Tíminn - 03.10.1992, Qupperneq 6

Tíminn - 03.10.1992, Qupperneq 6
6 Tíminn Laugardagur 3. október 1992 / Guðmundur heitir hann Thorlacius og er 88 ára að aldri, en sýnist langtum yngri. Hreyfingar hans eru ekki gamals manns og hann segir svo skýrt og Ijóst frá að það er eins og frásögnin sé af atburðum sem gerðust í gær. Allt skýrir þetta þá furðulegu staðreynd að þaö eru ekki nema sex ár frá því hann hætti á sjónum — þá 82 ára — en hann hafði þá verið fulltrúi Sölumiöstöðv- ar hraðfrystihúsanna um borð í frystiskipum um 30 ára bil. Svo er þaö enn annað sem mun fágætt, er svo aldraður maður á í hlut: Hann hefur búið á sama stað alla ævi sína — á Nýlendugötu 20. Þar er hann fæddur og hefur aldr- ei flutt og ekki segir okkur svo hugurað hann eigi það eftir héðan af. Samt er enn ótalið tilefni þess aö við fórum að heimsækja hann og falast eftir spjalli. Það er að Guðmundur man og lifði skútuöldina og reri sjálfur til fiskjar á kútter frá Reykjavík, en það var árið 1914. Sjórinn gekk upp í Kvosina „Ég er fæddur þann 18. ágúst 1904 og er því nýlega orðinn 88 ára, eins og ég sagði,“ segir Guð- mundur. „Já, þá var nú öðruvísi um að litast út um gluggana hér af Nýlendugötunni en nú er. Hús- ið, sem ég fæddist í, stendur héma við hliðina, en við emm hér í „nýrri" byggingu, sem reist var á sömu lóð 1936. Þá blasti við Grandinn óbyggður og húsin stóðu skammt ofan við fjöm- kambinn, svo sjórinn átti til að ganga alla leið upp í Kvosina í verstu veðmm. Þá mátti og löng- um sjá fjölmargar skútur liggja hér úti fyrir, bæði franskar og ís- lenskar, en einir kunnustu skútu- útgerðarmenn í Reykjavík þá vom þeir Duus, Geir Zoéga og Th. Thorsteinsson. Um ættir mínar er það að segja að foreldrar mínir vom Margrét Oddsdóttir, ættuð úr Árnessýslu, og Ólafur Thorlacius úr Arnar- firði. Faðir minn átti tvo bræður, þá Sigmund og Þorleif, og þeir bræður fluttu með tímanum til Reykjavíkur allir þrír og gerðust skútumenn. Ég hef heyrt að þetta Thorlacius- nafn sé gamalt og að það megi rekja til Þorláks biskups Skúla- sonar. Mín grein af ættinni mun samt uppmnnin frá Mýrarhúsum hér í Reykjavík, sé nokkuð aftur í tímann farið. í Mýrarhúsum bjó um daga Bjarna Sívertsen Ólafur Þórðarson Thorlacius, útgerðar- maður og kaupmaður, og af hon- um mun ég kominn. En annars kann ég varla að rekja þetta nán- ar.“ Reykjavíkurhöfn á skútuöldinni. Th. Thorsteinsson, útgerðarmaöur kútters Sigríðar. Frakkar í slipp hjá Ellingsen „Ég minntist á að umhverfi var heldur en ekki annað, þegar ég var að leika mér héma í fjömnni sem bam. Sérstaklega man ég eft- ir Fransmönnunum sem komu ákaflega oft hingað inn til Reykja- víkur. Skúturnar þeirra vom þá gjama teknar í slipp hjá Ellingsen til aðgerðar og við strákamir vor- um mikið að sniglast í kringum þá. Þá kom fyrir að Ellingsen gamli kom og rak okkur burtu, en alltaf var það í góðu og hann skellihló þegar hann sá okkur hlaupa burtu. Við fengum sitt- hvað smálegt hjá Frökkunum. Þar á meðal var beinakex, sem þeir réttu okkur þegar við kom- um til þeirra og sögðum: „Fransí- bískví!“ Þessar kexkökur vom stórar og ferkantaðar og nærri bragðlausar, en okkur fannst gott að maula þær. Oft fómm við með Frökkunum út á Grandann, en þar tíndu þeir skelfisk. Þeir höfðu með sér körfu og þegar karfan var orðin full var hún borin um borð í skipið í slippnum. Þar var skorið innan úr skelinni, fiskurinn sett- ur í pott og soðinn ásamt beina- kexi í lúkamum. Að endingu var potturinn borinn upp á þilfar og hverjum manni fengin skeið. Þar með var sest að snæðingi og ég man að þessi kássa bragðaðist ágætlega, því oft fengum við strákamir að taka þátt í veisl- unni.“ Föðurmissir „Svona liðu nú bernskuárin, en veturinn 1914, þegar ég var á tí- unda árinu, dó faðir minn, aðeins 52 ára gamall. Hann hafði verið á vetrarvertíð og fengið lungna- bólgu um borð. Hann komst lif- andi til lands, var fluttur upp á Landakotsspítala og lést þar. Þá var mikil sorg að okkur kveðin og vandkvæði, en við vomm fjögur bömin og ég elstur. Skútan, sem faðir okkar var á, hét Sigríður og var í eigu Th. Thorsteinsson út- gerðarmanns. Hann átti tvær skútur og rak auk þess tvær versl- anir í Reykjavík, matvömverslun og fataverslun, sem Haraldur Ámason, síðar stórkaupmaður, stóð fyrir. Þessi fataverslun brann 1915 í Austurstrætisbrunanum. Th. Thorsteinsson reyndist okkur

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.