Tíminn - 03.10.1992, Qupperneq 17

Tíminn - 03.10.1992, Qupperneq 17
Laugardagur 3. október 1992 DAGBÓK Willem Dafoe ásamt M. Emmet Walsh f „Hvftlr sandar". Regnboginn sýnir „Hvítir sandar" Regnboginn hefur tekið til sýninga spennuþrillerinn „Hvíta sanda" eða „White Sands". Maður finnst látinn mitt í eyðimörkinni með skammbyssu í hendi sér. Engin ummerki eru um sjálfsmorð, en einkennilegt þykir að morðinginn hafi ekki tekið 500.000 dollara með sér sem fómarlambið hafði á sér. Lögreglu- maðurinn Ray Dolezal í Nýju Mexíkó tel- ur í upphafi að um vanabundið verk sé að ræða. Innan skamms er Ray kominn á kaf í rannsókn málsins og villir á sér heimildir sem hinn látni. Nú er Ray orð- inn miðpunkturinn í FBI-aðgerð og kemst í hættuleg kynni við vopnasala. Ray verður að treysta á sjálfan sig og engan annan, því aðstæður em sífellt að breytast og svik og prettir em daglegt brauð. Með aðalhlutverk fara Willem Dafoe, sem var útnefndur til óskarsverðlauna fyrir leik sinn í „Platoon", Mickey Rourke (9 1/2 Weeks), Samuel L. Jackson (Patri- ot Games, Jungle Fever) og Mary Eliza- beth Mastrantonio. Leikstjóri er hinn kunni Roger Donaldson, en hann gerði síðast spennumyndina „No Way Out“ með Kevin Costner í aðalhlutverki. Ritnefnd afmcelisritsins: Frú vinstri Hrafnhildur Siguröardóttir, Svandís Skúladóttir og Þór- arinn Friðjónsson frd Skerplu. Á myndina vantar Selmu Dóru Þorsteinsdóttur sem einnig er i nefndinni. Afmælisrit til heiðurs Valborgu Sigurðardóttur Fóstmfélag íslands gefur út afmælisrit til heiðurs Valborgu Sigurðardóttur, fyrrver- andi skólastjóra Fósturskóla íslands. En Valborg varð 70 ára á þessu ári. Ritinu er ætl- að að vera vottur virðingar og þakklætis fyrir þá leiðsögn og örvun, sem hún hefur veitt með kennslu- og fræðistörfum sínum um fjögurra áratuga skeið. Efni ritsins er að meginhluta fyrirlestrar, er fluttir vom á ráðstefnu Fóstmfélags fs- lands um „Leik og leikuppeldi" sem haldin var dagana 26.-28. mars 1992, auk nokkurra fleiri greina. Höfundar efhis bókarinnar em auk Valborgar Sigurðardóttur, Agnete Engberg deild- arstjóri í menntamálaráðuneyti Danmerkur, Birgitta Knútsdóttir Olofsson dósent við Kennaraháskólann í Stokkhólmi, Berit Bae cand. phil. lektor við Fóstmháskólann í Ósló, Eva Balke fóstra og fyrrverandi rektor við Fóstmháskólann í Ósló, Hans Vejleskov mag. art prófessor í þroskasálfræði við Kennaraháskólann í Kaupmannahöfn, Hrafn- hildur Sigurðardóttir fóstra, talkennari og leikskólastjóri, dr. Kristján Guðmundsson heimspekingur, kennari og námsráðgjafi, Svandfs Skúladóttir fóstra og deildarstjóri í leikskóladeildMenntamálaráðuneytisins. Framhaldsskólinn á Laugum tekinn til starfa Framhaldsskólinn á Laugum í S.-Þingeyjarsýslu var settur 9. september s.l. í hátíða- sal skólans, að viðstöddu fjölmenni. Sr. Sigurður Guðmundsson flutti hugvekju og Friðrik Jónsson lék á píanó. Gestum var síðan boðið í kaffisamsæti að lokinni athöfn- inni. Síðar um daginn vom svo haldnir foreldrafundir. í setningarræðu Hannesar Hilmarssonar skólameistara kom fram að skólinn væri fúllsetinn: 120 nemendur verða í skólanum í vetur og urðu nokkrir frá að hverfa. Vel er mannað í starfsliði skólans og allir kennarar vel menntaðir og með full réttindi. í vetur verður kennt í einni bekkjardeild 10. bekkjar, almennu bóknámi 1. og 2. árs. Stærstu brautir skólans em íþrótta- og ferðamáladeild, enda er aðstaða til kennslu á þessum brautum góð. Tíminn 17 Anthony Perkins í faömi fjölskyldunnar á 58 ára afmæli sfnu. Anthony Perkins er langfrægastur fyrir kvikmyndina Psycho og sturtuatriöið ógleymanlega, en: Anthony kom ekki nálægt sturtunni Leikarinn Anthony Perkins Iést fyrir skömmu úr eyðni, aðeins sex- tugur að aldri. Hann lék í mörgum kvikmyndum um ævina, en sú lang- frægasta er Hitchcock-myndin Psycho, þar sem Perkins lék geðbil- aðan morðingja sem alla tíð hafði verið kúgaður af móður sinni og tók við hlutverki hennar er hún lést. Atriði eitt í kvikmyndinni er orð- ið sígild hryllingssena. Það er þegar Norman Bates drepur ungu stúlk- una f sturtunni á eftirminnilegan hátL En ekki er allt sem sýnist. Að sögn Perkins var það ekki einu sinni Hitchcock sem leikstýrði atriðinu, heldur brellumeistari að nafni Saul Bass. Og sjálfu sr kom Perkins ekki nálægt þessu atriði. Það voru hend- umar á staðgengli hans sem sáust við sturtuhengið, sjálfúr var hann staddur í New York þegar morðið var kvikmyndað f HoIIywood. Perk- ins segir að hann hafi sjálfur orðið jafn hræddur og aðrir áhorfendur þegar hann sá þetta atriði í fyrsta skipti. Perkins fyrir utan Bates-húsiö í Psycho. Perkins segir að Psycho hafi ver- ið fyrsta myndin í langri röð ofbeld- ismynda, sem stöðugt hafi orðið ruddalegri eftir því sem á leið. Nú sé svo komið að allt sé sýnt, blóð og innyfli flæði um hvíta tjaldið og fólk er myrt í nærmynd. Slíkar myndir hala inn mikla peninga, en Perkins telur spennuna vanta. Það sem er gefið í skyn — það sem gæti gerst — er miklu meira taugatrekkjandi en að reka viðbjóð- inn bókstaflega upp í nefið á áhorf- endum, segir hann. Anthony Perkins giftist aðeins einu sinni um ævina, þá orðinn fer- tugur að aldri. Kona hans, Berry, er fimmtán árum yngri en hann og saman eignuðust þau tvo syni, þá EIvis og Osgood.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.