Tíminn - 21.11.1992, Side 2

Tíminn - 21.11.1992, Side 2
2 Tíminn Laugardagur21. nóvember 1992 Hafnarhreppur eyddi nær öllu útsvari hreppsins á síðasta ári í að greiða kostnað við yfirstjórn: Eyðir nær 40% tekna í kostnað við yfirstjórn Nærri 40% af tekjum Hafnarhrepps á síðasta ári fóru í að greiða kostnað við yfirstjóm sveitarfélagsins. Nær allt útsvar sveitarfé- lagsins fór í að greiða þennan kostnað. Kostnaður við yfirstjóra er elnnig mjög hár á Suðureyri, í Þingvallahreppi, í Hrísey og á Stöðv- arfirði. Heildartekjur Hafnarhrepps á síð- asta ári voru um 13 milljónir; þar af fóru nærri 5 milljónir í yfirstjórn, eða um og yfir 43 þúsund á hvern íbúa sveitarfélagsins. Til saman- burðar má nefna að sveitarfélagið varði rúmum 3 milljónum til fræðslumála, en það er annar stærsti útgjaldaliður sveitarfélags- ins, næst á eftir yfirstjórn. Hafnar- hreppur innheimti rúmar 6 milljón- ir í útsvar á síðasta ári og fór nærri því öll sú upphæð til að greiða kostnað við yfirstjórn sveitarfélags- ins. Til samanburðar má nefna Norður- árdalshrepp í Mýrasýslu. íbúar eru jafnmargir í báðum hreppunum, eða 114. Á meðan Hafnarhreppur eyðir 43 þúsundum á íbúa í yfir- stjóm, kemst Norðurárdalshreppur af með rúmar 8 þúsund krónur á íbúa. Suðureyrarhreppur eyðir næst mest allra sveitarfélaga á landinu í yfirstjórn, eða tæplega 32 þúsund á hvem íbúa. Af 54,5 milljóna heildar- tekjum sveitarfélagsins fara rúmar 11 milljónir í að borga kostnað við yfirstjórn. í þriðja sæti er Þingvallahreppur með rúmar 30 þúsund krónur á hvern íbúa í kostnað við yfirstjórn. í fjórða sæti kemur Hrísey með rúm- ar 22 þúsund krónur á íbúa og í fimmta sæti er Stöðvarfjarðarhrepp- ur með um 20 þúsund krónur á hvem íbúa. Það þarf fáum að koma á óvart að lægstur er kostnaður við yfirstjóm í Reykjavík, eða um 3.000 krónur á íbúa. Þar á eftir kemur Akureyri með 4.630 krónur á íbúa. Þessi kostnaður er hærri í Hafnarfirði (5.448 kr.) og í Kópavogi (5.118 kr.), þrátt fyrir að þessi tvö sveitarfélög Heimilisbókhald Neyt- endasamtakanna; Nytsöm og ódýr jólabók; Lykillinn að bættum efnahag „Tilgangur útgáfúnnar er aft auft- velda fólki aft færa heimilisbók- hald, sem í senn þarf aft vera ítar- legt og einfalt," segir í tilkynn- ingu frá samtökunum vegna út- gáfu rítsins „Heimilisbókhald Neytendasamtakanna — lykillinn aft bættum efnahag". Færslu heimilisbókhalds telja samtökin eina af forsendum þess að fjölskyldur geti haft stjóm á fjármálum sínum og gert raun- hæfar áætlanir. Og þessa hafi sjaldan verið meiri þörf en nú. Stuðst er við Heimilisbókhald NS á þeim námskeiðum sem samtök- in hafa haldið um hagsýni í heim- ilishaldi, vítt og breitt um landið, við mikla aðsókn. Heimilisbók- haldið er 35 blaðsíður. Það er selt á 225 kr. á skrifstofú NS, sem sjá mun um dreifingu þess út um landið. Einnig verður hægt að kaupa ritið í bókabúðum Máls og menningar og Eymundssonar og sömuleiðis í stórmörkuðum. - HEI séu með heldur færri íbúa en Akur- eyri. Þessar upplýsingar koma fram í ár- bók sveitarifélaga fyrir árið 1992, en hana gefur Samband íslenskra sveit- arfélaga út. -EÓ FJÖLBREYTT úrval af jólaskrauti frá Rússlandi og Þýskalandi — bjöllur, kúlur, englar, kerti og jólasveinar — er meðal jólavarningsins, sem Harpa Jónsdóttir vekur hér athygli á hjá Jóla-jólamark- aöi Hlaövarpans viö Vesturgötu í Reykjavík. Á listmarkaöi Hlaðvarpans er einnig að finna mikiö úrval handgerðra íslenskra listmuna. Tlmamynd Aml Bjama Félagsmálaráðherra segir að Island búi við úrelta skipan sveitarfélaga í umdæmi: Of mörg sveitarfélög er helsta hindrunin Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sagði á fjármálaráð- stefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga, að núverandi skipan sveit- arfélaga í umdæmi væri helsta hindrun sem kæmi í veg fyrir nauð- synlega endurskipulagningu í atvinnulífi landsmanna. Hún sagði að taka verði mið af breyttu þjóðfélagi og sameina sveitarfélög. Efling sveitarstjóraarstigsins sé vænlegasta Ieiðin til að snúa við þeirrí öf- ugþróun, sem orðið hafi í byggðamálum. „Forsenda þess að okkur auðnist að þeir kjósa að búa í Iandinu. Nauð- færa okkur í nyt þau tækifæri og þá sóknarmöguleika, sem við sannar- lega eigum, er að við höfum mann- dóm til að brjóta upp þá þætti þjóðfélagsskipunar okkar sem hindrar framþróun og halda okkur í fjötrum. Núverandi skipting landsins í sveitarfélög er sannar- lega orðin ein helsta hindrun þess að unnt sé að gera þær skipulags- breytingar sem óhjákvæmilegar eru, ef við eigum að geta tryggt hagsæld íbúanna óháð því hvar synleg framþróun atvinnulífs og aukin verðmætasköpun til að standa undir velferðarþjónustunni og til að tryggja fólkinu örugga at- vinnu, hrópar á umbætur í sveitar- stjórnarmálum,“ sagði Jóhanna. Jóhanna sagði að smæð sveitarfé- laganna hindri að þau geti veitt íbúum sínum ýmsa þjónustu, sem talin er sjálfsögð í nútímaþjóðfé- Iagi. Skortur á þjónustu leiðir til þess að ekki verði til störf í þjón- ustugreinum og atvinnulífið verði því einhæfara fyrir vikið. Litlu sveitarfélögin geti ekki veitt full- nægjandi félagsþjónustu. Hún benti á að minni hreppar verji 3,6% útgjalda sinna til félagsþjón- ustu, stærri hreppar 7%, kaupstað- ir 15% og Reykjavík 24%. Jóhanna nefndi einnig að aldraðir, sem háðir eru félagslegri þjónustu. flytji til höfuðborgarsvæðisins. Á síðustu 10 árum hafi t.d. íbúum 65 ára og eldri fjölgað um nær 1000 manns minna en búast hefði mátt við. Öldruðum hafi fjölgað um nærri 5000 manns á tímabilinu, þar af fjölgaði öldruðum á höfuð- borgarsvæðinu um 3700 manns en um 1300 utan þess. Jóhanna nefndi einnig sérstaklega flutning ungs fólks á aldrinum 15- 24 ára frá landsbyggðinni til höfuð- borgarsvæðisins. Hún sagði að á Launin eru hæst í útgerðarbæjunum, en lægst í bæjum sem byggja á úrvinnslu landbúnaðarvara: Hæst laun eru greidd á Skagaströnd og Súðavík síðasta áratug hefði Iandsbyggðin misst 1800-1900 ungmenni til höf- uðborgarsvæðisins umfram það sem eðlilegt getur talist. Jóhanna sagði nauðsynlegt að styrkja sveitarstjórnarstigið. Það væri grundvöllur nútíma byggða- stefnu. Hún vék að þeim, sem hafa vantrú á nauðsyn sameiningu sveitarfélaga, og sagði: „Við þá vil ég segja: Skoðum hina sögulegu þróun. Eða halda menn að það sé tilviljun að vöxtur höfuðborgar- svæðisins annars vegar og vöxtur ríkisvaldsins hins vegar hafi farið saman á kostnað landsbyggðarinn- ar og sveitarstjórnarstigsins? Halda menn það líka vera tilviljun að þegar jafnvægi var í byggð landsins var ríkisvaldið máttlítið og sveitarstjórnarstigið aðal stjórnsýslustig landsins?" Jóhanna spurði einnig hvort það væri sanngjarnt að fámenn sveitar- félög geti komið í veg fyrir samein- ingu, þegar stór og meðalstór sveitarfélög í nágrenni þeirra vilja sameinast. „Getur ekki allt eins verið að fullyrðingar um að verið sé að beita minnstu hreppana vald- níðslu með sameiningarmálunum breytist í andhverfu sína?“ sagði Jóhanna. + - Hæstu meðallaun á íslandi eru greidd í nokkrum útgerðarplássum á landsbyggðinni og á Seltjaraaraesi og í Garðabæ. Lægstu meðal- laun á landinu eru hins vegar greidd í sveitahreppum þar sem aðal- atvinnuvegurinn er Iandbúnaður og þéttbýlisstöðum þar sem flestir byggja afkomu sína á úrvinnslu landbúnaðarvara og þjónustu við Iandbúnað. Þetta má lesa út úr tölum í árbók sveitarfélaga fyrir árið 1992, sem Samband íslenskra sveitarfélaga gefúr út. í árbókinni eru birtar tölur yfir álagt útsvar á hvem íbúa í einstökum sveit- arfélögum. Tölumar gefa góða vís- bendingu um meðallaun í einstökum sveitarfélögum. Hæstu meðallaun á íbúa eru sam- kvæmt upplýsingum úr árbókinni greidd á Skagaströnd. Hver íbúi greiddi 78.039 krónur í útsvar að meðaltali á síðasta ári á Skagaströnd. Ekki er raunhæft að reikna út árslaun út frá þessari tölu, því að inni í henni em allir íbúar, jaifnt böm sem aörir sem engar tekjur hafa. Feðgar sýna Ijósmyndir á Akranesi og tók þá mikið af mynd- um, sem nú em orðnar góðar heim- ildir um menn og málefni frá ámn- um 1960 til 1970. í gær var einnig gefið út 1. bindi ritverksins Akranes, sem Jón Böðv- arsson hefur skráð. Það fjallar um tímabilið frá landnámi og til ársins 1885. Feftgar, annar rannsóknarlögreglu- maður og hinn ljósmyndari, opn- uftu sameiginlega ljósmyndasýn- ingu á Akranesi í dag, í tilefni 50 ára afmælis Akraness. Feðgamir eru Helgi Daníelsson og sonur hans, Fríðþjófur Helgason. Helgi var fyrr á ámm fréttaritari fyrir Morgunblaðið og Alþýðublaðið Næst á eftir Skagaströnd kemur Súðavík (76.799 kr.), þá ísafjörður (75.624 kr.), Þórshöfh (75.384), Sel- tjamames (75.112), Garðabær (75.315), Tálknafjörður (73.726), Höfn (72.581) og Grímsey (71.034). Þar á eftir koma Flateyri, Patreksfjörð- ur, Dalvík, Bolungarvík, Ólafsvík og Ólafsfjörður. Það er í öflugum útgerðarplássum og í „svefnbæjunum" tveimur, Garðabæ og Seltjamamesi, þar sem hæst laun á íslandi em greidd. Til samanburðar er álagt útsvar á íbúa 67.778 krónur í Reykjavík á ári. Lægstar tekjur á landinu em í sveita- hreppunum þar sem landbúnaður er aðal eða eina atvinnugrein íbúanna. í mörgum þeirra er álagt útsvar á íbúa innan við 40.000 krónur á ári. Sé litið á kaupstaði þar sem laun em lægst, kemur í Ijós að bæir, sem byggja á þjónustu við landbúnað, verslun og úrvinnslu búvara, em lægst á blaði. Lægst em launin í Hveragerði (53.382), í Borgamesi (58.405), á Sauðárkróki (59.426) og á Egilsstöð- um (59.963). -EÓ Byggingar- kostnaður hækkar að- eins 1% í ár Byggingarvísitalan reyndist enn einu sinni hækka afteins um 0,1% milli mánafta. Byggingar- vísitalan sem gildir fyrir desem- bermánuft er 189,2 stig. Sam- kvæmt því hefur byggingar- kostnaður aðeins hækkaft um 1% frá desember á síftasta ári. Útreikningur launavísitölu fyr- ir nóvembermánuð sýndi einnig 0,1% hækkun milli mánaða. Launavísitala nóvembermánað- ar er 130,4 stig, en var 127,8 stig í sama mánuði í fyrra. Launa- vísitalan hefur því hækkað um 2% á einu ári.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.