Tíminn - 22.12.1992, Blaðsíða 11

Tíminn - 22.12.1992, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 22. desember 1992 Tíminn 11 LEIKHUS KVIKMYNDAHUS ÞJÓDLEIKHÚSID Sfmi11200 Stóra svíðið kl. 20.00: MY FAIR LADY eftir Alan Jay Lemer og Frederick Loewe Framsýning ð annan dag jóla kl. 20.00. UppselL 2 sýning 27. des. Uppsell - 3. sýning 29. des. Uppselt 4. sýning 30. des. Uppseil 5. sýning laugard. 2 jan. Uppselt 6. sýning miðvikud 6. jan. Örfá sseti laus. 7. sýning ímmtud. 7. jan. Örfá sæli laus. 8. sýning fóstud. 8. jan. Örfá sæli laus. HAFIÐ eftir Ólaf Hauk Símonarson Laugard. 9. jan kl. 20. eftir Thorbjöm Egner Þríðjud. 29. des. kL 13. Alh. breyttan sýningartima. UppsefL WM(ud. 30. des. kl. 13. Ath. txéyttan sýringartima. Uppsett Sunnud. 3. jan. kl. 14.00 - .Sunnud. 3. jan. Id. 17.00. Laugard. 9. jan. Id. 14.00. Sunnud. 10. jan. Id. 14.00. Sunnud. 10. jan. Id. 17.00. Smíöaverkstæðið kl. 20.00: STRÆTI eftir Jim Cartwright Sunnud. 27. des. - Þriöjud. 29. des. Laugani. 2 jan. - Laugard. 9. jan. Sunnud. 10. jan. Sýningin er ekki við hæfi bama. Ekki er unnt að hleypa gestum I salinn eftir að sýning hefst „ Litla sviðið kl 20.30: Juío/ cym^wv mxuwlwkixýmv eftir Willy Russell Sunnud. 27. des. - Þriðjud. 29. des. Laugard. 2 jan. - Föstud. 8. jan. Laugard. 9. jan. Ath. Ekki er unnt að hleypa gestum inn i salinn eftir að sýning hefst Ósóttar pantanir seldar daglega. Ath. Aðgöngumiðar á allar sýningar greiðist viku fyrirsýningu, ella seldir öðrum. Miðasala Þjóðteikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl.13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Miðapantanir frá kl.10 virka daga i sima 11200. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ - GÓÐA SKEMMTUN Greiðslukortaþjónusta Græna linan 996160 LEIKFÉLAG KWÆk REYKJAVtKUR Stórasviðkl. 20.00: eftir Astrid Undgren Tóniist Sebastian Þýóendun Þorieifur Hauksson og Böðvar Guðmundsson Leikmynd og búningar Hlin Gunnarsdótdr Dansahöfundur Auður Bjamadótdr Tónlistarstjóri: Margrét Pálmadóttir Brúðugerð: Helga Amalds Lýsing: Etfar Bjamason Leikstjóri: Ásdis Skúladóttir Leikarar. Ronja: Sigrún Edda Bjömsdóttir Aðrir Ámi Pátur Guójónsson, Bjöm Ingi Hilmarsson, Ellert A Ingimundarson, Guðmundur Ótafsson, Gunnar Helgason, Jakob Þór Einarsson, Jón Hjartarson, Jón Stefán Krlstjánsson, Karf Guð- mundsson, Margrét Ákadótbr, Margrét Helga Jó- hannsdóttir, Óiafur Guðmundsson, Pétur Einars- son, Soffia Jakobsdóttir, Theodór Júliusson, VaÞ gerður Dan og Þröstur Leó Gunnarsson Frumsýning laugard. 26. des. Id. 15. Uppselt Sunnud. 27. des. kl. 14. Uppselt Þriðjud. 29. des. Uppselt Miðvikud. 30. des. H. 14. Uppselt Laugard. 2 jan. H. 14. Fáein sæö laus Sunnud. 3. jan. H. 14. Fáein sæb laus Sunnud. 10. jan. U. 14. Sunnud. 10. jan. H. 17. Miðaverð kr. 1100,- Sama verð fyrir böm og fullotðna. Skemmtilegar jdagjafii: Ronju- gjafakort, Ronju-bolir o.8. BLÓÐBRÆÐUR Sóngleikur eftir Willy Russel Fmmsýning föstudaginn 22. jan. H. 20.00. Heima hjá ömmu eftir Neil Simon Sunnud. 27. des. -. Laugard. 2jan. Laugaid. 9. jan. Fár sýningar efUr LitJa sviðið Sögur úr sveitinnl: Platanov og Vanja frændi EfUrAntonTsjekov PLATANOV Þriðjud. 29. des. - Laugard. 2. jan. Laugard. 9. jan. H. 17. - Laugard. 16. jan. H. 17. Fáar sýningar eftir. VANJA FRÆNDt Miðvikud. 30. des. H. 20.00. Sunnud. 3. jan. H. 20.00. Laugard. 9. jan. H. 20. Laugard. 16. jan. H. 20. Fáarsýningarefbr. Kortagesbr athugið, að panta þarf miða á liba sviðið. EkH er hægt að Neypa gestum inn i salinn eftir aö sýningerhafin. Verð á báðar sýningar saman kr. 2.400,- Miðasalan verður opin á Þoiiáksmessu H. 14-18 aðfangadag frá H. 10-12 og frá H. 13.00 annan dag jóla Miðasalan veiður lokuð á gamlársdag og nýaisdag. Gjafakort, Gjafakort! Óðruvísi og sketnmöleg jólagjöf Miöapantanir I s.680680 ala virka daga H. 10-12 iHÍ©INIB©©IIINllNlíl,oo Jólamynd I Óskarsverðlaunamyndin Mlðjaröarhaflð Sýnd kl. 5, 7,9 og 11 Jólamynd 2 Sföastl Móhfkanlnn Stórfenglegasta mynd ársins. Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.20 Bönnuð innan 16 ára. Leikmaðurinn Sýnd kl. 5, 9 og 11.20. Sódóma Reykjavfk Sýndkl. 5, 7, 9og11 Bönnuð innan 12 ára - Miöaverð kr. 700. Yfir 35.000 manns hafa séð myndina. Á réttrl bylgjulengd Sýndki. 5, 7, 9 og 11 Karlakórlnn Hekla Sýndkt. 5, 7, 9 og 11.05. Tryllirinn Dýragrafreiturlnn 2 Spenna frá upphafi bl enda. Sýndkl. 5, 7, 9 og 11.05 Bönnuð innan 16 ára. Vegna mjög Ijótra atriða i myndinni er tiún alls ekki viö hæfi allra. Jóla-ævintýramyndin Hákon Hákonarson Sýndkl. 5. 7, 9og11 Ottó - ástarmyndln Frábær gamanmynd með hinum geysivin- sæla grínara Ottó i aöalhlutverki. Sýnd ki. 5, 7 og 11.10. Stuttmyndin Regína Eftir Einar Thor Gunnlaugsson er synd á undan Ottó Boomerang með Eddie Murphy. SýndH.5, 9.05 og 11.15 Háskalelklr Sýnd kl. 9 Bönnuð innan 16 ára Svo á Jöróu sem á hlmnl Sýnd kl. 7 EÍSI.ENSKA ÓPERAN IIIII OAHLt Stð POUBIMT1 Siocía di 'iUXVF' eftir Gaetano Donizetti MUNIÐ GJAFAKORTIN OKKAR! Þau enr nú seid á skrifstofu Islensku ópemnnar, simi 27033. Sunnud. 27 des. kl. 20.00. UppselL Laugard. 2. jan. kl. 20.00. UppselL Miðasalan er nú lokuö, en þann 27. desember hefst sala á sýningar. Föstudaginn 8. jan. kl. 20 Sunnudaginn 10. jan. H. 20 Slðasta sýningarhelgi. Simsvari I miðasölu 11475. LEIKHÚSLlNAN SlMI 991015 GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA BÍLALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNID ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar Karlakórinn Hekla Karfakórinn Hekla ** 1/2 Stjórn tónllstar Slgurður Rúnar Jónsson. Flutnlngurtónllstar: Kartakórlnn Fóstbræö- ur og Sinfóníuhljómsveit islands. Kvikmyndataka: Jurgen Lenz. Framleiöendur: Halldór Þorgeirsson, Ari- ane Metzner og Stefan Hencz. Handrit og leikstjórn: Guöný Halldórsdóttir. Aðalhlutverk: Ragnhildur Gísladóttir, Garö- ar Cortes, Egill Olafsson, Siguröur Sigur- jónsson, Randver Þorfáksson, Magnús Ól- afsson, Lena Nyman, Gestur E. Jónasson, Þórhallur Sigurösson, Öm Ámason, Rúrik Haraldsson, Ulrike Bliefert og Sigfried Kernen. Háskólabíó. Öllum leyfð. Frumsýningar á íslenskum kvikmynd- um hafa aldrei verið jafn margar og á þessu ári. Síðasta myndin, Karlakórinn Hekia, var frumsýnd á laugardaginn. Þetta er gamanmynd sem skartar öll- um okkar fremstu og þekktustu leikur- um. Myndin skartar nú reyndar einnig þekktu söngfólki fyrir utan svo flutning Fóstbræöra á kórverkunum, sem eru áberandi eins og nafnið gefur til kynna. Eins og oft í gamanmyndum er sögu- þráðurinn ekkert sérstaklega burðug- ur, en með því að fjalla um svo stóran hóp eins og karlakór er hægt að raða saman ólíkum persónum á skemmti- legan hátt. Myndin segir af ferðum karlakórsins Heklu frá Hveragerði til Svíþjóðar og Þýskalands. Mennimir í kómum em eins ólíkir og þeir eru margir, þótt garðyrkjan sé lífsstarfið hjá mörgum. Aðalpersónumar em Gunnar (Egill) kórstjóri, undirleikarinn Magga (Ragn- hildur) og stórsöngvarinn Max Wemer (Garðar). Rétt fyrir brottför kórsins deyr Max, en biður á dánarbeðinu fé- laga sína úr kómum að reisa sér styttu og heilsa upp á móður sína í Þýska- landi. Það reynist ekki auðvelt að upp- fylla þessar óskir, því ströng lög gilda í Þýskalandi um styttur eins og annað og móðirin reynist ekki viðræðuhæf vegna mikillar skapvonsku. Ferð kórs- ins gengur ekki stórslysalaust fyrir sig, meðal annars vegna þess að Gunnar hittir gamla kærustu í Svíþjóð, sem kynnir hann fyrir hans eigin stúlku- bömum. Einnig veldur það nokkrum áhyggjum hjá kórfélögum þegar Max fer að birtast „afturgenginn" í Þýska- landi. Handrit myndarinnar er ekki galla- laust og brandaramir misfyndnir. L______________________-__________J Brandarinn um bömin hans Gunnars er t.d. keimlíkur frábæm atriði í Með allt á hreinu. Það besta við handritið eru mjög íyndin atriði þar sem sam- skipti kynjanna eru tekin fyrir. Karl- mennimir koma ekki vel út úr þeim samanburði og kvenmennimir varla heldur. Tinna Gunnlaugsdóttir er frá- bær í hlutverki eiginkonu, sem stjóm- ar manni sínum og börnum með ein- staklega skýmm regluveldiseinkenn- um. Hún skammar bömin fyrir hávaða þegar þau em að tefla! Kallamir fá ein- hvern fiðring þegar þeir eru á leið til Svíþjóðar með skipi og allir þykjast þeir eiga möguleika á að stunda glímutök með Möggu, sem tekur slíkum tilburð- um fálega. Guðný Halldórsdóttir á einnig verðlaun skilið fyrir að taka fyrir herfilega leiðinlegar dömubindaaug- lýsingar í einu stuttu og hnitmiðuðu atriði. Kvikmyndatakan er á köflum alls ekki nógu góð og hristist myndin stundum talsvert. Hljóðið var oft ekki nógu gott, eins og þekkist reyndar í íslenskum myndum, og var það áberandi í byrjun myndarinnar. Vegna mglings með ein- takið, sem var sýnt á frumsýningunni, var ekki búið að fínstilla hljóðið, en það lagaðist þegar á leið og verður full- komnað. Sigurður Rúnar Jónsson á hrós skilið fyrir stjóm tónlistarinnar, sem mér fannst þó stundum fullfyrir- ferðarmikil í myndinni. Helsti kostur myndarinnar er tví- mælalaust góður leikur. Garðar Cortes stendur sig mjög vel í hlutverki sínu sem hinn rómantíski Max. Hann er sér- lega góður í atriðunum sem gerast í Þýskalandi, þegar hann leikur „aftur- gönguna". Egill Ólafsson er líka góður í hlutverki kórstjómandans Gunnars, sem er með hár úr gerviefnum eins og annar heimsmaður og kórstjómandi. Ragnhildur Gísladóttir stendur sig vel sem kvenskörungurinn Magga, sem er hinn raunverulegi stjómandi kórsins í ferðinni. Þeir sem eru í aukahlutverk- um em flestir vanir kvikmyndaleik og fara vel og áreynslulaust með sín hlut- verk. Skemmtilegastir fannst mér eldri kynslóðin, þeir Gísli Halldórsson og Rúrik Haraidsson, sem eru stórkostleg- ir í myndinni. Myndin er á köflum fyndin, en upp- byggingin er oft algert torf. Það er til dæmis talað um eitthvert kóramót í Þýskalandi, sem aldrei sést, og eins er byggður upp leiðinlegur brandari um einhvern Carlo, sem ætlunin er að heimsækja í Þýskalandi, en er svo staddur á íslandi að heimsækja vini sína þar. Frekar einföld lausn á fyrir- ferðarmiklum og þreytandi brandara. í heildina séð er Karlakórinn Hekla þokkalegasta afþreying með nokkmm góðum bröndumm og skemmtilegum persónum. Öm Markússon Deep Jimi tekið miklum framförum Decp Jimi and the Zep Creams. Funky Dinosaur. Það þarf engan Sherlock Holmes til að sjá og heyra hverjir hafa haft mest áhrif á tónlist Deep Jimi and the Zep Creams. Þeir vöktu fyrst athygli sum- arið 1991 fyrir frábæran flutning sinn á lögum þessara tónlistarmanna og áunnu sér fastan aðdáendahóp, sem fylgdi þeim á hverja tónleikana á fætur öðrum. Meðlimir sveitarinnar eru Þór Sigurðsson gítarleikari, Sig- urður Eyberg söngvari, Bjöm Árna- son bassaleikari og Júlíus Guð- mundsson trommuleikari. Eftir að hafa safnað sér peningum með tón- leikahaldi héldu þeir til New York og tókst að komast á samning hjá út- gáfufyrirtæki. Funky Dinosaur er fyrsta breiðskífa sveitarinnar og eru allir textamir á ensku, enda aðallega ætluð banda- rískum markaði. Það vekur strax at- hygli að sveitin hefur tekið heilmikl- um framförum og spilamennskan er öll til fyrirmyndar. Sigurður hefur mikla rödd og er sérlega góður í að syngja lög í tregafyllri kantinum. Hann fer á kostum í Haia Gurusah og Moans, en það eru bestu lög skífúnn- ar ásamt Why og I’m dying. Áhrifin í tónlistinni eru glögglega mest frá Led Zeppelin, en það er áberandi að sveitin á eftir að skapa sinn eigin stfi. TÓNLIST V____________________J Það á örugglega eftir að lagast á næstu plötum. Manni finnst stund- um að Jimmy Page, gítarleikari Led Zeppelin, sé staddur hjá manni þegar maður hlustar á plötuna. Þór Sig- urðsson gítarleikari hefur mikið vald á hljóðfærinu, en mætti passa að fara ekki yfir strikið í einleiksköflum; hafa sólóin aðeins markvissari. Það er augljóst að Björn Árnason og Júlíus Guðmundsson hafa spilað lengi sam- an, því taktgrunnurinn er mjög þétt- ur og öruggur. Bjöm er mjög hæfi- leikaríkur bassaleikari og spilar sér- staklega vel í Whales og Me without you. Allir meðlimir sveitarinnar taka þátt í lagasmíðum, sem eru margar ágætar og skífan venst vel. Stór galli er hins vegar að textarnir eru margir hálfslappir. Það er að sjálfsögðu erfið- ara að berja saman texta á erlendu tungumáli, en þetta verða þeir að laga fyrir næstu skífu og vanda sig meira. Moans er til dæmis gott lag, en textinn er hvorki fúgl né fiskur. Einu lögin þar sem textamir eru verulega góðir eru God! og Me wit- hout you. Textinn við síðamefnda lagið er mjög Ijóðrænn og háðskur. Funky Dinosaur er eigulegasti grip- ur fyrir fólk sem hefur gaman af „al- vöru“ rokki, en það er tónlistarstefna hljómsveitarinnar samkvæmt aðdá- endum hennar. Hljómsveitin á eftir að skapa sér sinn eigin stfl með næstu plötum og slípa aðeins text- ana. Þegar strákarnir fóru til New York var ekki laust við að margir kímdu, en í dag hafa þeir fulla ástæðu til að brosa til baka. Öm Markússon

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.