Tíminn - 21.11.1992, Qupperneq 3

Tíminn - 21.11.1992, Qupperneq 3
Laugardagur 21. nóvember 1992 Tíminn 3 Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að skoða megi aðild íslands að Vestur-Evrópusambandinu sem skref í átt að aðild að EB: Engin þörf á aðild ísiands að V-Evrópusambandinu Eiður Guðnason umhverfisráðherra undirritaði í gær samning um aukaað- ild íslands að Vestur- Evrópusambandinu. Steingnmur Hermannsson, for- maður Framsóknarflokksins, telur enga þörf á að ísland gerist aðili að sam- bandinu. Vel sé fyrir vamarmálum íslands séð með vem Bandaríkjahers hér á landi og aðild íslands að Nató. Steingrímur sagði að skoða megi auka- aðild íslands að Vestur- Evrópusambandinu sem skref í átt að aðild íslands að Evrópubandalaginu. Vestur-Evrópusambandið er ekki ný stofnun. Það var stofnað árið 1955. Frakkar voru lengst af sú þjóð sem mestan áhuga hafði á starfi þess, en Frakkar hafa ekki tekið þátt í hernaðararmi Nató. Þeir hafa viljað byggja Vestur- Evrópusambandið sem mótvægi við hemaðarmátt Bandaríkjamanna í Evrópu. Ákveðið var að efla mjög Vestur-Evrópusam- bandið, þegar Maastricht-samkomu- lagið var undirritað. Þar er beinlínis tekið fram að þetta eigi að vera eins konar hernaðararmur samræmdrar utanríkisstefnu Evrópubandalags- ins. „Maður spyr sjálfan sig: Hvaða er- indi höfum við inn í þetta? Vill ríkis- stjórnin fara þama inn vegna þess að menn vilja að við göngum í Evr- ópubandalagið? Það vilja Norðmenn og Tyrkir, sem einnig er boðin auka- aðild að Vestur-Evrópusambandinu. Manni hefur skilist að það sé ekki markmið okkar. Svo að þetta vekur tortryggni. Að mínu mati er fullkomlega séð fyrír öryggismálum íslands með samningi okkar við Bandaríkja- menn og vem okkar í Nató. Þetta er því að mínu mati algerlega óþarft. Ég gagnrýni það einnig að ekki skuli hafa verið ráðgert að leggja þetta á nokkum máta fyrir Alþingi. Þó að þetta hafi verið kynnt í utan- ríkismálanefnd, er alveg sjálfsagt að svona lagað verði rætt og heimilað á Alþingi. Slíkt hefði þurft að gerast áður en undirritun fór fram, en það er þó skárra að það sé gert síðar með þingsályktun en að það verði alls ekki gert, eins og ríkisstjórnin áformaði," sagði Steingrímur. Vetrar- færðá vegun- um Vetrarfærð er nú á flestum þjóðvegum landsins, en þeir eru yfirleitt færir. Fært er um Hellisheiði og Þrengsli, um vegi á Suðurlandi og með suð- urströndinni austur á firði. Fært er um vegi í Borgarfirði, á Snæfellsnesi og í Dölum, sömuleiðis um Barðastrandar- sýslur til Patreksfjarðar og það- an til ísafjarðar og ftá Bolung- arvík um Djúp og Steingríms- fjarðarheiði til Hólmavíkur og þaðan suður. Vegir á Norðurlandi eru færir, svo sem í Mývatnssveit og með ströndinni til Austfjarða, svo og um Möðrudalsöræfi. Enn ein nefndin skipuð til að skoða umfang skattsvika: Leitað að „götum“ í skattalögunum „Skal nefndin leggja mat á hvaða ákvæði skattalaga gefa helst færí á skatt- svikum og hvaða lagabreytingar teljast nauðsynlegar til úrbóta,“ segir fjár- málaráðuneytið m.a. um hlutverk nefndar, sem þar hefur verið skipuð til að leggja mat á umfang skattsvika og finna leiðir til að draga úr skattsvikum og stuðla að bættum skattskilum. Sauðárkrókskirkja er 100 ára á sunnudag. Tímamót í trúarl ífinu nyrðra: Sauðárkrókskirkja á 100 ára af mæli Frá Guttorml Óskarssyni, fréttarítara Timans á Sauðárkróki. Nefndinni er sömuleiðis ætlað að endurmeta niðurstöður skattsvika- skýrslu frá 1986 og gera grein fyrir hvort eða hverjar þeirra tillagna, sem þar var bent á til úrbóta, hafa komið til framkvæmda. Hin nýja skattsvikanefnd má heldur betur hafa hraðar hendur, þar sem henni er ætlað að skila tillögum sínum um næstu áramót. Formaður nefndarinnar er Snorri Olsen lögfræðingur. Aðrir nefndar- menn eru Grétar Þorsteinsson til- nefndur af ASÍ, Hannes G. Sigurðs- son tilnefndur af VSÍ, Hjörtur Ei- ríksson tilnefndur af VMS, Jóhannes Jóhannesson tilnefndur af BSRB, Ragnar Gunnarsson viðskiptafræð- ingur og Skúli E. Þórðarson vararík- isskattstjóri. í tilkynningu fjármálaráðuneytis- Lúðrasveit verkalýðsins heldur sína árlegu hausttónleika í dag, laugardag. Tónleikamir eru haldnir í Áskirkju og hefjast þeir kl. 17.00. Efnisskrá er að vanda fjölbreytt og ins er greint frá nýjum reglum um sérstaka auðkenningu vsk-bíla, sem taka gildi um næstu áramót. Frá þeim tíma verður innskattur vegna kaupa á bifreið óheimill, nema bif- Á borgarstjómarfundi í fyrradag var samþykkt að Reykjavíkurborg tæki þátt í hagkvæmniathugun á fram- leiðslu, flutningi og dreifingu á raf- verk bæði erlend og innlend. Hljóð- færaleikarar em 51 talsins. Stjórn- andi er Malcolm Holloway. Aðgangur að tónleikum lúðrasveit- arinnar er ókeypis. reiðin sé auðkennd með sérstökum skráningarmerkjum, sem eru rauðir stafir á hvítum fleti. Eigendum eldri vsk-bíla verður gefinn frestur til 1. júlí 1993 til að skipta um skráning- armerki. Þessum nýju reglum er ætlað að auðvelda eftirlit með lög- mætri notkun vsk-bfla. Bfla þessa má eingöngu nota við atvinnustarf- semi, en öll einkanotkun þeirra er óheimil. orku um sæstreng til Evrópu. Sigrún Magnúsdóttir lét bóka að hún teldi vinnubrögð borgarstjóra vera ámæl- isverð, en styður samt athugunina í Ijósi þess að væntingar hafi skapast um atvinnutækifæri verði að fram- kvæmdum. Tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Katrín Fjeldsted og Guðrún Zoéga, sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Júlíus Hafstein sat hjá, þegar málið var borið upp innan borgarstjómarflokks Sjálf- stæðisflokks fyrr í vikunni, en greiddi engu að síður atkvæði með tillögunni í borgarstjóm. Fulltrúar minnihlutans samþykktu hagkvæmnisathugunina. í bókun, sem Sigrún Magnúsdóttir lét fylgja, segir hún m.a. að hún telji vinnu- brögð borgarstjóra vera ámælisverð. Þar á hún við að hann hafi undirbúið samninginn án vitneskju borgarráðs og án heimildar þess. Þá telur Sigrún það útilokað að samningsaðilarnir geti framkvæmt þetta án þátttöku Landsvirkjunar í verkefninu. Sigrún telur að það sé jákvætt ef af byggingu sæstrengsverksmiðju verði og hafnar- aðstöðu og vegatengingu samhliða henni. Þá segir og í bókun Sigrúnar: „Þar sem væntingar hafa skapast um atvinnutækifæri í því svartnætti, sem ríkir í atvinnumálum þjóðarinnar, ef af byggingu verksmiðjunnar verður, bregð ég ekki fæti fyrir að þessi hag- kvæmniathugun verði gerð.“ -HÞ Það var 18. desember 1892 sem Sauðárkrókskirkja var vígð. Mikið kapp hafði verið lagt á að koma kirkjuvígslunni í kring fyrir jólin. Bygging kirkjunnar hófst í júní það sama ár og því undravert hve fljótt og vel kirkjan reis. Var hin nýja kirkja talin eitt vcglegasta guðshús á landinu. Miklar umbætur hafa verið gerðar á kirkjunni nú á síðustu árum, kirkjuskipið m.a. stækkað nokkuð (lengt) án þess að heildarsvipur kirkjunnar raskaðist neitt. Kirkjan rúmar nú um 300 manns í sæti. Undanfarnar vikur hefur verið unn- ið að umbótum á kirkjulóðinni og eru framkvæmdir á lokastigi. Afmælishátíðin verður haldin á morgun, 22. nóvember, og hefst með hátíðarmessu kl. 13.30. Biskup íslands, hr. Ólafur Skúlason, predik- ar og fyrir altari þjóna sr. Hjálmar Jónsson, sr. Gísli Gunnarsson prest- ur í Glaumbæ, og sr. Bolli Gústavs- son vígslubiskup. Tveir fyrrverandi Sauðárkróksprestar verða við mess- una: sr. Tómas Sveinsson og sr. Þór- ir Stephensen. Einnig verða allir prestar prófastsdæmisins mættir. Kirkjukór Sauðárkrókskirkju syng- ur undir stjórn Rögnvaldar Val- bergssonar. Stólvers flytur Ólöf Ás- björnsdóttir og Þorsteinn Pálsson kirkjumálaráðherra flytur ávarp í lok messu. Þá verður kirkjugestum boðið til kaffidrykkju í félagsheimil- inu Bifröst. Klukkan 17.30 hefst svo dagskrá í kirkjunni. Þar verður flutt leikverk- ið Kirkjan okkar, sem sr. Hjálmar Jónsson, sóknarprestur á Sauðár- króki, hefur tekið saman og leikstýr- ir. Flytjendur eru félagar í Leikfélagi Sauðárkróks og nemendur Fjöl- brautaskólans. Samkomunni Iýkur með ræðu sr. Hjálmars Jónssonar. Lúðrasveit verkalýðsins. Tónleikar Lúðrasveitar verkalýðsins í dag Borgarstjórn: Athugun á sæ- streng samþykkt

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.