Tíminn - 22.12.1992, Side 8

Tíminn - 22.12.1992, Side 8
8 Tíminn Þriöjudagur 22. desember 1992 FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF Jólaalmanak SUF Eflirfarandi númer hafa hlotið vinning i jólaalmanaki SUF: 1. desemben 525, 3570. 2. desember: 3686, 1673. 3. desember: 4141, 1878. 4. desemben 1484, 2428. 5. desember 683, 3056. 6. desember: 5403, 2389. 7. desember 3952, 5514. 8. desember 4342, 4341. 9. desember: 4340, 5169. 10. desemben 5060, 289. 11. desember 1162, 1601. 12. desember 1235, 522. 13. desember 4723, 2429 14. desember: 288,2834. 15. desember 1334, 4711. 16. desember: 2833, 4710 17. desember 3672,1605. 18. desember: 3235, 4148. 19. desember 3243, 2497. 20. desember 1629,1879. 21. desember: 1676, 1409. Reykjanes Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Digranesvegi 12, Kópavogi er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 17.00-19.00, simi 43222. Borgarnes — Breyttur opnunartími Frá og með 1. október verður opið hús I Framsóknarhúsinu að Brákarbraut 1 á þriðju- dögum frá kl. 20.30 til 21.30, en ekki á mánudagskvöldum eins og verið hefur undan- farin ár. Bæjarfulltrúar flokksins munu verða til viötals á þessum tlma og ennfremur eru allir, sem vilja ræða bæjarmálin og landsmálin, velkomnir. Að sjálfsögðu veröur hellt á könnuna eftir þörfum. Framsóknarfélag Borgarness. Kópavogur — Opid hús Framsóknarfélögin i Kópavogi hafa opið hús á laugardögum kl. 10-12 að Digranes- vegi 12. Litið inn, fáið ykkur kaffisopa og spjallið. Framsóknarfélögin Skrifstofur Framkvæmdasjóðs íslands eru fluttar að Hverfisgötu 6, 2.hæð, sími (91) 62 40 70, fax (91) 62 60 68 LANASYSLA RIKISINS A Lausar stöður við leikskóla Leikskólinn Fagrabrekka v/Fögrubrekkur. Lausar eru stöður fóstra frá 1. febrúar 1993. Verið er að taka í notkun viðbótarhúsnæði við leikskólann og bæta við börnum og starfsfólki. Komið eða hringið og kynnið ykkur starfið, sem miðast við sérstakt fyrirkomulag húsnæðis. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Sólveig Aðalsteinsdóttir, í síma 42560. Einnig óskast fóstrur í leikskólana: Álfaheiði v/Álfaheiði, sími: 642520. Kópastein v/Hábraut, sími: 641565. Marbakka v/Marbakkabraut, sími: 641112. Upplýsingar gefa leikskólastjórar viðkomandi leikskóla. Til greina kemur að ráða fólk með aðra uppeldismenntun í stöðurnar. Ennfremur veitir leikskólafulltrúi upplýsingar í síma: 45700. Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást í Fann- borg 4, Kópavogi, og í leikskólum. Starfsmannastjóri. Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska bírtingar á afmælis- og/eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveiraur dögum fyrir birtingardag. Þœr þttrfa að vera vélritaðar. F att og smátt Linda Vilhjálmsdóttir: Klakabörnin, Mál og menning, 1992. Þetta er lítið ljóðakver, 31 blaðsíða og hefur að geyma 25 ljóð, auk titil- síðu og efnisyfirlits. Ljóðin eru smá- gerð og átakalítil, þannig að ekki verður sagt að hér sé á ferðinni efn- ismikil bók. Raunar er það svo, að ætti kver af þessari stærðargráðu að standa undir því að mega heita marktæk ljóðabók, þá yrði hvert og eitt einasta af Ijóðunum að nálgast það að vera snilldarverk. Hvorki meira né minna. En því getur ekki talist vera þannig farið. Hér er vissulega ýmislegt smellið og laglega gert. Höfundur yrkir opinskátt, leikur sér að hug- myndum sínum og fer alls ekki illa með formið. Meira að segja endar hún bókina á nokkuð lipurlega ortri sonnettu, þótt ekki sé hún tiltakan- lega markviss eða efnismikil. Svo hins góða sé getið, þá eru þama framarlega í bókinni ljóðin Nótt — Eitt, Nótt — Tvö og Nótt — Þrjú, sem leggja má út af á ýmsa vegu, en virðast í fljótu bragði eink- um eiga að túlka glaðsinna stúlku sem í einhvers konar ástargalsa reynir að draga karlmann á tálar. Vissulega áhugavert yrkisefni. Og líka fann ég þama smekklega gert smáljóð sem heitir Móna Lísa og er kallað „fyrsta mósaíkmynd handa Kristjáni Steingrími". Þar segir: „þennan morgun reis regnbogi úr sjónum við vesturenda engeyjar/ og stakk sér niður við austurendann á vesturey viðeyjar/ hafi rignt rigndi í nafni guðs/ ösku og sandi og kalki/ hvað hafði gerst nóttina á undan?“ Ég hafði dálítið gaman af þessari mynd af regnboganum hér úti á sundunum við Reykjavík, þótt ég ætti hins vegar nokkuð erfitt með að koma henni heim og saman við Mónu Lísu, þessa einkennilegu rigningu og þær mósaíkmyndir sem ég hef séð. En hitt er annað mál að það þarf miklu meira en þetta til að gera marktæka ljóðabók. Eiginlega skilur maður ekki í jafn virtu forlagi og Máli og menningu að átta sig ekki á þessu. Mörg af þessum ljóðum hefðu sómt sér með mestu prýði í Tímaritinu hjá þeim, en til alvöru Ijóðabóka, til sölu á almennum markaði, verður að gera stærri kröf- ur en þessar. Það er búið að yrkja heil reiðinnar býsn af framúrskar- andi góðum ljóðum á íslensku í meir en þúsund ár og gefa út geysi- legan fjöída af ágætum ljóðabókum. Þess vegna er samkeppnin við liðna tímann allt of hörð til þess að hægt sé að bjóða bókakaupendum svona lagað. Eysteinn Sigurðsson A hæstri hátíð Nýverið gaf Söngsveitin Fílharmón- ía út geisladisk með 22 söngvum í tilefni jólanna, „Á hæstri hátíð“. ÚI- rik Ólason stjórnar kómum og 15 manna kammersveit, en Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur einsöng með söngsveitinni í sjö lögum. Söngvar þessir eru af efriisskrá aðventutón- leika undanfarinna ára, lög sem eru hvers manns hugljúfi, íslensk og er- lend, gömul og ný. Upptökurnar vom gerðar í Langholtskirkju lyrr á þessu ári. Nú gætu menn ætlað, að 22 söngv- ar geistlegs eðlis væm nokkuð stór skammtur og einhæfur til að inn- byrða í einni samfelldri röð. En svo TÓNLIST _________________/ er þó alls ekki, nema síður sé. Söngvarnir em að vísu allir Maríu guðsmóður og Jesúbarninu til dýrð- ar, en þeir em svo margvíslegir og mismunandi að því fer fjarri að þeir séu leiðigjarnir. Þar kemur líka margt til frá flytjendanna hendi: kórinn syngur fagurlega, þarna er einleikur á hörpu, trompet og óbó, margvíslegar útsetningar og ein- söngur Sigrúnar Hjálmtýsdóttur. Þetta er semsagt bæði fallegur disk- ur og skemmtilegur, fjölbreytilegur og ágætur og til þess fallinn að lýsa upp skammdegið. Tilvalin jólagjöf handa sjálfum sér ekki síður en öðr- um. Sig.St. Óttar Guðmundssoru íslendingar og áfengi í 1100 ár Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér bókina Tíminn og tárið, íslend- ingar og áfengi í 1100 ár eftir Óttar Guðmundsson lækni. Hann hefur um árabil ritað greinar um læknis- fræðileg efni f blöð, en þetta er önnur bókin sem hann sendir frá sér, þvf fyrir tveimur árum kom út „íslenska kynlífsbókin" frá hans hendi. I bókinni varpar höfundur nýju ljósi á leynda staði f sögu íslendinga og dregur fram í dagsljósið sérstæðar heimildir sem hingað til hefur verið hljótt um. Hér eru rakin örlög Jónas- ar Hallgrímssonar, Kristjáns Fjalla- skálds og Sigurðar Breiðfjörð, að ógleymdum frásögnum af voveifleg- um endalokum íslenskra náms- manna í Kaupmannahöfn þegar draumar slokknuðu f síkjum. Einnig er í bókinni gerð skýr grein fyrir þró- un alkohólisma, allt frá því að ungt fólk byrjar að drekka í því skyni að veita tilfinningunum útrás, og þar til morgunskjálfti, afréttarar og túra- drykkja verða daglegt brauð. Hér er að finna greinargóða lýsingu á vam- arháttum alkohólista, átökum í fjöl- skyldulífi, og þeirri von sem felst f áfengismeðferð. í kynningu Forlagsins segir m.a.: „í gleði og sorg hefur áfengi verið fylgi- nautur mannsins. Á öllum tfmum hafa menn heillast af töframætti víns- ins. En þessari dýrðlegu nautn fylgir hætta sem allir þekkja — óskaveröld vímunnar verður aðlaðandi í saman- burði við veruleikóinn. Þessi áhrifa- mikla og sérstæða bók geymir ein- stæðan sögulegan fróðleik, og dregn- ar eru upp bæði broslegar og átakan- legar myndir af tvöföldu andliti vím- unnar — í sælu og kvöl." „Tíminn og tárið" er 320 bls., prýdd miklum fjölda mynda. Grafft hf. hannaði kápu. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. Verð: 3.480 kr. Gyðjur og konur Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út bókina Óðurinn um Evu eftir ítalska mannfræðinginn Manuelu Dunn Mascetti. Sr. Hanna Marfa Péturs- dóttir ritar formála að íslensku útgáf- unni, en Guðrún J. Bachmann þýddi. í þessari bók er fjallað um hinar kvenlegu rætur vestrænnar menning- ar f þvf skyni að örva skilning les- enda á inntaki fomra sagna um gyðj- ur og konur. Gyðjan var eitt sinn ráð- andi afl f vestrænni menningu, en hefur síðan nær horfið í þoku áranna. Nú á dögum hefur áhugi á þessum fomu sögum vaknað á ný og f Ijós kemur að þær geta enn veitt leiðsögn í daglegu lífi okkar. í kynningu Forlagsins segir: „Sög- umar af gyðjunum kenna okkur að tigna visku, fegurð og styrk hins kvenlega, f gyðjunum búa eiginleikar sem eiga sér hliðstæður í persónu- leika hverrar konu og þannig verður ferðin um heim gyðjusagnanna til þess að dýpka skilning kvenna á sjálfum sér — til að uppgötva á ný þá gyðju sem býr í hverri konu." „Óðurinn um Evu" er 240 bls., prýdd tæplega 200 myndum, sem flestar em f lit. Bókin er prentuð á Spáni. Verð 2.880 kr. Þorgeir Ibsen Hreint og beint ljóð og Ijóðlíki Ljóðlíki Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur sent frá sér bókina Hreint og beint — Ljóð og ljóðlíki eftir Þorgeir Ibsen í Hafnarfirði. Á bókarkápu segir: „Nýr ljóðahöf- undur ýtir hér úr vör — þótt seint sé — með ljóðabók, sem hann kallar Hreint og beint. Þar eru famar troðn- ar slóðir í hefðbundnum stíl, en ný- stárlegum þó um sumt. Höfundur á það til að víkja af alfaraleið f ljóðum sfnum, einkum f þeim ljóðum sem hann nefnir ljóðlfld en ekki ljóð með þvf fororði að ljóðlfki geti ekki kallast ljóð fremur en smjörlíki smjör. En ljóðlíki hans eru samt allrar athygli verð og virðast standa vel fyrir sfnu. Þar ber kvæðið Minning greinilega hæst — ljóðlíki eins og höfundur nefnir það um Stein Steinarr, um at- vik f Iffi hans sem er á fárra vitorði, atvik sem aldrei hefur verið lýst áður eða frásögn um það á þrykk komist." „Hreint og beint" var sett og prent- uð í Prentbergi, Kópavogi, og bundin í Félagsbókbandinu-Bókfelli. Kápu teiknaði Auglýsingastofa Guðrúnar Önnu. Bókin er 96 bls. að stærð.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.