Tíminn - 22.12.1992, Síða 1
Þriðjudagur
22. desember 1992
221. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Hangikjöt hækkað, nautið lækkað, svín
á sama verði:
„Jólasteikin"
á svipuðu
meðalverði
og í fyrra
Verð á kjötvörum sem Verðlagsstofnun gerir ráð fyrir að séu á borðum
landsmanna um jól og áramót reyndist að meðaltali mjög svipað og fyrir ári
samkvæmt könnun sem stofnunin gerði í 12 matvöruverslunum á höfuð-
borgarsvæðinu. Enn þótt meðalverð hafi aðeins hækkað um 0,3% þá er
eigi að síður um töluverðar verðbreytingar að ræða.
Greiðsluþol
Skandia
kannað
Ragnar Ragnarsson hjá Trygg-
ingaeftirlitinu segir að búast
megi við bráðabirgðaniðurstöðu
úr könnun eftirlitsins á gjald-
þoli Sandia ísland fyrir jól.
Um síðustu helgi komust for-
ráðamenn Sandia Svíþjóð og
Gísli Örn Lárusson að sam-
komulagi um að sá síðamefndi
keypti öll hlutabréf Svíanna í
Sandia ísland. Þar með er Gísli
Öm einn eigandi félagsins og í
kjölfarið verður nafni þess breytt
á næstunni. En eins og kunnugt
er stefnir í að tap félagsins verði
um 100 miljónir króna í ár eins
og gert var ráð fyrir í áætlunum
þess. -grh
Tilganginn með þessari könn-
un segir Verðlagsstofnun þann
að fylgjast með verðbreytingum
milli ára.
Hún sendi hins vegar ekki út
neinar upplýsingar um verðmun
milli verslana eða hvar hún fann
hagstæðasta verðið.
Mesta verðhækkun milli ára
segir Verðlagsstofnun hafa orðið
á kjúklingum eða um 26%.
Meðalverð á hangikjöti með
beini hafi hækkað um 5-7% en
verð á úrbeinuðu hangikjöti hafi
lækkað lítillega milli ára.
Meðalverð á rjúpum hafi einnig
lækkað talsvert eða um 8-9%
milli ára en þær hækkuðu um
45-50% milli 1990 og 1991.
Verð á nautakjöti segir stofnun-
in hafa lækkað á bilinu 1,6 til
5,6% milli ára eftir tegundum.
Að lokum er nefnt að verð á
hamborgarhrygg reyndist nán-
ast óbreytt.
- HEI
Soffía Hansen tekur viö fyrsta eintakinu af plötunni af nokkrum flytjenda og höfunda í gær.
Timamynd: Ámi Bjama
Sophía Hansen styrkt með nýrri geislaplötu:
Börnin heim
Nokkrir lagasmiðir og tónlistar-
menn ákváðu fyrir nokkru að
semja 14 lög til að gefa út á plötu
og tónbandi til styrktar átakinu
„Börnin heirn," en það vill styrkja
Sophíu Hansen tilað endurheimta
dætur hennar frá Tyrklandi. í gær
afhentu flytjendur og höfundar
efnisins á geislaplötunni Sophíu
fyrsta eintakið.
Platan ber nafnið „Börnin heim“
og á henni eru eins og áður segir
14 lög en allir flytjendur og vel-
flest hjóðver sem nálægt útgáf-
unni komu gáfu vinnu sína.
Sem kunnugt er fór fram söfnun
til styrktar Soffíu á sínum tíma og
barst þá mikill fjöldi loforða um
fjárhagsaðstoð. Því miður hefur
töluverður hluti þeirra loforða
ekki verið efndur enn.
Ráðherraráð EB neitar að veita framkvæmdastjórn EB umboð til að semja við EFTA um breytingar á EES:
Spánverjar krefjast
nýrra breytinga á EES
Ráðherraráð EB veitti framkvæmda-
stjórn EB ekki umboð til að ganga
til samninga við EFTA-ríkin um þær
breytingar á EES-samningnum sem
ákvörðun Svisslendinga að gerast
ekki aðilar að EES kallar á. Verði
slíkt umboð gefið mun það ekki ger-
ast fyrr en í fyrsta lagi í febrúar á
næsta árí. „Ég tel að þetta sé slík
kollsteypa í þessu máli að menn
hljóti að þurfa að skoða stöðu ís-
lands frá grunni,“ sagði Steingrím-
ur Hermannsson, formaður Fram-
sóknarílokksins.
Reiknað var með að á fundinum
fengi framkvæmdastjóm EB umboð
til að ganga til samninga við EFTA
um breytingar á EES-samningnum
vegna þeirrar ákvörðunar Svisslend-
inga að gerast ekki aðilar að EES.
Þetta varð ekki niðurstaða fundarins.
Fundurinn samþykkti að veita fram-
kvæmdastjóminni ekki slíkt umboð
fyrr en hún hefði lagt fyrir utanrík-
isráherrana tillögu um í hverju um-
boðið yrði fólgið. Slík tillaga verður
ekki tekin til umíjöllunar á fundi fyrr
en í febrúar á næsta ári.
Það er ekki síst fyrir þrýsting frá
Spánverjum sem þessi afstaða er tek-
in. Spánverjar hafa gert mjög
ákveðna kröfu um að hin EFTA-ríkin
greiði þann hlut sem gert var ráð fyr-
ir að Sviss borgaði í Þróunarsjóð
EES en sjóðurinn á að styrkja at-
vinnulíf og byggðir í EB sem standa
höllum fæti. Hlutur Sviss átti að vera
þriðjungur af framlagi EFTA í sjóð-
inn. Spánverjar gera einnig fleiri at-
hugasemdir við EES- samninginn.
Þeir telja að hann hafi miklu minna
gildi nú eftir að Sviss hefur ákveðið
að hætta við að gerast aðili að hon-
um vegna þess að fyrir ýmis Suður-
Evrópuríki var tollfrelsi á Svissnesk-
um markaði einna mikilvægast.
Ennfremur bera þeir mjög fyrir
brjósti hagsmuni Spánverja sem búa
í Sviss en þeir fá ekki þau réttindi
sem í EES- samningnum eiga að fel-
ast. Það eykur enn efasemdir EB um
gildi EES-samningsins að samningar
við þau EFTA-ríki sem sótt hafa um
aðild að EB munu hefjast snemma á
næsta ári. Svo virðist sem EB hafi
orðið meiri áhuga á að hraða viðræð-
um um beina aðild EFTA-ríkja að EB.
Þetta sést m.a. á því að utanríkisráð-
herrar EB ákváðu að bjóða utanríkis-
ráðherrum Svíþjóðar, Finnlands og
Austurríkis á næsta fund ráðherra-
ráðs EB en hann verður haldinn
fyrsta febrúar á næsta ári.
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, segir
að þessi afstaða ráðherraráðs EB
breyti mjög miklu um gang EES-
málsins. Hann sagðist telja að við ís-
lendingar ættum nú þegar að hefja
undirbúning að því að leggja inn um-
sókn um gerð tvíhliða samnings við
EB þeir Halldór Ásgrímsson hafa
flutt tillögu þess efnis.
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra sagði síðdegis í gær að
ekki væri ástæða til að draga of mikl-
ar ályktanir á þessu stigi af niður-
stöðu ráðherrafundar EB. í yfirlýs-
ingu frá fundinum kæmi fram að EB
legði áherslu á að viðræður yrðu
teknar upp eins fljótt og verða mætti.
Jón Baldvin sagði að þessar fréttir
breyttu engu um það að mikilvægt
væri fyrir Island að samþykkja EES-
samninginn nú þegar.
Jón Baldvin sagði um Þróunarsjóð-
inn að í samningum við EB stæði að
EFTA skyldi greiða þar ákveðna upp-
hæð. Það væri síðan EFTA að ákveða
hvað einstök ríki ættu að greiða
þessa upphæð. Það væri því EFTA að
sækja á um að þessi upphæð yrði
lækkuð en ekki EB að gera kröfu um
að hún yrði óbreytt.
í fréttaskeyti frá norsku fréttastof-
unni NTB kemur fram að embættis-
menn EFTA vönist enn eftir að EES-
samningurinn geti tekið gildi fyrsta
júlí 1993 en margir reikni hins vegar
með að gildistaka frestist enn lengur.
Og eins og áður segir virðast vissar
efasemdir vera í herbúðum EB um
ágæti EES- samningsins.
Stjómvöld ákváðu í gær að fresta
umræðum um EES og sjávarútvegs-
samninginn við EB á Alþingi. Þau
leggja til að fundir verði haldnir milli
jóla og nýárs og eftir áramót. Ekkert
samkomulag er við stjómarandstöð-
una um að ljúka umræðunni. -EÓ