Tíminn - 21.11.1992, Síða 10

Tíminn - 21.11.1992, Síða 10
10 Tíminn Laugardagur 21. nóvember 1992 N JL vestkomandi mánudag, 23. nóvem- ber, hefst 37. þing Alþýðusambands ís- lands, sem að þessu sinni verður haldið í íþróttahöllinni við Skólastíg á Akureyri. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem ASÍ-þing er haldið utan höfuðborgarsvæðisins, en síðast fór þinghaldið fram f Digranesi í Kópavogi fyrir fjórum árum, eða í nóvem- ber 1988. Þinghaldinu fykur svo föstudag- inn 27. nóvember n.k. Alls eiga 498 þingfulltrúar seturétt á þing- inu, en búist er við að 460 munu mæta. Pyr- ir fjórum árum áttu 512 seturétt á þinginu, en 467 mættu. Eftir því sem best er vitað hefur gengið greiðlega að afla gistirýmis fyrir allan þennan fjölda, enda nokkuð síðan að ákvörðun var tekin um að halda þingið norðan heiða. Forsetalqor í sviðsljósi Aðalmál þingsins verður án efa atvinnu-, kjara- og vaxtamál og sú ætlan að velta tíu milljörðum af fyrirtækjum yfir á almenn- ing, svo ekki sé minnst á atvinnuleysið og stöðu útflutningsatvinnuveganna, svo nokkuð sé nefnt af því sem hæst hefúr bor- ið í atvinnu- og efhahagsumræðu síðustu vikna og daga. Getum hefúr verið leitt að því að forsætisráðherra muni feta í fótspor Hermanns Jónassonar frá 1958 og leggja fyrir þingið efnahagstillögur ríkisstjómar- innar, en trúlega hræða þau spor, sem end- uðu með afsögn þáverandi vinstri stjómar. Að því slepptu er viðbúið að kjör nýs for- seta muni verða það mál sem mesta athygli hlýtur. Pétur Sigurðsson, formaður Alþýðu- sambands Vestfjarða, hefur lýst því yfir op- inberlega að hann gefi kost á sér til forseta- kjörs, en aðrir, sem nefndir hafa verið, em þeir Grétar Þorsteinsson formaður TVé- smiðafélags Reykjavíkur, Öm Friðriksson formaður Félags jámiðnaðarmanna og varaforseti ASÍ, og Guðmundur Þ. Jónsson formaður Landssambands iðnverkafólks. En eins og kunnugt er, þá hefúr Ásmund- ur Stefánsson, sem verið hefúr forseti ASÍ frá 1980 eða í 12 ár, lýst því yfir að hann gefi ekki kost á sér til endurkjörs. Þá verður einnig kjörin ný miðstjóm og sambands- stjóm, auk varaforseta ASÍ og í stjóm Menningar- og fræðslusambands alþýðu, svo nokkuð sé nefnL EES og eitt atvinnusvæði Af einstökum öðrum málum, sem munu bera einna hæst á ASÍ-þinginu, er tilvon- andi aðild íslands að Evrópska efnahags- svæðinu, en ASÍ hefúr fylgst náið með fram- vindu þess máls frá upphafi og lýst yfir skil- yrtum stuðningi við aðild. Þá verða skipulagsmál hreyfingarinnar í brennidepli á þinginu og lagabreytingar. í drögum að ályktun um skipulagsmál er m.a. lagt til að stéttarfélög verði sameinuð, landið allt verði gert að einu atvinnusvæði og félagsmenn í stéttarfélögum hafi jafnan forgangsrétt til vinnu óháð búsetu. Fáir en sterfdr lífeyrissjóðir í velferðarmálum mun þingið fjalla um málefni aldraðra, húsnæðismál þeirra, starfslok og aðild cddraðra að kjarasamning- um. Ennfremur um veikindarétt og trygg- ingar launamanna, sjúkrasjóði og atvinnu- leysistryggingar, málefni fatlaðra og sjúkra, lyfjaverð, jafnrétti og lífeyrismál. En stefnt er að því að fækka lífeyrissjóðum ASÍ-félaga í 10-12 öfluga sjóði. Húsnæðismálin verða einnig ofarlega á baugi, s.s. húsbréfakerfið, vaxtamál, húsaleigubætur, félagslegt hús- x 37. þing Alþýðusambands íslands verður haldið á Akur- eyri dagana 23.-27. nóvem- ber n.k. Fyrsta skipti sem ASÍ- þing er haldið utan höfuð- borgarsvæðisins: kjaramál og kjör nýs forseta næði o.fl. í drögum að ályktun um hús- næðismál er m.a. mótmælt hertum inn- heimtuaðgerðum Húsnæðisstofnunar vegna vanskila og þær sagðar ósiðlegar. Gegn mengun og náttúruspjöllum Af öðrum einstökum málaflokkum á þing- inu má nefha umhverfismálin, en í drögum að ályktun þingsins segir m.a. að þjóðir heimsins séu innbyrðis háðar í umhverfis- málum, stjómmálum og efnahagsmálum. „Við berjumst gegn náttúruspjöllum og viljum stuðla að sjálfbærri þróun. Mesta al- þjóðlega auðlindin er vinna fólksins, sem undir hæfilegu félagslegu skipulagi og á sanngjömum launum getur útrýmt fá- tæktinni." Jafhframt er lagt til að gerðar verði strangari kröfúr til íslenskra fyrir- tækja um að draga úr mengun og forða verði hafinu frá eyðileggingu. „Vaxandi úr- gangur í höfunum heimskauta á milli kall- ar á samhæfðar alþjóðlegar aðgerðir," segir m.a. í drögum að ályktun ASI- þingsins í umhverfismálum. Evrópskt vinnuvemdarár Þá mun þingið fjalla ítarlega um vinnu- vemdarmál á yfirstandandi evrópsku vinnuvemdarári, sem hófst í maí í vor og stendur til jaftilengdar 1993. í drög að ályktun um vinnuvemdarmál, sem liggja mun fyrir þinginu, er lögð rík áhersla á endurskoðun vinnuvemdarlaganna, hreint loft, öryggi, líðan starfsmanna og vamir gegn hávaða og titringi á vinnustöðum. Þá er þess krafist að Vinnueftirlitið standi sig betur hvað varðar fræðslu öryggistrúnað- armanna og komi á betri samvinnu við þá og stéttarfélögin. Þá er þess krafist að reglugerð um hávaðavamir á vinnustöðum og heymareftirlit starfsmanna komist til ffamkvæmda, en það hefúr strandað á and- stöðu atvinnurekenda og stjómvalda. Lengrí skóladagur og starfsmenntun Sem fyrr skipa mennta- og menningar- mál stóran sess á þingi Alþýðusambands- ins. í drögum að ályktun um menningar- mál er m.a. varað við því að menningarlífið skiptist í hólf eftir menntun og stéttarlegri stöðu, eins og virðist raunin á í íslensku þjóðfélagi um þessar mundir. Lagt er til að skóladagurinn verði samfelldur og lengri en hann er í dag, og ennffemur þurfi að virkja grunnskólanemendur meira en verið hefur og gera fólk að þátttakendum en ekki að „hlutlausum og afskiptum áhorfend- um“. Þá ætlar verkalýðshreyfingin sér að taka fullan þátt í mótun og þróun skólastarfsins, enda séu skólamál ekki einkamál skólanna, auk þess sem skólakerfið hefúr ekki þróast í takt við samfélagið. Ennffemur eigi menntunin að mæta þörfum atvinnulífsins og lögð þung áhersla á að skólakerfið geti brugðist hratt við nýjum aðstæðum. Lagt er til að efld verði þátttaka verkalýðsfélaga varðandi starfsmenntun félaga sinna, en vaxandi atvinnuleysi hefúr kallað á aukna þörf á að launafólki sé gefið tækifæri til að afla sér betri starfsmöguleika með starfs- námi. Einnig er lagt til að í næstu kjara- samningum verði launafólki tryggður rétt- ur til að sækja starfsmenntunamámskeið í vinnutíma án tekjutaps. Einnig er í drögunum um mennta- og menningarmál vikið að ffæðslustarfi innan verkalýðshreyfingarinnar, starfsemi Menn- ingar- og fræðslusambands alþýðu, Tóm- stundaskólanum og Félagsmálaskóla al- þýðu, svo nokkuð sé nefhL -grh

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.