Tíminn - 22.12.1992, Blaðsíða 5

Tíminn - 22.12.1992, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 22. desember 1992 Tíminn 5 Slyngur milljarða- mæringur œtlar að reisa Líbanon úr efnahagslegri rúst Rafik el-Hariri er ný- kjörinn forsœtisráð- herra og við hann eru bundnar miklar vonir vegna fjármálasnilli: Líbaninn Rafík el-Hariri, 48 ára, er vanur því að fá góða viður- kenningu fyrir velheppnaða upp- byggingu í Austurlöndum nær. Það voru ekki síst stjómarherr- amir í Saúdi-Arabíu sem sýndu byggingaverktakanum þakklæti sitt fyrir velheppnuð stórverkefni í ríki þeirra, en þar byggði hann sjúkrahús, ráðstefnumiðstöðvar og hallir fyrir Pahd konung og olíuprinsana, og enginn gerði það eins hratt og vel og Hariri. Stærsta verkefni fjármálasnillingsins Byggingaverktakinn hefur nú hafist handa um sitt stærsta verk- efni. í embætti forsætisráðherra Líbanon ætlar hann nú að ráðast gegn afleiðingum 15 ára borgara- styrjaldar, sem koma fram í gífur- legu atvinnuleysi, skelfilegri verðbólgu og yfirþyrmandi spill- ingu sem hefur gengið af efnahag landsins svo gott sem dauðum. Og til uppbyggingarinnar ætlar hann að verja hluta af geysilegum einkaauðæfum sínum. Svipað hinum sigraða banda- ríska forsetaframbjóðanda og milljarðamæringi Ross Perot trú- ir Hariri því að sér takist að blása aftur lífi í rústaðan ríkisbúskap Líbanon með þeim stjómunar- hæfileikum sem hann hefur þró- að í viðskiptalífinu. Dagblaðið El-Safir í Beirút fagn- aði komu þessa að því er virtist óeigingjama velgjörðamanns með orðunum Jólasveinninn er kominrí'. Og: „Betri forsætisráð- herra gæti Líbanon ekki fengið.“ Áreiðanlega gæti ekkert land fengið óvenjulegri forsætisráð- herra. Jafnvel í Austurlöndum þar sem úir og grúir af litríkum persón- um, sem jafnvel skipta um lit, er litið á súnniska múslimann frá hafnarborginni Sídon í Suður- Líbanon sem undantekningu. Þegar á miðjum sjöunda áratugn- um hafði Hariri, sem er hagfræð- ingur að mennt, ráðið sig sem stærðfræðikennara í saúdisku borginni Jidda, áður en hann freistaði gæfunnar í byggingar- iðnaðinum. Heiðraður með borgararétti í Saúdi- Arabíu Þar sem byggingarmannaherim- ir hans unnu hraðar og betur en áætlað hafði verið, varð Hariri fljótlega gerður að hirðbygging- armeistara. í viðurkenningar- skyni afhenti Fahd konungur honum borgararétt í olíuríkinu — sem er mjög sjaldgæfur heið- ur. Allar götur síðan hefur Hariri ráðið yfir viðskiptastórveldi sem hljótt hefur verið um. Því veldi tilheyra ellefu bankar í Austur- löndum nær, Frakklandi, Sviss og Bandaríkjunum, svo og hlutdeild í dagblöðum og tímaritum í ara- biska heiminum. í um 40 fyrir- tækjum hans starfa u.þ.b. 15.000 starfsmenn og álitið er að alls nemi auðæfi þessa Arabaauðjöf- urs milli fjögurra og níu milljarða þýskra marka. Þó að þessi fjármálasnillingur veiti sér alls kyns munað, þ.á m. Rafik el-Hariri er stórauðugur maöur og hefur sýnt gott viöskiptavit. Tekst honum aö reisa Líbanon úr rústum á skömmum tíma? Líbanir gera sér góð- ar vonir um nýj an forsætisráðherra heimili víða um veröld, tvær Bo- eing 737-þotur, þyrlu og 70 metra lystisnekkju, er ekki litið á hann sem glaumgosa í þotuliðinu eins og saúdi-arabiska athafnamann- inn Adnan Kashoggi, heldur er talað um hann sem góða mann- inn frá Sídon. Þegar meðan á borgarastríðinu stóð, byggði hann á eigin kostnað sjúkrahús og skóla. Skólastyrkir í nafni Hariris hafa frá 1980 gert 30.000 líbönskum stúdentum af öllum trúarbrögðum kleift að stunda nám í Evrópu og Ameríku. Það finnst varla sú líbanska vís- indastofnun eða menningarmið- stöð, sem ekki hefur notið örlætis hans meira eða minna. Hariri hefur m.a.s. tekist að koma sér í mjúkinn hjá hinum voldugu nágrönnum, Sýrlending- um, sem hafa árum saman ráðið stjórnmálastefnunni í Líbanon og hafa þar enn 35.000 manna lið „til að halda uppi lögum og reglu“. Það voru t.d. starfsmenn Hariris, sem reistu nýju höllina fyrir Hafis el-Assad Sýrlandsforseta. Hariri er sagður hafa byggt fjölmörg hemaðarmannvirki á sérlega hag- stæðum skilmálum. Laginn samninga- maður Til þessa hefur Hariri bara kom- ið nærri stjómmálum sem laginn samningamaður, s.s. við undir- búning ráðstefnunnar í Taif, heilsubótarbænum uppi í fjöllum í Saúdi-Arabíu, þar sem stríðandi aðilar í borgarastríðinu í Líbanon komu sér saman um að binda enda á bardagana 1989. Enn búa um 200.000 manns I rústum Beirút. Nú á aö hefjast handa um uppbyggingu borgarinnar og hálfhrundar byggingar fjarlægöar til aö rýma eftirsóttar lóöir. AÐ UTflN Það lítur út fyrir að ástandið sé Hariri í hag, þegar hann tekur við stjómartaumunum. Sýrlendingar gefa kraftaverkamanninum laus- an tauminn. Assad, sem enn hneigist til ríkisáætlunarbúskap- ar, veit að kjörtímabil erkikapítal- istans Hariris er trúlega síðasta tækifærið til að koma fótunum undir ríki sem er orðið stjórn- laust vegna flóttamanna. í stríðs- eyðilagðri Beirút einni búa enn allt að 200.000 manns í rústum. Alþjóðlegir sérfræðingar álíta að uppbygging svæðisins kosti um 50 milljarða marka. Hariri hefur þegar tilkynnt fyrstu áþreifanlegu skrefin í end- urreisninni. Fyrir um 18 millj- arða marka á að byggja Beirút aft- ur upp til að verða miðstöð við- skipta og þjónustu. Persónulega ætlar hann að leggja fram tólf milljarða marka gegn táknræn- um eins prósents vöxtum. „Hann er enginn Móses“ Gagnrýnendur Hariris í Beirút eru þó hræddir um að framlag kaupsýslumannsins slynga sé ekki algerlega óeigingjarnt. Þeir gruna Hariri um að ætla að gera stórborgina að einu allsherjar byggingabrasksvæði. Þegar hafa Arabar úr Persaflóaríkjum keypt langt yfir 100 kjörlóðir og lúxus- byggingar í borginni. Og sagt er að eitt fyrirtækja Hariris hafi tryggt sér 135 hektara af úrvals byggingarlandi. En mikill meirihluti þjóðar sem næstum hafði blætt út í stríði kristinna, múslima, Palestínu- manna og drúsa, svo og meiri- hluti þingsins, sem kaus Hariri til embættis með 98 atkvæðum gegn 128, treysta því að útnefn- ing hans skapi traust. Og Hariri fékk umboð til að fylla allt að því helming ráðherraembættanna með „hæfum tæknikrötum". í fyrri stjórn höfðu fyrst og fremst bardagahertir stríðsherrar og ráðsmenn erfðahöfðingja gefið tóninn. Staðreynd er að líbanska pundið hefur hækkað verulega að verð- gildi síðan Hariri settist í forsæt- isráðherrastólinn. Einnig er því haldið fram að fjölmargir efnaðir Líbanir, sem sest hafa að erlendis, hafi boðað endurkomu sína til heimalandsins þar sem friður er kominn á. Innan örfárra mánaða ætlar Hariri að flytja heim um 15 milljarða þýskra marka af eigin fé, sem geymt hefúr verið í út- löndum. Efasemdamenn eins og fyrrver- andi drúsastríðsherrann og nú- verandi flóttamannaráðherra, Walid Jumblatt, vara við því að vænta kraftaverka eins og getið er um í biblíunni af Harari. „Hann er enginn Móses,“ segir Jumblatt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.