Tíminn - 03.10.1992, Side 20
AUGLYSINGASIMAR
686300
Áskriftarsími
Tímans er
686300
LAUGARDAGUR 3. OKT. 1992
Horfur eru á að skuld Reykjavíkurborgar í Landsbanka verði 2,3 milljarðar í árslok:
Yfirdrátturinn
er 20% af tekjum
Reykjavíkurborgar
Útlit er fyrir að yfírdráttur borgarsjóðs í Landsbanka verði um
20% af tekjum ársins. Áætlað er að yfirdrátturinn verði í árslok um
2,3 miiljarðar. Tekjur borgarsjóðs eru hins vegar áætlaðar 12 millj-
arðar. Þessi mikli yfirdráttur í Landsbanka er borgarsjóði afar dýr
því vextir á yfirdráttariánum eru mjög háir. Borgarstjóri sagði á
borgarstjórnarfundi í fyrradag að til athugunar væri að breyta yfir-
drættinum yfír í almenn lán.
Sigrún Magnúsdóttir borgarfull-
trúi sagði að hallinn á borgarsjóði
væri hlutfallslega álíka mikill og á
ríkissjóði. Mikill halli á ríkissjóði
sé gamalt vandamál, en þessi
slæma fjárhagsstaða Reykjavíkur-
borgar sé hins vegar nýtt vanda-
mál.
Á fundi borgarstjórnar var mikið
rætt um atvinnumál og um fjár-
hagsstöðu borgarinnar. Minni-
hlutaflokkarnir lögðu fram bókun
þar sem segir að fullyrðingar
minnihlutans um að tekjuspá
borgarstjórnar fyrir þetta ár væri
óraunhæf hafi reynst réttar. Sig-
rún sagði afar slæmt að þannig
skuli hafa verið haldið á fjárhag
Reykjavíkurborgar síðustu ár að
hann sé ekki í betri stöðu en raun
ber vitni, þegar þörf sé á að takast
á við gífurlegan vanda í atvinnu-
málum í borginni.
-EÓ
Einar Bragi Davíð Oddsson
Reiði meðal félaga í Rithöfundasambandinu:
Reka þeir Davíð
úr samtökunum?
Bóka-, menningar- og fjölmiölaskattur ríkisstjómarinn-
ar hefur mælst illa fyrir mjög víða, svo ekki sé fastar að
orði kveðið. Menningarfrömuðir hvers konar hafa af
eðlilegum ástæðum gengið fram fyrir skjöldu í þessu
máli og gagnrýnt þann menningarfjandskap sem þeir
telja að birtist í þessum áformum.
Kísilverksmiðjan við Mývatn:
framtíðina
Tæpir sex mánaöir eru þar til
við Mývatn rennur út og engin
ákvörðun hcfur verið tekin um
framhaldið. I>ví ríkir nokkur óvissa
um framtið fyrirtæksins sem þegar
er farfn að h&fa áhrif á reksturþess
og á íbúa Skútustaöahrepps.
Siguiður Rúnar Ragnarsson,
sveitarstjóri Skútustaðahrepps,
segir að þar sem fyrirtækið sé
burðarás í atvinnuHfi svritarinnar
sé óviðunandi að búa við þá óvissu
sem rildr um framtíð fyrirtæksins.
Til marks urn mikiivægi fyrirtækís-
ins fyrir sveitina fær svettarsjóður
um 40% af tekjum sínutn af starf-
semi verksmiðjunnar og þriöjung-
ur af íbúumun hefur framfæri sitt
af rckstri Kísilvcrksmiöjunnar.
Svdtarstjórinn segir að þessi
óvissa um franitíö íyrirtækLsins sé
þegar farin að hafa áhrif á rekstur
hennar þar sem ekki sé hægt að
gera neinar áæ tlanir fram í tfmantr
vatn í biöstiiðu af þeim sökum.
Hann segir að það hafi ekkert nýtt
komið ftam sem rennlr frekari
stoðum undir það að starfsemi
verfesmiðjunnar sé óæskðeg með
Sigurður Rúnar segir að í sérfræð-
in; áskýrslunni sem birt var í ágúst
í i vrra hafi ekki verið hægt að
ten,tja sveiflur í lífrikinu við starf-
semi veiksmiðjunnar. Hins vegar
i um áhrif setflutninga.
„Við teljum það ekki vera það stórt
mál að það réttlæti að haída iæilu
byggðariagi í algjörri óvissu.“
Það eru þó ekki allir sammála
svettarstjóranum og forráðamönn-
um veiksmiðjunnar að liftOdnu í
og við Mývata stafí ekki hætia af
sjónarmið þótt ég sé því ekki sam-
mála,“ segir Sigurður Rúnar. -grh
Frumsýning í Óperunni
Sérstaka athygli vekur þó grein í Morg-
unblaðinu í gær eftir Einar Braga rit-
höfúnd þar sem hann spyr „Hvað er
eiginlega á seyði?“.
I greininni telur Einar það einsýnt að
eðlilegt sé að reka Davíð Oddsson for-
sætisráðherra úr Rithöfundasambandi
íslands ef skatturinn verður lagður á.
Davíð Oddsson er félagi í Rithöfunda-
sambandinu og í Bandalagi íslenskra
listamanna og Tímanum er ekki kunn-
ugt um að menn hafi verið formlega
reknir úr samtökunum íyrr. í grein
sinni segir Einar að menningarskattur
gangi þvert á stefnumörkun iands-
fundar Sjálfstæðisflokksins og leiðir
rök að því að um útúrsnúninga sé að
ræða þegar Davíð Oddsson hefur sagt
að í nýrri landsfúndarsamþykkt kveði á
um að breikka eigi skattstofna með því
að fækka undanþágum. Síðan segir
Einar í grein sinni: „Ég fáe ekki séð að
Rithöfundasambandið ætti annars úr-
kosti en víkja úr samtökunum hverj-
um þeim sem jafngróflega réðist gegn
brýnustu lífshagsmunum félags-
manna. Það þættu tíðindi trúi ég í Evr-
ópu og kannski víðar um álfur að for-
sætisráðherra bókaþjóðarinnar ís-
lensku hefði verið rekinn úr samtök-
um rithöfúnda fyrir að leggja
lestrarskatt á bækur."
Þessi hótun er athyglisverð, þó svo að
hún komi ekki með formlegum hætti
frá forystu Rithöfundasambandsins.
Einar Bragi er einn af gamalgrónu
þungaviktarmönnunum í samtökun-
um og hefur m.a. setið þar í stjóm, var
formaður Rithöfundasambandsins um
skeið, og hefur gegnt mörgum trúnað-
arstörfum fyrir sambandið. Ekki náðist
í Einar í gær til að fá upplýsingar um
hvort eða hvenær hann hyggist gera
brottrekstur forstætisráðherrans að
formlegri tillögu sinni komist bóka-
skatturinn á um áramótin.
Óperan Lucia di Lammermoor
eftir Gaetano Donizetti var
frumsýnd í gærkvöldi við góðar
undirtektir áhorfenda. Með að-
alhlutverk í óperunni fara Sig-
rún Hjálmtýsdóttir og Tito
Beltran. Óperan fjallar um ást
og hatur. Á myndinni má sjá að-
alsöngvarana í hlutverkum sín-
um.
Með önnur helstu hlutverk í sýn-
ingunni fara Bergþór Pálsson, Sig-
urður Steingrímsson, Sigurður
Björnsson, Signý Sæmundsdóttir,
Bjöm I. Jónsson og Sigurjón Jó-
hannesson. Kór og hljómsveit ís-
lensku óperunnar taka þátt í sýning-
unni.
Næsta sýning á óperunni er annað
kvöld, en sú sýning er jafnframt há-
tíðarsýning íslensku óperunnar.
-EÓ /Tímamynd Ámi Bjama
Kleppsvíkurbrú til borgarráðs
Borgarsfjóm Reykjavíkur sam- um að gjalddögum fasteignagjalda
þykkti í gær að ví*a öl borgarráðs verði fjölgað úr þremur í sex. Til-
tillögu Sigrúnar Magnúsdóttur laga fíokkanna um að bömum og
borgarfulltrúa um könnun á hag- unglingum verði gefínn kostur á
kvæmni byggingu brúar eða jarð- að kaupa >&ræn kort“ í strætis-
ganga yfir KJeppsvfk. SÖmuIeiðis vagna á lækkuðu verði var hins
var samþykkt aö vísa til borgar- vegarfelld.
ráðs tillögu minnihlutafiokkanna -EÓ