Tíminn - 22.12.1992, Síða 3
Þriðjudagur 22. desember 1992
Tíminn 3
Bifreiðaeigendur þurfa að greiða 17% meira fyrir bensínlítrann eftir áramót en þeir gerðu um
miðjan nóvember eða sem nemur 15.300- 42.840 krónum meira á ári. FÍB:
Allt að 10 krónu hækk-
un á verði hvers lítra
Um áramótin þurfa bfleigendur að greiða 17% meira fyrir bensínið en þeir
borguðu 23. nóvember síðastliðinn. Þá var meðal útsöluverð á bensíniítr-
anum hjá olíufélögunum um 60 krónur miðað við 92, 95 og 98 oktana
bensín en vegna gengislækkunar krónunnar og stóraukinnar skattheimtu
rfldssjóðs hækkar meðalverð hvers bensínlítra væntanlega uppí rúmar 70
krónur.
Óveðurs-
kvellur
i Reykjavík
Slæmt veður reið yfir vestan-
vert landið aðfaranótt sunnu-
dags. Götur Reykjavtkur urðu
ófærar vegna hríðar og sáu
menn ekki handa sinna skiL
Þeir sem voru á leið frá yeit-
ingastöðum borgarinnar leit-
uðu margir hæfis í Fríkirkj-
unni í Reykjavík og er talið að
þar hafl verið hátt I 700
manns þegar flest var. Leigu-
bflar hættu að ganga og voru
hjálparsveitir og hópferðabif-
reiðar fengnar til að liðsinna
fólki. -HÞ
Snjóflóð á
þjónustu-
miðstöð ÍR
Milijónatjón varð aðfaranótt
sunnudags er snjóflóð hreif
með sér 70 fermetra þjón-
ustumiðstöð ÍR á skíðasvæði
félagsins í Hamragili.
Flóðið var öflugt þar sem það
splundraði húsinu og sópaði
brakánu niður að skemmu
sem stendur tugum metra
neðar f svokölluðu Karlagili.
Stjómtæki og ýmis búnaður
voru f þjónustumiðstöðinni
sem gjöreyðilagðisL Búist er
við að tjónið fáist bætt þar
sem húsið var vátryggt -HÞ
Samkvæmt útreikningum Félags
íslenskra bifreiðaeigenda hækkar
þetta rekstrarkostnað bifreiðaeig-
enda frá 15.300 krónum og allt upp í
42.840 á ári eftir því hvaða bifreiðar
eiga í hlut.
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri FÍB, segir að af þessum 17% sé
hlutur ríkisins rúm 11%. Sökum
gengisfellingarinnar hækkaði verð á
bensíni um 3,5% þann 24. nóvem-
ber sl. og aftur í byrjun desember
um 3% vegna hækkunar besnín-
gjalds um 1 krónu og 50. Þetta gjald
á svo að hækka um tvær krónur til
viðbótar um áramótin til að mæta
auknum kostnaði Vegagerðarinnar,
m.a. vegna yfirtöku á rekstri á ferja
og flóabáta, sem hækkar bensín-
verðið um 2%. Ofaná þetta bætast
svo stórauknar álögur á bensínið til
að afla ríkissjóði enn meiri tekna
samkvæmt tiílögum frá meirihluta
fjárlaganefndar sem mun hafa í för
með sér 5-6% hækkun á bensín-
verði.
Framkvæmdastjóri FÍB segir að
þessi hækkun á verði bensínlítrans
muni bitna einna mest á barnafjöl-
skyldum og einstæðum foreldrum
og öðrum þeim sem þurfa að nota
mikið bfl til að komast ferða sinna.
Þá sé einnig viðbúið að þessar hækk-
anir muni leiða til hækkunar á ým-
iss konar annarri starfsemi og þjón-
ustu í samfélaginu.
Runólfur segir að bíleigendur muni
án efa ekki taka þessum auknu álög-
um með þegjandi þögninnni enda sé
nú svo komið að 20% af tekjum rík-
isins séu fengin á einn eða annan
hátt með skattheimtu á bíla. Hins
vegar sé erfitt að skora á fólk að
leggja bílum sínum í mótmælaskyni
sökum mikilvægi hans í hinu dag-
lega lífi.
„Þessi árátta stjórnvalda að íþyngja
bifreiðaeigendum sífellt með auk-
inni skattheimtu ber með sér ákaf-
lega mikla hugmyndafátækt og svo
virðist sem þingmenn hafi sofnað
með því að telja bfla á rúntinum úr
gluggum Alþingishússins," segir
framkvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda.
-grh
Verslunarráð mótmælir að landsútsvar skuli ekki vera
fellt niður um leið og aðstöðugjald:
Þýöir skatta-
lega mismun-
un fyrirtækja
Verslunarráð íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem þeirri ákvörðun rík-
isstjómarinnar að fella ekki niður landsútsvar með sama hætti og aðstöðu-
gjald er harðlega mótmælL Vinnuveitendasamband íslands hefur lýst því yf-
ir að það íhugi að kæra til dómstóla þá skattalega mismunun sem í þessu
felsL
Landsútsvar er í raun sami skatt-
ur og aðstöðugjald. Landsútsvar er
hins vegar lagt á fyrirtæki sem talin
eru vera með starfsemi víða um
landið og rennur það í jöfnunarsjóð
sveitarfélaga en ekki til tiltekins
sveitarfélags. Dæmi um þessi fyrir-
tæki eru Jámblendiverksmiðjan á
Gmndartanga og Áburðarverk-
smiðjan í Gufúnesi.
Verslunarráð telur að með því að
fella ekki niður landsútsvarið sam-
hliða aðstöðugjaldinu sé verið að
mismuna í skattlagningu fyrirtækja.
Vafasamt sé hvort þessi mismunun
samrýmist jafnræðisreglu stjórnar-
skrárinnar.
Verslunarráð bendir á að nokkur
fyrirtæki sem nú bera landsútsvar
em almenningshlutafélög og em
skráð á hlutabréfamarkaði. Slík
skattaleg mismunun sem ríkis-
stjómin Ieggur nú til muni gera það
að verkum að ársreikningar og tölur
úr rekstri þessara fyrirtækja verða
ekki samanburðarhæfar við reikn-
inga annarra hlutafélaga. -EÓ
Markmið ríkisstjórnarinnar um einkavæðingu nást ekki:
242 af 500
milljónum
hafa skilað sér
í lok október hafði stjómvöldum tekist að selja ríkiseignir fyrir 242
mifijónir. Upphaflegt markmið var 1,1 milljarður en í fjáraukalögum var
þessi upphæð færð niðurí 500 mifijónir. Óvíst er að þessu markmiði
verði náð.
Athyglisvert er að stærstur hluti
eignasölunnar er vegna sölu á
fasteignum. Enn sem komið er
virðist einkavæðingin því aðal-
lega felast í því að selja hús.
Sala á fasteignum hafði um
miðjan október skilað 101 millj-
ón. Framleiðsludeild ÁTVR var
seld fyrir 19 milljónir. Hlutabréf
í prentsmiðjunni Gutenberg
voru seld fyrir 86 milljónir. 17
milljónir voru komnar í ríkissjóð
á þessum tíma vegna sölu á
hlutabréfum ríkissjóðs f Jarðbor-
unum hf. Hlutabréf í Ferðaskrif-
stofu íslands voru seld fyrir 19
milljónir. Samtals eru þetta 242
milljónir.
Fyrir lok ársins var áformað að
selja hlutabréf í Þróunarfélagi ís-
lands og íslenskri endurtrygg-
ingu. Vonast er til að þegar upp
verði staðið fáist um 130 millj-
ónir fyrir hlutabréfin í Jarðbor-
unum hf.
-EÓ
mannaeyjum
MUljónatjón varð er eldur
kom upp í veitingahúsinu
Skútanum í Vestinannaeyj-
um í gærmorgun.
Það var snemma í gær-
morgun er vart varð við eld-
inn. Svo virðist sem kviknað
hafi f rafmagnstöfiu á neðstu
hæð hússins sem er þrjár
hæðir. Eldur varð ekki mikill
en mestar skemmdir urðu af
völdum sóts og vatns. Unnið
var að rannsókn málsins í
gær.
-HÞ
Opið alla daga frá kl. 10-18
Þorláksmessu frá kl. 10-20
STORIUSTINN
VERSLUNOG PÓSTVERSLUN
Baldursgötu 32
sími 622335.