Tíminn - 21.11.1992, Síða 1

Tíminn - 21.11.1992, Síða 1
Laugardagur 21. nóvember 1992 190. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Atvinnumálanefnd ekki samstíga í gengismálum. Fulltrúar Vinnumálasambandsins viðskila við ASÍ og VSÍ í nefndinni. Árni Benediktsson: VMS vill 34% gengis- fellingu undir eins Fulltrúar Vmnumálasambands samvinnufélaganna hafa oröiö við- skila við fulitrúa Alþýðusambands íslands og Vinnuveitendasam- bandsins í viðræðum um efnahagsmál í Atvinnumálanefnd ríkis og aðila vinnumarkaðarins í afstöðunni til gengismála. ASÍ og VSÍ eru andsnúin gengisfellingu, en Ami Benediktsson, framkvæmdastjóri og fulltrúi VMS í Atvinnumálanefnd, segir að úr því sem komið er sé ekki möguleiki að ná endum saman öðruvísi en að felia gengi krónunnar strax um 3%-4%. Árni Benediktsson segir að fram til þessa hafi Vinnumálasambandið staðið fast á því, ásamt fulltrúum ASÍ og VSÍ innan Atvinnumála- nefndar, að gengi íslensku krón- unnar mætti ekki breytast. Um þetta hafa menn verið sammála og einnig um það að tíminn væri að renna út. „Við höfum misst tíma, hann er farinn og nú komumst við ekki hjá gengishniki uppá 3%-4%. Ef það dregst þá verða það stærri tölur, þannig að það skiptir máli að fram- kvæma hlutina strax," segir Árni. Hann segir að það hefði skipt höf- uðmáli að koma í veg fyrir að geng- ið félli, en nú sé það bara ekki hægt lengur. Árni segir að þær breyting- ar, sem þurfi að gera á gengi krón- unnar, séu það iitlar að þær eigi ekki að hafa mjög veruleg áhrif til röskunar á stöðugleikann í efna- hagslífinu, sem er mjög mikilvægt. En eftir því sem tíminn líður án þess að nokkuð sé aðhafst í gengis- málum krónunnar, verður gengis- fellingin einungis stærri og áhrifa- meiri. Enginn formlegur fundur var í gær í Atvinnumálanefndinni, en vitað er að forseti ASÍ og fram- kvæmdastjóri VSÍ hafa átt óform- legar viðræður, sem einkum miða að því að koma í veg fyrir að gengi krónunnar verði fellt. Ekkert sam- band var haft við fulltrúa Vinnu- málasambands samvinnufélaganna í Atvinnumálanefndinni, væntan- lega vegna þess að afstaða þeirra til gengismálum er önnur en ASÍ og VSÍ. Það er því viðbúið að ekki náist samkomulag í nefndinni um tillög- ur í atvinnu- og efnahagsmálum um þessa helgi, eins og getum hef- ur verið leitt að. Árni Benediktsson segir að þrátt fyrir að VMS sé ekki samstíga full- trúum ASÍ og VSÍ til gengismála, séu þeir alls ekki hættir störfum í Atvinnumálanefndinni, nema síður sé. -grh Samtök atvinnulausra: FENGU GEFINS 19 TONN AF TINDABIKKJU Aflanýtingarnefnd hefur gefið Samtökum atvinnulausra 19 tonn af heilfrystrí tindabikkju úr Aflakaupabankanum, sem samtökin munu selja á Faxamarkaði í dag, laugardag. Halldór Pétur Þorsteinsson, „bankastjóri" Aflakaupabankans, segir að verið sé að taka saman vinnsluleiðbeiningar á vannýttum fisktegundum, sem væntanlega verða gefnar út í byrjun næsta árs. Hann segir að bankinn sé við- skiptavaki fyrir vannýttar fiskteg- undir og eigi að opna augu fólks fyrir þeim möguleikum, sem felast í fisktegundum sem til þessa hafa ekki verið nýttar sem skyldi. Þar má m.a. nefna hákarl og háf, svo nokkuð sé nefnt. Aflakaupabank- inn hefur eingöngu keypt af frysti- togurum og þeim bátum, sem geta fryst sinn afla. Þá er markmið bankans dálítið annað en hinna hefðbundnu banka, sökum þess að Aflakaupa- bankinn stefnir m.a. að því að eiga sem minnstar innistæður og hræðist ekki sjóðþurrð nema síður sé. -grh Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, sagði það vera alveg dæmigert að á sama tíma og verið væri að ræða um auknar álögur á launamenn væri verið að minnka skatta á Kóka Kóia, Eim- skip, Heklu, Aðalverktaka og önnur stórfyrirtæki. Tímamynd: Ami Bjama Dagsbrúnarfundur í Bíóborginni í gær. 300 Dagsbrúnarmenn atvinnulausir. Guðmundur J. Guðmundsson: Gegn atvinnuleysi og fátækt „Verkamannafélagið Dagsbrún á að vera í fararbroddi að útrýma atvinnu- leysi og fátækt í þessu landi. Til þess er þessi fúndur og farseðillinn á ASÍ- þingið,“ sagði Guðmundur J. Guð- mundsson, formaður félagsins, á fúndi í Bíóborginni í gær. Um þessar mundir em um 300 Dags- brúnarfélagar atvinnulausir og uppi em hugmyndir og tillögur sem miða að því að auka álögur launamanna, skerða áunnin réttindi þeirra á marg- víslegum sviðum og jafnvel uppi hug- myndir um nauðsyn þess að lækka kaupið. Þetta kom fram í ræðu Guð- mundar. í ræðu sinni um atvinnu- og kjaramál gagnrýndi Guðmundur J. harðlega störf Átvinnumálanefndar fyrir seina- gang og tillögur sem miða að því að velta byrðum yfir á launamenn, á sama tíma og ekkert lát virðist vera á offjár- festingu í sjávarútvegi og tekið sé með silkihönskum á þeim sem skammta sjálfum sér laun og komast upp með það í „hripleku" skattaeftirliti. „ísland og Lúxemborg eru einu löndin þar sem fjármagnseigendur þurfa ekki að greiða skatta af fiármagnstekjum sín- um.“ Formaðurinn brýndi það fyrir félög- um sínum að það, sem af þeim yrði tekið í áunnum félagslegum réttind- um, myndi ekki fást til baka síðar meir og skiptu þá engu hástemmd loforð um annað. Hann sagði að erfiðleikar í atvinnu- og efnahagsmálum verði ekki yfirs- tignir með því að ráðast á kjör verka- fólks og gagnrýndi ennfremur lífeyris- sjóðina harðlega fyrir það að áforma að fjárfesta erlendis, þegar brýn nauðsyn væri á að þeir veittu fé til framkvæmda og nýsköpunar í atvinnulífinu. -grh Tíminn í dag Þing Alþýðusambands íslands, hið 37. í röðinni, hefst á mánu- daginn, þann 23. nóvember, og því lýkur fostudaginn 27. nóvem- ber. Þingið verður haldið í skugga yf- irstandandi efnahagserfiðleika og vaxandi atvinnuleysis og er ekki að efa að þinghaldið muni mjög mót- ast af því og að fulltrúar muni leggja sig fram um að finna og benda á leiðir út úr vandanum. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, hefur lýst yfir að hann gefi ekki kost á sér til forsetakjörs og veröur því nýr forseti kjörinn á þinginu. Forseta- og varaforseta- kjör mun fara fram á miðviku- dagsmorgni. Tíminn í dag er helgaður ís- lensku atvinnulífi og launafólki. Helgarviðtalið á blaðsíðu 8-9 er við Reyni Húgason, formann Landssamtaka atvinnulausra. Fréttaskýring um ASÍ-þingið er á blaðsíðu 10 og viðtöl við iðnráð- gjafa á landsbyggðinni eru á blað- síðum 12,14 og 15. —sá JtirefU j-s # N0RSKA FISKILÍNAN # LJrJLJ Skútuvogi 13 • 104 Reykjavík • Sími 91-689030 • Jón Eggertsson • Símar 985-23885 & 92-12775

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.