Tíminn - 23.10.1992, Page 12
AUGLYSINGASIMAR
—M—
Áskriftarsími
Tímans er
686300
KERRUVAGNAROG KERRUR
Bamaiþróttagallar á frábæru verði.
Umboðssala á notuðum bamavörum.
Sendum í póstkröfu um land allt!
BARNABÆR, Ármúla 34
Símar: 685626 og 689711.
VERIÐ VELKOMIN!
Bílasala Kópavogs
Smiöjuvegi 1, 200 Kópavogi
___________
Vantar nýlega bíla.
Mjög mikil eftirspurn.
VERIÐ VELKOMIN
& 686300
TVÖFALDUR1.vinningur |
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER1992
Sjófrysting hefur aukist hröðum skrefum frá árinu
1982 og verulega milli 1990 og 1992:
12,4% aukning
Á síðasta ári voru sjófryst alls 134.262 tonn á móti 119.494 tonn árið
1990 og hafði þá aukist um 12,4% á milli ára. Sjófrysting hefur aukist
hröðum skrefum frá því hún hófst að marki fyrir tíu árum.
Að vanda var mest fryst af þorski
eða 42.348 tonn en næstmest af
karfa og úthafskarfa alls 28.656
tonn. Af grálúðu voru fryst alls
18.733 tonn, samkvæmt Útvegi, riti
hagdeildar Fiskifélags íslands.
Athygli vekur að vegur landfryst-
ingar af botnfiskafla jókst á síðasta
ári, nam 43,9% í fyrra á móti 41,5%
árið á undan. Að venju var fryst mest
af þorski eða 123.725 tonn sem er
3,7% samdráttur miðað við árið áð-
ur en hins vegar dróst þorskafli
saman um 8%. Um 6,9% minna var
landfryst af ýsu en árið áður en afla-
samdráttur ýsu nam 19%. Af karfa
var aukning í landfrystingu um 3%
en aflaaukning á þessari fisktegund
nam 1,8%.
Þá jókst útflutningur fisks með
flugvélum einnig, eða 8.872 tonn á
móti 6.690 tonnum árið 1990. Mest
var flutt út af ýsu eða 4.439 tonn en
útflutningur á þorski og karfa með
flugvélum var svipaður eða 1600
tonn. -grh
Almennur innflutningur hefur dregist saman um 9% á fyrstu átta
mánuðum ársins:
Bílainnflutningur
dregst saman um 30%
Innflutningur fólksbfla dróst saman um nærri 30% á fyrstu sex mán-
uðum ársins. Reiknað er meö að samdrátturinn verði enn meiri á síðari
hluta ársins. Almennur innflutningur fyrstu átta mánuði ársins dróst
saman um 9%. Samdrátturinn hefur verið að aukast allt þetta ár.
Fyrstu átta mánuði ársins var vöruskiptajöfnuður hagstæður um 3,1
milljarð, en á sama tíma í fyrra var hann óhagstæður um 0,3 milljarða.
Minni innflutningur endurspegl-
ar að neysla hefur dregist mikið
saman hér á landi. Samdrátturinn
virðist vera að aukast stig af stigi
því að tölur Hagstofunnar um al-
mennan innflutning hafa verið að
sýna sífellt minni innflutning
miðað við árið í fyrra. Samdráttur-
inn er núna 9% reiknað á föstu
gengi. Sé hins vegar innflutningur
til stóriðju og innflutningur sér-
stakrar fjárfestingavöru (skip,
flugvélar, Landsvirkjun) undan-
skilin, en innflutningur á þessum
vörum er mjög breytilegur milli
ára, þá er samdrátturinn 12%.
Minni neysla kemur einna
gleggst fram í minni sölu á nýjum
bílum. Á fyrri helmingi ársins
voru fluttir inn nýir bílar fyrir
tæpa tvo milljarða. Á sama tíma í
fyrra nam þessi innflutningur
tæpum 2,7 milljörðum. Reiknað
er með að samdráttur í bflainn-
flutningi verði enn meiri á síðari
helmingi ársins.
Fyrstu átta mánuði þessa árs
voru fluttar út vörur fyrir 58,2
milljarða, sem er um 7% minna
en á sama tímabili í fyrra. Inn
fluttum við vörur fyrir 55,1 millj-
arð. Vöruskiptajöfnuðurinn á
þessum tíma var því hagstæður
um 3,1 milljarð en á sama tíma í
fyrra var hann óhagstæður um 0,3
milljarða.
Sjávarafurðir eru 81% af öllum
útflutningi íslendinga. Útflutn-
ingur sjávarafurða hefur hins veg-
ar dregist saman um 9% á fyrstu
átta mánuðum ársins miðað við
sama tímabil á síðasta ári.
-EÓ
Hér eru uppi hugmyndir um að setja upp stór fiskabúr með nytja-
fiskum og sjávardýrum úr hafinu í kringum landið. Eins og sjá má
er búriö sem þar er nú ekki stórt en það hefur þó talsvert aðdrátt-
arafl. Tímamynd Ámi Bjama
Stofnanir í sjávarútvegshúsinu íhuga uppsetningu
stórs fiskabúrs í anddyri hússins:
Vísir að sædýra-
safni með ísl.
nytjafiskum
Svo kann að fara að ráðist verði í uppsetningu á stóru fiskabúri í anddyri
sjávarútvegshússins við Skúlagötu. Fyrir er hálfgert gullfiskabúr en vönt-
un er á stóru fískabúri sem í yrðu m.a. þorskur, ýsa og jafnvel steinbítur
ásamt öðrum sjávardýrum. Ef þetta verður að veruleika er hugmyndin að
þetta verði vísir að sædýrasafni.
Tíminn hefur heimildir fyrir því að
fyrstu kostnaðartölur fýrir uppsetn-
ingu á búrinu hafi hljóðað upp á 15
milljónir króna. Sú tala mun þó eitt-
hvað hafa lækkað með hagstæðari til-
boðum en engu að síður virðist það
enn vefjast fýrir forráðamönnum
hinna ýmsu stofnana sem aðsetur hafa
í húsinu, hvort gerlegt sé að ráðast í
þessa framkvæmd sökum mikils
kostnaðar.
Sigurjón Arason hjá Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins segir að engar
ákvarðanir hafi verið teknar í þessum
efnum og vildi hvorki tjá sig né stað-
festa um kostnaðinn, en sagði að
vissulega fyndu starfsmenn hússins
fyrir því að vöntun væri á stóru fiska-
búri í húsinu. Þar eru aðsetur helstu
stjórnsýslustofnana í sjávarútvegi s.s.
hin nýstofnuða Fiskistofa, sjávarút-
vegsráðuneytið, Hafrannsóknastofn-
un og Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins.
Þrátt fyrir fátæklegt innihald litla
fiskabúrsins sem fyrir er í anddyri
hússins, ýmis fjörudýr og annað, þá
hefur búrið notið vaxandi vinsælda
meðal skólakrakka og annarra sem
heimsótt hafa sjávarútvegshúsið. -grh
& MHHi
...ERLENDAR FRETTIR...
DENNI DÆMALAUSI
BRUSSEL
EB og BNA tala saman
Miklir erfiöleikar komu upp á yfirborö-
iö I viöraeöum EB og Bandaríkjanna
um viöskipti I heiminum í gær, en
Bretar gáfu þá yfirlýsingu aö þeir
myndu gera allt sem í þeirra valdii
stæöi til aö koma i veg fyrir aö viö-
ræöurnar sigldu í strand þvi þá væri
Ijóst aö timabil verndartolla og van-
trausts þjóöa I milli rynni uþþ. Þaö
sem þyrfti hins vegar væri frjáls versl-
un og traust. John Major, forsætisr-
áherra Breta, er í forsæti fyrir EB um
þessar mundir.
Haft var eftir Roland Dumas I París i
gær aö engar raunverulegar viöræö-
ur um GATT myndu fara fram á
næstu vikum og mánuöum vegna for-
setakosninganna I Bandaríkjunum.
Þjóöverjar hins vegar lýstu þvi yfir i
gær aö þeir teldu aö GATT viöræö-
urnar yröu aö halda áfram
SARAJEVO
Loftflutningar á ný
Sameinnuöu þjóöirnar hófu I gær
flug til Sarajevo eftir aö hafa gert hlé
á þvl i einn dag. Bardagar milli mús-
lima og Króata mögnuöust á ný og
breiddust út um Bosníu-Herzegóvínu,
en þaö voru einmitt þessi átök sem
uröu til þess aö loftflutningum var
hætt. Loftflutningar þessir eru algjör
llfsnauösyn þvi hætt hefur veriö við
allar tilraunir til landflutninga vegna
endurtekinna árása á flutningalestir
Sameinuöu þjóöanna.
WASHINGTON
Bush sækir sig
Bill Clinton, frambjóöandi demókrata I
forsetakosningunum, hefur nú heldur
dalaö i skoöanakönnunum en Ge-
orge Bush hefur veriö spáö miklum
og farsælum endaspretti fyrir kosn-
ingarnar 3. nóvember. i Las Vegas
hefur landgönguliöi úr Vietnamstríö-
inun veriö kæröur fyrir aö hóta aö
drepa Clinton ef hann kæmi í kjör-
dæmiö.
BEIJING
Sýna ókurteisi
Kinversk stjórnvöld geröu litiö úr
landstjóranum í Hong Kong, Chris
Patten, meö því aö neita honum um
að hitta forsætisráöhen-ann Li Peng.
Þetta er talið merki um reiöi Kínverja
yfir auknu lýöræöi i þessari þresku
nýlendu sem skila á til Kína innan tiö-
ar.
LONDON
Sprengt og sprengt
Irski lýöveldisherinn herti heldur á
sprengjuherferö sinni gegn breskum
yfirráöum i gær og sprengdi þrjár
sprengingar i Londin og komu fyrir
kraftmikilli bilasprengju I bil í litlum
bæ nálægt Belfast.
KAIRO
„Túrismi“ í hættu
Feröamálaráöherra Egyptalands
Fouad Sultan sagöi í gær aö skæru-
liöasveitir múslima, sem drápu bresk-
an feröamann i fyrirsát fyrir lang-
feröabíl, hafi veriö aö reyna aö kné-
setja rikissjórnina meö þvi aö eyöi-
leggja feröamannaiönaðinn i
Egyptalandi. Auk þess sem lést
særöust tveir breskir feröamenn I fyr-
irsátinni sem átti sér staö sl. miöviku-
dag. Þetta var önnur árásin á útlenda
feröamenn á 21 degi, en sú fyrsta þar
sem einhver meiddist.
DRESDEN
Egg handa Elísabetu
Hópar reiöra Þjóöverja bauluöu og
flautuöu á Elísabetu Englandsdrottn-
ingu þegar hún kom i heimsókn til
Dresden, en borgin var gjörsamlega
lögð I rúst af bandamönnum, einkum
breskum sprengiflugvélum, í seinni
heimsstyrjöldinni. Tveimur eggjum
var kastaö í átt til drottningar þegar
hún steig út úr glæsibifreið viö Kreuz-
kirkju frammi fyrir um 3000 manns.
Eggin hæfu ekki þjóðhöfingjann.