Tíminn - 17.09.1992, Qupperneq 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Áskriftarsími
Tímans er
686300
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Öðruvísi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
IHIYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 679225
HOGG-
DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
SpL
UJ varahlutir
Hamarshöföa F^s;T)/-6744":
TVÖFALDUR1. vinningur
Tímiim
FIMMTUDAGUR 17. SEPT. 1992
Bandaríska álfyrirtækið Kaiser hefur áhuga á að byggja álver á íslandi:
Formlegar viðræð-
ur um byggingu
álvers ákveðnar
í upphafi næsta mánaðar munu fara fram viðræður milli íslenskra
stjórnvalda og fulltrúa frá bandaríska álfyrirtækinu Kaiser Alumini-
um um byggingu 200-240 tonna álverksmiðju hér á landi. í síðustu
viku átti Davíð Oddsson forsætisráðherra fund með John M. Seidl,
stjórnarformanni og forstjóra Kaiser, í London. í framhaldi af fund-
inum var ákveðið að efna til formlegra könnunarviðræðna um hugs-
anlega byggingu álvers hér á landi.
Þegar rafmagnið var aftur sett á spennistöð Rafmagnsveitu Reykjavíkur [
Elliðaárdal kl. 12.55 f gær, sprakk eldingavari i tætlur. Starfsmenn Raf-
magnsveitunnar huga að verksummerkjum. Tfmamynd: Ámi Bjama
Rafmagnið af
í tæpa klst.
Viðræðumar við fulltrúa Kaiser Alum-
inium eru ekki tengdar áformum Atl-
antsáls að byggja hér álver, en sem
kunnugt er hefur þeim áformum verið
skotið á frest um ótiltekinn tíma. Fyrir-
tækjunum í Atlantsáls-hópnum hefúr
hins vegar verið gerð grein fyrir þeirri
ákvörðun íslenskra stjómvalda að hefja
viðræður við Kaiser.
Fulltrúar Kaiser munu koma hingað til
Iands í fyrri hluta október og eiga við-
ræður viö iðnaðarráðherra og forráða-
menn Landsvirkjunar, auk þess sem
þeir munu skoða aöstæður og virkjanir
hér á landi.
Kaiser Aluminium er eitt stærsta álfyr-
irtæki í heimi. Það starffækir fjórar ál-
bræðslur. Tvær eru starffæktar í Banda-
ríkjunum og em algerlega í eigu Kaiser.
Hinar em í Ghana og Wales, en Kaiser á
í þeim stærstan hluL Allar þessar verk-
smiðjur em orðnar gamlar og því telur
Kaiser nauðsynlegt að huga að bygg-
ingu nýrrar verksmiðju. Forráðamenn
fyrirtækisins telja auk þess að nú sé góð-
ur tími til að hefjast handa um bygg-
ingu álvers, því flest bendi til að álverð á
alþjóðlegum álmörkuðum verði orðið
hátt þegar verksmiðjan er fúllbyggð, en
sem kunnugt er hefur verð á áli verið
mjög lágt nú um nokkurt skeið. í þessu
sambandi er rétt að minna á að Alumax,
stærsta fyrirtækið í Atlantsáls-hópnum,
hefur nýlega tekið í notkun nýtt 200
þúsund tonna álver í Quebec í Kanada.
Alumax hefur því ekki sömu þörf og Ka-
iser á að fjárfesta í nýju álveri.
Kaiser Aluminium ráðgerir að leita
samstarfs við fleiri álfyrirtæki um eign-
araðild að hinu nýja álveri. Forstjóri Ka-
iser mun hafa sagt við Davíð Oddsson í
London að hann hefði áhuga á að Ijúka
samningum um byggingu álvers á einu
ári. Viðræður við Atlantsál tóku á þriðja
ár. Kaiser hefur einnig skoðað mögu-
leika á að byggja álver í Venezúela og
Brasilíu.
Það vekur nokkra athygli að það er for-
sæti: ráðherra sem hefur farið með þetta
Harðir árekstrar
á Akureyri í gær
Tveir harðir árekstrar urðu á Akur-
eyri í gær. Annar varð snemma
morguns og urðu einhver meiðsli á
fólki. Bifreiðarnar voru óökufærar
og þurfti að flytja þær af vettvangi
með krana. Eru þær jafnvel taldar
ónýtar.
Síðar um daginn varð allharður
árekstur og þurfti að flytja aðra bif-
reiðina á brott með krana. Þar urðu
þó ekki slys á fólki.
mál, en ekki Jón Sigurðsson iðnaðar-
ráðherra. Davíð kynnti fjölmiðlum mál-
ið í gær með fréttatilkynningu. Sem
kunnugt er gagnrýndi Davíð iðnaðar-
ráðherra harðlega fyrir það hvemig
hann hélt á málum gagnvart Atlantsál á
sínum tíma. Það var reyndar áður en
þeir hófu samstarf í ríkisstjóm.
Þess má svo geta að Jón Sigurðsson
greindi fjölmiðlum frá því um síðustu
helgi að samningum við Atlantsál væri
formlega lokið að öðm leyti en því, að
óvíst væri hvenær álverið verði byggt. Á
sama tíma var Davíð Oddsson í London
að ræða við forstjóra Kaiser. -EÓ
Rafstrengur slitnaði í rafstöð RARIK
við Geitháls um kl. 12.03 í gærdag
og fór rafmagn við það af Reykjavík
allri, Kópavogi, Hafnarfirði og Suð-
urnesjum.
Rafmagn komst aftur á í Reykjavík
og Kópavogi kl. 12.55, en hins vegar
mun síðar í Hafnarfirði og á Suður-
nesjum.
Frá safnaðarfundinum örlagaríka í fyrrakvöld. Á annað þúsund manns sóttu fundinn, sem haldinn var í íþróttahúsi Digranesskóla.
Þar mátti sóknarnefndin lúta í lægra haldi fyrir þeim sem voru á móti byggingu kirkju á Víghóli. Timamynd Sigursteinn
Kirkjubygging á Víghóli felld naumlega:
VANSÆLIR SIGURVEGARAR
Aðalfundur Digranessafnaðar felldi tillögu um áframhaldandi
kirkjubyggingu. „Þetta er ekki sætur sigur og bölvað leiðinda-
mál. En réttlætinu var fullnægt, því við fengum að greiða at-
kvæði um þessi mál,“ segir Aðalsteinn Pétursson hjá Víghóla-
samtökunum. „Það er ekki hægt að tala um neinn sigurvegara í
svona máli,“ segir dómprófastur.
Um 1.000 manns sóttu safnaðarfúnd-
inn í fyrradag. Tillaga, sem formaður
sóknamefndar bar upp um að halda
bæri áfram kirkjubyggingunni, var
felld með 542 atkvæðum gegn 523. Til-
laga um að endurskoða sóknarmörk
var samþykkt með eins atkvæðis mun
eða 440 gegn 439. Prófastur segir að sú
tillaga þurfi að fara fyrir safnaðarráð
prófastsdæmisins og þaðan til biskups,
sem sendir svo álit sitt til kirkjumála-
ráðherra.
Var smalað á fundinn?
Aðalsteinn segir að það megi alltaf
deila um það hver hafi smalað betur á
aðalfúndinn. „Við vorum fimm sem
vorum kosin í þessa bráðabirgðastjóm
Víghólasamtakanna, en þau eru sjö
ásamt jafnmörgum varamönnum í
safhaðamefnd. Svo er nefndin búin að
ráða sér fjölmiðlamann, Magnús
Bjamfreðsson, þannig að ég get ekki
séð af hveiju nefhdin átti ekki jafn-
mikla möguleika og við í smölun á
fundinn," segir Aðalsteinn.
„Við töluðum um það í gærkvöldi að
það væri kominn tími til að slíðra
sverðin og athuga gang mála án þess
að vera með stóryrtar yfirlýsingar dag-
inn efdr,“ bætir hann við.
Víghólasamtökin þurftu að leggja
fram tvær milljónir króna í lögbanns-
tryggingar til að stöðva framkvæmdir á
Víghóli. Aðalsteinn segir að lögbanns-
málið eigi eftir að fara fyrir héraðsdóm
og heldur að þangað til sé þetta fé
bundið.
Aðspurður um hvort söfnuðurinn eigi
sér viðreisnar von eftir þessi átök, seg-
ist hann ekki vita hvemig málin eigi
efdr að þróast og það eigi tíminn eftír
að leiða í Ijós. „Viö teljum okkur vera
trúað fólk og erum ekki að beijast gegn
kirkju í söfnuðinum. Við vorum ein-
ungis að beijast gegn kirkjubyggingu á
þessu svæði," segir Aðalsteinn og von-
ast til að öldur lægi og lausn finnist
fljótlega, sem allir geti sætt sig við.
Ekki bindandi tillaga
„Það tapa allir, þegar sundrung og
óeining ríkir," segir Guðmundur Þor-
steinsson dómprófastur. „Það var ljóst
frá aðalsafhaðarfundi í fyrra að það
myndi koma til uppgjörs á aðalfundi í
ár. Ég er þeirrar skoðunar að sóknar-
nefnd hafi gert skyldu sína með því að
finna söfnuðinum lóð undir kirkju-
byggingu,“ segir Guðmundur. Hann
telur að tillaga um breytingu á sóknar-
mörkum, sem samþykkt var með eins
atkvæðis mun, sé ekki bindandi. Hann
segir að þessa tillögu verði að senda til
safnaðarráðs prófastsdæmisins. í safn-
aðarráði eiga sæti prestar, formenn
sóknamefndar og salhaðarfulltrúar, að
sögn Guðmundar. „Þegar úrskurður
þess er fenginn, er hann síðan sendur
til biskups," bætir Guðmundur við.
Um það hvað framtíðin beri í skauti
sér vildi prófastur sem minnst segja.
„Ég þarf að ræða við sóknamefhdina
og í framhaldi af því verða einhveijar
ákvarðanir teknar," sagði Guðmundur
Þorsteinsson dómprófastur að lokum.