Tíminn - 03.10.1992, Side 4

Tíminn - 03.10.1992, Side 4
4 Tíminn Laugardagur 3. október 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINHU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tíminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðam'tstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guömundsson Stefán Ásgrimsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavík Síml: 686300. Auglýsingasíml: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686309, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,- , verð í lausasölu kr. 110,- Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Fimbulfamb og óráðsía Það kann aldrei góðri lukku að stýra þegar hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri gerir. En einhvem veg- inn er því svo farið með störf ríkisstjórnar Davíðs Odds- sonar, að það er eins og hún viti aldrei hvað hún er að gera. Uppi eru ráðagerðir og gefnar eru út yfirlýsingar um að gera eigi þetta og hitt, en fyrr en varir er búið að breyta áformunum og úr verður ruglandi og stjórnkerfið allt í uppnárhi. Tíminn hafði eftir Ólafi G. Einarssyni menntamála- ráðherra í gær, að réttast væri að endurskoða þá ákvörð- un að leggja á svokallaðan lestrar- eða bókaskatt. Orðrétt sagði ráðherrann: „Ég get sagt það, að ef það er rétt sem komið hefur fram í ályktunum ýmissa þeirra aðila, sem tjáð hafa sig um afleiðingarnar sem þessi samþykkt hef- ur, þá finnst mér það réttlæta endurmat á samþykkt- inni.“ Samþykktin, sem hér er um rætt, er sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hækka virðisaukaskatt á lesefni alls konar. Þær afleiðingar, sem ráðherrann er að sjá núna fyrst, eru þær, að prentun flyst úr landi. Ef prentverk og út- gáfustarfsemi verða skattlögð samkvæmt ráðagerðum ríkisstjórnarinnar, er ekkert eðlilegra en að við því verði brugðist með því að Iáta prenta íslenskar bækur og ann- að lesefni í útlöndum þar sem virðisaukaskattur er ekki á slíkri starfsemi, og engin influtningsgjöld eru á erlendu prenti hér á landi. Viðbrögðin við skattlagningu á íslenskri menningar- starfsemi eru að vonum hörð og koma víða að, og ætti engum að koma á óvart, ekki einu sinni ráðherraliði Dav- íðs Oddssonar. En að skattlagningin verði beinlínis til að leggja niður heilar atvinnugreinar eða flytja þær úr landi, er nokkuð sem skattaglaðir ráðherrar sáu ekki íyrir og ættu þeir að temja sér að reyna að sjá fyrir afleiðingar flausturslegra samþykkta og ráðagerða áður en þeim er slett framan í höggdofa kjósendur. Fimbulfamb Davíðs og ráðherra hans kemur flatt upp á fleiri útgefendur og neytendur lesefnis. Borgarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík spyrja nú hvernig þeir eigi að efna þau kosningaloforð sem þeir gáfu ásamt þáverandi boragarstjóra. Með skattlagningu orkufyrir- tækja og fleira mun borgarsjóður sjá á eftir þúsund millj- ónum á næstu fjórum árum í ríkishítina. Sama er uppi á teningnum varðandi önnur sveitarfélög, þótt upphæð- irnar séu aðrar. Ríkisvaldið stendur ekki við gerða samninga, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands ísl. sveitarfélaga, og má ekki komast upp með það. Og borg- arfulltrúinn Júlíus Hafstein segir í blaðaviðtali, að það standist ekkert af því sem ríkisvaldið segir. Þrátt fyrir stór orð og bægslagang stendur ekki steinn yfir steini í áætlunum og ráðagerðum ríkisstjórn- arinnar. Það, sem lofað er í dag, er svikið á morgun, og stofnanir og fyrirtæki geta ekki með nokkru móti aðlag- að sig breyttum aðstæðum eða gert áætlanir um framtíð- ina, því það er ekki einu sinni hægt að treysta því að vit- lausustu hugdettur verði framkvæmdar. Senn verða fjárlögin lögð fram, ef það verður hægt, vegna þess að ríkisstjórnin getur í hvorugan fótinn stigið og getur ekki tekið endanlegar ákvarðanir um veigamikla tekjuöflun eða sparnað, eins og orð menntamálaráð- herra, sem fyrr er vitnað til, bera með sér. Atli Magnússon: Kreppuglásin Enn er það kreppan í þjóðlíf- inu sem verður oss að „bragð- bæti“ í matseldina í glás dags- ins. Svo er líka að sjá sem þeir, er í blöðin skrifa um þessar mundir, noti kreppuna eins og kokkarnir saltið og piparinn. Þetta er bragðauki, sem nú um stundir er títt og óspart gripið til, og það fer eftir smekk hve mikið er notað og þar með hver remman og beiskjan verður. En í grunninn er það alltaf sama hundsbelgjaglásin sem á hlóð- unum stendur. Gamlir og dygg- ir lesendur blaðanna verða stundum ókvæða við er þeir sjá hvernig hún er hituð upp aftur og aftur og dag eftir dag, og ekki verða fregnir af enn nýjum fallítum og uppsögnum til þess að sæta hana. Það er því ekki að undra að menn setjast margir stúrnir á svipinn að þessum rétti og kreppa hnefann íengi um gaffalskeftið áður en þeir fara að smakka. Og ekki þrýtur piparinn Stöku maður verður ókvæða við, kennir blöðunum og fjöl- miðlum öðrum um og segir að það séu þeir, sem ali á þessum andsk... barlómi og uppgjöf og svipti þjóðina heilbrigðri bjart- sýni. En aðrir eru jákvæðari, dylja grettuna þegar þeir stinga upp í sig bita og bita og vilja ekki fortaka að þeir hafi fundið vott af púðursykurs- eða kanel- bragði. Hér á meðal eru þeir, sem komist hafa að því að fyrri kreppuglásir hafí verið ívið rammari en þessi og að margt bendi til að brytarnir fari að spara við sig salt- og piparaust- urinn — staukamir hljóti að vera að tæmast. Víst ber að þakka fyrir svona raddir, því þær em geðheilsu þjóðarinnar mikilsverðar. En ekki ber þó á því enn að nein þrot séu að verða á pipar í eldhúsinu, hvorki chile-pipar né svörtum pipar, og gnægð er líka af salt- inu — grófu og fínu. Bjargráð og sameig- inleg skipbrot Hvarvetna er verið að fækka fólkinu á vinnustöðum, séu vinnustaðir þá ekki blátt áfram lagðir niður. Á ráðningakontór- um streymir fólk að til þess að skrá sig í von um handtak, en á móti kemur að viðburður þykir ef menn úr atvinnurekenda- stétt hafa samband og vilja ráða einhvern. Þeir atvinnulausu hanga heima við og vinna að tómstundaföndri sínu, ef þeir þá eiga sér það, og reyna að láta sér til hugar koma ýmis furðu- leg uppátæki til tekjuöflunar, sem gætu orðið þeim til bjarg- ræðis - og helst gert þá skjót- ríka. Þeim dettur í hug að stofna fyrirtæki eða hefja heim- ilisiðnað. Þegar aftur á móti er hugað nánar að, kemur gjama í ljós að það kostar talsvert að hrinda góðu hugmyndinni í framkvæmd og hún verður sjálfdauð. En það mun vera al- gengt meðal örvæntandi fólks að óraunsæ bjartsýnisköst skiptast á við svartsýnisdróma. í svartsýnisdrómanum verða skelfingarfregnir fjölmiðlanna af efnahagsástandinu að eftir- lætislesefni margra. Beiskju- bragð piparglásarinnar verður sætt á sinn hátt og hefur sef- andi áhrif. Allt verður léttbær- ara þegar margir deila sömu ör- lögum, og menn hlýða á fregn- ir af uppsögnum eins og upp- sveiflu hjá flokknum sínum á kosninganóttu. Snærí eða límband En kreppan lætur ekki vera að klóra einnig sumum þeim, sem eftir sitja og halda starfmu sínu. í þakklætisskyni fyrir það að fá að hanga verða þeir að sætta sig við allra handa breyt- ingar og tilfæringar. Þetta get- ur fallið þeim þungt, sem em orðnir fastir við gamla stólinn sinn eða færibandið, og getur orðið að alvarlegu sálrænu áfalli. Ég man eftir danskri smásögu um gamlan pakkhús- karl, sem skyndilega var skipað að fara að ganga frá vömsend- ingum með því að loka kössun- um með límbandi í stað þess að nota snæri. Þessi umskipti urðu gamla manninum svo þungbær að ég man ekki betur en að sagan hafi endað með hreinustu ósköpum... Víða skapast ótryggt andrúmsloft á vinnustöðum og loft verður lævi blandið. Grannt er fylgst með hvort einhver sé að hremma spón úr askinum frá öðrum, því það liggur í loftinu að enn meir kunni að kreppa að, og er þá um að gera að hafa tryggt sér góða handfestu er nýja holskeflan ríður yfir. „Brother can you spare a dime...“ Enginn getur verið án aur- anna og þá víst síst á íslandi, þar sem það er orðin gömul tíska að hafa bogann spenntan til hin ýtrasta. „Brother can you spare a dime...“ sagði í am- eríska slagaranum gamla, sem varð að nokkurs konar þjóð- söng þar í landi á árum krepp- unnar miklu. Ekki er að vísu ætlunin að halda því fram að ástandið sé að verða þannig hér á Fróni, því fár mun telja sig miklu betur settan þótt hann eigi einhvern „dime“ — sem var víst eins og hundraðkall — í vasanum eða ekki. Og enn hef- ur ekki heyrst um að stofnun risavaxinna súpugjafaeldhúsa sé í undirbúningi. En hinn almenni Ameríkani taldist ekki fátækur í byrjun kreppunnar 1929. Orðheppinn maður sagði að það hefði þá gerst í fyrsta sinn að menn færu akandi á bfl að sækja fá- tækrastyrkinn. Og verkurinn er að vor íslenski kreppulýður nú er með mikla peninga í velt- unni, kannske nokkrar milljón- ir. Það fer því eftir hvert fram- haldið verður hvort það á eftir að komast í tísku að menn slái hver annan um „dime“, er þeir hittast á förnum vegi. Þá mun sá teljast heppinn, sem ekki var að vesenast með mikið af millj- ónum röngu megin í bókhald- inu. Sá getur sofið sem skuldar „dime“, en „öfug“ milljón er varla gott svefnmeðal. Hér þykjumst við þá hafa nóg að gert hvað lýtur að tillagi voru til piparglásar kreppu- hjalsins í dag. Varla er þetta þó nema kreppingur hálfur til móts við það, sem önnur svartagallsfól leggja af mörkum af og til — svo í þessu blaði sem öðrum fjölmiðlum. En hve lengi skyldi þetta efni endast oss sem skrifum í blöð? Er kreppan komin til að vera, eða er þetta aðeins ein af þessum vanalegu „lægðum" vors ís- lenska efnhagsiífs? En svo er nú fyrir að þakka að rýmið er þrot- ið og leyfilegt að fresta að efna til glásar þar um í bili.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.