Tíminn - 17.09.1992, Page 9
Tíminn 9
Fimmtudagur 17. september 1992
DAGBÓK
Urval
Kr. 42S
Sirop ..................................... 2
UKtwtija'n&Pu: Mciinticrinv................ 3
Hvtmig xkara: v«r»\:«;egt foí> ftéitiúr? .. 7
HvBðet*'.:?............................... 12
5«a niiUjiiti ik'li.vé menr.ltnl:..........16
HjHfctihtatUsKm ... ...................... 29
St6M»hKnMiM8cft ...........................33
Ertþúbc»««tw:l<ni.? ...................... 39
Notigiyixli !wx(:5 i •.kc(:on:............<13
Hagsur.iwVjto ............................ 52
?Mi ktu<i2, ::t'.Výt: og lcy«:.54
..Eiiií cg *:gj?:t hcron:l" ............. 61
Ntttí *: mia t:ú.......................... 66
DiAa(iunÍMMMct*i: ««::•<: afctlitrof: .... ?3
Xn>»tóiugfcteti............................76
öeiusðitgóKuSlóimvitvii?.................. ?9
.LMMéfcntMUimMi:...........................62
OóV.: st'-ikj: r.:t ctu aU:»í frc::istcr. B3
E: l-ítt-J I bihl:unr.t? ..................89
F-xi»riM(f>b«!fuKtfiivx»trx»slixi......... 93
Otetnii:i<liii«.......................... 96
SkeinagxftimfvliFisárfilót............... 104
Tux.uguogct(::lron2lns:að:cY:)4i«)tet...109
OgntusKrosfcumafiunnariVcstufWixlui:: 112
Gfcttii.wðgtibxVm ........................120
Þcg«: 1-u gctir uitstók ................. 126
AíliMlr.o í«t:ilaðs:gix'.:« fcl'nui ......132
Eintblu ictð að gtcnnt: bcru::i.......... 13?
Vcikomui I hclm ci::kasp«yd;ans...........142
MconskaðiuniFjRUxbxksvcgi................151
S HETTI - Sl. ÁR - SEPT. - OKT. 1»Z
Tímaritið Úrval
Tímaritíð Örval 5. heftí 1992 er komið
út. Meðal efnis er grein um þá ógn sem
stafar frá rússnesku mafíunni á Vestur-
löndum, lækningamátt tónlistar o.fl.
Hvað er RÝMI?
RÝMI Myndmenntaskóli er nýr einka-
rekinn myndlistarskóli, sem hefur aðset-
ur sitt í hinu nýja Listhúsi í Laugardal.
Stofnandi er Guðrún Tryggvadóttir. Til-
gangur stofnunarinnar er að auka mögu-
leika tíl myndlistamáms í formi styttri
jafnt sem lengri námskeiða, brydda upp á
nýjungum, auk þess að vera vettvangur
fyrir miðlun klassískra myndlistarað-
ferða.
RÝMl býður upp á námskeið fyrir jafnt
byrjendur sem myndlistariðkendur.
RÝMI Verkstæði býður gestakennurum
að kenna á „Helgamámskeiðum" þar
sem leitast er við að koma af stað heil-
brigðri miðlun á tækniaðferðum og hug-
myndafræði, sem gætu komið jafnt
myndlistariðkendum sem áhugamönn-
um um listir til góða.
RÝMI Gallerí býður upp á „Fyrirlestra
og kynningardagskrá" tíl að auka um-
ræðu og meðvitund um myndlistartengd
mál og efni, kynna stefnur og strauma
auk einstakra myndlistarmanna.
RÝMI Gallerí hefur einnig á stefnuskrá
sinni að standa fyrir sýningum á ís-
lenskri list á erlendri grund, auk þess að
vera miðstöð fyrir samskipti milli ís-
lenskra og erlendra myndlistarmanna og
stofnana.
RÝMI býður upp á þjónustu við íslenska
listnema, sem hyggja á nám erlendis. Að-
stoð er veitt við leit að réttum skóla og
ráð gefin um frágang umsókna.
RÝMI hefur í byrjun 6 leiðbeinendur,
sem kenna „Annamámskeið“ (15 vikur),
og fjöldann allan af gestaleiðbeinendum
bæði í „Helgamámskeiðum“ og á „fyrir-
lestra og kynninga" dagskrá. Allir leið-
beinendur em þrautlærðir og þjálfaðir
fagmenn á sínu sviði.
Bragi Ásgeirsson er listráðunautur
RÝMIS.
Félag eldri borgara
Opið hús f Risinu í dag kl. 13.30. Nýlega
var stofnuð deild hjá F.e.b. og næstkom-
andi sunnudag, 20. sept., verður spilaður
tvímenningur. Einnig verður spiluð fé-
lagsvist og frjáls spilamennska. Bridge
hefst kl. 13.30 og félagsvist kl. 14. Um
kvöldið verður dansað í Goðheimum,
Sigtúni 3.
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNlb ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Öld liöin frá upphafi kennara-
menntunar
f tílefhi af því að á þessu ári er ein öld
liðin frá því að formleg kennaramenntun
hófst á íslandi, bjóða Kennaraháskóli ís-
lands, Flensborgarskólinn, Kennarasam-
band íslands, HÍK og Kennarafélag KHÍ
tíl hátíðarsamkomu í Borgarleikhúsinu f
Reykjavík laugardaginn 19. september.
í Borgarleikhúsinu verða flutt stutt
ávörp, sagt frá bemskuárum kennara-
menntunar, flutt tónlist og leikdagskrá
um nemendur og kennara í sögum og
Ijóðum.
Þeir, sem að hátfðardagskránni standa,
vona að sem flestir sjái sér fært að taka
þátt í samkomunni, en allir eru vel-
komnir í Borgarleikhúsið meðan hús-
rúm leyfir.
í tengslum við hátfðarsamkomuna f
Borgarleikhúsinu verður gamli Kenn-
araskólinn við Laufásveg, Kennarahúsið,
tekið formlega í notkun sem húsnæði
Kennarasambands íslands sama dag.
Kennarasambandið hefur undanfarið ár
unnið að endurbyggingu hússins, en það
er gjöf ríkisstjómarinnar til félagsins.
Fyrsta áfanga endurbyggingarinnar er að
mestu lokið, þar sem gengið hefur verið
frá ytra útlití þess og tveim aðalhæðum.
Lóðin er einnig að mestu frágengin.
Frá kl. 16.30-til 18 laugardaginn 19.
sept. verður húsið opið öllum sem hafa
áhuga á að skoða hvemig endurbygg-
ingu þess miðar. Daginn eftir, sunnudag-
inn 20. sepL, verður einnig opið frá kl.
15-17.
Kennarasambandið vonar að sem flestír
sjái sér fært að koma í Kennarahúsið um
helgina og sjá hvemig tíl hefúr tekist við
endurbyggingu gamla Kennaraskólans
við Laufásveg.
Myndlistarsýning 3 einhverfra
listamanna í Geröubergi
Sl. mánudag var opnuð myndlistarsýn-
ing þeirra Önnu Borgar Waltersdóttur,
Áslaugar Gunnlaugsdóttur og Péturs
Amar Leifssonar í Gerðubergi, Gerðu-
bergi 3-5 í Breiðholti.
Listamennimir 3 em allir heimilisfólk í
sambýli fyrir einhverfa við Hólaberg. Þau
hafa öll unnið að myndlist í lengri eða
skemmri tíma og hafa hvert um sig mót-
að sinn sérstaka stíl. Verkin á sýningunni
em öll unnin á þessu ári. Sýningin er
sett upp á þann hátt að hún gefi sem
besta mynd af þróun í myndsköpun
hvers og eins.
Sýningin stendur til 1. október.
Einliðaleiksmót TBR í
badminton 1992
Einliðaleiksmót TBR í badminton verð-
ur haldið í TBR-húsum laugardaginn 19.
sept. n.k. Hefst keppni kl. 13. Keppt
verður í einliðaleik karla og kvenna.
Þeir sem tapa fyrsta leik fara í auka-
flokk.
Þátttökutilkynningar skulu berast til
TBR fyrir kl. 12 föstudaginn 18. sept.
Hægt er að myndsenda þátttökutilkynn-
ingar. Faxnúmer TBR er 91-687622.
Húseigendur
Önnumst sprungu- og
múrviðgerðir. Lekaþétt-
ingar. Yfirförum þök fyr-
ir veturinn.
Sótthreinsum sorp-
geymslur og rennur.
Hreinsum kísil úr bað-
körum o.fl.
Fljót og góð þjónusta.
Upplýsingar í síma
653794
Handagangur var í öskjunni viö rekstur á safninu í almenninginn. Til hægri er Maggi á Kjóastööum aö
reyna aö ioka hliöinu, en fyrir miöri mynd er félagi hans af fjallinu, Kjartan I Bræöratungu.
Fjölmenni í blíð-
skaparveðri
Ttíngnamenn réttuðu fimm þús-
und fjár í blíðskaparveðri í gær.
Tungnaréttir standa á undur-
fögru réttarstæði við Tungufljót
hjá gömlu brúnni yfir fljótið.
Jafnan drífur að mikið fjöl-
menni í réttirnar og er söngur í
Tungnaréttum landsfrægur.
Lengi var sungið undir stjórn
bændahöfðingjans Þorsteins á
Vatnsleysu, en nú hafa synir
hans tekið við.
Þá hafa kjötsúpur þeirra Bisk-
upstungnamanna á réttadaginn
getið sér landsfrægðar og eru
þær þó víða góðar. Undirritaður
og meðreiðarsveinn þakka fyrir
eina slíka frábæra hjá Sigríði og
Sveini í Bræðratungu, en þar
var fjölmenni eftir réttirnar. Var
haft á orði að þegar Sveinn í
Bræðratungu ræki heim safnið,
væri jafn fjölmennt rekstrarlið
og allir fjallmenn hefðu verið til
þess að smala Kjöl.
í spegli
Tímans
Einar Þorsteinsson gefur tón-
inn.
Jón Helgason, alþm. og fv. landbúnaöarráðherra, á tali viö Árnes-
inga.
Vatnsleysu- og Úthlíöardúettinn.
Söngur I Tungnaréttum er landsfrægur og er á góöri leið aö veröa
heimsfrægur, þvl fjórtán norrænir gestir í boöi borgarstjóra voru
núna mættir I Tungnaréttir til þess aö fylgjast meö herlegheitunum.
Ljósmyndir og texti: G. T.K.