hafði verið slæmt að spila leikinn á móti UBK á sunnudaginn. Sá leikur var mjög erfiður og sat örugglega enn í mönnum. Hann sagði einnig að í seinni hálfleik hefði þeim ekki tek- ist að halda boltanum nægilega vel, þurft of mikið að vera með langar sendingar fram. Janni Zilnik og Guðmundur I. voru bestu menn Víkings í þessum leik. Annars átti allt liðið ágætan dag; vantaði þó herslumuninn til að klára dæmið. Dómari Ieiksins kom frá Eng- landi. Gerald Ashby hét hann og var hann að dæma sinn fyrsta Evr- ópuleik. Skilaði hann hlutverki sínu með prýði. -EMM Kærumál í 1. deild kvenna í knattspyrnu: Stjarnan fékk frestað um viku í gær átti að taka fyrir í héraðsdómi á Akranesi kæru vegna Ieiks ÍA og Stjömunnar í 1. deild kvenna í gær, en Stjaman hafði kært leikinn. Ekki er vitað um ástæður frestunarinnar, en hana fengu þeir. Það verður því enn bið á því að úrslit fáist um það hvort afhenda megi íslandsbikarinn til Blikastúlkna, sem nánast hafa tryggt sér titilinn, þó enn eigi ÍA fræðilega möguleika á sigri, þ.e.a.s. ef þær tapa kæmnni. -PS Urslit í Evrópukeppninni í knattspyrnu Evrópukeppni meistaraliða: Víkingur-CSKA Moskva..........................................0-1 Barcelona-Viking Stavanger (Nor.).............................1-0 Stuttgart-Leeds Utd...........................................3-0 PSV Eindhoven-Zalg. Vilnius (Lith.)...........................6-0 Sion (Sviss)-Tavria Simferopol (Úkraínu)......................4-1 Austria Vín-CSKA Sofia (Búl.) .................................3-1 FK Gautab.-Besiktas Istanb. (Tyrkl.)..........................2-0 AEK Aþena (Grikkl.)-Apoel Nicosia (Kýpur).....................1-1 Maccabi Tel Aviv-Cl. Bmgge....................................0-1 Sl. Bratislava (Tékk.)-Ferenc. (Ung.).........................4-1 Bohemians (Írl.)-Steua Búkarest...............................0-0 Glasgow Rangers-Lyngby........................................2-0 US Luxemburg-Porto............................................1-4 Evrópukeppni bikarhafa: Trabzonspor (TVrk.)-Tumn Pallos (Finnl.) ......................2-0 Sp. Moskva-Beggen (Lúx.) .....................................0-0 Feyenoord-Hapoel Tikva (ísrael)...............................1-0 Branik Maribor (Búlg.)-Atl. Madrid............................0-3 L. Sofia-Luzern (Sviss).......................................2-1 Miedz Legnica (Pól.)-Monaco...................................0-1 Cardiff-Admira Wacker (Austurríki) ...........................1-1 Liverpool-Ap. Limassol (Kýpur)................................6-1 Evrópukeppni félagsliða: Grasshoppers-Sporting Lissabon................................1-2 Salzburg (Aust.)-Ajax ........................................0-3 Katowice (Pól.)-Galatasary (Týrkl.)...........................0-0 El. Craiova (Rúm.)-Panathinaikos (Grikkl).....................0-6 Vitesse Arnh. (Holl.)-Derry City (N.-írl.).....................3-0 FC Copenhagen-Mikkelen (Finl.) ...............................5-0 Mechelen (Belg.)-Örebro.......................................2-1 Juventus-A. Famagusta (Kýpur) ................................6-1 Norrköping-Torino.............................................1-0 Slavia Prag-Hearts............................................1-0 Dynamo Kiev-Rapid Vín.........................................1-0 Dynamo Moskva-Rosenborg (Nor.)................................5-1 Lokom Plovdiv (Búlg.)-Auxerre.................................2-2 P. Timisoara (Rúm.)-Real Madrid...............................1-1 Widzew Lodz (Pól.)-Eintracht Frankfurt........................2-2 Sigma 01. (Tékk.)-Univ. Craiova (Rúm).........................1-0 Ele. Craiova (Rúm.)-Panathinaikos Aþena.......................0-6 Fenerbahce (Týrkl.)-Botev (Búl.)..............................3-1 Vac Izzo (Ung.)-Groningen ....................................1-0 Paris St. Germain-Paok Saloniki...............................2-0 Swarovski Tyrol (Aust.)-AS Roma...............................1-4 Sheff. Wed.-Spora Luxemburg...................................8-1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.