Tíminn - 03.10.1992, Síða 9

Tíminn - 03.10.1992, Síða 9
Laugardagur 3. október 1992 Tíminn 9 eins þrír skotnir... Hinir voru allir pyndaðir til bana. Aðferðir við pynd- ingarnar voru margar: af einum voru varirnar skornar, af öðrum nef og eyru, tungan skorin úr einhverj- um. Á nokkrum höfðu fætumir ver- ið soðnir, annar fóturinn á sumum en báðir á öðrum ... Augun voru stungin úr nokkrum. Af einni kon- unni voru brjóstin skorin.“ Kosningar Upptalning af þessu tagi úr sögu Eystrasaltslanda á fyrri hluta sov- éska tímans þar gæti orðið nokkuð iöng. Þar að auki mætti í þessu sam- bandi minna á hernað eistneskra, lettneskra og litháískra skæruliða gegn Rússum frá lokum heimsstyrj- aldarinnar fram á miðjan sjötta ára- tug, sovésku harðstjórnina sem hélt áfram — í vægara formi — eftir dauða Stalíns og lauk ekki að fullu fyrr en lýðveldin urðu sjálfstæð á ný, yfirráð Rússa á keisaratímanum og hernað þeirra í Eystrasaltslöndum á öldunum þar áður. Allt þetta er rétt að hafa í huga þeg- ar skoðað er það, sem er að gerast í sjálfstæðu Eistlandi (sem og Lett- landi og Litháen) þessi árin. 20. sept. s.l. fóru fram í Eistlandi fyrstu forseta- og þingkosningarnar eftir að landið varð sjálfstætt að nýju fyrir rúmu ári. í þeim kosningum höfðu íbúar landsins aðrir en Eistar ekki kosningarétt, að undanskildum þeim sem höfðu verið ríkisborgarar á fyrri sjálfstæðistímanum og af- komendum þeirra. Það fólk, sem fluttist inn á sovéska tímanum, og afkomendur þess hefur enn ekki rík- isborgararétt í sjálfstæðu Eistlandi og þar með ekki kosningarétt. Eist- lands-Rússar kvarta af þessu tilefni yfir því að þeir séu misrétti beittir af Eistum og rússnesk stjórnvöld taka undir með þeim. Á bak við umrædda afstöðu eist- neskra stjórnvalda, sem þýðir að miklum meirihluta Eistlands-Rússa er neitað um ríkisborgararétt að sinni, má segja að einkum liggi þrjár beinar ástæður. Þjóðernisminnihlutar næstum 40% í fyrsta lagi er það grunnatriði af hálfu stjórnvalda og Eista yfirleitt að líta á innlimun landsins í Sovétríkin 1940 sem hernám og sovéska tím- ann allan sem hernámstíma. Með því að veita sjálfkrafa þeim íbúum landsins, sem fluttu þangað og sett- ust þar að í skjóli rússnesks her- valds, réttindi á við aðra landsmenn, væri verið að löggilda rússnesku yf- irráðin að vissu marki, að dómi eist- neskra stjórnvalda. nýjum kringumstæðum, sé velkom- ið að vera. Skoðanir um hve stór hluti rússneska þjóðernisminnihlut- ans þeir síðarnefndu séu, eru eitt- hvað mismunandi. 1500 eistnesk orð Arnold Ruutel Eistlandsforseti greiöir atkvæði I þjóöaratkvæöa- greiöslu um sjálfstæöisyfirlýsingu: flestir Eistar vona aö sumir Rúss- anna a.m.k. fari. • Sígild hönnun, úrvalssmíð úr áli • Þykkur botn sem verpist aldrei • Einstök hitaleiðni og jöfn hitadreifing • Slitsterk húð sem matur festist ekki við • Margar tegundir og stærðir íslensk gæðavara sem endist lengur, nýtist betur og eykur ánægju við matseldina. Ármúla 42 ■ SÍMI 38775 ■a(a>ia;«t'RV;a Hafnarstræti 21 • SÍMI 13336 Rússland hefur enn her f Eistlandi og ekki einu sinni ráöherrar I Eistlandsstjórn fá aö heimsækja sumar af stöövum hans. í öðru lagi hafa Eistar áhyggjur af því hve Rússarnir í landi þeirra eru margir. Þeir eru samkvæmt áður- nefndri bók Sandströms um 30% landsmanna, af 38-39% landsmanna af öðrum þjóðernum en eistnesku alls. Á Eistum þeim, sem sá er þetta ritar hafði tal af í Eistlandi f ágúst s.l., var að heyra að þeir væru flestir sammála um að æskilegt væri að einhverjir Rússanna þarlendis flyttu úr landi, helst sem fyrst og heldur fleiri en færri. Tvö til þrjú hundruð þúsund (af um 475.000 rússneskum landsmönnum alls) voru tölur nefndar í því sambandi. Að þessari afstöðu Eista stuðla ekki hvað síst endurminningar þjóðar- innar úr fortíðinni, sem drepið var á hér að ofan. Ofan á þungan hug, sem Eistar bera til Rússa af þeim sökum, kemur að þjóðirnar eru ólíkar að menningu. Eistar eru Vesturlanda- menn, tunga þeirra náskyld finnsku og í menningarefnum eru þeir ná- komnir Finnum, Svíum og Þjóðverj- um. (Finnar segja um frændur sfna sunnan Kirjálabotns: Þeir eru Þjóð- verjar sem tala finnsk-úgrískt mál.) Rússar með sína rétttrúnaðarkristni og söguleg og menningarleg tengsl aftur til Býsans og Tartara eru Eist- um nokkuð ólíkir í hefðum og hug- arfari, enda þótt f útliti séu þjóðirn- ar það áþekkar að Eistar þekki ekki — að eigin sögn — Rússa frá sjálfum sér, í meirihluta tilfella. Vinnufélagar, ekki vinir Þetta tvennt, hroðalegar endur- minningar úr samskiptum þjóðanna og takmarkaður skyldleiki, hefur að líkindum öðru fremur leitt til þess að þær halda sig að mestu hvor frá annarri. Eistar sögðu greinarhöf- undi að félagsleg samskipti Eista og Rússa væru lítil; jafnvel þótt þeir hefðu árum saman unnið á sama vinnustað umgengjust þeir ekki ut- an vinnutíma. Þriðja beina ástæðan til afstöðu eistneskra stjórnvalda viðvíkjandi Forusta Sovétríkjanna á nýbyrj- uöum Brezhnevstíma: reynt var aö gera Eystrasattsiönd rúss- nesk aö máli og menningu meö mikilll iönvæöingu þar, er út- heimti innflutning vinnuafls. ríkisborgararétti er grunur þess efn- is, að margir Rússanna verði aldrei trúir þegnar Eistlands. Það fer ekki Ieynt að margir Rússar þarlendis eiga í meiri eða minni erfiðleikum með að sætta sig við það að vera ekki lengur herraþjóð, eins og þeir voru á sovéska tímanum. Þeir horfa um öxl til þess tíma af ráðvilltri gremju og reiði; segjast sumir halda fast við kommúnismann, aðrir hallast að rússneskri þjóðernishyggju, sumir að hvorutveggja. í anda þjóðernis- hyggju sinnar vilja sumir og senni- lega ófáir Eistlands-Rússa helst ekki viðurkenna annað en að Eystrasalt- slönd séu með réttu rússnesk, og sú skoðun er ekki án hljómgrunns í Rússlandi. Þegar Eistar, þ.á m. talsmenn stjórnmálaflokka jafnt til hægri sem vinstri, láta í ljós óskir um að losna við eitthvað af sambýlingum þeim, sem sovéska valdið tróð upp á þá, kemur yfirleitt fram að þeir vilji eða geri sér vonir um að þeir af Rússun- um, sem fari, verði þeir sem ófúsir eru þess að sætta sig við hið nýja Eistland. Þeim, sem vilji aðlagast í framhaldi af þessu er rétt að taka skýrt fram að því fer víðs fjarri að opinber stefna eistneskra stjórn- valda sé að neita fólki af þjóðernism- innihlutum um ríkisborgararétt um alla framtíð. Samkvæmt gildandi reglum getur þetta fólk sótt um þann rétt og fengið hann, ef það hef- ur búið í landinu ekki skemur en tvö ár, ekki unnið fyrir KGB, hefur fast- ar tekjur og kann a.m.k. 1500 orð í eistnesku. Ekki virðast það vera neinir afarkostir, miðað við það sem gerist um þesskonar. Margir Rússanna eru eigi að síður óánægðir, einfaldlega að líkindum fyrst og fremst vegna þess, að þeir sakna þess sem var. Af öllu, sem þeim sárnar viðvíkjandi nýja tíman- um, virðist þeim mest vaxa í augum að verða nú að læra eistnesku, sem er þeim erfitt mál. Flestir þeirra kunna lítið eða ekkert í tungu lands- ins, og á það einnig við um þá sem hafa búið þar alla ævi. En þeim ætti ekki að vera vandara um en Eistum að læra rússnesku, hvað Eistar urðu nauðugir viljugir að gera á sovéska tímanum. Að öllu athuguðu óttast margir Eistar að ókyrrð og illindi muni af hljótast f landi þeirra, ef drjúgur hluti íbúa þess verði til frambúðar af öðru þjóðerni en eistnesku. Ekki vantar dæmin úr samtímanum til að benda á, þeim kvíða til rökstuðn- ings, frá fyrrverandi Sovétríkjum, fyrrverandi Júgóslavíu, þriðja heim- inum og jafnvel Vesturlöndum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.