Tíminn - 22.12.1992, Side 8
8 Tíminn
JÓLABLAÐ 1992
Skjildcratrkl Sxlna BJOrr«»on«r
SVEINN
BJÖRNSSON
ÁSGEIR
ÁSGEIRSSON
DR. KRISTJÁN
ELDJÁRN
S R. BJARNI
JÓNSSON
Sveinn Björnsson hlaut framangreint orðu-
stig 2. júní 1924 og næsta ár lét hann gera
sér skjaldarmerki. Merkið gerði Hans Chr.
Caspersen. Er það yddur skjöldur, blár að
mestum hluta, en skjaldarsporðurinn rauður
og silfurrönd milli rauða og bláa litarins og
silfur (hvít) rönd utan með skildinum öllum.
Á skjöldinn er dreginn hvítabjörn, sem
stendur á afturfótum. Efst í hægra homi
skjaldarins er einnig hvítabjörn. Einkunnar-
orð, ofan skjaldarins, eru: Sjálfur leið sjálfan
þik.
Ásgeir Ásgeirsson varð riddari af Fílsorðunni
5. aprfl 1954. Skjaldarmerki hans er gert af
hinum konunglega danska skjaldarmerkja-
málara Franz Sedivy. Merkið er sverð og
skjöldur. Skjöldurinn er að lögun eins og
skjöldurinn í íslenska skjaldarmerkinu, skipt
í þrjá langreiti, bláan, rauðan og grænan. í
miðreitnum rauða er silfurlitt sverð. Yfir
skildinum eru einkunnarorð á latínu: CARPE
DIEM (Nýttu þér daginn). í boga umhverfis
skjöldinn stendur: DOM. ÁSGEIR ÁSGEIRS-
SON, PRAESES REIPUBL. ISLANDIAE. DIE
V APRILIS AN. MCMLIV. í öðrum boga um-
hverfis skjöldinn er máluð stórmeistarakeðja
Fflsorðunnar.
Dr. Kristján Eldjárn hlaut Fflsorðuna 2.
september 1970. Merkið er yddur skjöldur
með gulum neista við skjaldarsporðinn og
fomum eldfærum (eldjárn) ofar. Skjöldurinn
er blár, en einnig er í merkinu rauður litur
og hvítur. í boga umhverfis skjöldinn er letr-
að: DOM. KRISTJÁN ELDJÁRN, PRAESES
REIPUBLICAE ISLANDIAE. DIE II SEPT. AN.
MCMLXX. Skjaldarmerkið er gert af dönsk-
um kgl. skjaldarmerkjamálara Aage Wulff. —
í boga umhverfis skjaldarmerkið er máluð
stórmeistarakeðja Fflsorðunnar.
Sr. Bjarni Jónsson vígslubiskup var sæmdur
stórkrossi Dannebrogsorðunnar 4. desember
1958. Franz Sedivy gerði skjaldarmerki hans
eftir hugmynd Harðar Bjarnasonar, húsa-
meistara ríkisins. Skjöldurinn er blár, fer-
hymdur með mjög Iitlum sporði. Á skildin-
um miðjum er tvöfaldur hringur, sem skerst
af jafnarma, gylltum krossi, er nær út fyrir
hringinn á alla fjóra vegu. Yfir skildinum er
biskupsmítur, en bagall sitt hvorum megin.
Liggja þeir í kross á bak við skjöldinn og ná
niður fyrir hann. Fyrir neðan skjöldinn
standa þessi einkunnarorð: VIGILATE,
STATEIN FIDE (Vakið, standið stöðugir í
trúnni). Á skildinum stendur: DOM. BJARNI
JÓNSSON. DIE IV DECBR. MCMVIII. — Ein-
kunnarorðin eru úr 1. Korintubréfi 16,3.
ISLENSK SKJALDAR-
MERKI EINSTAKLINGA
Fyrr á öldum höfðu nokkrir Islendingar skjald-
armerki. Á siðari tímum hafa einnig fáeinir Is-
lendingar látið gera sér skjaldarmerki og liggja
ti þess tvær ástæöur: Þegar farið var að veita
Islendingum stórkross Dannebrogsorðunnar
dönsku, þá bar þeim samkvæmt reglum orð-
unnar að láta gera sér skjaldarmerki. I öðru
lagi bar þeim, sem urðu riddarar af Filsorö-
unni, aö láta gera sér slíkt merki.
Af þessum ástæöum eru til nokkur skjaldar-
merki íslenskra manna frá síðari tímum, þótt
ýmsir, sem samkvæmt reglunum hefðu átt að
taka sér skjaldarmerki, hafi látið þaö undir höf-
uö leggjast.
Einungis þrír íslenskir menn hafa hlotið Fils-
orðuna. Eru það forsetar (slands, er fóru I op-
inbera heimsókn til þjóðhöfðingja Dana: Ásgeir
Ásgeirsson, dr. Kristján Eldjárn og Vigdis Finn-
bogadóttir. Þau hafa öll látiö gera sér skjaldar-
merki. Sveinn Björnsson, fyrsti forseti Islands,
fór aftur á móti aldrei í opinbera heimsókn til
Danmerkur, þótt hann ætlaöi sér þaö, en
heilsa hans leyföi það ekki. Aftur á móti lét
hann gera sér skjaldarmerki, er hann hlaut
stórkross Dannebrogsorðunnar skömmu eftir
að hann lét af sendiherraembætti i Danmörku
hið fyrra sinn.
I Friðriksborgarhöll i Hilleröd í Danmörku
hanga á veggjum skjaldarmerki riddara af Fíls-
orðunni og stórkrossriddara af Dannebrogs-
orðunni, þ.á m. skjaldarmerki Islendinga. Þeir
Islendingar eru þó margir, sem hlotið hafa
stórkross Dannebrogsorðunnar, en hafa ekki
látið gera sér skjaldarmerki, þótt til þess sé
ætlast.
Ýmsar upplýsingar í sambandi við framanrit-
að hef ég fengið frá Orðuskrifstofunni í Kaup-
mannahöfn, en eins og áður segir þýddi dr.
Jakob Benediktsson latnesku einkunnarorðin.
JÓN
ÞORLÁKS S ON
Jón Þorláksson forsætisráðherra var sæmd-
ur stórkrossi Dannebrogsorðunnar 5. sept-
ember 1927. Skjaldarmerki hans gerði Get-
her Caspersen árið 1929. Skjöldurinn er
bogadreginn að neðan. Miöhlutinn frá
skjaldarsporði upp að skjaldarmiðju er blár
flötur, bogadreginn að ofan, eins og stórt
dyraop með hvítu skyggni yfir. Sitt til hvorr-
ar hliðar við „dyraopið" er hvít múrsteins-
hleðsla. Efri hluti skjaldarins er blár, en efri
og neðri hluti er aðgreindur með þverrönd
blárra og hvítra tígla. Yfir skildinum eru ein-
kunnarorðin: SECURITAS PRIMUM (öryggi
framar öllu).
(kjaUaratim CuðauiuUr J. KfUil
Pö»t- 0( •loMlUatjðro
GUÐMUNDUR J.
HLÍÐDAL
Guðmundur J. Hlíðdal, póst- og símamála-
stjóri, var sæmdur stórkrossi Dannebrogs-
orðunnar 10. aprfl 1956. Skjaldarmerki hans
er gert af Franz Sedivy. Skjöldurinn er blár,
oddmyndaður, og á honum hvítur svanur
sem breiðir úr vængjum, og fyrir framan
svaninn þrjár hvítar (silfraðar) þverrendur
sem bylgjast. Yfir skildinum eru þessi ein-
kunnarorð: PER ARDUUM AD ASTRA (erfið
er leið til upphæða). Á skjöldinn er skráð:
DOM. GUÐMUNDUR J. HLÍÐDAL. DIE X
APRILIS AN. MCMLVI. — í einkunnarorðun-
um er ritað arduum, en rétt væri ardua.
Skj«Uan>«rkt Or. Mtur» NturiHMt
DR. PÉTUR
PÉTURSSON
BISKUP
Fyrstur íslendinga hlaut dr. Pétur Péturs-
son biskup stórkross Dannebrogsorðunnar,
16. aprfl 1889. Skjaldarmerki hans er hvítur
fálki á bláum skildi og bak við og upp af
skildinum eru mítur, bagall og krossmark.
Bagallinn og stöng sú, sem ber krossmarkið,
liggja í kross bak við skjöldinn og ná stang-
arendarnir niður fyrir hann. Undir skildin-
um eru þessi einkunnarorð: PERARDUAAD
ASTRA (Erfið er leið til upphæða. Þýðingin
gæti eins verið: Enginn verður óbarinn bisk-
up).
Eftir
Birgi Thorlacius